Morgunblaðið - 02.04.1969, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1968
3
■xwxx •
Séð yfir völlinn, meðan Austur- og Vesturbaeingar kepptu í ísknattleik.
sagði frú Katrín Viðar,
vígslu Skautahallarinnar
FJÓLDI gesta var við opnun
Skautahallarinnar í gær, þar
á meðal borgarstjóri, Geir
Hallgrímsson, og ýmsir framá
menn borgarinnar aðrir, svo
og forystumenn íþróttahreyf-
ingarinnar o.fl. í gærkvöldi
var höllin svo opnuð almenn-
ingi. Þórir Jónsson einn af
forstöðumönnum Skautahall-
arinnar flutti ávarp, rakti að-
dragandann að þvi, að málið
varð til lykta leitt og rifjaði
upp, að mörg ár væru nú lið-
in, síðan sú hugmynd gerði
fyrst vart við sig, að Reyk-
vikingum væri nauðsyn á að
koma sér upp Skautahöll.
Einnig flutti Gísli Halldórs-
son, forseti ÍSÍ, ávarp og árn-
aðaróskir.
Frú Katrín Viðar renndi
sér fyrst inn á svellið en á
eftir komu félagar í Skauta-
félagi Reykjavíkur. Að því
búnu fór fram kcppni í ís-
knattleik og áttutsi við lið
Vesturbæjar og Austurbæjar.
Var þar barizt af kappi og
höfðu áhorfendur gaman af.
Austurbæingar sigruðu með
fimm mörkum gegn fjórum.
M'b'i. hitti frú Katrínu Við-
ar að máli og hún sagðist
vera ákaflega ánægð með að
langþráður draumur félaga í
Skautafélaginu Ihefði nú
rætzt.
— Ég get ekki sagt annað
en það, að mér finnst svellið
mjög gott og aðstaðan er í
hvívetna til fyrirmyndar. Það
er enginn efi á því, að þetta
verður mikil lýftistöng fy.rir
-kautaíþróttina. Ég ér viss
um að bæði börn og fullorðnir
munu njóta þess að koma hér,
enda er skautaíþróttin ekki
aðeins falleg'ust allra í'þrótta,
hún er líka ákaflega holl og
styrkjandi. Nú eru vist liðin
um 28 ár, síðan því var hreyft
í félaginu okkar að koma upp
slíkri höll, þó að við höfum
aldrei haft bolmagn til að
ráðast í slíkt fyrirtæki.
Og Ágúú Karlsson, fo-mað
ur Skautafélagsins var ekki
síður ánægður og sagði:
— Við erum að sjálfsögðu
í sjöunda 'himni og væntum
Framhald á bls. 31.
Katrin Viðar vígði svellið. Hér afhendir hún Þóri Jónssyni
forstöðumanni, blómvönd.
STAKSTEISVAR
FYrirspurn
Á landsfundi hins endurskipti-
lagða Kommúnistaflokks, sem
haldinn var í nóvembermánuði
sl. var Ólafur Jensson, læknir,
kjörinn í miðstjórn flokksins. Á
þeim fundi voru einnig sam-
þykkt lög flokksins, þar sem rik
áherzla er lögð á það, að meðlimir
flokksins megi ekki vera i öðr-
um stjórnmálasamtökum. Þetta
lagaákvæði tók gildi hinn 1. jan
úar sl. í samræmi við það sögðu
ýmsir af helztu forustumönnum
kommúnistaflokksins sig úr öðr-
um stjórnmálasamtökum, sem
þeir höfðu verið í, þ.e. Sósíalista
félagi Reykjavíkur. í þeim hópi
má nefna Guðmund Vigfússon,
borgarfulltrúa. Annar hópur
manna ætlaði að bera kápuna á
báðum öxlum og brjóta þar með
lög hins „nýja“ flokks. Þessir
menn létu í veðri vaka, að Sós-
íalistafélag Reykjavíkur væri
ekki til og héldu fast við þá
skoðun þrátt fyrir itrekaðar yf-
irlýsingar frá stjórn þessa félags ■'
skapar um það að félagið hefði
aldrei verið lagt niður. Loks kom
að því að þessi hópur gaf opin-
bera yfirlýsingu og skar á tengsl
sín við Sósíalistafélag Reykjavík
ur. Einn þeirra manna, sem yfir-
gaf Sósíalistafélag Reykjavíkur
með svo eymingjalegum hætti
var Magnús Kjartansson. Enn eru
hins vegar menn, sem gegna mik
ilvægum trúnaðarstöðum í Komm
únistaflokknum en hafa ekki sagt
sig úr Sósíalistafélagi Reykjavík-
ur. Þannig er t.d. um miðstjórn-
armanninn Ólaf Jensson. Nú skal
þeirri fyrirspurn beint til for-
ustumanna Kommúnistaflokksins
hvort þeir ætli að láta meðlim-
um Sósíalistafélags Reykjavíkw
haldazt uppi að brjóta lög Komm
únistaflokksins og hafa þau að
engu. Frá sjónarmiði Sósialista-
félags Reykjavíkur er hér vafa-
laust um kærkomið tækifæri að
ræða til þess að fylgjast með því,
sem gerist í Kommúnistaflokkn-
um og hafa áhrif á gang mála
þar. Menn á borð við Ólaf Jens-
son eru því eins konar útsendar-
ar Sósíalistafélags Reykjavikur í
öðrum stjórnmálasamtökum. Það
er skiljanlegt að Snsialistafélag
Reykjavíkur uni vel þessu fyrir-
komulagi en hvað um hina „nýju“
forustu Kommúnistaflokksins?
Hvenær verður
þeim sagt upp?
Sósíalistaflokkurinn sálugi átti
töluverðar eignir. dagblað o.fl.
Nú er búið að koma blaðinu und
an, þannig að vondu mennirnir
í Sósíalistafélagi Reykjavíkur
nái ekki tökum á því. Húseignin
við Tjarnargötu 20 hefur hins
vegar jafnan verið í eigu svo-
■ nefnds Sigfúsarsjóðs og núver-
*ndi ráðamenn Kommú istaflokks
ins hafa tryggt sér yfirráð yfir
þeim sjóði, þannig að Tjarnar-
gata 20 er í þeirra liöndum. Nú
er svo málum komið að í Tjarn-
argötu 20 hafa aðsetur stjórn-
málasamtök, sem eru Kommún-
istaflokknum andstæð. Það eru
Sósíalistafélag Reykjavíkur og
Æskulýðsfylkingin. Telja verð-
ur mjög líklegt, að þessir aðilar
muni beita sér fyrir framboði
í næstu kosningum, sem auðvit-
að verður fyrst og fremst beint
' gegn Kommúnistaflokknum. í
; ljósi þessara staðreynda bíða
menn þessmeð nokkurri eftirvænt
ingu hve lengi gestrisni stjórnar
Sigfúsarsjóðs varir og hvenær
Sósíalistafélagi Reykjavíkur og
Æskulýðsfylkingunni verður sagt
upp húsnæðinu. Varla er hægt
að búast við því að stjórnarmenn
Sigfúsarsjóðs, sem jafnframt eru
áhrifaaðilar í Kommúnistaflokkn
um láti það óátalið' til lengdar að
húsakynnum og annarri aðstöðu
í Tjarnargötu 20 verði beitt í
baráttunni gegn eigendum húss-
ins?
HAPPDRÆTTI SlBS
1969
Dregið 8. apríi
Umboðsmenn geyma ekki miða viðskiptavina fram yfir dráttardag.
Athugið að endurnýja fyrir páskahelgina.
ENDURNÝJUN LÝKUR A HADEGI DRATTARDAGS
V
*
V