Morgunblaðið - 02.04.1969, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 19«9
23
FRÉTTA-
MYNDIR
Frú Mamie Eisenhower og sonur hennar, John, koma til dóm-
kirkjunnar í Washington þar sem kista Eisenhowers lá á við-
hafnarbörum.
Harold Wilson forsætisráðherr a Bretlands heimsótti Nígeriu fyrir helgina, en fór þaðan á mánu-
dag til Eþíópiu. Þessi mynd var tekin í Udi í Suðaustur Nígeríu þar sem ráðherrann hitti flótta-
fólkfrá Biafra.
Kista Eisenliowers í dómkirkjunni í Washington.
Fyrir helgina varð járnbrautars lys skammt frá Belgrad, höfuðborg Júgóslaviu. Rakst þar Sara-
jevo-hraðlestin á kyrrstæða flut ningalest með þeim afleiðingum að tveir farþegar fórust, en 15
slösuðust alvarlega.
Nixon forseti kemur ásamt konu sinni og Triciu dóttur þeirra til
Walter sjúkrahússins skömmu eftir lát Eisenhowers fyrrum for-
seta.
Víða komu jarðsprungur í skjálftunum i Tyrklandi á föstudag, ogsést hér þjóðvegurinn frá Izmir
til Denizli.
Miklir jarðskjálftar urðu í Tyrklandi á föstudag, og fórust rúmlega 50 manns en um 300 særð-
ust. Talið er að um 1300 hús hafi gjöreyðilagst, og sést hér eitt þeirra.