Morgunblaðið - 02.04.1969, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 02.04.1969, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. APRIL 1969 25 Frímerkjakynning LfF og Æskulýðsráðs íslenzk frímerkjasöfn hlutu verðlaun MIÐVIKUDAGINN 2. apríl verð- ur haldin sérstök kynning á frí- merkjum og söfnun þeirra, að Fríkirkjuvegi 11, klukkan 14.00, í fundarsal í kjallara hússina, en þar va.r í haust frímerkjasýning- in „DIJEX-68“. Aðilar að þessari kynningu eru: Æskulýðsráð Reykjavíkur, Landssambandið og Frímerkja- klúbbur Æskunnar, ásamt frí- merkjaklúbbi Æskulýðsráðs Kópavogs, s^pi er elzti frímerkja klúbbur starfandi í landinu. i*á má og geta þess, að frímerkja- klúbbur Æskunnar er sá stærstl sem starfandi er hérlendis, með á þriðja hundrað meðlimi. Kynnt verður söfnun fri- merkja og meðferð í stuttu máli, Merki frímerkjaheimssýningar- innar 1970. en einnig sýndar litskuggamynd- ir og kvikmynd. Þetta er annað stórátakið í samvinnu Æskulýðsráðs og Landssambandsins, að kynningu frímerkjasöfnunar meðal ungl- inga, hið fyrra var frímerkjasýn- ingin á sl. hausti. STARFSÁÆTLUN í höfuðatriðum er starfsáætl- un Landssambandsins á næstu árum sú, að á næsta sumri verði haldin sýning, þar sem kynnt verði hjálpartæki fyrir frímerkja safnara, meðferð og uppsetning frímerkjanna og vinnubrögð við söfnunina. Er ætlunin að sú sýn- ingu opni um miðjan júní. Næsta vetur er svo áætlað að byggja upp nánar kerfi klúbba, bæði unglinga og fullorðinna, um landið. Þá er áætlað að halda stóra frímerkjasýningu vorið 1970 á 100 ára afmæli þess að opnuð voru pósthúsin í Reykjavík og á Seyðisfirði. Verða beztu söfnin á þeirri sýningu valin til að senda á heimssýninguna „PHILYMPHIA—1970“ í London þá um haustið. Yrði þetta þá fjórða sýning, sem Landssam- bandið stæði fyrir. Þá er enn- fremur áætluð alþjóðleg sýning árið 1973 vegna 100 ára afmælis íslenzkrar frímerkjaútgáfu. ALÞJÓÐASÝNINGAR Alþjóðasamtök frímerkjasafn- ara F.I.P. hafa þegar boðið Landssambandinu, að taka að sér alþjóðlega sýningu, en því bóði hefir enn ekki verið svarað til fullnustu, vegna þeirra skuld- bindinga, sem það innifelur. Er verið að athuga í hvaða formi slík sýning gæti helst verið, svo að vel megi fara. Það skal tekið fram vegna misskilnings, að Landssambandið er eini aðilinn hér á landi, sem getur fengið leyfi til að halda alþjóðlegar sýningar, sem bera megi slíkt heiti, undir vernd F...P. BIAFRA — BIAFRA — BIAFRA — BIAFRA Þegar amma var ung Cullkorn úr gömlum revíum Spánskar nætur '23 Haustrigningar '25 Eidvigslan '26 Lausar skrúfur '29 Fomar dyggðir '38 Hver maður sinn skammt '41 Forðum i Flosaporti '40 Nú er það svart '42 Allt í lagi lagsi '44 Vertu bara kátur '47 Upplyfting '46 Fegurðarsamkeppnin '50 Gullðldin okkar '57 50 leikarar skemmta IWIIÐNÆTURSÝNING í Austurbæjarbíói í kvöld kl. 23.30. Miðasala hefst kl. 16 00 i dag, simi 11384. Ósvikin skemmtun — Spyrjið þá sem séð hafa Aðeins þetta eina sinn BIAFRA — BIAFRA — BIAFRA — BIAFRA ÞÁTTTAKA ERLENDIS Fyrir forgöngu Landssam- bandsins, var ísland sýnt á 20 fermetrum á alþjóðasýningunni í Prag, þar sem sýnendur fengu; 1 silfurverðlaun, 2 silfur-bronz verðlaun, 2 bronz-verðlaun og 4 hérstök viðurkenningarskjöl. Þá er sýnt á 15 fermetrum á alþjóð- legu sýningunni í Sofia í sumar, og á 3 fermetrum á unglinga- sýningunni í Luxembourg nú um páskana og vonast eftir mikilli þátttöku 1970, bæði á sýningunni hér heima og í London, að ekiki sé talað um 1973. (Frétt frá L.Í.F. & Æsku- ráði Reykjavíkur). Vitnuð tU Óðins Á BAKSÍÐU hins merka bók- menntarits, The New York Times Book Réview, birtist 2. marz sl. bókaauglýsing með svo- felldri yfirskrift: „Óðinn lét auga sitt fyrir vizku, þú þarft ekki að gjalda það verð“. Aug- lýsingunni fylgir mynd sú, er hér birtist. og mun eiga að tákna Óðin. í auglýsingunni segir m. a. : „Óðinn, hinn mikli höfðingi norrænna guða, var svo óðfús að auka vizku sína með drykk úr brunni vizkunnar, að hann galt „Sálmar og kvæði" NÝKOMNIR eru út hjá Ríkisút- gáfu námsbóka Sálmar og kvæði handa skólum, 1. hefti. Um út- gáfuna sáu Eiríkur Stefánsson kennari við Langholtsskólann og séra Sigurður Haukur Guð- jónsson, og þeim til aðstoðar var séra Helgi' Tryggvason kennari. Efnið er valið úr Sáknabók þjóð kirkjunnar og úr ýmsum öðr- um ljóðasöfnum. Nafngreindir höfundar eru um 40. glaður það sem upp var sett — auga sitt. Þú ert meiri gæfu aðnjótandi. Þú getur bergt á sama brunni fyrir einn dal.“ Bók. þessi, sem er 79 bls., er einkum ætluð skólum, bæði barnaskólum og fi'amhaldssköl- um. Þess má þó vænta, að hún verði notuð á fleiri stöðum, þar sem sungið er. Útgefandi væht- ir þess, að það þyki kostur á bókinni, að ljóð og lag fylgjast að. Flestir textar bókarinnar eru undir lögum, og er laglínan (melodían) prentuð með fyrsta erindi. Nóturnar skrifaði Hann- es FLosason kennari. Aðalum- sjón með vali Iaganna haifði Jón Ásgeirsson tónlistarkennari Kennaraskólans. Nokkrair myftd ir eftir Baltasar eru í bókinni og eru sumar þeirra litprentaðar. — Litbrá hf. annaðist prentun- ina. Ármenningar! Skíðafólk, dvalarkort fyrir páskahelgina verða seld í Ant- ikabólstrun, Laugaveg 62, þriðju dag og miðvikudag kl. 8—10. Uppl. í síma 10825. GLÆSILEGUR VORFAGNAÐUR Lionsklúbburinn Þór gengst fyrir almennum vorfagnaði að Hótel Sögu í kvöld Barnaheimilið í Tjaldarnesi. Annað kvöld gengst Lionsklúbburinn Þór fyrir almennum vorfagnaði að Hótel Sögu. Upphaflega var ætlun Þórsfélaga að halda fagnað þennan 9. marz s.L, en þá varð að fresta honum á síðustu stundu, vegna bilunar er varð í hitakerfi Súlnasalar Hótel Sögu. Mjög vönduð skemmtiskrá verður á vorfagnaðinum Kvöldverður verður framreiddur frá kl. 7 um kvöldið og þurfa gestir að panta borð i sima 20221 fyrir kl. 4 i dag. Kl. 9 hefst skemmtidagskráin og verður hún þannig: Einsöngur: Frú Sigurlaug Rósinkranz syngur. Við hljóðfærið verður Carl Billich. Fjórtán Fóstbræður syngja lagasyrpur. Brynjólfur Jóhannesson leikari flytur gamanþátt. Andrés Bjömsson útvarpsstjóri les upp. Vísnaspaug. Indriði G Þorsteinsson, Helgi Sæmundsson og Friðfinnur Ólafsson láta fjúka í kviðlingum. Dans. Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar leikur fyrir dansi til kl. 1 um nóttina. Auk skemmtiatriðanna verður efnt til skyndihappdrættis og verða í þvi um 20 verjmætir vinningar. Má þar telja ferð með Gullfossi til Skotlands, Flugferð til Akureyrar, málverk eftir Jakob V. Haf- stein og fl. og fl. Brynjólfur Jóhannesson leikari Það skal tekið fram að vorfagnaðurinn er öllum opinn. Aðgangs- flytur gamanþátt. eyrir er kr. 150. Skemmtum okkur öll á vorfagnaði Þórs annað kvöld

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.