Morgunblaðið - 20.04.1969, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 20.04.1969, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. APRÍL 1969 Óskum eftir að ráða VÉLAVERKFRÆÐING til að veita teiknistofu okkar við Áliðjuverið í Straumsvík forstöðu. Ensku- og þýzkukunnátta nauðsynleg ásamt reynslu í gerð vinnuteikninga. Um framtíðarstarf er að ræða. Til starfa á teiknistofu okkar við Áliðju- verið í Sraumsvík óskum við eftir að ráða: TÆKNITEIKNARA 2 í véliræði 1 í raiíræði 1 í byggingairæði Til greina kom iðnlærðir menn með reynslu í hönnun og gerð uppdráttar eða tæknifræð- ingar. Störfin eru fólgin í hönnun vegna breytinga og nýsmíði og því æskilegt að viðkomandi geti unnið sjálfstætt. Um framtíðarstörf er að ræða. Til starfa við flutninga- og svæðisdeild okkar við Áliðjuverið í Straumsvík, óskum við eftir að ráða 12 VERKAMENN Vinnan er fólgin í almennum störfum á svæðinu í Straumsvík, losun og lestun hvers konar svo og almennir flutningar. Þar á meðal er stjóm vélknúinna tækja svo sem dráttarvéla, lyftara og krana. Um framtíðarstörf er að ræða. Til starfa í tæknideild okkar við Áliðjuverið í Straumsvík, óskum við eftir að ráða: 1 Skrifstofumann til starfa við vara- hlutaspjaldskrá og önnur skyld störf. Ensku- eða þýzkukunnátta nauðsyn- leg. Skipulagshæfileikar og starfs- reynsla nauðsynleg. 1 Skrifstofumann til starfa við tölfræði og kostnaðareftirlit. Reynsla í talna- meðferð og myndrænni uppsetningu samanburði talna æskileg. Um framtíðarstörf er að ræða. Til starfa á fartækjaverkstæði okkar við Áliðjuverið í Straumsvík óskum við eftir að ráða: 2 bifvélavirkja 1 vélavirkja 1 mann til starfa í smnrstöð 2 verkamenn Um framtíðarstörf er að ræða. Til starfa á vélaverkstæði okkar við Áliðju- verið í Straumsvík, óskum við eftir að ráða: 2 rennismiði 4 vélvirkja 2 verkamenn Störfin eru fólgin í almennum viðhalds- og viðgerðarstörfum við vélar og verkfæri. Um framtíðarstörf er að ræða. Ráðningar í ofangreind störf munu verða strax eða eftir samkomulagi. Umsóknir sendist eigi síðar en 27. apríl, 1969 í pósthólf 244, Hafnarfirði. ÍSLENZKA ÁLFÉLAGIÐ HF. Straumsvík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.