Morgunblaðið - 20.04.1969, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 20.04.1969, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. APRÍL 1969 Roðhús — HúaleitishverO Tilboð óskast í vandað raðhús í Háaleitishverfi. lóð og bílskúr frágengið. Tilboð er greini útborgunarmögulerka sendist Mbl. fyrir 25. þ. m., merkt: „Háaleitishverfi — 2607". íbúð til sölu í gamla baenum, 100 ferm., 4 herb., í góðu standí, selst milli- liðalaust Tilboð eða nöfn sendist Morgunblaðinu fyrir 25. þ.m. merkt: „X 59 — 2569". liiýtt verrhinarhúsnæði til leip í nýju fullbyggðu íbúðarhverfi er til leigu glæsilegt verzlunar- húsnæði fyrir eftirtáldar verzlanir m.a : BMmabúð Wefnaðarvörur Isbúð. Ýmsar aðrar verzfanir koma einníg tíl greina Lagerpláss með aðkeyrslu er í kjaltara. Nánarí upplýsingar í síma 16990 í dag og næstu daga. Einbýlishús til sölu Við Byggðarenda í Fossvogi höfum við til sölu stórt einbýlis- hús. Mjög falleg fjallasýn er á þessum stað. Húsið er nú fokhelt og selst þannig eða lengra komið. Nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að. Skólavðrðustíg 30 og í sima 16990 í dag og næstu daga. Byggingarfélagið Steinverk hf. Hugmyndasamkeppni um skipulag miðbœjar í Kópavogi Kópavogskaupstaður ~~og Skípulagsstjóm ríkisins efna til hugrnyndasamkeppni um skipulag miðbæjar í Kópavogi. Keppnisgögn fást afhent hjá trúnaðarmanni dómnefndar, hr. Ólafi Jenssyní, fulltrúa hjá Byggíngaþjónustu A. 1, Lauga- vegi 26. Reykjavík, kl. 13 — 18 á virkum dögum nema á laugardögum kl. 10 — 12, gegn skilatryggingu og þátttöku- gjaldi kr. 3.500.—. Fyrirspurnafrestur rennur út 31. mai n.k. DÓMNEFND. Öðru hvoru virðist sem kyn- legur málatilbúningur nokkurra eldri þingmanna Framsóknar- flokksins erti þolínmæði yngri þingmanna hans. Jón Skaftason sagði nýlega í þingræðu, að „eldri deildin" i Framsóknar- fLokknum gæfi sér ákveðnar fors endur og fjallaði síðan um mál út frá þeim, án þess að taka til- lit til þeirra raka sem fram kaemu gegn þeim. Þetta er að sjálfsögðu staðreynd, en því mið ur virðist sem sumir í yngri deild flokksins temji sér einnig slík vionubrögð. Að minnsta kosti henti það Jónas Jónsson varaþingmann Gísla Guðmunds- sonar, er hann gerði fyrirspurn til menntamálaráðherra um sjón varpsmál fyrir skömmu. Þing- maðurinn hafði greinilega búið sig undir að svör rá'ðherra yrðu á annan veg en varð. Var hann með skrifaða ræðu, og þrátt fyr- ir að hún fjallaði um málið út frá þeirri forsendu, sem hann hafði gefið sér, steig hann ó- trauður í ræðustólinn og las hana upp. Var það hjákátlegur mála- tilbúnaður. Oft hefur verið um það rætt að fyrirspurnartími Alþingis sé úr skorðum genginn. Hefur þetta rækilega sannast á þessu þíngi. Nú er algengast að allur fundartími Sameinaðs Alþingis fari í að ræða eina til tvær fyr- írspurnir, en þingsályktunartil- lögur eru á dagskrá viku eftir viku, átn þess að koma til um- ræðu. Nú hafa líka tveir þing- menn ALþýðubandalagsins, Magn ús Kjartansson og Geir Gunn- arsson tekið upp þau vinnu- brögð að flytja fyrirspumir um sömu mál og þingsályktuartil- lögurnar, sem liggja óafgreidd- ar, fjalla um. Samkvæmt þing- sköpum kemur svo fyrirspurnin fyrr til umræðu. Þetta er aug- ljóst dæmi um það, hve umrædd- ir þingmenn eru gjörsamlega mál efna- og hugmyndasnauðir. Þeir krækja í hugmyndir frá öðrum og setja síðan sjónarspil á svið, þegar fyrirspum þeirra kemur til umræðu. Þykjast fullir á- huga — tala fjálglega. og lofa síðan sjálfa sig hástöfum í blaði þvi, er annar þeirra ritstýrir. Á miðvikudaginn fjölmenntu iðnnemar á þingpalla og reyndi. Magnús Kjartansson þá heldur betur að lyfta sér á kreik. Hef- ur hann vafalaust talið aðstöðu sína góða, þar sem margt mun áfátt í iðnfræðslunni og iðnnem- ar sem aðrir hafa fengið að kenna á minnkaðri atvinnu og at- vinnuleysi því, sem verið hefur. Ekki var þó á málf lutniingi Magn úsar hægt að greina, að hann hefði mikið álit á iðnnemum, þar sem hann taldi þá engan veginn menn til að koma sínum málum á framfæri. Enda fór það svo, að Magnús Iék af sér í þeirri pólitísku refskák, sem hann hóf í máli þessu, og ég hygg, að menntamálaráðherra verði vin- sælli eftir en áður í hópi iðn- nema. Lýsti hann yfir að engin ráð þyrfti að sækja til Magn- úsar , heldur fremur og ein- göngu til iðninemana sjálf ra. Þór arinn Þórarinnson, sem er meist ari í því að koma litlu máli í mörg orð, tók ennfremur þátt í þessum uœræSum, en virtist lit- inn hljómgrunn fá. Degi síðar en þessar umræð- ur fóru fram, opinberaði Magn- ús hug sinn til íslenzkra atvinnu rekenda. Valdi hann þeim hin rekenÆL Valdi hann þeim hin verztu orð — krafðist þess að þeir fengju hvergi fyrirgreiðstu til reksturs síns og tatldi, að flytja bæri fruimvarp og taka fyrirtæki þeirra leigunámi. Það er vitanlega þyrnir í augum þeirra, sem fá hugmyndafræði frá Moskvulínunni að nokk- ur atvinnurekandi skuli vera til nema ríkið. Híns vegar hafa þeir oftast haft vit á því að leyna þessu hjartans máli sínu, enda slíkt ekki vinsælt í lýð- ræðisríki. En þegar mönnum verðu,r mikið niðri fyrir, verður þeim stundum á að segja hug sino, — ekki þó allan í þessu tilfelli, þvi að eignarnám er vafa laust það, sem Magnúsi er hug- stæðara. Harður og mikill slagur várð um áfenga bjórinm, ems og jafn an þegar það mál hefur borið á góma í sölum Alþingis. Var tillaga Péturs Sigurðssonair og fleiri felld með 18 atkvæðum gegn 17 að viðhöfðu naf nakallL Fjórir þingmenn voru fjarstadd ir atkvæðagreiðsluna og hefðu atkvæði þeirra getað ráðið úr- slitum í málinu. Ekki verður sagt að þessi niðurstaða beri vitni um víðsýni og frjálslyndi alþingismanna. Lagt var til að þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram um málið, eins og gert hef- ur verið áður um veigamiklar breytingar á áfengislöggjöfinni. Virtust þingmenm, sem greiddu atkvæði á móti henni, treysta betur eigin dómgnoind, en dóm- greind þjóðarinmar. Er því varla von til þess, að bruggun áfengs öls verði leyfð í bráðina, og við hið sama verði hér látið sitja í íslenzkri vínmenningu. Sam- kvæmt röksemdafærslu bjóramd stæðinga virðist gera minma til að selja eldsterkt brennivín út um allar trissur en að selja öl, sem hefur tiltölulega lítið áfeng isimiihald. Erlendir ferðamenn, sem koma hingað, eiga erfitt með með að nema þessa speki. Ef til viU eru þeir Pétur Gautur í Dofrahöilum? Annars voru gerðar nokkrar bneytinigar í frjálsræðiaátt á áfesvgisiöggjöf inoi og m.a. komið inin í hania ákvæðum um, að veitingahús á þeim stöðum, sem efcki hafa áfengisútsölu, geti veitt áfengi, að uppfylltum skilyrðum og leyf um. Meiri hluti allsherjamefndar efri-deildar hefur lagt fram frumvarp um loðdýrarækt — enn eitt minkafrumvarp. Hafa ekki áður komið fram á þingi jafn ít- arlegar tillögur og fastmótaðar um þetta mál sem eru í þessu frumvarpi, og er ástæða ti,l að ætla að meiri hluti sé fyrir því innan þirvgsins. Nauðsynlegt er að afreiða þetta frumvarp fyrir þinglok. Nógu lengi höfum við tapað stórfé á því að Ieyfa ekki þennan atvinnuveg hér- lendis. Sveinn Guðmundsson benti á það í framsöguræðu sirvni með fruimvarpinu, að ef fs- lemdingar sætu við sama borð og hinar Norðurlandaþjóðirniar í framleiðslu minkaskinna mundi gjaldeyristekjur af atvinimi- greininni nema 3 milljörðum króna. Þetta mark er órafjar- lægt, en vísf er að aðstæður okkar til þessarar framleiðslu er á mjög mörgum sviðum hag- stæðara en hjá hinum löndun- um. Jndversk undraveröld‘ NÝJAR VÖRUR ! ! ! I.angar yður til að eignast fáséðan blut? í Jasmin er alltaf eitthvað fágaett að finna. Úrvalið er mikið af fallegum og sérkennílegum munum til taekifærisgjafa. Austurlenzkir skrautmunir handunnir úr marg- vislegum efnivið. Einnig margar tegundir af reykelsum. JASMIN Snorrabraut 22. SKAGFIRÐINGAFÉLAGH) í REYKJAVÍK heklur sumarfagnað miðvikudaginn 23. april (síðasta vetrardag) í Þjóðleikhúskjallaranum. Kynnt verða sönglög eftir Pétur Sigurðsson, tónskáld, í til- efni 70 ára afmæiis hans. Flytjendur verða eirisöngvaramir Snæbjörg Snæbjamar, Þórumt Ófafsdóttir, Friðbjðm G. Jónsson og HaH- dór Vilhelmsson. Undtrleikari verður Ólafur Vignir Albertsson. Skemmtunín hefst stundvíslega kl. 9. TÖKUM OKKAR SÆLUVIKU ÚT A EINU KVÖLDI. SKEMMTINEFNDIN. Gisting d einkaheimilum Flugfélag íslands mun í sumar hafa milli- göngu um útvegun herbergja á einkaheimil- um fyrir erlenda ferðamenn. Æskilegt er að herbergin séu miðsvæðis í Reykjavík, og morgunverður sé fáanlegur á sama stað. ; Þeir sem áhuga hafa á að leigja slík her- bergi, hafi samband við farskrárdeid Flug- félagsins í síma 16970. /r/affdsur ÍV FI^---------- fC£IAAT04#ll Steinar J. Lúðvíkssoa.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.