Morgunblaðið - 25.03.1970, Qupperneq 4
*
1
MOBGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1970
>
MAGNÚSAR
4K1PH3LTI21 SÍMA821190
eftfrloWunsími 40381
HVERPISGÖTU 103
VW Sendíferðabifreið-VW 5 manna -VW svefnvagn
VW 9manna-Landrover 7manna
Bílaleigan
UMFERD
Sími 42104
SENDUM
Okubennslo
GUÐJÓN HANSSON
Símí 34716.
í páskamatinn
Nýir hamborgarahryggír og
hamborgaralæri.
Nýjir svínahryggir og svína-
læri.
Mikið úrval af kjötvörum.
Strandgötu 4 - Sími 50102.
FYRSTA FLOKKS FRÁ FONIX
Þrýstið á hnapp og gleymið svo upp-
þvottinum.
KiRK
Centri-Matic
%ér um honn, algerlega sjálfvirkt, og
(afsakidl) betur en bezta húsmóðir.
• Tekur inn heitt eða kalt vatn
• Skolar, hitar, þvær og þurrkar
• Vönduð yzt sem innst: nylonhúðuð
utan, úr ryðfríu stáli að innan
• Frfstandandi eða til innbyggingar
• Látlaus, stílhrein, glæsileg.
SIMI 2 44 20 — SUÐURGÖTU 10
0 Reiknaði drukkinn
maður dæmið?
l.-Kofrl skriíar:
„Háttvirti Velvakandi!
Tilefni þessa bréfs er sýning
góðtemplara í sýningarglugga
Málarans. Eru þar notaðar tölur
um fjármuni sem varið er til
áfengiskaupa á mjög villandi
hátt.
Þar segir, að sl. fimm ár hafi
íslendingar keypt áfengi fyrir
2718 milljónir, en samkvæmt út-
reikningi templara á það að
nægja til að byggja 2000 hús, sem
hvert kostar 1.5 milljón. Ætla
mætti, að drukkinn maður hefði
reiknað dæmið, því að 2000 hús
af þessari stærð kosta þrjá mill-
jarði og þurfa íslendingar því að
drekka fyrir 282 milljónir enn
til að ná tölunni, og eru það 182
hús. Er gefið í skyn að þessir
fjármunir hafi orðið til lítils
gagns.
0 Gagnsemi áfengis-
kaupa
Ég er ekki viss um að fjár-
málaráðherrann okkar sé sam
mála því, að fyrrgreind fjár-
fúlga hafi orðið til látils. Tekjur
ríkisins af Á.T.V.R. nægja næst-
um til þess að greiða allan kostn-
að við menntamálin í landinu,
svo að eitthvert gagn er af áfeng
iskaupunum.
Þetta leiðir hugann að því, að
þegar tekjur ríkisins eru að ein-
um tíunda tekjur Á.T.V.R., ertæp
lega að vænta þess, að ríkisvald-
inu sé akkur í auknu bindindi,
ef það kæmi niður á sölunni.
Hættu íslendingar að drekka,
yrði það til þess, að hækka yrði
aðra skatta, og 100 prs. hækkun
á tekjuskatti myndi tæplega
duga.
Góðtemplarar, sem hafa þann-
ig óbeinan hagnað af sölu
áfengra drykkja, ættu því ekki
að fordæma þá, sem lyfta glasi
til þess að létta fjárhagsáhyggj-
um af ríkisvaldinu. Þeir ættu
frekar að beita sér fyrir því, að
á komandi árum þurfi ríkissjóð-
ur í minna n.æli að treysta á
drykkjuskapinn, t.d. með því að
berjast gegn því að auknum rík-
isútgjöldum sé mætt með hækk-
un áfengis. öl-Kofr!“.
Beglusöm ung hjón
óska eftir 2ja—3ja herb. íbúð nálægt Sólheimum.
Upplýsingar í síma 32109 eftir kl. 5 e.h.
BERKLAVÖRN REYKJAVÍK.
Félagsvist
í dag miðvikudaginn 25. marz kl. 8,30 í Brautarholti 4
(Danshús Heiðars Ástvaldssonar).
Mætið stundvíslega.
BERKLAVÖRN.
Viljum ráða
nokkra blikksmiði á blikksmíðaverkstæði
okkar Skeifan 3.
BLIKKSMIÐJflN HF.
Sími 30691.
0 Nokkur atriði varðandi
öryggisútbúnað
umferðarljósa
Ásgeir Þór Ásgeirsson skrifar:
1. Vegna fyrirspurnar um um-
ferðarljósin á mótum Miklu-
brautar og Kringlumýrarbrautar
í dálki yðar sunnudaginn 15. feb
rúar sl. skal þess getið, að í um-
rætt skipti var lampi í stjóm-
kassa bilaður og olli það örari
skiptingu ljósanna. Stjómkassi
umferðarljósanna er byggður
þannig upp, að græn Ijósmerki
verða ekki samtímis í N-S og
A-V. Skiptingar umferðarljós-
anna verða með rafliðaveljara,
sem stjórnað er af tímadeili. ör
yggi er í hverri rás, sem kemur
í veg fyrir, að ljósin geti logað,
ef einhver bilun verður í stjórn-
kassa eða jarðköplum.
2. Eitt stjórntæki er á hverjum
gatnamótum grænu bylgjunnar á
Miklubraut, en á mótum Kringlu
mýrarbrautar og Miklubrautar er
að auki sérstakur stýribúnaður
vegna bylgjunnar .Er hér um að
ræða tvo stjórnkassa, bili annar,
tekur hinn sjálfvirkt við.
3 .Þegar aðalstjórntæki bylgj-
unnar skiptir um tímasetningu,
verður nokkur breyting á tima
vinstri beygjunnar úr Miklu-
braut. Sama máli gegnir þegar
lögregluþjónar stjórna Ijósunum.
Eftir nokkrar mínútur er kerfið
komið i sitt fyrra horf.
Sérstök tímasetning er á næt-
urnar eða frá kl. 00—07, umferð-
artíminn er þá 72 sek. og skipt-
ingar nokkuð örar. Morguntima-
setningin er frá kl. 07—13:30 og
miðast við, að græni tíminn verði
sem mestur fyrir ökumenn á
leið til vinnu inn I borgina. Loks
tekur við síðdegistími frá kl.
13:30—24:00, og er þá umferðar-
tími sá sami og í morgunpró-
grammi eða 84 sek. Þá er reynt
að greiða sem mest fyrir öku-
mönnum á leið úr vinnu. Þannig
er leitazt við að mæta þörfum
meginþunga umferðar á hinum
ýmsu tímum sólarhringsins.
4. Umferðarljósin sýna rautt
ljós í tvær sek. á eftir gulu ljósi
í N-S og á undan gulu ljósi með
rauðu í A-V.
Þá er rautt ljós I A-V, þegar
gult ljós er í N-S og rautt ljós
í N-V þegar gult ljós með
rauðu er í A-V. Fyrirkomulag
þetta eykur mjög á öryggi, þeg-
ar skiptingin á umferðarrétti á
sér stað.
5. Aldrei má gleyma því, að
umferðarljós eru aðeins elektró-
mekaniskt tæki, er skammta um-
ferðarrétt líkt og lögregluþjónn
með merkjaþendingum sínum.
Veltur því á miklu, að ökumenn
og fótgangendur skilji og hlýði
ljósmerkjum. Nokkur brögð eru
að því, að ökumenn taki af stað
á rauð-gulu ljósi og misnoti einn
ig gula ljósið. Þá ekur stöku
maður yfir á rauðu ljósi og get-
ur verið um að ræða slysní, lit-
blindu eða ásetning. Frekari
könnun á þessum atriðum væri
æskileg, svo og um lagalegt sönn
unargildi í slíkum tilfellum.
0 Arekstrum fækkar þar
Árekstrum hefur fækkað hin
síðari ár á mótum Miklubraut-
ar og þvergatnanna Lönguhlíðar,
Kringlumýrarbrautar, Háaleitis-
brautar og Grensásvegar. Þann-
ig urðu þeir samtals 127 árið
1967 á þessum fjórum gatnamót-
um, næsta ár urðu þeir 90 og 2
árið 1969. Enn hagstæðari verður
þessi þróun mála sé það haft í
huga, að á sama tíma hefur um-
ferð stóraukizt. Þá eru árekstr-
arnir í fyrra mun vægari en á ár-
inu 1967 og algengast, að ekið sé
á bifreið, sem á undan er í lest-
inni við gatnamót. Áður en græna
bylgjan kom til sögunnar urðu
oft harðir árekstrar milli bif-
reiða, sem rákust á undir réttu
horni á mótum gatna.
Ásgeir Þór Ásgeirsson“.
Ökukennarapróf
ökukennarapróf og aksturspróf á fólksbifreið fyrir fleiri en
16 farþega verða haldin í Reykjavík og á Akureyri í apríl-
mánuði.
Umsóknir um þátttöku sendist til Bifreiðaeftirlits ríkisins
í Reykjavík og á Akureyri fyrir 4. apríl n.k.
BIFREIÐAEFTIRLIT RlKISINS.
Logerhúsnæði óshnsl
Lager- eða verkstæðishúsnæði, stærð 2—300 ferm. óskast
til leigu, þarf að vera á götuhæð.
Tilboð þar sem tilgreint sé staður, lofthæð og húsaleiga leggist
inn á afgr. Mbl. merkt: „Húsnæði — 8867".
fer í páskaferð til ísafjarðar í kvöld 25. marz
kl. 20. Nokkrir farseðlar lausir fyrir farþega
sem ætla af skipinu á ísafirði.
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS.
Tilkynning
Hér með eru þeir, sem sótt hafa um lóðir
í Hveragerði beðnr að endumýja umsóknir
sínar fyrir 10. næsta mánaðar. Ennfremur
eru þeir, sem hug hafa á að sækja um lóð
í Hveragerði beðnir að senda skrifstofu
Hveragerðishrepps umsóknir sínar fyrir 10.
næsta mánaðar.
Athugið: Verði umsóknir ekki endurnýjaðar
er óvíst að þeim verði sinnt.
Sveitarstjóri Hveragerðishrepps.