Morgunblaðið - 25.03.1970, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MARZ 1970
5
100 milljóna kr. framleiðsla
á Súgandafirði sl. ár
Rætt við Pál Þórðarson, verk-
stjóra og hreppsnefndarmann
ÞAÐ sem a£ er þessu ári
og nær allt sl. ár, var mik-
il atvinna á Súgandafirði
og mun framleiðsluverð-
mæti Fiskiðjunnar Freyju
á Súgandafirði, hafa num-
ið um 100 milljónum kr. í
fyrra. Fréttamaður Morg-
unblaðsins hitti nýlega að
máli Pál Þórðarson, verk-
stjóra og hreppsnefndar-
mann á Súgandafirði og
ræddi við hann um at-
vinnumálin í plássinu og
þær framkvæmdir, sem
eru á döfinni hjá hreppn-
um.
— Frá SúgandafirSi eru
nú gerðir út sex bátar, segir
Páll Þórðarson, tveir þeirra
eru um 40 lestir að stærð,
einn 56 lestir, tveir um 100
lestir og einn tæpar 200 lest-
ir. Fiskiðjan Freyja rekur
frystihús á staðnum og er í
rauninni eini atvinnuveitand
inn, sem nokkuð kveður að,
en auk frystihússins rek-
ur Freyja beinamjölsverk-
smiðju. Árið 1969 er með
allra beztu árum, sem við höf
um fengið á Súgandafirði.
Mikill afli barst á land og
mun framleiðsluverðmæti
frystihússins hafa numið
nærri 100 milljónum króna.
Mikið hráefni barst til frysti
hússins m.a. vegna þess, að
s.l. sumar lönduðu hjá okkur
togbátar frá Patreksfirði og
Bíldudal og skapaði það
meiri atvinnu en oft áður. Það
sem gerði frystihúsinu kleift
að taka á móti öllum þessum
afla eru nýjar og fullkomnar
vélar, svo og sú staðreynd,
að við eigum margt afburða
duglegt fólk, sem lét hend-
urnar standa fram úr erm-
um til þess að vinna úr þessu
mikla aflamagni.
— Hvernig hefur atvinnu-
ástandið verið hjá ykkur að
undanfömu?
— Atvinna hefur verið mik
il, bæði það sem af er þessu
ári og á s.l. ári. í janúar var
sérstaklega mikil vinna, en í
febrúarmánuði voru einstakir
dagar, þegar ekki gaf vegna
gæftaleysis. Þess má geta í
þessu sambandi, að yfir sum-
armánuðina hafa unglingar
allt frá 12 ára aldri, yfirleitt
haft atvinnu hjá okkur I
frystihúsinu.
— Alþýðublaðið hefur ný-
lega haldið því fram, að
Fiskiðjan Freyja greiði ekki
tilskilið fiskverð til fiskselj-
enda. Hvað er hæft i þeim
fullyrðingum?
Páll Þórðarson
— Það er á algjörum mis-
skilningi byggt. Fiskiðjan
Freyja hefur þvert á móti
tekið við meira magni af fiski
undir 50 cm að stærð en
nokkurt annað frystihús á
Vestfjörðum sem ég þekki til.
Þegar sagt er, að ekki hafi ver
ið greitt tilskilið verð ber
þess að geta, að á matsvott-
orði er eingöngu fiskur frá
57 cm niður í 50 cm. Fyrir
þennan fisk hefur verið
greitt það verð, sem verð-
lagsráð sjávarútvegsins hef-
ur ákveðið. Úrgangsfiskur er
hins vegar ekki metinn af
Ferskfiskeftirlitinu og kemst
því ekki á matsvottorð og
þess vegna eru ummæli Al-
þýðublaðsins varðandi þetta
atriði alröng. Enda er fiskur,
sem landað er óslægðum og
óblóðguðum ekki matshæfur.
Á hinn bóginn hefur Fiskiðj-
an Freyja á Súgandafirði tek-
ið á móti smáfiski, niður í 40
cm að stærð að undanskild-
um nokkrum mánuðum. Og
þegar hún hefur tekið á móti
þessum smáfiski, hefur hún
greitt fyrir hann verð samkv.
ákvörðun verðlagsráðs. Sá
tími sem ekki var tekið á
móti þessum smáfiski var frá
19. júlí og fram í september,
en þá voru engir samningar
fyrir hendi við Sovétríkin
um kaup á heilfrystum smá-
fiski og þá stendur einnig yf-
ir hið svokallaða maðkatíma-
bil, þegar ekki er hægt að
verja fiskinn flugu, þótt
hann sé hengdur upp í skreið.
Ég held, að flestir venjuleg-
ir menn geri sér grein fyrir
því, að ekki er hægt að
kaupa fisk, sem ekki er hægt
að koma í verð. Ég tel, að
skrif Alþýðublaðsins séu til
marks um málsháttinn: Sjald
an launar kálfur ofeldið, þar
sem ég veit, að ekki er um
að ræða nema einn til tvo
menn, sem standa að baki
þessum skrifum.
Meðan þetta tímabundna
ástand stóð yfir, að frystihús
ið tók ekki á móti smáfiski,
bauð það fram til fiskselj-
enda afnot af saltfiskverkun
arhúsi á hafnargarðinum og
frítt salt og aðgang að áhöld
um, ef einhverjir þeirra, sem
veiddu þennan fisk, vildu
reyna að hagnýta hann á ein
hvern hátt. Þess má einnig
geta, að meðan stöðvun var
á fiskkaupum á Súgandafirði
haustið 1968, greiddi Páll
Friðbjörnsson, forstjóri Fisk-
iðjunnar Freyju h.f. flutnings
kostnað á fiski til ísafjarðar
til þess að trillúbátamir
gætu róið og keypti af þeim
fisk undir 50 cm, sem ísfirð-
ingar vildu ekki kaupa. Með
tilliti til þessara viðskipta-
hátta Fiskiðjunnar Freyju,
þarf engan að undra þótt
mönnum á Súgandafirði sárai
þessi skrif Alþýðublaðsins.
— Hvernig er háttað lækn-
isþjónustu hjá ykkur á Súg
andafirði um þessar mundir?
— Það setur óhjákvæmi
lega að okkur nokkurn ugg í
sambandi við læknisþjónust-
una. Við höfum verið lækn-
islausir í tvö ár, en nú kem-
ur til okkar læknir úr Bol-
ungarvík, einu sinni í viku
eða svo. f eins vélvæddu
sjávarplássi og Súgandafjörð
ur er, skapast mikið öryggis-
leysi vegna læknaskortsins.
Von um að fá lækni til Súg-
andafjarðar er afar veik. Þó
fá læknar í svona byggðarlög
um greidd ein og hálf læknis-
laun og þeim stendur einnig
til boða að hafa lyfjasöluna
með höndum.
— Hvernig er ástandið í
samgöngumálum?
— Á veturna eru nánast
engar vegasamgöngur aðrar
en þær að snjóbíll er á Súg-
andafirði í sambandi við flug
ið og kemst yfirleitt sinna
ferða. En póstbáturinn kem-
ur tvisvar 'í viku. Af þessu
má sjá, að við erum ekki ýkja
vel settir með samgöngur.
— Hvað er að frétta af
framkvæmdum á vegum
hreppsins?
— Það er fyrirhugað að
laga ytri hafnargarðinn í
sumar, en hann er talsvert
mikið skemmdur. Ennfremur
höfum við fengið 1,1 millj. kr.
fjárveitingu í viðbótarbygg-
ingu við baraaskólann, og er
ætlunin að hefja framkvæmd
ir á þessu'ári. Skortur á vatni
er mikið vandamál á Súg-
andafirði, hreppurinn lét
bora þrjár holur fyrir tveim-
ur árum, en þótt svolítið
vatn hafi náðst úr þeim, virð-
ist það ekki fullnægjandi og
nú notumst við aðallega við
yfirborðsvatn úr hlíðunum í
kring, sem beizlað er í þrær.
Hér er um stórmál að ræða,
sem næsta hreppsnefnd hlýt-
í plássinu og verður reynt að
ur að taka til meðferðar.
Þá er búið að skipuleggja
allar vatns- og skolpleiðslur
taka það fyrir í áföngum og
samræma lagfæringar á
vatns- og skolpleiðslum, var-
anlegri gatnagerð, en það
mun taka langan tíma að
koma þeim áfram. Bátahöfn-
in, sem byggð var í Súganda
firði er mesti baggi hrepps-
ins, enda kostaði hún offjár.
— Þið hafið ekki sjónvarp
á Súgandafirði?
— Nei, við erum eina þorp-
ið á Vestfjörðum, sem ekki
nýtur sjónvarpsins. Við erum
svo innilokaðir í fjöllunum,
að nauðsynlegt virðist að
byggja tvær móttökustöðvar,
en ýmis sjávarþorp á Vest-
fjörðum hafa að eigin frum-
kvæði komið upp móttöku-
stöðvum á eigin kostnað, en
þau þurfa ekki nema eina
stöð. Þetta mundi verða
tvöfaldur kostnaður fyrir
okkur. í framkvæmdaáætlun
sjónvarpsins mun gert ráð fyr
ir því, að sjónvarpið verði
komið um alla Vestfirði á ár-
inu 1972. Við erum að sjálf-
sögðu óánægðir yfir því að
vera útilokaðir frá þessu
tæki, og teljum, að e.t.v. hafi
aðstæður ekki verið fullrann
sakaðar í Súgandafirði, segir
Páll Þórðarson, verkstjóri að
lokum.
ANGLI - SKYRTUR
Hvítar — mislitar
— röndóttar
Margar gerðir
og ermalengdir
iV
ss
0PIÐ TIL KL. 9 í KVÖLD
Stórkostlegt vöruval. Þar á meðal hlaðin
kœliborð með fyrsfaflokks kjötvörum
VERIÐ VELKOMIN
KJÖTBÚÐ
AUSTURVERI
HÁALEITISBRAUT