Morgunblaðið - 25.03.1970, Side 13
MOBGUNIBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1970
Demantsbrúðkaup
Jóna og Árni Jakobsen í Vancouver
28. þessa mánaðar verður hald
ið hátíðlegt 60 ára giftingaraf-
mæli þessara merkishjóna, en
þau voru gift 2. apríl 1910 í
Winnipeg. Árni Jakobsison er
fæddur 12. maí 1886 í Rauðu-
skriðu í Þingeyjarsýslu. Foreldr
ar voru hjónin Jakob Jónsson og
Sigríður Ingiríður Sigurðardótt-
ir, úr Þingeyjarsýslu, en fluttust
tveim árum eftir fæðingu Áma
til Kanada. Frú Jóna er hins veg
ar fædd, hér í Kanada á Lög-
bergi í Saskatehewan. Foreldrax
hennar voru Friðlundur Jónsson
og Helga Hinriksdóttir, bæði
komin úr Húnavatnssýslu.
Fyrir réttu ári er ég, er þessar
línur rita, var að vinnu langt
upp í Kascadefj öllum hér
í Kanada, bar fundum saman við
mann nokkum, sem mér til mik-
illar furðu, talaði islenzku engu
síður en ég, þá aðeins kominn
að heiman. Þetta var tengdason
ur Árna og Jónu, Sigmar Sveins
son, eiginmaður Jakobínu Sigríð
ar, núverandi forstöðukonu ís-
lenzka elliheimilisins hér í Van-
couver. Þar sem Sigmar gat ekki
um annað talað en ísland, þótt
aldrei hefði hann þangað komið,
upphófust þama kynni mín af
þeim mikla ættbál'ki, sem kominn
er út af þeim hjónum Áma og
Jónu, og þeim sjálfum um leið,
mér og konu minni til mikils
happs, gleði og ánægju, sem seint
mun fyrnast.
Enda þótt flest af bömum
þeirra hjóna búi hér í British
Kolumbia, þá hafa þau búið frá
árinu 1918 í Ashem, Manitoba
en létu nú undan bömum sínum
að koma hingað á veðurmildari
slóðir, en þeim hjónum lætur
ekki að skapi að sitja aðgerðar-
laus og hyggja heim í Siglunes
byggð strax og vorar. Mun
Árni vera orðinn órór í skapi,
því hér í British Kolumbia er nú
sól og hiti, blóm og mnnar farin
að skarta sínu fegursta, en vænt
anlega leggur hann fiskikaup á
hilluna, en þau hefur hann stund
að frá árinu 1937 og til ársins
1969. Er það nokkuð góður starfs
dagur. Sömuleiðis var Ámi í
skólanefnd Siglunesbyggðar í 35
ár og er mér sagt, að hann hafi
verið með afbrigðum traustur og
vinsæll maður og ekki talið eftir
að ljá hönd til sveitar eða náung
ans, ef þess var farið á leit.
Þótt efnin væru ekki mikil,
enda heimilið stórt, þá var það
gert út á rammíslenzka visu
með norðlenzkri gestrisni, enda
gestagangur eftir því. Börnin
voru alin upp í íslenzkum siðum
og til marks um það á þriðji ætt
liðurinn frá þeim Árna og Jónu,
hægt með að koma fyrir sig svör
um á kjarnyrtri íslenzku, ef svo
ber imdir og hvort sem tengda-
dóttirin er hollenzk eða skozk,
þá þarf engum íslendingi a@
bregða, þótt honum verði á borð
borin rúllupylsa og pönnukökur.
Auðvitað eru tengdabörnin af
mörgum þjóðemum, þar sem börn
þeirra Árna og Jónu urðu 11.
Barnabörn og barnabarnabörn
28.
Verða böm þeirra nú nefnd,
eitt barn hafa þau misst, elzta
narnið, Wilfred d. 1948, en hin
em:
Jakobína Sigriður gift Sigmari
Sveinssyni, þau bjuggu lengi í
New York. Gordon kvæntur
Beb, Tómas kvæntur Mörtu,
Skúli kvæntur Marion, Kenneth
kvæntur Jean, Ella gift Jónasi,
Björn Kvæntur Muriel, Arthur
kvæntur Mercy og Klara gift
James. Öll hafa börnin tekið föð
urnafn afa síns og kalla sig John
son.
Heimilisfang Jónu og Áma
Jakobssonar hér er: 1986. East
38 ave, Vancouver, B. C.
Canada, en veizlan verður Ad
Panaramardge centre, 5424— 148
str. Surrey. B. C.
Með þessum línum færum við
hjónin þeim Árna og Jónu okkar
beztu hamingjuóskir á íslenzka
vísu með afmælið.
GuSlaugur Bjamason,
Vancouver í Kanada
H úsbyggjend ur
Vinyl gólfdúkur.
Vinyl asbest gólfflísar, 7 litir.
Parkett gólfdúkur.
Keramik gólfflísar, 3 litir.
T. HANNESSON & CO.,
Ármúla 7, sími 15935.
í Dáskamatinn j oáskabaksturinn -í Dáskaferðalaaið
Svínakjöt Hveiti og strásykur Öl, sælgæti, ávextir,
nautakjöt í heilum sekkjum. nýir og niðursoðnir.
útbeinað dilkakjöt Krydd í miklu Harðfiskur,
kjúklingar úrvali. smjör,
úrvals hangikjöt. flatbrauð. og margt, margt fleira. VIÐ SENDUM UM ALLAN BÆ. OPIÐ TIL KL. 10. Borgarkjör Grensásvegi 26 — Sími 38980.
UPPÁBÚINN EÐA I SLOPP
EKKERT JAFNAST Á VIÐ TOP !
TOP tóbah
«r
tipp topp tobak
fra
CAMEL
verksmiðjunum
TOP
TÓBAK í VINDLINGANA
TOP TÓBAK í PÍPUNA