Morgunblaðið - 25.03.1970, Blaðsíða 23
MOKGUNIBOLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 25. MARZ H970
23
Matur til páskanna
NÚ, þegar pásíkar eru á rsesta
leiti, valknar sú Bpurning hjá
okkur, hvað hafa Skiuli í matinn
þeasa hátíðis- og frídaga. Allar
eigunn við það saimieiginlegt að
vilja leggja okkar skerf til, að
dagamir verði fjölskyldu oklkar
ánægjulegir, og þá er matargerð
in ekki það veigaminnsta, eins
og kunnugt er. Húsmæður eiga
auðvitað að 'hafa frí þessa daga
líka, svo freimi þess sé kostur,
og reyna eftir megni að haga
matseld þannig, að það eQdki
mikinn tíima. Því höfum við safn
að hér saman nokkrum upp-
sfcriftum, þar sem haft er í huga,
að efcki taki allt of langan tíma
að matbúa.
KJÖTBÚÐINGUR #fl
6 MANNS
% kg naiutahakk
% kg svínahalkk
2 smátt brytjaðir faukar
Yé sellerirót, rifin grjót
4 matsk. olía, 4 matsk. söxuð
steinselja
1 blað hvítlauk, pressað
1 lárberj alauf, mrulið
Yz—1 tsk. mulið tiimian
2 egg, 3 sneiðar franskbrauð,
sem bleyttar eru í 1 dl rauð-
Víni og 1 dl. soði. Salt og
pipar.
Halklkið sett í skál, laukur og
selleri létt brúnað á pönnu,
hrært í kjötið ásamt steinselju,
Kryddi og eggjum. Útbleytt
franskbrauð stappað og hrært
eftir smekk. Farsið sett í sonurt
form og bakað í u.þ.b. 45 min.
Það kamur dálítið soð í fortmið
við bakstiurinn, og má nota það
sem sósu með því að bæta í
súputeningi og e.t.v. rjóma.
BÓNDA-KÓTELETTUR
4—6 svínakótelettur,
smjör, salt, pipar, örlítið
hveiti, 1 dl. hvítvín,
IY2 dl. kjötsoð (teningur og
vatn), 1 tsk. bragðsterkt sinn-
ep, steinselja
3 matsk. sýrðar saxaðar akúrk
ur.
Kjötið brúnað á báðuim hlið-
um, kryddað. Soð, vín, sinnep
og smávegis hveiti sett út í
pönnuna og sósan bragðbætt
með steinselju og agúrkum.
GÓÐAR KÓTELETTUR
Lamibakótelettur smurðar með
isinnepi, velt upp úr hveiti,
Ikryddaðar með salti og pipar og
steilkt á báðuim hliðum.
Blandið saman Y2 bolla chili-
sósu og % bolla sítrónusafa, 2
matsk. Worchester-sósu, 1
tsk. papriku, 1 söxuðum lauk og
tveimur bollum af vatni. Hellt
yfir kjötið og látið krauma í ca.
IV2 tíma eða þar til kjötið er
meyrt.
FYLLTAR KÁLFARÚLLUR
6 þunnar kálfakjötssneiðar
(vöðvi)
6 sneiðar bacon
6 ostræmur, mildur feitur
ostur., smjör, salt, pipar, 3 dl.
rjómi, sósulitur, niðursoðnir
tómatar, ef fánlegir, hveiti-
jafningur.
Kjötsneiðarnar rúllaður upp
utan um baconsneið og ost-
stykki, haldið saman með pinna
eða garni. Brúnað á pönnu,
kryddað, rjómi og ef til vill vatn
sett út á, tómatar. Látið krauma
í ca. 30 mdn. eða þar til kjötið er
meyrt. Hveitijafningur settur út
í og sósulitur. Borið fram með
kartöflum og salati.
KÓTELETTUR MEÐ ANANAS
Kótelettum velt upp úr eggi
og raspi, kryddað með salti og
pipar, brúnaðar á pönnu. Borið
fram með hríisgrjónum, grænum
baunum (tómötum) og hálfum
steiktum ananashringjum.
KJÖT MEÐ SVEPPUM
V2 kg af svínakjöti er sfcorið í
ræmur og velt upp úr hveiti,
sem salt og paprika hefur verið
sett í. 2-3 laukar saxaðir og
brúnaðir í 40 gr. af smjöri ásamt
kjötinu. Bætið í þetta 250 gr
af sveppum, hellið 2 dl af
rjóma yfir. Látið krauma í 20
mín., bragðbætt með tómatpuré,
hvítlaiuksdufti og pipar. Setjið
grænar baunir saman við kjöt-
réttinn, og berið hann fram með
hrísgrjónum eða kartöflustöppu.
'Gott að bera brauð með.
RAUÐSPRETTUFLÖK
MEÐ OSTASÓSU
Margir hafa þánn sið, að borða
fisk á föstudaginn langa, og hér
koma því uppskriftir af mjög
göðum fiskréttum. "
í botninn á eldföstu fati er
sett spínat eða annað grænmeti
ef vill. Þar ofan á eru sett sam-
anrúlluð rauðsprettuflök og
sveppir, sem hafa verið látnir
krauma í smjöri. Búið til upp-
bafcaða sósu (bedhamelsósu), og
setjið í hana mikinn rifinn ost,
héllið sósunini yfir fiskinn, rifinn
ostur ofan á og bakið réttinn í
ofni í 20-25 mín. við 225 °C.
FISKUR
a la Provencale
Fiiskurinn (ýsa eða þorskur)
skorinn í smábita og aðeinis lát-
inn brúnast í smjöri. Styfckin
sett í ofnfastar eins-iskammta
Skálar eða stórt fat. Út í smjör-
ið á pönnunni er sett bragðsterkt
tómat-puré rifinn eða hakkaður
hvítlaukur og rjómabland og
krydd eftir smekk. Sósunni hellt
yfir skálarnar, rifinn ostur yfir
og bakað noikkrar mínútur í vel
heituim ofni.
PARÍSAR-GRAPE-ÁVÖXTUR
Grape-ávöxturinn er skorinn
í tvennt, losað um innmatinn og
ihann síðan skorinn í smábita,
kirsuberjavíni hellt yfir. Síðan
skreytt með þeyttum rjóma og
kirsuberjum.
KREMBÚÐINGUR
Y2 1 mjólk
1 stöng vanilla
3 egg
100 gr sykur
6 blöð matarlím, 1 glas kon-
jafc eða líkjör
50 gr suðusúfckulaði
tæpl. 1 dl sterkt kaffi.
Skreytt með þeyttum rjóma
og ávöxtum ef vill.
Mjólkin hituð í góðum potti,
vanillustöngin höfð í. Egg og
sykur þeytt vel; dálítið af mjólk
inni hellt í á meðan þeytt er,
öllu hellt aftur í pottinn, út-
bleytt matarlímið sett út í og
þeytt í við vægan hita, þar til
kremið er jafnt, má efcfci sjóða.
Kreminu skipt til helminga, vín
sett í annan helminginn og það
sett í botninn á mótinu. í hinn
heliminiginn er sett brætt súkku-
laði með kaffi í. Þegar fyrri
hlutinn er orðinn stífur, er hin-
um hellt yfh. Látið stífna og
hvolft á fat, skreytt með þeytt-
um rjáma.
ÍS f ÁBÆTI
400 gr mansipan
1 pk. súlkkul., 100 gr.
V2 1 vanilluís
3 matsk. líkjör, t.d. grænn
chartreuse.
Marsipanið flatt út og lagt á
fat, súkkul. brytjað og sett yfir.
fsinn settur á marsipanið í bit-
um, líkjörnum hellt yfir. Skreytt
með mandarínum.
RÚLLUTERTA MEÐ
APRIKÓSUMAUKI
3 egg
125 gr sykur
75 gr maizenamjöl
1 tsk. ger
1-2 tsk. vaniliusykur
50 gr hakkaðir hnetukjarnar
til að strá deigið með. Egg og
sykur hrært vel saman. Maizena
mjöli og vanillusykri sigtað yfir
eggja- og sykurhræruna.
1) Hnetukjörnum dreift yfir
deigið á plötunni áður en bakað
er. Sett í vel heitan ofn í 7 mín.
2) Kökunni hvolft á sykri-
stráðan pappír, apriikósumauki
(sykrað að smekk), smurt á síð
an þeyttum rjóma og þá er kök-
unni rúllað upp.
3) Kafcan tilbúin, góð með
kaffi eða sem ábætisréttur.
APPELSÍNUR
MEÐ MARENGE
4 appelsínur
3 egg
100 gr sykur
25 gr hveiti
V4 1 mjólk
safi úr 1 appelsínu.
Skerið lök af hverri appel-
sínu, þanmig að ca. % hluti henn
ar er slkorinn burt. Má gera
takka í brúnina ef vill. Hrærið
eggjarauðurnar með syfcrinum,
setjið í pott, bætið í hveiti og
hrærið í meðan heit mjólkin er
sett saman við, bætið í safa úr
1 appelsánu. Kælið kremið og
bætið þá 3 stífþeyttum eggja-
hvítum út í. Setjið kremið nú í
appelsínurnar, setjið þær í eld-
fast fat og bakið í ofni í noklkrar
mínútur. Ofninn má ekki vera
of heitur, en marenge-ið á þó að
fá á sig ljósbrúnan lit.
Komum okkur út
í góða veðrið
EF VTÐ verður nú svo heppin,
að veður leyfi útivist um pásk-
ana, svo að eklki sé minnzt á, ef
snjór yrði hér í nágrenni borg-
arinnar, ættum við að aflýsa öll-
urn kaffiboðum og koma okkur
út í sólina. Það er hægt að kom-
ast af án skíðaútbúnaðar og nota
sleða eða bara fara í gönguferð-
ir. Margir eiga lopapeysu, sem
koma að góðum notum við
svona tækifæri, einhvers konar
síðbuxur eru nauðsynlegar svo
og kuldastígvél, og gerir eklkert
þótt þetta sé ekiki samstætt, eða
samkvæmt nýjlustu tízlku, viJð
njótum áreiðanlega útivistarinn-
ar samt.
Það er talsverður vandi að
gera toppinn jafnan þegar að-
eins á að stytta hann milli heim-
sókna til rakarans. Reynandi er
að setja límband yfir það sem
klippa á, þannig að klippt er
við efri brún límbandsins. Topp
urinn ætti að verða beinn og
hárin fara ekki í augun, þar sem
þau festast í límbandiuu.