Morgunblaðið - 25.03.1970, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MARZ 1970
— Minning
Fiambald af bJs. ZZ
frú Sigurlaugu Erlendsdóttur,
kcrnu hans. Við þau hjón tengd-
ist hún þá svo sterkum vináttu-
böndum, að eigi rofnuðu meðan
líf entist.
Á Torfastöðum kynntist hún
Jóhanni Kr. Guðmundssyni, og
urðu þá þáttaskil í Mfi hennar,
þvi að þau giftust nokkru síðar,
eða nánar tilgreint 1917, og hófu
eigin búsikap á Iðu, sem var tví-
býlisjörð. Bjuggu þau í vestur-
bænum. — Jóhann var viða
þekktur sakir afburða hagleiks
og dugnaðar. Eru enn til á Iðu
smíðisgripir af hans höndum
gerðir, sem sýna ljóslega, hve
mikill snillingur hann var. Góð-
ir smiðir voru þá eigi algengir
í dreifbýlinu, og er svo raunar
eun, og var Jóhann því mjög
eftirsóttur til slikra starfa. Hann
vann þess vegna oft utan síns
heimilis, um lengri eða skemmri
tíma, og þar af leiðandi kom það
mjög í hlut húsfreyjunnar, að
annast og sjá um sjálf heimilis-
störfin, og vist er, að það hlut-
skipti sitt rækti hún með mikilli
prýði.
Árið 1928 dró upp dökkt ský í
lífi Bríetar, þvi að þá missti hún
mann sinn frá fimm ungum
börnum, sem þau hjónin höfðu
eignazt. Er næsta auðvelt að
skilja, hversu mikla örðugleika
þessi sorgiegi atburður muni
hafa haft í för með sér, á sínum
tíma, og hve þungbæra óvissu
um framtið heimilisins hann
hafi skapað. En sálarþrek hús-
freyjunnar brást eigi fremur en
endranær, og vissulega sá hún og
skildi, að hér var einungis um
lögmál að Tæða, sem allir verða
að lúta, og það oft fyrirvaralítið
og þegar verst stendur á. Og sem
betur fór, rættist von bráðar úr
þessum örðugleikum hennar, því
að til hennar réðist, fyrir ann-
arra milligöngu, traustur ágætis
maður, Loftur Bjarnason að
nafni, ættaður úr Gnúpverja-
hreppi. Varð hann upp frá því
hennar lífsförunautur alla tíð,
þar til hann lézt á síðastliðnu
hausti, eftir mikið og heillaríkt
ævistarf. Má með sanni segja,
að þama hafi betur farið, en á
horfði á tímabili, og fögnuðu
allir þessum málalokum, því
með þeim var framtíð heimilis-
ins tryggð. Bjó Bríet síðan á
Iðu alla sína búskapartíð og
kom börnum sínum til mann-
vænlegs þroska, sem var að sjálf
sögðu hennar helgasta verkefni
og áhuigamál, eins og allra góðra
mæðra.
Börn þeirra Jóhanns og Bríet-
ar eru öll á lífi, en þau eru þessi:
Ámundi, vélfræðingur í Reykja-
vik, kvæntur Kristjönu Sigur-
mundsdóttur; Ingóifur, bóndi að
Iðu í Bisikupstumgum, kvæntur
Margréti Guðimundsdóttur; Gunn
ar, sikipasmiður í Keflavík,
kvæntur Valgerði Baidvinsdótt-
ur; Sigurlaug, búsett í Reykja-
vík, gift Hirti Magnússyni, skrif
stofumanni; Unnur, húsfreyja að
Reykjum á Skeiðum, gift Þor-
steini Þórðarsyni, bónda þar.
Hér hefur löng saga verið sögð
í stuttu máli, aðeins verið minnzt
á örfá atriði úr lífi merkrar
konu, sem nú er horfin af sjón-
arsviði hins jarðneska lifs.
Síðast, er ég hitti þessa vin-
koniu mína að máli, var hún enn
andlega styrk, þótt líkamsþrek-
ið væri sýnilega mjög að þrot-
um komið. Tal okkar barst þá
meðal annars að hókmenntum,
fyrr og síðar, því að hún var
alla sina ævi svo bókelsk, að
bækur voru jafnan ofarlega í
huga hennar. Hins vegar var hún
mjög vandlát í þeim efnum og
kunrni sannarlega að skilja hism
ið frá kjamanum. Og nú, eins og
oft áður, lét hún í ljósi andúð
sína á þeirri tilhneigingu ýmissa
nútima höfunda, að draga fram
í dagisins ljós allt hið sorakenmd
asta, sem finna má í lifi einstakra
manna. Hún vildi hafa bækurn
ar — ljóð og sögur — eins og sí-
— Vettvangur
FramhaJd af bls. 16
ins og Alþýðuflokksins hefur verið háð
þessum takmörkum eins og samstarf
annarra flokka, sem hér hafa starfað
saman i ríkisstjórn. Þeir, sem kunnug-
astir eru stjórnmálum hér á landi, eru
sammála um, að samstarf þessara
tveggja flokka hafi verið mun betra og
málefnalegra en flestra ef ekki allra
annarra flokka, sem starfað hafa sam-
an í ríkisstjórn. Þvi er ek'ki að leyna, að
Sjálfstæðismönnum hefur stundum
fundizt Alþýðuflokkurinn nota sér full-
mikið, að hann er minni flokkurinn í
þessu gamstarfi og skákað í þvi skjóli í af
srtöðu til mála. Þó hefur þetta geinigið
stórátakalaust og skapað meiri festu í
íslenzkum stjórnmálum en þjóðin hefur
átt við að búa um áratugaskeið. En með
atkvæði sinu í fyrradag hefur Eggert
G. Þorsteinsson, sjávarútvegsmálaráð-
herra farið út fyrir þau mörk, sem eðli-
leg geta talizt í slíkri samvinnu. Hann
hefur ekki gert noklkra grein fyrir af-
stöðu siinni og fyrir henini eiu eikki sjáan
leg nokkur skynsamleg rök. En með
atkvæði sínu hefur ráðherrann unnið
sér sess í þingisöigunm, sieim hann er ekki
öfundsverður af.
Styrmir Gunnarsson.
Dömur líkamsrœkt
Fyrsti kúr eftir páska Morgun- dag- og kvöldtímar.
hefst 2. apríl. Matarkúr — heimaæfingar.
Líkamsrækt og megrun fyrir konur Jazzballettskóli BARU
á öllum aldri. (Stigahlíð 45).
4 tímar á viku. Uppl. og innritun i síma 8 3 7 3 0.
PÁSKALILJUR
MUNID:
Blómaúrvalið
Brúðarvendina
Fermingablómin
Sjálfsafgreiðsla
Blómlaukar
Blóma- Matjurfa-
FRÆ
Þrír útsölustaðir
Miklatorgi. sími 22822.
Sigtúni, simi 36770.
Hafnarfjarðarveg. sími 42260.
streymandi lindir hins vermandi
kærleika, þar sem lesandinn gæti
ávallt teygað í sig andlegan
styrk, sér til fróunar og yndie.
Þannig voru sjónarmið þessarar
lífsreyndu konu og er ég henni
innilega sammála.
Það var bjart yfir BiSkups-
tungum þann dag, sem Bríet Þór
ólfsdóttir var til moldar borin.
Sólin, drottning allra ljósa, stráði
geislum sínum í ríkum mæli yfir
mjöllina, sem sveipaði landið
hvitri blæju, svo langt, sem séð
varð. Og einstakir fjallatindar
sem risu i hljóðlátri tign út við
sjóndeildarhringinn, voru eins og
voldugir fingur, sem bentu upp
í himinnsins hæðir, þangað, sem
sál þeirrar konu, sem vinir henn
ar nú voru að kveðja, var horfin
að eilifu.
Eyþór Erlendsson-
— Chamber
Framhald af bls. 10
fór fram á ensku, þar sem kennd
var ensk fundarmennska sem er
allfrábrugðin þvi sem hér gerist
og ætluð til hagræðis fyrir þá
sem þurfa á ráðstefnur og fundi
erlendis eins og stöðugt fer S
vöxt.
Gregers Hoeg, sem er búinn að
starfa í Junior Chamber frá ár-
inu 1961 segir að um hálf millj
ón manna i heiminum séu i þess
um samtökum i dag og þar af séu
50% í Bandaríkjunum og Japan,
og alls staðar er tilgangurinn sá
sami eða að veiða ekki fislkinn
sjálfur, heldur sýna hvernig á
að veiða hann, eins og Gregers
Hoeg orðaði það.
— Verzl.miðstöð
Framhald af bls. 8
arvarningur auk landbúnaðar
varanna, sem áður er getið.“
FJÁRMAGNSÞÖRFIN
Að síðustu drápu þeir Sig-
urliði og Valdimar á þörfina
á fjármagni. „Uti í hinum
stóra heimi á verzlunarstétt-
in aðgang að ýmsum lánastofn
unum til að afla fjármagns
hvort heldur sem er til hús-
bygginga eða til kaupa á
ýmsu, sem góður verzlunar-
rekstur útheimtir. Hér á iandi
Veizluréttir
Kalt borð og hertir réttir.
Fáið heimsendan veizluseðil-
ilinn frá okkur.
Strandgötu 4 - Sími 50102.
hafa til þessa engir sjóðir ver
ið til að þjóna þessu hlut-
verki, sem full þörf er þó á,
einkum þegar um er að ræða
stórátak í verzlun eða þjón-
ustu .Þetta hefur orðið þess
valdandi að í fæstum tilfell-
um hefur verið sú reisn og
geta í þessum efnum sem æski
leg hefði verið, en við von-
um að með verzlunarmiðstöð
inni sé nú brotið blað í inn-
lendum verzlunarrekstri.
Það er rétt, sem komið hef-
ur fram i blaðaskrifum vegna
verzlunarmiðstöðvarinnar, að
við (Silli & Valdi) eigum marg
ar og góðar eignir, og einmitt
með það að bakhjarii vonum
við, að hægt verði að ljúka
þessum framkvæmdum á þann
hátt, sem upphaflega var ráð
gert, og lýst hefur verið hér
að framan.
— Alþingi
Framhald af bls. 12
lendar þjóðir. Nánar tiltekið er
um að ræða stuðning við þátt-
töku íslenzkra landsliðssveita í
hinum ýmsu íþróttagreinum i
heimsmeistarakeppni, Evrópu-
keppni og NorðurlandakeppnL
Þó skal sjóðsstjórninni heimilt
að veita fé til annarra íþrótta-
samskipta, ef fjárhagur sjóðsims
leyfir. Sjóðnum er því almennt
ekki ætlað að styrkja allar utan
farir íþróttamanna, neldur fyrst
og fremst þær, sem farnar eru
á vegum sérsambands fþrótta-
sambands íslands til þátttöku í
himrn stærstu og mikilsverðustu
íþróttamótum, sem sérsambönd
in eiga aðild að.
í frumvarpinu er gert ráð fyr
ir, að gjafir eða frjáls framlög
til sjóðsins séu undanþegin
skatti. Má ætla, að slíkt ákvæði
yrði ýmsum hvatning til pess
að leggja sjóðnum fé, enda ekki
fordæmalaust, að framlög til
menningar- og liknarstarfsemi
séu frádráttarbær við skatt-
álagningu. Að öðru leyti er gert
ráð fyrir, að aðaltekjur sjóðsins
verði árlegt ríkisframlag, eigi
minna en ein milljón króna.
Ekki þarf að hafa mörg orð
um nauðsyn þess, að stofnaður
verði sérstakur sjóður til stuðn-
ings þátttöku íslendinga í ýms-
um stærstu íþróttamótum á er-
lendum vettvangi. Sérsambönd
f.S.Í. eiga við mikla fjárhags-
örðugleika að etja. Nýjasta og
gleggsta dæmið um það efni er
að finna hjá Handknattleikssam
bandi fsiands. Kom fjárskortur
íþróttahreyfingarinnar berlega í
ljós, þegar Islendingar sendu
landslið sitt í handknattleik til
heimsmeistarakeppni í Frakk-
landi nú nýverið. Lá við borð
að sú för færist fyrir vegna fjár
hagsörðugleika. Situr Handknatt
leikssambandið uppi með stór-
an skuldabagga vegna þátttöku
í mótinu
Húsnœði óskast
Óska eftir að taka á leigu 1000—1500 ferm. húsnæði, sem
mest á einni hæð.
Tiiboð merkt: „Húsnæði — 2727" ieggist inn á afgr. blaðsins
fyrir 1. apríl.
Kennaraskólanemi
Stúlka með mjög góða tungumálakunnáttu óskar eftir sumar-
starfi. Er reglusöm og hefur góð meðmæli.
Tilboð merkt: „Sumar 1970 — 8292" sendist Mbl. sem fyrst.
Ti! leigu
stór og glæsileg 5 herbergja íbúð á Ægisgötu 10.
Tilvalin fyrir sendiráð eða skrifstofur.
GlSLI JÓNSSON
Ægisgötu 10.