Morgunblaðið - 25.03.1970, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2S. MARZ 1970
ine? Skrepptu yfrum og fáðu
þér kvöldmat með okkur. Nei,
ekkert tilstand. Komdu bara
eins og þú stendur. Ég ætla að
koma þér skemmtilega á óvart.
Já . . . Bob er í París? Já, gott
og vel, það getur verið sama.
Þá varð Gilles að drekka
kokteil. Plantel blandaði hann
sjálfur í silfur-hristara, með sín
um eigin næmu fingrum.
— O, reyndu bara. Það hefur
enginn neitt illt af einu glasi.
Jean, komdu inn. Ég er héma
með nýjan kunningja handa þér,
Gilles Mauvoisin, bróðurson
hans Octave.
— Er hr. Jean heima? Biddu
hann að komu hingað niður.
Frá þessari stundu hafði
Giles verið sviptur öHu valdi
yfir sjálfum sér. Hvað hann gat
saknað þessarar stundax — sem
honum fannst nú í órafjarlægð
— þegar hann kom fyrst að
kirkjugarðshiiðinu, frjáls mað-
ur. Hann minntist gömlu kon-
unnar, sem seldi kertin og hafði
komið sér upp sölupalli á gang-
stéttinni, og múrarans, sem hafði
aukatekjur af því að selja potta-
plöntur, og gamia betlarans, sem
sat við vegarbrúnina og sýndi
stúfinn þar sem fóturinn hafði
verið tekinn af honum . ..
En hér var stór forsalur með
heljarmiklum ami, þar sem við-
ur brann og ilmaði, vindlareyk-
ur og ilmur af líkjörum.
— Gerið þér svo vel að fá
yður sæti.
Hvers vegna hafði þessi Plant
el svo snögglega tekið hann und
ir væng sér? Var hann meiri
maður en Babin? Sá síðarnefndi
hafði líka verið þarna, en nú
virtist hann hafa hrapað niður
í annað sæti.
— Halló! Ert það þú, Gerard-
Hárþurrkur
PHILIPS hárþurrkur
RONSON hárþurrkur
Tilvaldar fermingargjafir
Lítið inn — veljið fermingargjöfina
í tíma
Heimilistæki sf.
HAFNARSTRÆTI 3 — SÍMI 20455.
Það var sjálfum þeim að
kenna, ef Gille3 fannst, eftir öll
þessi glös, að þeir litu út eins
og einhver skrípi en ekki eins
og mennskar manneskjur. Til
dæmis hann Jean Plantel, sem
var unguT maður, hálfþrítugur,
grannur með þunnt ljóst hár —
hann fannst honum einna líkast
ur engisprettu. Og að minnsta
IX
kosti var hann alltaf að núa sam
an höndunum, eins og engi-
spretta framfótunum.
— Jæja! Sicál ungi maður!
Og svo frænka hans, hún
Gerardine Eloi, sem var hávær
og rúmfrek á við alla hina.
— Svo að hún systir mín
sáluga . . .
Hún vax sú fyrsta, sem lét sér
detta í hug sorgaratburðinn
norður í Þrándheimi.
— Hvernig gekk þetta til?
Og Giles, sem var orðinn eld
rauður í karnbinn með gljáandi
augu, gat ekkert fundið til að
segja annað en bláberan sann-
leikann:
— Það var ofninn . . .
Frú Plantei gekk þeim um
beina í borðsalnum, mjög virðu-
leg roskin kona, sem var með
vettlinga, líklega til að leyna
einhverjum örum á höndunum.
Hún sagði varla orð, alla máltíð
ina á enda.
— Hann verður að koma og
vera hjá okkur, sagði Ger-
ardine frænka. Ég ætla að
hringja í stelpurnar og segja
þeim að hafa til herbergi handa
honum.
— Alls ekki Hann getur Verið
hér í einhverju auða herberginu
í eina eða tvær nætur, og mundu
það, Gerardine, að samkvæmt
ákvæðum erfðaskrárinnar verð-
ur hann að búa í húsinu við
Úrsúlubryggjuna.
— Hjá þessum kvenmanni?
— Þú veizt alveg . . .
— Það er verst, að hann Bob
skuli vera í París. Hann hefði
haft ánægju af að sýna honum
Gilles borgina.
Umboðsmenn:
Ágúst Ármann
R0YL0N
sokkabuxur
ROYLON sokkabuxur
30 den. með skrefbót.
R O Y L O N er viðurkennd
gæðavara frá KUNERT-
verksmiðjunum í Austurríki.
LÆKKAÐ VERÐ VEGNA
EFTA AÐILDAR.
hf. - Sími 22100
— Það getur hann Jean gert.
Engum datt í hug að spyrja
Gilles, hvað hann vildi gera. Það
var verið að skipuleggja líf
hans, án þess að hann kæmi þar
neins staðar nærri. Margt af
þessu skildi hann alls ekki, þar
eð vikið var að mönnum og stöð-
um, sem hann hafði aldrei heyrt
nefnda á nafn, og enginn gerði
sér það ómak að útskýra það
nánar fyrir honum. Það eina,
sem fyrir hann var gert, var að
fylla glasið hans jafnharðan.
Þegar hann tók fyrir sig af
fiskinum, missti hann bita á borð
dúkinn, og varð þá svo ringlað-
ur að í góðan stundarfjórðung
sá hann ekkert né heyrði og
hafði enga hugmynd um, hvort
hann væri að borða eða ekki.
„Bang, bang . . . Bang . . .
Bang, bang, bang.“
Og svo hringdi bjalla. Mikill
hávaði og fyrirgangur í eldhús-
inu niðri. Enn heyrðist glamur
í leirtaui og svo fótatak í gang-
inum. Fólkið hlaut að vera að
fara með morgunmat upp í eitt-
hvert herbergið. Úr anoarri átt
heyrði hann, að verið var að láta
renna í bað. Var orðið mjög
framorðið?
Gilles var með sáran höfuð-
verk, fyrst hægra megin, svo
vinstra megin, rétt eins og
þarna væri einhver aðskotahlut
ur, sem væri að reyna að brjót-
ast út. Sennilega væri vatns-
flaska við rúmið. en þegar hann
rétti út höndina, fann hann ekk-
ert nema vegginn. Ósjálfrátt
kom orð fram á varir hans:
— Pabbi...
Hann hefði mest langað til að
fara að gráta. Hann var enn
taugaspenntari en hann hafði
nokkurn tíma áður verið. Það
var einkennilegt, að hann skyldi
fara að ákalla föður sinn. Hvers
vegna ekki móður sína? Þetta
var ósanngjarnt og hann varð að
kannast við það. Það var móðir
hans, sem hafði alltaf séð um
hann, og hún hafði orðið að ala
hann upp við hin erfiðustu skil-
yrði, í ódýrum gistihúsum og
matsöluhúsum. Það . var engin
Til sölu: vörubílor
Volvo '66 F. 85 8 tonn í góðu ástandi.
M-Benz '63—'64 1418.
M-Benz '68 1517 sem nýr.
Rússajeppi '59 með góðu húsi.
Landrover '64, ekinn 62 þús. km.
Upplýsingar í síma 52157.
Ilrúturinn, 21. marz — 19. apríl.
Einbeittu þér að hlutum, sem þú getur unnið í einrúmi.
Nautið, 20. apríl — 20. maí.
Þér vlrðist svo scm allir reyni að hafa afsökun fyrir að láta
skapsmuni sína bitna á sem flestu.
Tvíburamir, 21. maí — 20. júní.
Notaðu nú þær gáfur, sem Guð gaf þér. Fólkið þitt er hörunds-
sárt fyrir hvers kyns vanrækslu, þótt aðeins sé um stundarsakir.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí.
Þér hættlr til að sóa fé þínu í dag.
Ljónið. 23. júlí — 22. ágúst.
Reyndu að skilja áform og afstöðu annarra. Gerðu cinhverja und-
antekningu.
IVIeyjan, 23. ágúst — 22. september.
Aform þín virðast verða að vikja fyrir áætlunum annarra. Félagar
þínir virðast ekki reiðubúnir að fylgja þér.
Vogin, 23. september — 22. október.
Sérhlifni er skynsamleg og mikilvæg í svipinn. Reyndu að yfir-
vega málefnin, sem þér hafa legið á hjarta.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember.
Eitthvcrt vandamál er á döfinni heima fyrir. Haltu friðlnn.
Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. ðesember.
Vertu því viðbúinn, að fólk, sem þú hefur ekki séð i langan tíma
tima áfellist þig eða hallmæii á einhvem hátt.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Framkvæmdirnar eru fyrir öllu i dag.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
Tillitssemin er gullí betri í dag.
Fiskarnir, 19. febrúar — 20. marz.
Nú er tíminn til að ieiðrétta villur f útreikningum.