Morgunblaðið - 19.05.1971, Page 1
32 SIÐ UR
Egyptaland:
— handteknir fyrir samsæri
Forstöðumenn
útvarpsins
□ □
Q Sjá einnig- grein á bls. 10. Q
□ □
Kaíró, 18. maí. —- AP-NTB.
ANWAR SADAT, forseti Egypta
lands tilkynnti i dag að skipuð
hefði verið ný framkvaemda-
stjórn Arabiska sósíalistasam-
bandsins — en sambandið er eini
stjórnmálaflokkurinn, sem starf-
ar þar í landi. Fylgir þessi
ákvörðun i kjölfar hreinsananna
miklu innan ríkisstjórnarinnar
að undanförnu, sem meðal ann-
ars leiddu til handtöku sex ráð-
herra og þriggja manna úr
Reyna að ná
tindi Everest
í vikunni
Kanmandu Nepal, 18. maí AP.
BREZKU fj allgöngumennirnir)
tveir, sem freista þess umj
þessar mundir að komaist upp|
á tind Mount Everest hafai
reist sér búðir í 7.980 m hæð'
og munu hafast þar við, unz
veður batniar, en það hefur
verið afleitt á þessum slóð-
um síðustu daga. Þeir eiga
eftir uim 650 rnetra á tindinn
og hefur sá hjalli oftast
reynzt sá erfiðasti. Mennirnir
tveir Whillans og Haston
munu hafa í hyggju að reyna
að ná tindinum á fimmtu-
dag eða föstudag. Taikist það
ckki er talið eins líklegt að
hætt verði við leiðangurinm
í bili.
Ymsir aðrir úr hópnum
hafa reynt að komast upp í
hinar nýju búðir þeirra
Whillans og Hastons, en
orðið frá að hverfa vegna
stonmviðris og fannfergis.
Upphaflega voru í hópnum 32 f'
fjallgöngumenm, af 12 þjóð-
ernum. Nú eru eftir 25, þar
sem einm hefur iátizt, íjórir
hafa hætt þátttöku og tveir
til viðbótar hafa orðið að
hætta vegna krankleika.
stjórn flokksins fyrir meint
samsæri um stjórnarbyltingu.
Fjöldi annarra opinberra
starfsmanna hefur verið hand-
tekinn, þar á meðal þingmenn,
miðstjórnarmenn sósíalistasam-
bandsins, og nú siðast forráða-
menn hjá hljóðvarpi og sjón-
varpi.
Dagblöð í Kaíró skýrðu frá
handtöku útvarpsmannanna í
dag og segja að þeir hafi átt
aðild að samsærinu. Segja blöð-
in að menn þessir hafi breytt
dagskrá hljóðvarps og sjónvarps
á fimmtudagskvöld i fyrri viku
og í stað auglýstrar dagskrár
látið leika þar þjóðlög og her-
göngulög um leið og tilkynnt
var að ráðherrarnir sex hefðu
sagt af sér. Átti þetta að gefa
til kynna að stjórn Sadats væri
að falli komin og skapa glund-
roða i landinu. Tókst sú tilraun
andstæðinga Sadats ekki, en
þess í stað voru ráðherrarnir
sex handteknir og sakaðir um
samsæri.
Víðtækar rannsóknir eru nú
Framhald á bls. 25.
Mynd þessi var tekin á laugardag þegar Anwar Sadat forseti ávarpaði eg.vpzku þjóðina og
skýrði henni frá breytingum á ríkisstjórninni. Var ávarpi forsetans útvarpað og sjónvarpað, og
tók það hálfa aðra klukkustund.
Mestu fjöldahandtökur
— í sögu tyrkneska lýðveldisins
Yfirvöld neita að verða
við kröfum mannræningja
Istanbul og Jerúsalem,
18. maí. — (AP-NTB).
★ SVEITIR úr tyrknesa hern-
um og öryggislögreglunni leita
nú mannræningjanna, sem í gær
rændu aðalræðismanni tsraels í
Istanbul.
★ Haft er eftir áreiðanlegum
heimildum að hundruð vinstri
sinnaðra stúdenta, prófessora,
stjórnmálamanna og verkalýðs-
leiðtoga hafi verið handteknir,
og er hér um að ræða mestu
Óku óvart
inn 1 Kína
Átta brezkum hermönnum
sleppt eftir 10 klst. í Kína
Hong Kong, 18. maí — AP.
• Átta brezkir hermenn, sem
voru að flytja matvæU tU landa
mæravarða í Hong Kong, óku ó-
vart yfir landamærin snemma
i morgun og inn á kínverskt
landsvæði. Voru Bretamir komn
ír um 50—60 metra inn í Kína
þegar kinveirskir hermenn lok-
ttðu vegLnum fyrir aftan þá og
meinuðu þeim að snúa við.
• Tiu klukkustundum eftir að
brezktt hermetnnirnir voru hand-
teknir var skýrt frá því að þeim
hefði verið sleppt úr haldi og
að þeir hefðu fengið að halda
heint tU Hong Kong.
Nokkru áður en brezku her-
mönnunum var sleppt tilkynntu
yfirvöld í Hong Kong að þau
hefðu sent yfirvöldum í Kina
orðsendingu þar sem skýrt er
frá atburðinum og beðizt afsök-
unar á ferð brezku hermann-
anna inn á kínverskt lands-væði.
Þá segir í orðsendingunni að
„yfirvöld í Hong Kong gera eng-
ar frekari ráðstafanir að svo
stöddu, og vona að hermennirn-
ir og bifreiðar þeirra fái fljót-
lega að hnúa heim til Hong Kong
strax og kínversk yfirvöld hafa
lokið rannsókn í málinu.“
Brezku hermennirnir óku í
Land-Rover og fjögurra tonna
Framhald á bls. 21.
fjöldahandtökur í 47 ára sögtt
tyrkneska lýðveldisins.
★ Ríkisstjórnir Tyrklands og
ísraels sátu fundi í dag til að
ræða mannránið. Á fundi ísra-
elsku stjórnarinnar var gengið
frá orðsendingu til tyrknesku
stjórnarinnar þar sem henni er
þakkað fyrir tilraunir tU að
bjarga lífi aðalræðismannsins.
Það voru vopnaðir menn úr
svonefndum „Frelsisher tyrk-
neskrar alþýðu", sem 1 gær
rændu Ephraim Elrom aðalræð-
ismanni frá heimili hans i Istan-
bul. Hótuðu þeir að myrða aðal-
ræðismanninn ef ekki yrði sleppt
úr tyrkneskum fangelsum
öllum byltingarsinnum fyrir
fimmtudagskvöld. Stjórnarvöld-
in neituðu að fallast á kröfur
mannræningjanna, en hótuðu
þess í stað að setja ný lög, sem
fælu í sér dauðadóma yfir öll-
um, er væru viðriðnir mannrán-
ið. Einnig var tilkynnt að allir
Hoenecker
í Moskvu
þeir, sem vitað væri að ættu
aðild að Frelsishernum svo-
nefnda, yrðu handteknir.
Samkvæmt fyrirmælum yfir-
valdanna var i dag útvarpað
nöfnum 49 manna, sem ríkis-
stjórnin skorar á að gefa sig
fram tafarlaust við lögregluna.
Sagði í útvarpstilkynningunni
að gefi mennirnir sig ekki fram
af sjálfsdáðum verði þeir sótt-
ir heim og vopnum beitt, ef
Fraimhald á bls. 21.
Grænlandsflug
SAS eykst
í ÁRSSKÝRSLU skandinav-
iska flugfélagsins SAS segir
frá því að félagið hafi nú
fimmta árið í röð tekið þátt
í Grænlandsflugi, en í þvi fé-
lagi á SAS 25%. Notaðar
voru fimm Sikorsky S-61-N
þyrlur og tvær vélar af gerð-
inni DC-4. Umferðaraukning
varð 20%, 31 þúsund farþeg-
ar voru fluttir á vegum Græn
landsflugs (26 þús. árið áð-
ur), 78.000 kg af frakt (65
þús. árið áður) og 380 þús. 1
kíló af pósti (300 þús. kíió ár |
ið áður).
Öttast eyðingu
fiskstofnsins
— að óbreyttri stefnu
EBE í fiskveiðimálum
MoSkvu, 18. maí AP.
ERICH Hoenecker, hinn nýi
leiðtogi austur-þýzkra komimún-
iista kom til Moskvu í dag til
viðræðna við sovézka flokksfor-
ingjanm, Leonid Brezhnev. Með
í förimmi er Willi Stoph, forsæt-
isráðherra og tveir meðlimir
stjórnarráðsins þeir Horse Sund
enmann og Kurt Hager.
Þetta er fyrsta heirmsókn
Hoeneckers til Moskvu, síðan
hanm tók við starfi flokksleið-
toga af Walter Ulbricht þanm 3.
mai.
London, 18. maí. — NTB
BREZKUM blöðum verður tíð-
rætt um áhrif aðildar Breta að
EBE á efitahagslífið í landinu,
og í dag leggja tvö blöð áherzlu
á áhrif fiskveiðistefnu samtak-
anna.
Blaðið Daily Telegraph segir
að núverandi stefna Efnahags-
bandalagsins í fiskveiðimálum
geti leitt til þess að fiskstofn-
inn við strendur Bretlands, Nor-
egs og Irlands gjöreyðist, ef
þessi lönd verða aðilar að banda-
laginu. í sama streng tekur
blaðið Financial Times, sem
segir að fiskstofninum við
strendur þessara þriggja landa
sé stefnt í hættu og að mikill
fjöldi manna geti misst atvinnu
sina ef fiskimálastefna EBE taki
ekki miklum breytingum áður
en löndin gerast aðilar.
Daily Telegraph segir að aðild
landanna þriggja hljóti að kreíj-
ast stórbreytinga á stefnunni 1
fiskimálum, því þarna sé um
þrjár miklar fiskveiðiþjóðir að
ræða. Segir blaðið að sam-
kvæmt rikjandi stefnu banda-
lagsins i fiskveiðimálum eigi
aðildarríkin að heimila öðrum
aðildarríkjum fiskveiðar innan
sinnar landhelgi, og geti sú
stefna leitt til eyðingar fisk-
stofnsins á fimm árum.
í Financial Times er einnig
bent á að í Noregi starfi 45 þús-
und manns að fiskveiðum og
fiskiðnaði, og að norska stjórn-
in óttist að margir þeirra verði
atvinnulausir og neyðist til að
flytja búferlum, ef landið fær
aðild að EBE.
«
<