Morgunblaðið - 19.05.1971, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐBÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. MAl 1971
Fyrsti hverf af undurinr
— í gærkvöldi
í GÆRKVÖLDI var haldinn
hvorfafundnr frambjóðenda
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
i Árbæjar- og Breiðholtshverfi.
Fundurinn var haldinn í félags-
heimili Rafstöðvarinnar, og var
hinn fyrsti af fimm fundum í
Reykjavik.
Fundurinn hófst með ræðum
Jóhanns Haifstein forsætisráð-
herra, Geirþrúðar Hildar Bern-
höft ellimálafulltrúa, og Gunn-
ars J. Friórikssonar, iðnrekanda.
Að lóknum ræðum frummæl-
enda hófust almennar umræður
og frummælendur svöruðu fyrir
spurnum fundarmanna. Fundar-
stjóri var Skúli Möller.
*
Ferðaskrifstofa Ulfars Jacobsen:
17 hópferðir um landið
Aukin eftirspurn og þegar
farið að panta fyrir árið 1972
FERÐASKRIFSTOFA Úlfars Ja-
cobsen skipuleggur í sumar 17
hópferðir, 13 hálendisferðir og
4 hringferðir og eru það um
helmingi fleiri ferðir en sl. sum-
ar. Nú þegar er mjög vel bókað
í allar ferðirnar. Hefur ferða-
skrifstofan þurfkað bæta við sig
mörgum bílum til þess að mæta
hinni auknu eftirspurn, og verða
alls 12 bílar í ferðunum í sumar
í stað 6 í fyrra. Eru það svo til
eingöngu útlendingar sem taka
þátt í ferðunum og eru sumir
að koma í þriðja og fjórða
skiptið.
í viðtali við Njál Símonarson
hjá ferðaskrifstofunni kom fram
að flestar pantanimar fyrir sum
arið eru frá Þýzkalandi, því
næst koma Frakkar, þá Bretar
og í fjórða sæti eru Banda-
ríkjamenn.
Mikið hefur verið skrifað um
ferðir Úlfars Jaootosen í er-
lend blöð og tímarit og sagðist
Njáll telja að það ætti sinn þátt
í hinni auknu eftirspum eftir
ferðum. Nefndi hann sem dæmi
að fýrir tveimur árum hefði
komið stór grein í New York
Times og í bréfum sem ferða-
skrifstofunni bærust núna væri
enn verið að vitna í þessa grein.
Þá birtist í Geografic-Magasin
Framh. á bls. 12
Síðasta húsið reist. (Ljósm. Mbl. Öl. K. M.)
Byggingaframkvæmd-
um Iðngarða að ljúka
16 þúsund fermetrar komnir undir þak
Tveir „fossaru
í hraðferðum
EIMSKIPAFÉLAGIÐ hefur um
nokkurt skeið haldið uppi viku-
legum hraðfeirðum frá Felixtowe
og Hamborg til Reykjavíkur. Nú,
oftir að félaginu hefur bætzt m.s.
„Mánafoss“ í flotann, hefur ver-
ið ákveðið að tvö af nýjustu
skipunum skuli vera í þeissum
hraðferðum, þ.e. „Mánafoss“ og
„Dettifoss“, sem eru sérstaklega
smíðuð með hliðsjón af skjótri
afgreiðslu í höfnum og auknum
hraða.
Framvegis verður því ferðun-
um hagað þannig, að frá Felix-
towe er ferð á hverjum þriðju-
degi og frá Hamborg á hverjum
finwntudegi. Þetta er nýjung,
sem mun stórbæta þjónustu við
inn- og útflytjendur.
Þá mun Eimskipafélagið eftir
sem áður halda uppi viikulegum
ferðum frá Rotterdam og frá
Antwerpen á 10 daga fresti.
BYGGINGU síðari áfanga Iðn-
garða við Grdnsásveg er að
ljúka og i gær var síðasta hús-
ið reist. Byggingaframkvæmdir
hófust árið 1965 og hafa þær
gengið mjög vel.
Eins og kunnugt er voru Iðn-
garðar h.f. stofnaðir í árslok
1963. Tilgangur félagsins var sá
að stuðla að byggingum hag-
kvæmra iðnaðar-bygginga. Var
öllum félögum í Fll. og Lands-
sambandd iðnaðarmanna boðin
þátttaka, en 14 fyrirtæki tóku
boðinu og hófst 1. áfangi bygig-
inganna í nóvemtoer 1965 og lauk
1967.
Síðan hafa surnir aðilar innan
Iðngarða byggt síðari áfanga
fyrir eigin reikning og án sér-
stafcrar fyrdrgreiðslu Iðngarða.
Nú tókst hins vegar stjórn Iðn
garða að fá lán úr Iðnþróunar-
sjóði og loforð fyrir láni úr Iðn-
lánasjóði og hefur verið ráðizt
í að Ijúka verfcsmiðjubyggingum
þeirra aðida er uppfylia lánsskil
yrði ofahigreindra stofnana.
Verksmiðjuhúsin eru byggð
þannig, að súlur og loft eru úr
strengjasteypu, útveggir steypt-
ir en gaflar úr gagnvörðuim viði.
Vítt er til veggja og hátt til
lofts 16—20 m milld veggja og
Bridge:
lofthæð um 5 m. 1 síðari áfanga
verða nú byggðir um 4000 ferm.
og hafa þá atis verið byggðir
um 16000 ferm.
Byggingaframkvæmdir hafa
gengið mjög vei. Grunnar voru
þegar tiibúnir, en byggingafram
kvæmdir hófust 1. ■ marz sl, Ná-
kvæm örvaritaáætlun var gerð
um al'lt verkið og á því að ljúka
á sjö mánuðum. Áætlun heíur
staðið vel til þessa og.til marks
um byggingahraðann má geta
að mest hefur tekizt að reisa
1200 ferm hús á 8 stunda vinnu-
degi.
Firmakeppni Fáks:
Olíufélagið Skelj-
ungur sigraði
FIRMAKEPPNI Fáks fór
fram á nýja skeiðvelli félagfs-
ins á sunnndaginn var. Keppt
var fyrír 203 fyrirtæki. Keppn
in fór fram í bezta veðri að
viðstöddum fjölda áhorfenda.
Úrslit urðu þau að Olíufé-
lagið Skeljungur fór með sig
ur af hólmi, en gæðingurinn
Asi keppti fyrir Skeljung. Eig
andi Asa er Hinrik Ragnars-
son. No. 2 varð Matvælatoúð-
in, en Blesi í eigu Svanlaug-
ar Þorsteinsdóttur, keppti fyr
ir hönd þess fyrirtækis.
Þriðji varð Sitndrastóld, en
Silíurtoppur í eigu Einars
Guðmundssonar kepptd fyrir
það fyrirtæki. No. 4 var
KRON, en hestur Árna Pálma
somar, Kinnskæð, kepptí fyrir
það, og í 5. sæti varð bdfreiða
deiild Sjóvá, er Lokkur Sigur
björns Bárðarsonar keppti fyr
ir.
Asi Hinriks Ragnarssonar fór
með siaur af hólmi.
Lengst til vinstri er Asi, Hinriks Ragnarssonar, þvi næst Blosi Svanlaugar Þorsteinsdóttur,
þá Silfurtoppur Eirnars Guðmiindssonar, Kinnskæð Árna Pálmasonar og loks Lokkur Sigur-
björns Bárðlanwinar.
Ásmundur og Hjalti
íslandsmeistarar í tvímenningi
ÍSLANDSMÓTIÐ í tvímenningi
fór fram í Domus Medica um
síðustu helgi, 56 pör tóku þátt
í mótinu. Þar af voru 27 pör úr
Reykjavík, 13 pör frá héraðs-
samb. Reykjaness, 6 pör frá
héraðssamb. Suðurlands, 4 pör
frá héraðssaamb. Vesturlands, 2
pör frá héraðssamb. Vestfjarða,
3 pör frá héraðssamb. Aust-
fjarða og 1 par fré héraðssaimb.
Norðurlands.
íslandsmeistarar urðu Ás-
mundur Pálsson og Hjalti Elías-
son. Hlutu þeir 3548 stig, en í
öðru sæti urðu Óli Már Guð-
mumdsson og Örn Guðmundsson
með 3447 stig.
Röð efstu paranma varð þessi:
1. Ásmundur Pálsson — stig
Hjalti Elíaseon 3548
2. Óli M. Guðmundsson —
Öm Guðmurudsson 3447
3. Páll Bergsoon —
Stefán J. Guðjohnsen 3298
4. Jón Hjaltason. —
Öm Arnþórsson 3249
5. Símon Símonarson —
Þorgeir Sigurðsson 3218
6. Jóhann Jónsson —
Þórariinn Sigþórsson 3201
7. Jón Arason —
Vilhjálmur Sigurðsson 3189
8. Jón Stefánsson —
Þórhallur Þorstehvsson 3152
9. Brandur Brynjólfss. —
Sveinn Helgason 3107
10. Bennih. Guðmundsson —
Júlíus Guðmundsson 3100
Únslit í sveitakeppni íslands-
mótskus hefjast á fimmtudag»-
kvöldið 20. þ.m. kl. 20, Eftir-
taldar 6 sveitir taka þátt í úrslita
keppniinni:
1. Sveit Skúla Thorarenseu,
Keflavík,
2. Sveit Stefáns J. Guðjohnsen,
Reykjavík,
3. Sveit Jóns Arasonar,
Reykj avík,
4. Sveit Hjalta Elíassonar,
Rey'kjavík,
5. Sveit Þórarinis Hallgrims-
son.ar, Egilsstöðum,
6. Sveit Guðmundar Guðlaugs-
son.ar Akureyri.
Spilað verður í Domus Medica,
Framh. á bls. 12
Leiksvæði fyrir börn
Á ÞESSU sumri verður nýr
starfsvöllur, einn gæzluvöllur og
nokkur opin leiksvæði og spark-
vellir teknir í notikun í Reykja-
vík. Verða þá alls 28 gæzluvell-
ir, 2 starfsvellir og 80 opin leik-
svæði og sparkvellir í borginni.
Ekki hefur enn verið endan-
lega áikveðin StaðSetning hins
nýja starfsvallar, en hann verð-
ur þó einhvers staðar í Austur-
bænum. Verður hann skipulagð-
ur á svipaðan hátt og starfsvöll
urinn við MeistaraveHi sem var
opnaður í fyrra. Gæzluvöllurinn
verður á móts við Tunguveg, upp
af Langagerði.