Morgunblaðið - 23.05.1971, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. MAl 1971
Smjör&Ostur
Hreysti og glaSlyndi úr nestispakkanum.
Ostur er alhliða fæðutegund. Úr honum fá
börnin eggjahvítuefni (protein), vítamín og
nauðsynleg steinefni, þ. á m. óvenju mikið
af kalki. Kalkið er nauðsynlegt eðlilegri
starfsemi taugakerfisins. Smjörið veitir
þeim A og D vítamín. A vítamín styrkir t. d.
sjónina og D vítamín tennurnar.
Sveinn Kristinsson:
Skákþáttur
HVER VERÐUR NÆSTI HEIMSMEIST ARI ?
KANNSKI fæst ekki skorið úr
þeirri spurningu, fyrr en eftir
nokkur ár, því að hvergi naerri er
víst, að heimsmeistaraiskiptin
verði á næsta ári, en þá verður,
sem kunnugt er, næst háð ein-
vígi um titilinn. Boris Spassky
(rússneskur), núverandi heims-
meistari, er ekkert lamb að
leika sér við, kannski sterkasti
heimsmeistari, sem uppi hefur
verið. Væru það raunar mikil
tíðindi, ef honum yrði velt úr
heimsmeistarasessinum, eftir að-
eins þriggja ára setu þar, en,
sem kunnugt er, vann Spassky
titilinn af landa sínum Petrosjan,
í júní 1969.
Ef svo færi, eigi að síður, að
Spassky yrði aðeins heimsmeist-
ari í þrjú ár, hver er þá líkleg-
asti arftaki hans? — Spurning-
in er nærtæk, því að nú er ein-
mitt nýlega hafin hin 3Vonefnda
„Kandídatakeppni“, þar sem
teflt er um réttinn til að skora
á heimsmeistarann á næsta ári.
Eru alls háð sjö útsláttarein-
vígi, til að finna hinn útvalda
áskoranda. Og fjögur þessara
einvíga standa nú yfir, eins og
glögglega hefur mátt merkja af
fréttum undanfarið. Þau eru
milli Fischers og Taimanoffs,
Larsens og Uhlmanns, Petro-
sjans og Hiibners og Korchnojs
og Geilers. — Skulum við nú
aðeins virða fyrir okkur þessa
átta snillinga, víkja örfáum orð-
um að hverjum og einum þeirra.
Fischer er Bandaríkjamaður
(af þýzkum ættum), fæddur
snemrna árs 1943 og því 28 ára
að aldri. Hann var aðeins 15
ára, er hann vann sér stórmeist-
aranafnbót, og hefur enginn
skákmaður, fyrr né síðar, orðið
stórmeistari svo ungur. Hana
hefur áður teflt í tveimur
Kandidatakeppnum, árin 1959 og
1962. Þá var teflt um áskorunar
réttinn á skákmótum, en ekki í
útsláttareinvígum, eins og nú.
Á hvorugu þessara móta stóð
Fischer sig sérlega vel. 1959 var
hann hins vegar ekki nema 16
ára að aldri, og fyrir æsku sakir
greinilega ekki jafnoki hinna
sterkustu stórmeistara úr hópi
hinna eldri manna. 1962 sakaði
hann sovézku þátttakendurna
um samvinnu sín á milli, til að
ýta honum frá efsta sætinu.
Auðvitað var aldrei hægt að
sanna né afsanna þá ásökun.
Hins vegar var ljóst, að mögu-
leikinn til að „svindla“ var fyr-
ir hendi, og mun það hafa ver-
ið af þessum sökum, að Al-
þjóðaskáksambandið tók upp út-
sláttareinvígakerfið, en þar verð
ur engum slíkum bellibrögðum
kömið við.
Það er ánægjulegt, að Fischer
Petrosjan
skuli nú loks, eftir 9 ára hvíld
frá keppni „kandídata", vera
meðal þátttakenda á nýjan
leik. Öllum er í fersku minni
hinn mikli sigur hans á Milli-
svæðamótinu á Mallorca i haust,
þar sem hann var heilum þrem-
ur og hálfum vinningi fyrir ofan
næstu menn. — Verður varla
hjá því komizt, að telja hann
líklegastan til að vinna áskorun-
arréttinn nú.
Fischer hefur nú náð því öryggi
í skák, að oft er engu líkara en
að hann kunni varla að tapa.
Er þetta öryggi þeim mun að-
dáunarverðara sem Fischer tefl-
ir hvassara, hann er frábær
sóknarmaður og lætur fá tæki-
færi ganga sér úr greipum.
Rússinn Korchnoj hefur líkt
Larsen
Fischer við vél, sem sé stillt á
vinning. Þetta er hreint ekki svo
vitlaus samlíking, þar sem hún
sameinar öryggi Fischers og
sóknarhörku. — Um Fischer
mætti langhelzt segja, af öllum
átta kandídötunum, að eng-
inn vissi nú afl hans.
Larsen þarf lítt að kynna.
Hann er fæddur árið 1935, og
er því hálffertugur að aldri.
Byrjaði ungur að tefla, en sló
fyrst verulega í gegn á Olympíu
móti í Moskvu 1956, þar sem
hann varð efstur á fyrsta borði.
Hlaut stórmeistaratitil út á
það. Siðan, og einkum þó frá og
með 1964, hefur hann verið í
hópi allra sterkustu skákmanna
í heimi og unnið hvert stór-
mótið á fætur öðru. — Einn
frægasta sigur sinn vann hann
á Millisvæðamótinu í Túnis 1967,
en Fischer hætti í því móti
Gefið þeim smjör og ost í nestið.
Korschnoj
miðju, vegna ágreinings um
helgidaga.
Larsen féll nokkuð í áliti í
bili, er hann beið hrapallegan
ósigur fyrir Spassky í útsláttar-
einvígi 1968, en sjálfur kenndi
hann þar að nokkru um ytri að-
stæðum. — Síðan þá hefur hann
rétt verulega við orðstír sinn og
náði til dæmis, öðru til fjórða
sæti á Millisvæðamótinu á Mall-
orca á síðastliðnu hausti, að
vísu þremur og hálfum vinn-
ingi neðar en Fischer.
En nú ku hann ætla að drepa
Fischer í væntanlegu einvígi
þeirra í milli í sumar.
Líklega er Larsen frumlegasti
og skemmtilegasti skákmaður
allra þeirra, sem leiða saman
hesta sína á Kandídatamótinu.
Og bjartsýni sinni leynir hann
ekki. — Skákstíll hans er mjög
fjölbreyttur, byrjanaval hans, til
dæmis, mun fjölbreyttara en
Fischers.
Larsen er til alls vís, þótt
fremur verði að telja ólíklegt,
að hann sigri Fischer í einvígi.
— Það stafar fremur af því, að
Fischer kann vart að tapa skák,
heldur en hinu, að Larsen sé
lítill kunnáttumaður í að vinna
skákir.
Uhlmann (Austur-Þýzkalandi)
mun vera um hálffertugur að
aldri. Hann er vist eini stór-
Fischer
meistarinn, sem Austur-Þjóð-
verjar hafa eignazt eftir heima-
styrjöldina. — Hins vegar hefur
hann lengi verið misjafn skák-
maður, og erfitt að reikna út
„norrnal" styrkleika hans. —
Frá og með svæðamótinu í Aust
urríki 1969 (þar sem Guðmund-
ur Sigurjónsson stóð sig mjög
vel) hefur Uhlmann þó teflt af
meira öryggi en fyrr, enda vann
hann fyrrgreint mót með miklum
yfirburðum.
Það var gaman, að Uhlmann
skyldi loks komast í kandídata-
keppni, því að oft hefur munað
mjóu áður, að hann næði þeim
árangri. — Uhlmann er harð-
skeyttur sóknarskákmaður, og
verður flest undan að láta, þeg-
ar honum tekst bezt upp. —
Hann var óheppinn að lenda á
„ósigrandi“ manni í fyrsta út-
sláttareinvíginu.
Hiibner (Vestur-Þýzkalandi)
er ekki nema rúmlega tvítugur
að aldri. Hann er því yngsti
kandídatinn og óþekktasti, en
eigi að siður geysisterkur. Hann
og Uhlmann eru þeir einu af
áttmenningpnum, sem ekki hafa
teflt í Kandídatakeppni fyrr. —
Það vakti mikla athygli, að svo
tiltölulega lítið þekktur skák-
maður, sem Húbner, skyldi ná
öðru sæti á Millisvæðamótinu á
Mallorca, og var hann sá eini,
sem skyggði jafnvel nokkuð a
glæsilegan sigur Fischers á því
móti, og getið var.
Þótt Húbner hafi til skamms
tíma ekki verið mikið þekktur,
þá mun hanh þegar á barna-
aldri hafa verið orðinn býsna
glúrinn í skák. — Hann er þeg-
ar allfjölhliðá skákmaður og
hlýtur að eiga mikla framtíð fyr
ir sér.
Afgangur kandídatanna eru
svo fjórir Sovétmenn, þ.e. Petro-
sjan, fyrrverandi heimameistari,
Korshnoj, Taimanoff og Geller.
Af þeim er Petrosjan að sjálf-
sögðu stærsta nafnið, en hann
sigraði Botvinnik, landa sinn, í
einvígi 1963, og vann þar með
heimsmeistaratitilinn, en tapaði
honum svo fyrir landa sírium,
Framhald á bls. 20.
Uhlmanp