Morgunblaðið - 18.02.1972, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1972
Jónas Pétursson:
Frá Austurheimi
Hugleiðingar við Lagarfoss
Og enn er toomin hláka. Þorri
byrjaður, vika af, því að nú er
28. jamúar. Þessi vetur hefur
verið góður, hæg veður hér við
Lagarfoss. Blessun höfuðskepn
anma hvílir á liðnum mánuðum
yfir þeirri framíkvæmd, sem hér
er hafin, fyrir tæpu missiri. Og
ég skil það svo vel. Ég orðaði
það svo í einni af mínum bar-
áttugreinum fyrir þessari vihkj-
un, að orkan úr Lagarfossi væri
sjóilfisögð til nota Austfirðingum
eins og amdrúntóloftið yfir og um
hverfis tiil að anda að
sér. Sárt er það að vísu
hve seinir Austfirðingar voru
tíl skilnmgs á þvi að þetta val^
þeirra virkjun að ábyrgð
og arði. En ég veit að fleiri og
fleiri eru nú að átta sig á mi'kil-
vægi þessarar hliðar. Guð
hjálpar þeim, sem hjálpar sér
sjálfur — og gildir það
um byggðarfiög og f jórðunga eigi
síður, en einstaklinga.
Ég hefi starfað hér firá byrj-
un framkvæmda. Þótt Lagarfoss
virkjun yrði ekki í upphafi fyr-
irtæfki Austfirðinga, stakk það
ekki áhuga mimum svefnþorn
fyrir framlkvæmdinni.
Eftir að meirihluti austfirzkra
sj álfstæðismarma hafði metið
ntína 12 ára þingmennsku svo,
að burt skyldi ég af þingi
hverfa, var eigi óeðlilegt, að ég
beindi huganum að öðru starfi,
og þá helzt einhverju þvi, sem
mér væri geðfellt. Um þær
nxundir er þingmennsku minni
lauk, komu fram tilboð í bygg-
ingarhluta Lagarfossvirkjunar
og lá þá nokkuð ijóst fyrir, eft-
ir að þau voru kunn, að Norður-
verk h.f. myndi fá verkið. Þá
flaug mér í hug að leita eftir
starfii hjá því fyrirtæki, af tveim
ur ástæðum: Lagarfossvirkjun
var mér hugstæðasta fram-
kvæmd fjórðungsins og af fyrri
samskiptum við Norðurverk h.f.,
einkum við byggingu hafnar-
garðsins á Vopnafirði, voru mér
forstöðumenn þess að góðu
kunnir. Og nú er ég hér.
EN HVAÐ SÉR MAÐUB SVO
HÉR í NÁGRENNINU,
ÞEGAR SKYGGNZT ER AF
HEIMAHLAÐI VH>
LAGARFOSS?
í bjartviðri gnæfa Dyrtjöll í
austri, eimhver fegurstu fjöll
þessa lands, oftast skínandi hvít
í vetur með svörtum hamrabelt-
um. Varðtröli við Út-manna-
sveit. Nær eru ásar og lynghæð-
ir, næst flatir viðarmóar og í
gilinu neðan við fossinn — þar
unir einihrisla — og ilmbjörk
kann að finnast, a.m.k. á tals-
verðum viðáttum bak við
Kirkjubæ.
Já, Kirkjubær. Vestan við Lag
arfljót honfir Kirkjubær við
virkjuninni, án fólks. Eyðibær
um þessar mundir, eim allra
bezta jörð Héraðsins. Prestsset-
ur um langa hríð, með stærstú
kirkju á Héraði. Kirkju, sem
söfnuðurinn hefiir sýnt sóma og
hirðu. Hvítt hús, sem hvern
morgun mætir augum í vest
urátt, eina prýði þessarar
ágætu jarðar, þar sem útihús
eru jöfnuð við jörðu, en gamalt
og mikið timburhús, jámklætt,
felur sig í litum umhverfis.
„Ekkja stendur aldin kirkja,
ein í túni formra virkja" kemur
ávaillt í huga minn, er ég horfi
til Kirkjubæjar — með trega
sem bregður fyrir brjóst mér —
eins og ég veit að býr við hjarta
rót hollvætta Úthéraðsins í Dyr
fjöllum yfir auðn Kirkjubæjar
og of margra annarra býíla á víð
áttum Úthéraðsins. Þessi kapi-
tuli í sögu Kirkjubæjar, þarf
nú þegar að taika enda. Hin frá-
bæra virkjunaraðstaða við Lag-
arfoss, fiossimn —- fallið, er í
landi Kirkjubæjar að hálfu. Það
er sjálfsögð framkvæmd á veg-
um Lagarfossvirkjunar að
'byggja vandað íbúðarhús á
Kirkjubæ — gjalda þannig fyr-
ir aðstöðuna. Þetta er hið mik-
ilvægasta fiyrir Hróarstunguna.
Þá byggist jörðin góðum bónda.
Hann myndi kljúfia það að húsa
að öðru leyti — og ræktun og
girðingar réði hann við. Jörð-
ina má ekkl bjóða til sölu, fyrr
en ábúandi hefir öðlazt kauprétt
á jörðinni. Ella er of mik-
il hætta á, að hún yrði keypt til
að hafa hana í eyði áfram —
slíkt má ekki verða.
Lagarfossvirkjun, með brú yf
ir fljótið og vegi, sem tengir
byggðimar, breytir svo miklu,
að líkja má við er sól og sunn-
anblær kemur yfir Út-Hérað eft
ir langvarandi regn og súld um
heyannir.
í vestur og norðvestur eru
Hlíðarfjöllim, frá KoUumúla um
Smjörfjöll til Smjörvatnsheiðar,
Hár fijaJllgarður, sem er að
mynda jökui þar sem hæst ber.
Út sér til hluta Húseyjar ef vel
er að gáð og inn til Gagmheið-
ar með sjómvarpsmastrið, Fagra
dals og Hattar.
Vegur var lagður haustið
1970, vel upphleyptur, af Út-
Héraðsvegi hjá Móbergi, 8 km
leið — og endar hann við Foss-
inn. Er þá eftir tæplega 3ja km
leið á vegarenda hjá Stóra
Steinsvaði. Þegar vegurinn verð
ur tengdur þá leið, styttist leið-
in: Egilsstaðir — Lagarfoss, báð
ar leiðir um 27—28 km. 1 þvi
mætti teljast nokkur „hagræð-
ing“ að tengja veginn skemmri
leiðina, ekki sízt á meðan virkj-
unarframkvæmdirnar standa yf-
ir.
AÐ HVERJU ER UNNIÐ?
En hvað er helzt í fréttum af
framkvæmdum frá haustinu og
skammdegisskeiði n u ? Rairnagns
veitur rikisins reistu rúmiega
60 m langcin skáia, sem var til-
búinn til íbúðar frá miðj-
um ágúst.
Skáli sá er keyptur af „Fjarða
síld“ á Seyðisfirði. Hýsir borð-
stofu og eldhús, herbergi 15,
beggja megin við gang í miðju
húsi, íbúð fyrir eftirlitsverkfræð
ing í vesturenda, skrifstofu,
hreimlætisaðstöðu. Timburgölf
einangrað með steinullarkemb-
um og 'loft er það einnig — og
rafmagnshitun.
Norðurverk h.f. flutti í þetta
heimili um höfuðdagsleytið með
nokkurt lið og frá þeim tíma hef
ir starfsorkan þrumað, i véi-
um og fóílki. Viðbyggingar hafa
verið gerðar við langhúsið 2
jámskemmur miiklar, sem verk-
stæði og geymslur. Nær er lok-
ið að sprengja djúpan aðfalls-
skurð að stöðvarhúsi í gegnum
blágrýtisásinn er liggur austan
við „Possinn" í allt að 27 m hæð
yfir sjó. 1 stöðvarhússgrunni hef
ir verið sprengt niður að vatns-
borði og grjótmagni því, er losn
að hefir ekið í vegi, plön og upp
fyílingar og stíflu yfir austur-
álmu fossins og hún þurrkuð
upp. Og verið er að stífla neð-
an við fossinn, svo að ekki renni
öfugt þegar sográs og undir-
staða vélahúss, sem kemur djúpt
niður fyrir vatnsborð verð-
ur sprengt út og byggt. Grafvél
ar og ýtur eru svo að grafa að-
fallsskurð út úr Steinsvaðsfló-
anum, austan klapparássims að
enda hins sprengda skurðar.
Þetta er hrá mynd af þwí, sem
hefir verið að gerast. Jólalleyfi
var að sjálfsögðu. Þama eru „í
heimili" að jafnaði 20 manns,
stumdum lítið eitt færri, en oft
nokkru fleiri. Skálinn hefir
Jónas Pétursson.
skýlt okkur vel — betur en
vænta mátti, en tíðarfarið hefir
líka verið ótrúlega milt. Og hæg
viðri hafa verið undra mikil,
enda suðlæg og austlæg átt
mjög rikjandi um langt skeið,
sem ekki hefir náð vindS um Lag
arfosssvæðið. Ég held að flestir
hafi unað hag sínum vel. Sjön-
varpið sést hér vel oftast, en
útvarps er minna notið vegna
sjónvarpsins.
ÞORRABLÖT
Já nú er þorri. Blótað er i
flestum byggðarlögum Héraðs-
ins. Nýja heimilið við Lagaríoss
er í Hjaltastaðahreppi. Blót mik
ið var þar haldið í Hjaltalundi.
Nökkur hópur „höiimamanna"
úr langhúsinu við Lagarfoss tók
þátt í þeirri hátíð, öllum þeim til
mikillar ánægju. Skemmtiatráðd
voru meðan á borðhaldi stóð,
með gamanvísum, leikþáttum,
annálum, söng og tiilkynningum,
og fóru þar ekki varhluta hin-
ir nýju „landnemar" við Lagar-
foss.
Eftir borðhald var dans stig-
inn af meira fjöri frá upphafi til
enda, en ég hefi í annan tíma
vitað dæmi til. Mér var það fyr
irboði þess, sem hlýtur að leiða
af Lagarfossvirkjun, að fólkí
taki að fjölga í Útmannasveit.
Og hér skal segja amen eftir
efninu. Enda nú liðið mjög á
þorra. En frjósemi hugans fer
vaxandi með hækkandi sól.
- Byggdaspjall
Framhald af bls. 10
mér, ekki með útiverkin að
minnsta kosti. En auðvitað er
i mörg horn að líta. Ég finn
þó ekki eins mikið fyrir því
nú, þegar tíð er svona góð
og næg hey. Síðan við fórum
að vera ein, finnur maður
ákaflega vel fyrir þvi hve
mikið er i húfi, þegar hey-
skapurinn hefst og hve hann
Skiptir miklu. Annars er fljót
heyjað hér, ef tíð leyfir, því
við höfum góðan vélakost.
Eggert var búinn að búa svo
vel í haginn með það. Hann
hafði keypt sláttuþyrlu, sem
er ákaflega fljófivirk. Al'ls
höfum við tvær dráttarvéiar
og 3 sláttuvélar og það er
miklu hægt að áorka á stutt-
um tíma með þeirn tækjum.
— Svona stórt heimili þarf
lika mikið. Er ekki dýrt að
hafa svo mörg böm i heima-
vistarskólum?
— Jú, það kemur öðru visi
út en þegar allir borða
heima. Ég hefi ekki tekið það
saman í vetur, en það skiptir
tugum þúsunda, sem þarf að
greiða út úr heimilinu.
— Þið eruð enn með hesta.
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 53., 55. og 57. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1971 á Fögrubrekku 14 — hluta — þinglýstri eign Snorra W. Sigurðssonar, fer fram á egininni sjálfri þriðjudaginn 22. febrúar 1972 kl. 16,30. Bæjarfógetinn í Kópavogi. „DÖMUR" „NÝTT". Conditionner Babyform Gefur hárinu léttleika og heldur lagningunni lengur. HARGREIÐSLUSTOFA STEINU OG DÓDÓ Laugavegi 18 — Sími 24616.
Kvenfélogið Keðjon Skemmtifundur verður haldinn laugardag- inn 19. febrúar 1972 í Útgarði, Glæsibæ. Skemmtunin hefst kl. 9 með bingói. Skemmtinefnd. Spónlagðnr spónaplötur Þykktir: 14 m/m 18 m/m 20 m/m Verð: kr. 591,00 685,00 791,00 Stærð: 220 x 122 c/m, Plötumar fást hjá okkur. TIMBURVERZLUN ARNA JÓNSSONAR. Athugið föstudaga opið til kl. 19 (kl. 7.). Lokað á laugardögum.
Krossviður, margar gerðir Vntnsþolinn krossviður Plöturnar fást hjá okkur. TIMBURVERZLUN ARNA JÓNSSONAR. Athugið föstudaga opið til kl. 19 (kl. 7.). Lokað á laugardögum. Til notendn þungavinnuvéln Okkur hefur verið boðið að annast sölu á alls konar notuðum þungavinnuvélum, loftpressum o. fl., einnig notuðum dekkjum. Umboðsmaður frá Englandi verður til viðtals á morgun (laug- ardag) kl. 10 til 4. MELITA, Umboðs- og heildverzlun, Vesturgötu 2 — Sími 16020.
Eru börnin eins miklir hesta-
menn og faðir þeirra var?
— Já, þau hafa mikinn
áhu-ga á hestamennsbu og
eru að temja og skipta á hest
um. Mar-grét er aðalmanneskj
an þar. Það mæðir yfirleitt
mest á henni. En hin eru líka
mjög áíhugasöm um bús'kap
inn. Þau vilja ekkert vera að
fara í burtu.
— Svo þú ætlar að sitja
kyrr á Kveninabrekku og búa
áfram ?
— Já, ég veit ekki hvert
við ættum að fara. Og við
kunnum hér vel við okkur.
Við vorurn búin að vera hér
í 19 ár. Presturinn er nú i
Búðardal og er búið að
byggja prestssetur þar. En ég
hefi jörðina hér og er búin
að fá erfðafestu á henni.
— Er þetta góð jörð?
— Já, þetta er ágætis jörð.
Ekki mjög stór eða mikil beit
arjörð. En túnið er gott og
hús ágæt.
— Ég vil taka það fram,
sagði Ingibjörg á Kvenma-
brekku að loikum, að fólkið
hér hefur verið einstaklega
gott og hjálpsamt við okkur.
Okkur þykir sérlega vænt
um það og al.lt hér. Ég gæti
ekki hugsað mér að fara héð-
an.
Fasteigna- og
skipasalan hf.
Strandgötu 45 Hafnarfirði.
Opið aHa virka daga kl. 1—5.
Simi 52040.