Morgunblaðið - 10.03.1972, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUiR 10. MARZ 1972
22*0-22-
RAUÐARÁRSTÍG 31
14444 S 25555
LEIGUFLUG
FLUGKENNSLA
i
FLUGSTÖÐIN HF
Símar 11422. 26422.
STAKSTEINAR
Skattseðillinn
talar
Þessa dagana eru alþlngis-
menn önnum kafnir við að af-
greiða skattafrumvörp rikis-
stjórnarinnar. Það var ekki
seinna vænna. Um þrír mán-
uðir eru liðnir frá því að
frtunvörp þessi sáu dagsins
ijós. I»á þegar var sýnt fram
á það hér í Morgunblaðinu og
af hálfu talsmanna stjórnar-
andstöðunnar, að útreikningar
rikisstjórnarinnar á áhriftun
frumvarpanna á skattbyrðí al-
mennings voru fjarri öllu
lagi. Síðan hefur verið mikið
fjaðrafok í stjórnarherbúðun-
um, kröfur um að frumvörpin
yrðu alveg lögð til hliðar eða
þeim breytt verulega. Ýmsir
trúnaðarmenn stjórnarinnar,
sem hafa unnið að tillögugerð
um breytingar á frunivörpun-
um, hafa gefizt upp og aðrir
verið kallaðir til. Niðurstaðan
eftir þetta japl og jaml og
fuður varð svo sú, að frum-
vörpin verða afgreidd að
mestu óbreytt. I>egar sú
ákvörðun lá fyrir, hófu stjórn-
arsinnar niikia áróðursherferð
og halda því stíft fram þessa
dagana, að skattalagabreyt-
ingarnar þýði stórfellda
skattalækkun hjá meginþorra
gjaldenda. Um þessar fullyrð-
ingar stjórnarsinna er rétt að
hafa sem fæst orð. Skattseðill-
inn, sem berst í hús gjaldenda
víðs vegar um landið einhvern
tíma í júnímánuði nk. nmn
tala sínu máli. Og gagnvart
þeim tölum, sem á honum
munu standa, gagnar hvorki
áróðursherferð í stjórnarblöð-
unum né fullyrðingar ráð-
herra í ríkisstjórninni. t júní
spyrja gjaldendur þeirrar
einföldu spurningar, hvort
skattar þeirra hækki eða
lækki frá sl. ári. I»egar þær
tölur liggja fyrir, verður vafa-
laust fróðlegt fyrir „megin-
þorra gjaldenda“ að rifja upp
þær fullyrðingar talsmanna
ríkisstjórnarinnar nú, að
skattafrumvörpin niuni leiða
til lækkunar á sköttiim meg-
inþorra gjaldenda!!
Sérsvið Lúðvíks
I.úðvik Jósepsson hefur sér-
hæft sig í því að auðmýkja
opinlierlega samráðherra sina
í ríkisstjórninni, þ.e. Fram-
sóknarráðherrana. Hann þorir
ekki að bekkjast til við Hanni-
bal, og Magnús Torfi lætur
svo lítið yfir sér^ að Lúðvík
sér ekki ástæðu til að eiga
við hann. Enn er mönnum í
fersku minni, hvernig Lúðvík
auðmýkti Halldór E. Sigurðs-
son, fjármálaráðherra, á opin-
berum fundi BSRB. Þessa
dagana er hann að taka utan-
ríkisráðherra á kné sér.
Hverju mannsbarni er ljóst,
að það er verkefni utanrikis-
ráðuneytisins og utanríkisráð-
herra að annast kynningu
landhelgismálsins á erlendum
vettvangi. Þetta er svo aug-
ljóst mál, að ekki þarf um að
ræða. Samt seni áður sendir
Lúðvík þingmann úr flokki
sinum til Bretlands á sínimi
vegum til þess að ræða um
landhelgismálið. Og hvað sem
líður yfirlýsingunt utanríkis-
ráðherra um hið gagnstæða
er það staðreynd, sem mikill
hluti þjóðarinnar var vitni að,
að utanríkisráðherra sagði i
viðtali í fréttatíma sjónvarps-
ins, að hann hefði „séð“ það,
að þessi þingmaður var á för-
um tii Bretlands tii þess að
ræða landhelgismálið þar.
Þannig grípur Lúðvík Jóseps-
son fram fyrir hendur Fram-
sóknarráðherranna, þegar
honum sýnist, og þ<“ir eru slík-
ar geðlurfiir, að þeir láta sér
það lynda.
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
7? 21190 21188
^ENDUM
Bilaleigan
&
SKÚLATUNI 4 SÍMI15808 (10937)
Ódýrari
en aðrir!
Shodr
LEIGAH
44 -46.
SiMI 42600.
BÍLALEIGAN
AKBllAVT
8-23-4.?
8endum
c
hvað segja þeir í fréttum
Félag vidskiptafræðinema:
Ráðstefna í Vestmannaeyjum
um íslenzkan sjávarútveg
Rætt við Jóhannes Siggeirsson, formann félagsins
UM HELGINA gengst Félag
viðskiptafræðinema fyrir ráð
stefnu i Vestmannaeyjum um
íslenzkan sjávarútveg. Fara
um 30 viðskiptafræðinemar á
samt prófessorum frá Reykja
vík til að taka þátt í ráðstefn
unni og einnig munu taka þátt
í henni nokkrir heimamanna,
sem starfa við sjávarútveg-
inn. Mbl. sneri sér til Jóhann
esar Siggeirssonar, formanns
félagsins, og spurði hann um
þessa ráðstefnu og ýmislegt
annað í starfsemi félagsins.
„Aðaltilgangur þessarar ráð
stefnu er að auka tengsl deild
arinnar við atvinnulífið,"
sagði Jóhannes, „og þá sér-
staklega við þennan atvinnu-
veg, sera mjög fáir viðskipta-
fræðingar starfa við nú. Við
höfum haldið svona ráðstefn
ur áður, á Akureýri í fyrra
um byggðamál og tókst hún
mjög vel.
Við höfum undirbúið ráð-
stefnuna þannig, að þessir 30
viðskiptafræðinemar, sem
taka þátt í bernná, hafa unnið í
starfshópum og fjallað um þá
fjóra þætti, sem teknir verða
fyrir. Niðurstöður hópvinnunn
ar ha£a síðan verið settar upp
í fjölritað hefti, alls um 300
síður, og verður stuðzt við
það hefti í umræðunum í Eyj
um. Þættimir fjórir, sem fjall
að verður um, eru:
1) Sjávarútvegurinn
og þjóðfélagið.
2) Sjávarafli og skipastóll.
3) Fiski ðna ðurinn.
4) Útflutningur
sjávarafurðö.
Dagskránni verður skipt i
fundahöld og kynnisferðir í
fyrirtæki. — Frummælendur
verða Björn Guðmundsson,
formaður Útvegsbændafélags
Vestmannaeyja, Kjartan B.
Kristjánsson, verkfræðingur,
og að öllum líkindum einn enn
og af hálfu viðskiptafræði-
nema verða fjórir frummæl-
endur um hina einstöku
þætti.“
— Eru aðrar ráðstefnur á
döfinni hjá ykkur?
„í haust göngumst við fyrir
norrænu „seminari", þar sem
við vonumst eftir þátttakend
um úr hópum viðskipta- og
hagfræðinema á hinum Norð
urlöndunum, alls um 30
manns. Af okkar hálfu verða
um 20 þátttakendur. Viðfangs
efni ,,semínarsins“ er „Sjáv-
Jóhannes Siggeirsson
arútvegur sem undirstaða
efnahagslífs“ og ræðumenn
verða bæði frá sölusamtök-
um fiskfriamleiðenda og ráðu
neytum. Þarna verður að sjálf
sögðu fjallað um íslenzkan
sjávarútveg og þá stuðzt við
niðurstöður ráðstefnunnar í
Eyjum, og einnig um landhelg
isútfærsluna. — Ennfremur
verða umræður um sjávarút-
vegsmál Færeyimga og Norð-
manna með tilliti til aðildar
Dana og Norðmanna að EBE.
Undirbúningurinn er þegiar
kominn vel á veg og undirtekt
ir á hinum Norðurlöndunum
hafa verið góðar, sérstaklega
í Noregi. Við gerum ráð fyrir
að „seminarið" verði haldið í
Reykjavík dagana 16.—22.
sept.“
— Eigið þið mikil samskipti
við erlenda viðskiptafræði-
nema?
„Þau eru töluverð. Við er
um aðilar að norrænum sam-
tökum viðskiptafræðinema
N.H.S., og að alþjóðasamtök-
um viðskiptafræðinema, A.I.
E.S.E.C. Síðaæniefndu samtök-
in gangast fyrir því, að send
ir eru skiptimemar um allan
heim á sumrin. Þannig fftra
héðan um 10 nemeridur í sum
ar til annarra lamda, aðallega
Norðurlanda og Bretlands, og
aðrir 10 koma I staðinn. Þeir
mundu dveljatst hér frá 3 vik
um og upp í 3 mán. og starfla
i fyrirtækjum, bönkum og
stofnunum ýmiss konar. Þessl
stúdentaskipti hafa tekizt vel
og við erum þakklátir þeim
fyrirtækjum og stofnunum,
Framh. á bls. 20
me& DC-8
LOFTLEIDIR
PARPÖmun
bcin líno í foi/króideikl
15100
^Kaupmannahöfn ^Osló ^ Stokkhólmur ^Glasgow
sunnudagd/ sunnuddgd/ mánuddgd/ Idugdrddgd
mánuddgd/ (oriÖjuddgd/ briðjuddgd/ föstuddgd.
London
Idugdrddgd
fimmtuddgd og föstuddgd. fimmtuddgd