Morgunblaðið - 13.01.1973, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGU'R 1». JANÚAR 1973
G j öf ult
land
og fagurt
Á Merkato-markaAi. Myndimar tók Árni Björnsson.
— en býr við næringar- og læknaskort
Rætt við Árna Björnsson lækni, nýkominn frá Eþíópíu
11 íslendingar eða fólk með sérstök tengrsl við ísland í kvöldboði í Addis Abeba hjá Reg og
Denzil Burgess, sem í 3 ár unnu meðal aðventista á fslandi. Á myndinni eru frá vinstri: Denz-
il Burgess, Brita Akarren, Reykdai Jónsson og Fanney Guðm undsdóttir, kona hans, Tesseka
Mengihistoa, dr. Bo Akeren, Mengih'stoa, ræðismaður fslands, Árni Björnsson, Guðný kona
hans og Áslaug og Jóhannes Ólafsson.
f MÖRGUM þróunarlöndunum
er læknisþjónustan öll af van-
efnum gerð og mikill skortur
á læknum, hvað þá sérfræðinig-
um til að sinna ákveðnum verk
efnum. Svo er í Eþíópíu í Aust-
ur-Afríku. í haust fór þangað
ítslenzkur læknir, Árni Björns-
son, sérfræðingur í „plastik-
kírúrgíu" eða skapnaðarlækn-
ingum. Hann íór þangað á veg-
uim sænsku hjálparstofnunar-
imnar „Bjargið barninu“ og
vann þar í sjúkrahúsi í sex vik
ur við að gera við skemmdir á
börnum og fiullorðnum, og hélt
jafnframt fyrirlestra fyrir
Jækna og læknanema um ýmis-
legt í sérgrein sinni. En áform-
að er að hann fari aftur utan
næsta sumar og hafi þá með
sér jtið störfin þarlendan lækni,
sem af því geti lært.
Árni kom heim fyrir jólin,
ásamt Guðnýju konu sinni. En
Mbl. leyfði hátiðumum að liða,
áður en blaðamaður hélt á
hans fund til að fá við hann
stutt viðtal um ferðina og dvöl
ina i þessu þessu framandi
landi.
Tildrög þessarar Afríkuferð-
ar sagði Ámi þau, að hinn
sænski framkvæmdastjóri Nær
inigarfræðistofnunarinnar fyr-
ir Eþíópiu, Akerren, var hér á
ferð og spurði hvort hann gæti
hugsanlegia komið til Addis
Abeba og unnið við Princess
Tsahai-sjúkrahúsið, aðallega
við aðgerðir á holgóma böm-
utn, þar sem ekki væri neinn
sérfræðingur þar tiil þess.
Þetta væri að sjálfsögðu háð
þvi að hægt væri að fá til þess
styrk. Hjálparsjóðurinn sænski
„Bjargið baminu“ bauð svo
nauðsynlegan styrk og heil-
briigðisráðuneytið veitti Áma
frí frá störfum og ferðastyrk
til London. En um leið tók hann
að sér að reka erindi Flótta-
mannastofnunarinnar og vera
við afhendingu á skilti þvi á
nýja flóttamannaskólamuim í
Gok, sem er gjöf héðan og frá
hefur verið skýrt í blöðum.
Við spurðum Árna í upphafi
samtalsins, hvort iítið væri um
lækna í hans sérgrein á þess-
um slóðum. — f»að er emginn
slíkiur til í Eþiópíu, svaraði
hann. Og það segir ekki alla
söguna, þvi í öllu landinu, þar
sem eru 25 milljónir marnia,
eru ekki nema 300 læknar alls.
Auk þess er þetta ákaflega víð-
áttumikið land, líklega helm-
ingi stærra en Svíþjóð, og vega
kerfið lítið þróað. Stór- héruð
eru alls ekki i vegasambandi
yfir regntímann. Svo læknis-
þjónusta er ekki mikil.
— Og sjúkrahús fá?
— f Addis Abeba eru mörg
sjúkrahús, og xar eru til fyrsta
flokks sjúkrahús. Þau eru flest
bygigð fyrir tilstuðlan keisar-
ans og fyrir gjafafé. Nýjasta
sjúkraiiúsið er St. Pauils, sem
er mjög gott fátækrasjúkrahús
og þar vann ég svolítið. Annað
Brunaör. í þröngum kofuniim
detta börn oft í eldinn, þegar
eldaður er matur.
sjúkrahús „Duke of Harrow"
var reist fyrir söfnunarfé og
tekur 600 sjúklinga, en ekki
hefur verið hægt að taka það
í notkun. Eþiópíumenn haifa
ekki efni á að reka það, og hafa
heldur ekki starfslið til þess.
Stór hl'Uti þeirra lækna, sem
starfa í landinu, eru útlending-
ar, þó þar séu líka ágætlega vel
menntaðir innlendir læknar.
— Var þetta bamaspítali,
sem þú starfaðir við?
— Hann er eiginlega tvískipt
ur. Þetta er háskólaspítali
með venjulegum deildum, en
við hann er svo tengdur barna-
spítali, sem Svíar komtu að
nokkru leyti upp. En það er
eini bamaspítalinn í landinu.
Ég starfaði á báðum þessum
sjúkrahúsum, aðallega þó við
aðgerðir á bömum. Upphaflega
hafði verið urn talað að ág
ftenigist við böm með skarð í
vör. En stærsti hópurinn reynd
ist vera brunasjúklingar,
bæði ungir og ganalir.
— Er svona mikið um bruna
á þessum stað?
— Það er eitt mesta vartda-
málið þama. Fólkið býr í mjöig
þröngum húsakyTmuim og eld-
ar við opinn eld, svo mjög al-
■gengt er að börn beinlínis detti
í eldinn og lítið þarf til að
kveikja L
— Þessi brunasár varst þú
svo að giera við?
— Já, en þegar maður hefur
aðeins sex vikuv á staðnum,
þá er það eins og dropi í hafið.
Ég gerði aðeins við nokkra,
sem annars hefðu ekki fengið
aðgerð eða ekki að minnsta
kosti hjá neinum, sem vanur
er að fást við slikt. En þar sem
þama var kennsluspitali, þá
hélt ég einu sinni í vikiu fyrir-
lestra fyrir lækna og stúdenta
um ýmislegt þessu viðkomaxndi.
Það er noJckuð um að læknax
komi til iandsins og haldi fyr-
irlestra uim sérhæfð efni. Til
dæmis sendir K o 1 uiiub ia háskó li
í Bandarikjunum venjuiega
einu sinni á ári sérfræðinga til
fyrirl.es trahalds þar. En það
sem aðalalega vakti fyrir mér,
var að kynnast ástandinu og
gera mér og þessum saiuska
bamahjálparsjóði, „Bjargið
barninu“, grein fyrir því hvað
hægit sé að gera til að bæta
ásta ndið varðiaindi þessi bönn.
Síðan er ætlunin að ég verði
þarna áftur svipaðan tíma
næsta sumar og þá verði þann-
iig Dá gengið að ég geti haift
roeð mér allan tknainn liækni
frá Eþiópíu, sem geti þá feng-
ið þjáífun.
— Ert þú ekki eini sérfræð-
ingurinn á þessu sviði á land-
inu?
— Jú, r bili er það, en von er
á öðrum að utan næsta suimar.
— Hvernig land er Eþíópia?
— Það er gjöfult land og þar
er bezta loftslag, sem hægt er
að huigsa sér. Hitinn er á dag-
inn 26—28 stig og á nóttunni
kólnar og getur farið nður í 5
stig. En það fer eftir því í
hvaða hæð staðurinn er. Land-
ið er háslétta, sem nær frá
1500 m hæð upp í 3000 m hæð.
Addis Abeba er t.d. í 2500 m
hæð. Landslag er ákafleiga
breytilegt. Við fórum flestar
helgar út úr borginni til að sjá
ökikur um. Til dæmis fórum við
einu sinni í suðaustur frá
Addis Abeba í þjóðgarð einn,
Awash að nafni, þar sem ver-
ið er að vernda ýmsa dýra-
flokka, eins og Kenýuimenn
gera. Þangað var ekið um lands
lag, sem minnti mjö'g á ísland.
Þar eru hraun, eldfjöll og gág-
ar og jarðhiti er þar og mikil
ónýtt orka. Mikið heitt vatn
kemur þarna upp og er renn-
andi og við böðuðum okkur- í
heiíixm pytti þama í frumskóg
irunm. En gróður er almennt
mikill í Eþiópíu, nær alveg upp
á hæstu tinda.
— Sé farið i norðurátt frá
Franih. á Ws. 24
Að gæta. bróður síns.