Morgunblaðið - 27.03.1973, Page 4
4
MORCWTBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1973
® 22*0*22*
» m
RAUOARARSTIG 31
V--------------/
6ÍLALEIGA
CAB RENTAL
21190 21188
STAKSTEINAR
Dýr lögmaður
I sjónvarpsþættinum Sjón-
aukanum sl. föstudagr var
rætt um, hvort senda ætti
málflutningrsmenn til að verja
málstaó fslands fyrir Alþjóða
dómstólnum i Haag. I.ýsti
Gunnar Thoroddsen, þar rn.a.
þeirK skoðun, að senda bæri
málflutningsmenn til að rekja
málið til sigrurs fyrir dómin-
um. Sagrði Gunnar að kostn-
aður við þennan málflutning-
væri ekki stikur, að hann
ætti að aftra okkur frá þvi
að senda fulltrúa til dómstóis-
ins.
Hinn þátttakandinn í um-
raeðunum, Sigrurður Gizurar-
son, mótmælti þvi, að kostn-
aðurinn við málarekstur fyr-
ir dóminum yrði lítill. Sagð-
ist hann ætla, að kostnaður
við rekstur málsins yrði allt
að 1000 milljónir króna —
eitt þúsund milljónir króna.
Ekki færði málflutningsmað-
urinn neinar sönnur á þessa
ágizkun sína, enda yrði sjálf-
sagt ekki hlanpið að þvi. En
þó væri fróðlegrt að fá nán-
ari skilgreiningu á hvað það
kann að vera, sem hleypir
málskostnaðinum upp i heit-
an milljarð. Ekld er hægt að
trúa þvi að óreyndu að lög-
maðurinn hafi nefnt þessa
upphæð í þeim eina tilgangi
að ganga fram af mönnum.
Sigurður Gizurarson er sjálf-
ur vanur lögmaður og vanur
að gera reikninga fyrir mál-
flytjendastörf, svo það ættí
ekki að vera ofverk fyrir
hann að sundurliða hvað
það er við málareksturinn,
sem kosta myndi heilan millj-
arð.
Hver verður
banabitinn?
Almenningur er nú tekinn
að deila ákaft um, hvaða sund
urlyndisefni ríkisstjórnarinn-
ar verði henni endanlegi bana
biti. Eru menn ekki á eitt sátt
ir, sem varla er von, þvi af
mörgu er að taka. Sumir
gizka á varnarmálin, aðrir á
efnahagsólesturinn, og enn
aðrir telja að klofningurinn
um, hvort senda eigi málflytj-
endur til Haag verði þverbrest
urinn, sem endanlega fellir
rikisstjórnina. Ýmsir þcirra,
sem enn styðja ríkisstjórnina,
halda því þó fram, að ríkis-
stjórninni muni þó takast að
sigla fram hjá klofningnum
varðandi Haag-dómstólinn.
Þeir segja, að Bretar séu nú
að verða sannfærðir um, að
málsúrslit hjá Alþjóðadóm-
stólnum yrðu þeim andstæð,
og þvi séu þeir nú tilleiðan-
legir til að bjóða íslenzku rík-
isstjórninni hagstæðari samn-
inga en áður, og komast
þannig hjá að fá úrskurð
dómsins gegn sér. Segja
nefndir stuðningsmenn stjórn
arinnar, að þetta tækifæri
muni islenzka rikisstjórnin
grípa fegins hendi, því þá
losni hún við að láta Alþingi
ákveða að senda málflytjend-
ur til Haag gegn vilja rílds-
stjórnarinnar. Ef þetta er
rétt, er hér á ferðinni mjög
alvarlegt mál. Auðvitað á rík
isstjórnin að miða allan samn
ingsvilja sinn við réttindi og
hagsmuni íslenzku þjóðarinn-
ar, en ekki láta annarleg sjón
armið um að losna við eitt af
heimilishölum stjórnarinnar
ráða gerðum sínum.
14444 ©25555
14444 © 25555
SKODA EYÐIR MINNA.
Shooh
LEtGAN
AUÐBREKKU 44-46.
SÍMI 42600.
FERÐABfLAR HF.
Bílaleiga — sími 81260.
Tveggja manna Citroen Mehari.
Fimm manna Citroen G.S.
8—22 manna Mercedes Benz
hópfer3abí!ar (m. bíistjórum).
HÓPFERÐIR
Til leigu í lengri og skemmri
ferðir 8—34 farþega bílar.
Kjartan Ingimarsson,
símar 86155 og 32716.
spurt og svarað Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS Hringið í sínia 10100 kl. 10—11 frá mánudegi til föstudags og biðjið um Lesendaþjónustn Morg- unblaðsins.
PADDAí
M-IÓI.RI KHYKXII
Guðrúri -lóhannsdóttir,
Skipasundi 82, spyr:
„Um daginn fann ég pöddu
í mjólkurhymu og það var
auðséð, að hún var úr hyrn-
unni sjálfri. Hvernig er
hreinlætisaðstaða hjá Mjólk-
ursamsölunni og hvemig
stendur á því, að maður get-
ur átt von á því að finna
pöddur i gerilsneyddri
mjólk?“
Þórhallur Halldórsson,
framkvæmdastjóri heilbrigð-
iseftirlits Reykjavíkur-
borgar, svarar:
„1. Hreinlætisaðstaða í
Mjólkursamsölunni er góð.
2. í>ar eð heílbrigðiseftir-
litinu barst ekki um-
rædd hyma til rannsóknar,
verður ekki hægt að segja
með vissu um ástæður fyrir
þessu atviki, þó skal bent á
eftirfarandi:
a) Skordýr getur ver-
ið undir plasthimnu hyrnunn
ar, og þar af leiðandi af er-
lendum uppruna. Frá því að
pökkun mjólkur í pappaum-
búðir hófst, hér á landi, er
heilbrigðiseftirlitinu kunnugt
um eitt slikt tilvik.
b) Paddan getur hugsan-
lega hafa komizt í hymuna
eftir að hún var opnuð.
c) Að áður en mjólkin er
sett i pappaumbúðir fer hún
í gegnum mjög þétta síu, til
að hindra froðumyndun. Sía
þessi er það fíngerð að
pöddur kömast þar ekki f
gegn.
d) Telja verður nánast úti
lokað að aðskotahlutir getl
komizt ofan í pappaumbúðirn
ar við pökkun mjólkurinnar
og allavegana minni líkur, en
við pökkun flestra annarra
matvara."
AHtaf er erfitt að segja
fólki til um hvaða piötíir það
eigi að kaupa sér næst, en
hér er okkar „patent“-lausn:
Að birta bara af og til lista
Melody Maker yflr beztu
plötur mánaðarins. Flest-
ar koma þær hingað tíl lands
fljótlega og vonandi allar
einhvern tima. Marzmánaðar
Hstínn lítur þannig út: Sex
beztu:
Birds of Fire“ — Maha-
vLsnu orchestra; „Blue-
print“ — Rory Gallagher;
,3*x“ — Soft Machine; „A
King at Nightfall" — Pete
Atkins; „Hot T.icks, Cold
Steel & Truckers Favourites“
— Commander Cody & his lost
planet airmen og Harold
Melvin & the blue notes.
Aðrar góðar eru: „Faces“ —
Shawn Phillips; „Solid Air“
— John Martyn; „Proud
VVonLs oií a Dusty Shelf“ —
Ken Hensley; „Shoot-out at
the Fantasy Factory" —
Traffic; „Bursting at the
Seanis" — Strawbs; „Alone
Again (Naturally)" — Esther
Philiips; „T.ifemask“ — Roy
Harper; „Billion Dollar
Babies“ — Aiice Cooper;
Greenslade; og „Garden
Party“ — Riek Nelson.
★
Fyrlr skömmu lézt í San
Francisco í Bandaríkjunum
hljómlistarmaðurinn Ron
„Pigpen“ McKernan, orgel-
leikari og söngvari hljóm-
sveitarinnar Gratefui Dead.
Hann var 27 ára gamall.
Hann hafði Iegið á sjúkra-
húsi um sex mánaða skeið, en
fengið að fara heim til sin i
nokkra daga, er hann lézt á
heimili sinu af lifrar-
sjúkdómi. — Hann erfði ást á
biuestónlistinni frá föður sín
um og lærði á barnsaldri að
leika blues á píanó. Síðar
kynntist hann Jerry Garcia
og kom fyrst fram opinber-
lega í þjóðlagaklúbbi í San
Francisco sem bluessöngvari
og munnhörpuleikari við
undirleik Garcia á gítar.
Peir áttu þátt í stofn-
un hljómsveitarinnar War-
locks, sem síðan varð hljóm-
sveitin Grateful Dead árið
196fi. — Orgelleikur hans
var einn af aðalþáttum þess
hljóms, sem var einkennandi
fyrir hljómsveitina. Upp á
síðkastið Iék hann ekki eins
stórt hiutverk á hljómleikl-
um hljómsveitarinnar og áð-
ur og varð að hætta við að
leika í nokkur skipti vegna
heilsubrests.
Ron McKernan
VERKSMIÐJU
ÚTSALA!
Opin þriöjudaga kl,2-7e.h. og
föstudaga kl.2-9e.h.
A UTSOUJNNI:
Rækjulopi Vefnaöarbútar
Hespulopi B/lateppabútar
Flækjuband Teppabútar
Endaband Téppamottur
Prjónaband
Reykvkingar reynið nýju hraðbrautina
upp í Mosfellssveit og verzlið á útsöiunni.
£
ALAFOSS HF
MOSFELLSSVEIT
ORÐ í EYRA 1 KOT VÍSAÐ
HÉRMEÐ lýsir Jakob yfir
því, að hann er hundraðprós-
ent sannmála þeirri meniniíng-
arvizku, sem birtist í því að
hefja alla hluti til skýjanna
eða jabbnvel enn hærra, þá
sem Nóbelsskáld vort marg-
frægt ljær nafn sitt og núm-
er. Maður eignast ekki höfuð-
sniHíng á hvurjum degi, eða-
kvað?
Auðvitað var filmam um
Brekkuikotið snilldarverk eizis-
og allt, sem Nóbel kallrnm legg
ur hönd að. Hvaða máli skipt-
ir, þó framburður sumra leik-
aranma væri stíkur, að endíng-
ar orða kæmiust helzt aldrei
aWaleið uppúr öndunarfærun-
um? Er akki skítsaima, þó
hann Gorgur eymÍBgimin virt-
iist aldrei hafa hlustað eftir
íslenzkum máLhreimi og þó
maður gæti iátið sér koma í
hug, að hamn bæri Htið beskyn
á þær málsgreinar, sem hon-
um voru lagðar í munm? Ger-
ir nokkuð til, þó hvurgi örli
á skilníngi á íslemzku maim-
ltífi fyrir daga biikkbelju, sál-
fræðíngs og sements nema hjá
gamtlíngjonum Þorsteimi Ö og
Brynjólfá? Er kammski ekki
ailtílagi, þó d ansfca trýlie-
kúnstnersins sé skár prónúns
éruð en svokaUaður íslenzkur
texti margra hinna stjarn-
anna? Skiptir tal yfirhöfuð
nokkru máli á fillmu? Iþað
miimmsta er fylgnd málhljóða
og talhreyfínga mjög skorin
við nögl hjá þeim smillíngum,
sem um myndina hafa vélt.
Og hvað vilja menm eilega
uppá dekk með krítik og smá-
borgaralegar aðfimnslur? Þýzk
ir fjölimiðlar segja verkið gott.
Og Jakob er brandsjúr á því,
að sá er eðjót og rotta, sem
ekki gapir með. Þó svo væri.
Þýzkarar bobna að vísu ekki
mikið í íslenzku svoma upp og
ofan, en skitt með það. Þeim
firmst filmam góð. Og hanm
Halldór okkar Nóbelsiskáld er
með í spilimu. Þessvegma er ó-
svinna að taka ekki undir með
velsmurðum talkórniuim: „Allt
er gott, sem gerði hamm.“
Og vei þeiim, sem ekki vill
fónnia jafnismáskítlegum hlut-
uim sem ís'lenzkurm beygíngar-
endínigum og málhreimi fyrir
þýzkættaða heimsfrægð. Sem-
sagt gott.