Morgunblaðið - 27.03.1973, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1973
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Björn Jóhannsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6, sími 10-100.
Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22-4-80.
Askriftargjald 300,00 kr. á mánuði innanlands.
I lausasölu 18,00 kr. eintakið.
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjórl
Auglýsingastjóri
Ritstjóri og afgreiðsla
Fyrir nokkrum dögum sendi
*■ heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytið frá sér
skýrslu, sem fyrirtækið Hag-
vangur hefur tekið saman um
rekstrarhagræðingu í Trygg-
ingastofnun ríkisins. Er hér
um yfirgripsmikla greinar-
gerð að ræða, sem er byggð
á mikilli og ítarlegri athugun,
en niðurstaða skýrslunnar er
fyrst og fremst sú, að rekstr-
arfyrirkomulag þessa mikla
ríkisbákns sé orðið úrelt með
öllu og þjónusta þess við al-
mennmg í algeru lágmarki.
Eins og allir vita, er nú sá
háttur á hafður, að bótaþeg-
ar verca að sækja greiðslur á
skrifstofu Tryggingastofnun-
arinnar í Reykjavík eða til
umboðsaðila hennar utan
Reykjavíkur og er þá oft
mikil þröng á þingi, svo ekki
sé talað um það óhagræði og
þá tímaeyðslu, sem af þessu
hlýzt. Leggur Hagvangur til,
að þessu greiðslufyrirkomu-
lagi verði gjörbreytt.
Greiðsludeildin verði lögð
niður og allar greiðslur send-
ar til bótaþega, annaðhvort
með gíróseðli eða í gegnúm
bankakerfið. Er talið í skýrsl-
unni að spara megi um 10
milljónir króna með þessum
hætti. Þá leggur Hagvangur
til, sem sjálfsagt er, að tölvan
verði tekin í þjónustu Trygg-
ingastofnunar ríkisins og er
raunar furðulegt, að slíkt
skuli ekki hafa verið gert nú
þegar.
Nokkur blaðaskrif hafa
spunniztum þessa greinargerð
síðustu daga og sérstaklega
um þá þætti hennar, er varða
óstundvísi starfsmanna, en í
ljós hefur komið, að óstund-
vísi starfsmanna í þessari
ríkisstofnun er mjög mikil og
einn tilgreindur starfsmaður
hefur sýnt af sér svo mikla
óstundvísi í starfi, að svarar
til nær mánaðar vinnutaps
fyrir stofnunina. Þetta hefur
þó ekki verið dregið frá laun-
um, heldur hefur þessi starfs-
maður fengið greidda hálfa
milljón í eftirvinnu á sama
tímabili. Margt annað eftir-
tektarvert kemur fram í
greinargerðinni um starfs-
mannahald, sem sýnir, að aga-
skortur er mikill í stofnun-
inni.
Niðurstaða athugunar Hag-
vangs er neikvæð fyrir
Tryggingastofnun ríkisins og
sýnir, að ekki er vanþörf á
að hrista rækilega upp í þess-
ari stofnun, sem lengi hefur
verið undir eins konar póli-
tískri stjórn Alþýðuflokksins.
Slíkir stjórnarhættir eru til
margs líklegri en stuðla að
hagkvæmni og sparnaði í
rekstri og góðri þjónustu við
viðskiptamenn. En engum
dettur þó í hug, að ekki sé
víðar pottur brotinn í ríkis-
kerfinu. Skyldi það ekki vera
svo, að víðar er um óstund-
vísi að ræða hjá ríkisstofnun-
um og ráðuneytum en í
Tryggingastofnun ríkisins, og
gæti ekki verið, að um óeðli-
lega miklar yfirvinnugreiðsl-
ur sér að ræða, bæði í ráðu-
neytum og öðrum ríkisstofn-
unum. Við birtingu greinar-
gerðar Hagvangs vaknar sú
spuming, hvort ekki sé
ástæða til, að utanaðkomandi
aðili geri allsherjarúttekt á
rekstri og hagræðingu í rík-
isstofnunum og ráðuneytum
og er nánast óhætt að full-
yrða, að margt fróðlegt mundi
koma fram við slíka athugun,
ekki síður en í þeirri greinar-
gerð, sem nú hefur verið birt
um Tryggingastofnunina.
Magnús Kjartansson, trygg-
inga- og heilbrigðisráðherra,
hefur unnið þarft verk með
því að láta þessa athugum
fara fram, en að henni verð-
ur þó ekki hálft gagn nema
ráðleggimgum Hagvangs sé
fylgt eftir í framkvæmd og
að áfram verði haldið á sömu
braut og fleiri ríkisstofnanir
teknar fyrir. Kæmi þar t.d.
til álita, að einkaaðili gerði
á því athugun, hvort nokkurt
vit sé í þeim fyrirætlunum
iðnaðarráðherra að þenja út
prentsmiðjurekstur og bók-
bandsrekstur ríkisins. Reynsl-
an af ríkisrekstri er jafnan
hin sama. Ekkert er sinnt
þjónustu við almenming. Það
á jafnt við um allar ríkis-
stofnanir. Ekkert er sinnt
hagkvæmni í rekstri og eng-
inn agi ríkir meðal starfs-
manna. Þetta virðast öruggir
fylgifiskar ríkisreksturs. Þess
vegna er fáránlegt af Magn-
úsi Kjartanssyni að beita sér
fyrir athugun, sem sýnir
glögglega alla galla ríkis-
reksturs, um leið og hann
beitir sér fyrir enn meiri út-
þenslu ríkisins, þótt á öðru
sviði sé. Þótt athugun Hag-
vangs beinist að einni ríkis-
stofnun er nærtækt að líta
á niðurstöður hennar sem
sýnishorn af ástandinu í rík-
iskerfinu almennt. Megi þetta
frumkvæði Magnúsar Kjart-
anssonar því verða til þess,
að ríkisbáknið verði dregið
saman, en einkarekstur og
þjónustustarfsemi einkaaðila
hafin til vegs.
SV0NA ER RÍKISREKSTUR
TWFJ
úm, THE OBSERVER
Eftir Hugh
O’Shaughnessy
KEMST BRAZILÍA
1 TÖLU STÓRVELDA?
STJÓRN herforingjanna i Brasilíu
undir forystu Emilo Garrastazu
Medici hershöfðingja hefur komizt
að þeirri niðurstöðu að áhrif lands-
ins á alþjóðavettvangi séu alltof lit-
fl. Brazilía er fimmta stærsta land
heimsins, íbúar landsins eru 100 millj
ónir og það er átta fjölmennasta
ríki jarðarinnar og þar hefur orðið
efnahagsundur. Samt hefur áhrifa
landsins litið gætt.
Nú hefur Medicl hershöfðingi
ákveðið að breyta þessu og auka
áhrif Braziliu í heimsmálunum. Með
al annars í þessu skyni hefur hann
sent utanríkisráðherra sinn Mario
Gibson Barboza, í ferðalag til Vestur-
Evrópu og fleiri ráðstafanir eru fyr-
irhugaðar í þessari sókn Brazilíu-
stjórnar til aukinna áhrifa í heimin-
um.
Áhuginn beinist fyrst og fremst
að Afríku og Miðausturlöndum auk
Rómönsku Ameríku, þar sem út-
þenslustefna Brazilíu hefur vakið
nokkurn ugg og gremju. Því er opin-
berlega lýst yfir, að Brazilia sé reiðu
búin að gegna hlutverki miiligöngu-
manns i deilum svertingjaríkja
Afríku og Lissabonstjómarinnar
vegna nærveru Portúgala í Afriku.
Þvi er haldið fram, að Brazilía sé sér
staklega vel til þess fallin að gegna
þessu hlutverki. Brazilia hefur náin
tengsl við Portúgal, þar sem landið
var portúgölsk nýlerida í þrjár aldir
og tunga þjóðarinnar er portúgalska.
Tugir milljóna svartra og brúnna
Brazilíumanna eru afkomendur þræla
sem voru fluttir frá Vestur-Afríku
og báru með sér tónlist, dansa og sið
venjur blökkumanna á 19. öld. Þeg-
ar þrælamir fengu frelsi hurfu marg
ir þeirra aftur til Vestur-Afríku og
afkomendur þeirra eru tengdir
Braziiíu tilfinningaböndum.
Staðhæft er, að Braziliustjórn
beiti nú þegar áhrifum sinum til
þess að fá Portúgala til þess að
leggja niður nýlenduveldi sitt í Af-
ríku. Jafnframt styður hún íhalds-
söm svertingjaríki í Afríku eins og
Senegal og Fílabeinsströndina i
þeirri viðleitni að hafa taumhald á
vopnuðum flokkum, sem ráðast á út
virki Portúgala. Gibson Barboza ut-
anríkisráðherra fór til níu ríkja Vest
ur- og Mið-Afríku í fyrrahaust, og
síðan hefur verið stöðugur straum-
ur Afríkuleiðtoga til höfuðborgar
Brazilíu. Innflutningur olíu frá
Nlgeríu og kopars frá Zaire hefur
verið aukinn, og sarna er að segja
Emilo Medici hershöfðingi
um útflutning Brazilíu tU svertingja
ríkjanna i Afríku.
Brazilíustjóm hefur ákveðið að
veita ekki Suður-Afríku fulla stjórn-
málaviðurkenningu þrátt fyrir ein-
dregin tilmæli stjórnarinnar í Pre-
toria. Braziliustjórn hefur margoft
fordæmt aðskilnaðarstefnu Suður-
Afríkustjóraar í kynþáttamálum.
Fulltrúi dr. Vorsters forsætisráðherra
hefur ekki ambassadorsnafnbót og
nafn hans er neðst á lista erlendra
sendimanna. 1 einkasamræðum gera
Brazilíumenn gys að tilraunum Suð-
ur-Afríkustjórnar til þess að koma
á laggimar bandalagi Suður-Atlants
hafsríkja, og í síðustu kappsigling-
unni frá Höfðaborg til Rio fengu suð-
ur-afrísk herskip, sem fylgdu skútun
um, ströng fyrirmæli um að halda
sig utan við landhelgi Braziliu.
Braziliumenn hafa gert sér vonir
um að auka áhrif sín í Miðausturlönd
um, og þótt þessar vonir hafi dvínað
vegna síðustu atburða, er Gibson
Barboza ánægður með ferð sína til
Kaíró og Tel Aviv i febrúar. 1
Brazilíu eru fjölmennar og auðugar
nýlendur Gyðinga og Araba og
braziliska stjórnin hefur tekið upp
hlutleysisstefnu í deilum Araba og
Israelsmanna.
Vaxandi sjálfstraust valdastétt-
anna í Braziliu jókst nýlega, þegar
stjórnin ákvað að lækka ekki gengi
eruzeirós til jafns við gengisfellingu
dollarans, þótt hún hafi um árabil
orðið að treysta í ríkum mæli á fjár-
hagsaðstoð Bandaríkjamanna. Blöð í
Brazildu hafa kætzt jafnmikið yfir
óförum dollarans og blöð annars stað
ar i heiminum.
Eri í baráttu sinni fyrir vinsældum
og áhrifum hefur Braziliustjóm
nokkrum sinnum rekið sig á. Robert
McNamara, bankastjóri Alþjóðabank
ans, hefur harðlega gagnrýnt hægri-
sinnaða stjóm Medicis fyrir stefnu
hennar í þjóðfélagsmálum, sem er
hagstæð kaupsýslumönnum, en gerir
ekki ráð fyrir neinu átaki til að draga
úr eymd hjá tugum millj. fátæklinga
Brazilíu. Uirmull er af áreiðanlegum
skýrslum um pyntingar og hrotta-
skap lögreglumanna, og íhaldsblaðið
„Estado de Dao Paulo" ljóstraði því
upp nýlega að yfir stæði umfangs-
mikil opinber rannsókn á stórfelldri
spilíingu háttsettra yfirmanna í land
hemum.
Enn eru ekki starfandi nokkur
áhrifarík samtök, sem vernda hags-
muni Indíáana í Brazilíu, en kaþólska
kirkjan, sem nú eru einu landssam-
tökin sem berjast gegn alræði her-
foringjanna, hefur varað Medici hers
höfðingja við því að hún ætli ótrauð
að halda áfram miskunnarlausri bar-
áttu sinni fyrir því að mannréttindi
séu virt í Brazilíu. Á sama tima og
erindrekar stjórnarinnar halda áfram
sókn sinni til aukinna áhrifa Brazilíu
i heiminum verða þeir að reyna að
fela vandamálin svo þau sjáist ekkt.