Morgunblaðið - 08.09.1973, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 1973
Fa
y 7 itu. i >
'ALUR!'
22-0-22-
RAUOARÁRSTÍG 31
BILALEIGA
CAR REPJTAL
TS 21190 21188
\tt 25555
m/Ufim
BILALEIGA
CAR RENTAL
BORGARTÚN 29
AI//S
i
SIMI 24460
BÍLALEIGAN
'felEYSIR
\> CARRENTAL
BlLALEIGA JÓNASAR & KARLS
Ármúla 28 — Simi 81315
*t£2r trausti
►VERHOLT 15ATEI. 25780
Bílaleiga
CAB RENTAL
41660 - 42902
FEREABILAR HF.
Bilaleiga. - S.'mi 81260.
Tveggja manna Citroen Mehari.
F mm manna Citroen G.S.
8—22 manna Mercedes Benz
hópferðabílar (m. bilstjórum).
STAKSTEINAR
Fiskar á þurru
landi
Eins og fram kom i frétt í
Morgnnhlaðinu í fyrradag,
hefur stjórn SlNE sent fjöl-
miðlunum plagg upp á það,
að landhelgisbarátta okkar
fslendinga sé út í hött —
nema við tökum okkur
snöggvast til og þjóðnýtum
sjávarplássin. Það var nú allt
og sumt, og siðan skal þjóð-
in væntanlega tjá hinum
snjöllu skólapiltum þakklæti
sitt fyrir tímabæra ábend-
ingu.
SÍNE er, eins og menn rek-
ur kannski minni til, skamm-
stöfunin á Sambandi ís-
lenzkra námsmanna erlendis,
off Samband islenzkra náms-
manna erlendis er — eins og
menn eru kannski líka farn-
ir að átta sig á — sá félags-
skapur íslenzkra námsmanna,
sem vasast í nánast öllu
nema málefnum námsmanna.
Hin hógværa ábending
hinna virðulega samtaka er
bakhlutinn á ályktun félags-
stjórnar um landhelgismál og
svoleiðis lítilræði, sem hún
hespaði af núna i vikunnt,
væntanlega í löngu frímínút-
unum.
Bakhiutinn hljóðar svo,
með leyfi háttvirts for-
manns:
„Ljóst er, að landhelgisbar-
áttan er ekki einskorðuð við
skilyrðislausa viðurkenningu
annarra ríkja á yfirráðum Is-
iands yfir auðlindum um-
hverfis landið. Á innanríkis-
vettvangi hljóta að koma i
kjölfarið yfirráð sjómanna
og verkafólks í fiskiðnaði yf-
ir fiskiskipum og fiskvinnslu
stöðvum. Einungis á þennan
hátt verður tryggt, að nýt-
ing fiskstofna ráðist ekki af
skammtíma gróðasjónarmið-
uni útgerðarauðvaldsins, sem
vissulega er samt við sig,
hvort heldur er brezkt eða
íslenzkt."
Lýkur vísdómsorðum.
Það er næsta ólíklegt, að
annar hópur fslendinga geti
verið miklu fávísari um út-
gerðarmál og fiskvinnslu í
svipinn en þeir stjórnarmenn
SfNE, sem standa að þessari
samþykkt. Það væru þá helzt
óvitalMÍrn á dagheimilum, sak
lausar meyjar í kvennaskól-
um og þessar fremur ein-
manalegu rosknu konur sem
afgreiða lopa í hannyrðaverzl-
unum. Sókndjörfu mennirnir
hjá SfNE færast of mikið í
fang: fiskar á þurru landi
eiga lítið að gera á sjó.
En takmörkuð þekking á
málinu, og þaðan af síður
alls engin, hefur ekki í seinni
tíð aftrað forystuliði SfNE
frá þvi að miðla þjóðinni af
meintri vizku sinni. Þeir eru
ekki að veslast upp úr lítil-
læti þama um borð, og menn
velta því satt að segja fyr-
ir sér, hvenær þeim vinnist
tíini til að Iita í bók. Röðin
hlýtur enda bráðum að koma
að bændunum, og þá er ef-
laust mikilvægra tiðinda að
vænta af stórkostlegri fram-
tíð rollunnar í þjóðgarði liins
langþráða „öreigalands“.
Baunabyssur
og ofsjónir
Þar tii mættu SÍNE-menn
þ<í gjarnan hugleiða betur
það „útgerðarauðvald“, sem
nú hrellir þá mest. f stuttu
máli: Þeir eru orðnir slag-
orðasjúkir. Þeir eru að skjóta
á tröll, sem eru ekki til, oR
þó að þeir séu með bauna-
byssur, þá er þetta lijákát-
legt.
Útgerð og það sem henni
fylgir á fslandi er nefnilega
svo fjarri að vera auðvalds-
fyrirbæri, að jafnvel Marx
hefði viknað af gleði ef hann
hefði gert það, sem SfNE-
menn hafa augljóslega for-
sómað: svipazt um í íslenzku
sjávarplássunum.
Skipstjórinn á gjarnan part
í bátnum, trillukarlinn rær
á eigin fle.vtu, bæjarfélögin
gera út togara, almennings-
hlutafélög eiga stóru bátana
og starfrækja fiskvinnslu-
stöðvar og þvilikur aragrúi
„auðvaldskvenna" hringinn í
kringum landið gengur með
fisksvuntu að allt kerfið
riðaði til falls, ef þær
tækju mark á hagsmunahópa
þruglinu, sem SfNE-strák-
arnir eru sífellt með á vör-
unum.
Þeir þurfa að lesa upp og
læra betur.
Hugmyndafrieðin þeirra er
orðin eins úrelt og áraskip-
in.
spurt og svarað
Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS
Hringið i sima 10100 kl.
10—11 frá mánudegl til
föstudags og biðjið um
læsendaþjónustu Morg-
unblaðsins.
PÓSTUR MEÐ SKIPUM
Karl Einarsson, Petaluma,
Californiu, USA, spyr:
Ég fæ Morgunbl. sent hing-
að til Kaliforníu með skipa-
pósti. Það hefur komið
fyrir, að pósturinn er allt að
fjóra mánuði á leiðinni til
mín. Einnig hefur komið fyr-
ir, að hann er ekki nema
hálfan þriðja sólarhring á
leiðinni. Hvernig getur staðið
á þessu?
Rafn Guðmundsson, hjá Pósti
og síma svarar:
Skipapóstur til Bandaríkj-
anna er sendur með skipum
Eimskipafélagsins í hverri
ferð, en það er tvisvar til
þrisvar í mánuði.
Siglingin til austurstrandar
Bandaríkjanna tekur .yfirleitt
tíu til tólf daga, þannig að
póstur getur verið 15-30 daga
gamall þegar hann kemur í
hendur bandarísku póstþjón-
ustunnar.
ÁFENGI Á LAUGARDÖGUM
Soffía Björnsdóttir, Tún-
götu 65, spyr:
Hvernig stendur á því, að
áfengisútsölur eru opnar á
laugardögum, þegar aðrar
verzlanir. sem selja nauðsynja
vörur eru lokaðar?
Ragnar Jónsson, skrifstofu-
stjóri ÁTVR, svarar:
1 14. grein áfengislaga frá
1. júní 1969 segir svo:
Áfengissöiubúðir skulu vera
lokaðar á helgidögum þjóð-
kirkjunnar og frá hádegi á
laugardögum og aðfangadög-
um stórhátíða; einnig þá daga
er almennar kosningar til Al-
þingis og sveitarstjórna fara
fram, svo og sumardaginn
fyrsta, 1. maí, 17. júrtí og
fyrsta mánudag í ágúst.
1 5. gr. regliugerðar um sölu
og veitingar áfengis frá 24.
marz 1972 segir svo:
AfgreiðSlutími útsölustaðanna
isikal aldrei vera lengri en
almennra verzlana.
í>ar sem mikill fjöldi verzl-
ana í Reykjavik er oþinn til
hádegis á laugardöguim hefur
áfengisútsölum ekki verið lok
að.
En sums staðar úti um land
þar sem áfengisútsölur eru,
hafa verzlanir almennt verið
lokaðar á laugardögum vissa
tíma ársins. Á þeim stöðum
eru útsölur Áfengis- og tó-
baksverzlunar ríkisins að sjálf
sögðu einnig lokaðar.
Landsliðið til Evrópumeistarakeppni
í Ostend í Belgíu á þriðjudaginn
N.K. ÞRIÐJUDAG 11. sept-
ember mun landsliðið í bridge
halda til Ostend í Belgíu. Er
þetta 8 manna hópur — 6
spilarar, fararstjóri og borð-
vörður. í kvennaflokki mæta
14 sveitir til keppni þessar-
ar, en 24 í karlaflokki og hef-
ur aldrei verið jafn mikil þátt
taka.
Landsliðið hefur æft mjög
vel að undanförnu, eða allt
frá í maí og hafa verið sam-
æfingar einu sinni til tvisv-
ar i viku. Hafði lið ð leng ð
sér til aðstoðar unga og
áhugasama spilara frá BR.
og ríkti oft skemmtileg
stemmning á æfingum. Má
þar nefna Guðmund Péturs-
son, Jón Hjaltason, Þóri Sig-
urðsson, Þórarn S'gþórsson,
Hörð Arnþórsson, Örn Arn-
þórsson og Guðiaug Jóhanns-
son.
1 landsliðinu eru allt þekkt-
ir spilarar, þrír gamalreynd-
ir keppnismenn, þeir Hjalti
ELíasson, Ásmundur Pálsson
og Stefán Guðjohnsen — en
þeir hafa allir farið a.m.k. 8
sinnum til keppni erlendis.
Yngri spilararnir eru Karl
Sigurhjartarson, Jón Ás-
björnsson og Páll Bergsson,
en þeir hafa allir orðið Is-
landsmeistarar í bridge og
fanið a.m.k. einu sinni til
keppni eriendis fyrir íslands
hönd.
Fararstjórinn, Alfreð G.
Alfreðsson fer í sína fjórðu
ferð, sem fyrirliði. Borðvörð-
urinn er Tryggvi Gíslason, en
þeir Tryggvi og Alfreð eru
mjög virkir þátttakendur í
bridgeheimi okkar og gamal-
reyndir spilarar.
Dregið hefur verið um
keppnisnúmer þátttakenda og
mun Island spila við þá í þess
ari röð: Portúgal, Pólland,
Frakkland, Holland, Bret-
land, Danmörk, Belgía, Italía,
Þýzkaland, Austurríki, Júgó-
slawía Spánn, Svíþjóð, Grikk
land, Ungverjaland, ísrael,
Líbanon, Tékkóslóvakía,
Tyrkland, Irland, Noregur og
Finnland.
Spilaðar eru tvær umferð-
ir á dag.
Ætla má að fyrri hluti
mótsins verði erfiður fyrir
landann ef dæma má af úr-
BCIDGE
slitum fyrri Evrópumóta.
Má þar nefna mótherjana
Frakka, Pólverja, Breta og
síðast en ekki sízt Itali, sern
íslendingar spila við á fimmta
degi, en þeir eru sem kunn-
ugt er heimsmeistarar nú.
Þátturinn óskar íslenzkú
þátttakendunum góðs gengis
og góðrar ferðar á Evrópu-
meistaramótið í Ostend, en
Morgunblaðið mun birta
fréttir frá mótinú jaifnharð-
an og þær bernst.
FRÁ BRIDGEDEILD
BREIDFIRDINGAF fiLAGS-
INS
20. september næstkom-
andi verður aðalfundur fé-
lagsins og verður hann hald-
inn í Domus Medica kl. 8.
Dagskrá fundarins: Venju-
leg aðalfundarstörf. Spilað
verður að fundi loknum.
FRÁ TAFL- OG
BRIDGEKLÚBBNUM
Áætlað er að hefja vetrar-
spilamennskuna 27. sept. n.k-
en það verður auglýst nánar
siíðar.
— A.G.R.