Morgunblaðið - 20.10.1973, Síða 1
32SIÐUR
birtur:
w
Olafur: „Já, égvil sam-
þykkia þessar tillögur’
Fréttatilkynning frá ríkisstjórninni.
Nr. 38/1973
Eins og fram kemur 1 skyrslu þeirri, sem ólafur Johannesson
gaf ríkisstjórn og utanrí*kismálanefnd, er eftirfarandi grundvöllur nu
faanlegur, sem kjarni ao oamkomulagi um bráðabirgðalausn fiskveiÐi-
deilunnar viö Breta:
Grundvöllur að lausn.
1. Takmarkanir á flota (miðað við veiðiskip 1971):
Allir frystitogarar og verksmiðjuskip
skulu utilokuö;
15 stærstu togararnir utiloka'Öir;
15 aðrir utilokaðir.
2. Bátaveiðisvæði samkveemt tillögu fslands frá 4. maí 1973.
3. FriÖunarsvæði samkvæmt tillögu fslands 4. maf 1973,
plus svæði skilgreint 14. junf 1973.
4. Sex holf, sem verða opin til skiptis, eins og tillaga var
gerð um 4. maf 19 /3, eitt lokað, 5 opin.
5. Framkvæmd á samkomulaginu:
Gefa skal ut samþykktan lista yfir skip (sjá annex), sem
mega veiða a þessu sveeði samkvæmt akvæoum þessa sam-
komulags. fslenska rfkisstjórnin mun ekki mótmæla þvf,
að nefnd skip veiði umhverfis fsland svo lengi sem þau
fara eftir akvæðum þeosa braðabirgðasamkomulags. Ef
skip verður staðið að veiðum gagnstætt akvæoum samkomu-
lagsins, hefur íslenska landhelgisgæslan rett til þess að
stöðva það, en skal kalla til næsta breskt aÖstoðarskip
til þess að sannreyna málsatvik. Serhver togari, sem
staðinn er að þvi aö brjota ákvæði samkomulagsins, verður
strikaður ut af listanum.
6. Gildistfmi samkomulagsins 2 ár frá undirskrift.
Mynd þessi sýnir forsfðu „fréttatilkynningar frá ríkisstjörninni" þar
sem birtur er grundvöiiur að lausn fiskveiðideilunnar við Breta en á
baksfðu birtist tiliaga Ólafs Jóhannessonar og gagntiilaga Edwards
Heath.
Ölafur Jóhannesson, forsætisráðherra, lýsti því yfir á blaðamannafundi siðdegis
í gær, að hann vildi samþykkja samkomulagsgrundvöll þann, sem hann kom með
heim frá Lundúnum eftir viðræður hans við Edward Heath, forsætisráðherra
Breta. ,,Já, alveg ákveðið. Ég vil samþykkja þessar tillögur," sagði forsætisráð-
herra. Kjarninn í samkomulagsgrundvellinum er þessi:
0 Allir frystitogarar og verksmiðjutogarar Breta útilokaðir frá veiðum hér við
land, ennfremur 15 stærstu togarar og 15 aðrir togarar.
Q Sérstök bátasvæði og friðunarsvæði verði lokuð brezkum togurum.
^ Fiskimiðunum skipt í sex hólf.fimm opin, eitt lokað hverju sinni
0 Togari, sem brýtur efni samkomulags missir heimild til veiða við ísland,
brezkt aðstoðarskip sannreyni staðarákvörðun varðskips.
% Gildistími samkomulags 2 ár frá undirskrift
Á blaðamannafundinum birti Ólafur Jóhannesson skýrslu þá er hann afhenti
ríkisstjórn, utanríkisnefnd og þingflokkum til meðferðar sem trúnaðarmál, um
viðræður sfnar við Edward Heath. í skýrslu þessari kemur fram, að samkomu-
lagsgrundvöllur sá, sem Bretar lögðu fram f lok viðræðna er í raun að meginefni
til, tillaga, sem Ólafur Jóhannesson hafði lagt fyrir brezka forsætisráðherrann.
Munurinn er sá einn, að í samkomulagsgrundvellinum eru fimm svæði opin og
eitt lokað en í tillögum Ólafs 4 svæði opin og tvö lokuð. Þá er í samkomulags-
grundvellinum ekkert ákvæði um hámarksafla en í tillögum Ólafs var talað um
130 þúsund tonna hámarksafla en óþarft væri að nefna þá tölu í samkomulagi.
Ólafur Jóhannesson sagði á blaðamannafundinum, að ekki væri rétt að kalla
samkomulagsgrundvöllinn „brezkar tillögur" eða „úrslitakosti" en einn stjórnar-
flokkanna, Alþýðubandalagið, hefur þegar hafnað samkomulagsgrundvellinum
sem slíkum.
Ólafur Jóhannesson neitaði að svara þeirri spurningu, hvort hann teldi fært að
afgreiða svo veigamikið mál í ríkisstjórninni á þann veg, að Alþýðubandalagið
bókaði mótmæli sín en ætti aðild áfram að stjórninni. Kvaðst hann ekki vilja
svara þeirri spurningu, málið væri ekki komið á það stig enn. Þetta er svo
veigamikið mál, að það er hafið yfir öll flokksbönd, sagði forsætisráðherra.
„FRÉTTATILKYNNING
FRÁ RlKISSTJÓRNINNI“
1 upphafi blaðamannafundanns las Ólafur Jóhannesson upp „fréttatil-
kynningu frá ríkisstjórninni“ um þann grundvöll, sem nú væri fáanlegur „sem
kjarni að samkomulagi um bráðabirgðalausn fiskveiðideilunnar við Breta“. Er
þessi samkomulagsgrundvöllur í raun gagntilboð Edwards Heaths við tillögu
Ólafs Jóhannessonar, eins og fram kemur í skýrslu hans, sem birt er í heild á bls.
3 í Morgunblaðinu í dag. 1 fréttatilkynningunni segir m.a.: „Til skýringar skal
þess getið, að miðað er við togara, sem hér stunduðu veiðar 1971 en þeir eru taldir
hafa verið 195, þar af 25 frystitogarar. Samkvæmt framangreindum tillögum
fækkar togurum um 55 og ættu 140 rétt á að fá leyfi. Smálestatala togaranna mun
samkvæmt framansögðu lækka um 36% frá 1971. Hin svokölluðu bátasvæði hafa
Bretar viljað meta sem jafngildi 26 þúsund tonna rýrnunar á veiðimöguleikum.
Bretar geta fallizt á að taka veiðihámark inn í væntanlegt samkomulag og vilja þá
miða við 130 þúsund tonn á ári“.
-------------------------------------------- HVER ER MUNURINN FRA
TILBOÐIISLENDINGA 4. maí?
Nixon vill veita milljarða
hemaðaraðstoð til ísraels
Líbýustjórn
stöðvar olíu-
sölu til USA
Tel Aviv, Damaskus, Beirut,
Washington, Kairó 19. okt. AP.
NTB.
NIXON Bandarfkjaforseti fór
þess á leit við bandarfska þingið f
kvöld, að það veitti tafarlaust 2.2
milljarða dollara hernaðaraðstoð
við Israela vegna styrjaldarinnar.
Færi hann fram á þetta til að
viðhalda valdajafnvæginu f
þessum heimshluta, sem ella
kynni að raskast, vegna mikilla
hergagnaflutninga frá Sovétrfkj-
unum til Arabalandanna.
Líbýustjórn tilkynnti í kvöld, að
hún myndi stöðva alla olíusölu til
Bandarfkjanna og jafnframt var
hækkað verð á hverju fati af olíu
um tvo dollara. Irak hefur einnig
hækkað olíuverð, Saudi Arabia
dregið úr framleiðslu og Gatar
sömuleiðis. Ellefu prósent af út-
flutningi Libyu á olíu hefur farið
til Bandarikjanna.
Frá Tel Aviv bárust þær fréttir
í kvöld að hersveitir ísraela á
vesturbakka Súez væru í 70—75
km fjarlægð frá Kairó. Frá Dam-
askus bárust þær fregnir að her-
sveitir Sýrlendinga hefðu gert
gagnárás á Golanhæðum, en Isra-
elar segjast hafa brotið þetta
áhlaup á bak aftur. Eins og venju
lega ber stríðsaðilum ekki saman
og sagði talsmaður Egypta að her-
flokkar þeirra hefðu nánast
þurrkað út fsraelska innrásar-
heri á vesturbakka Súez og aðrir
væru innikróaðir. Israelar segjast
á hinn bóginn vera í þann veginn
að vinna sigur á öllum vígstöðv-
um.
Sovézka flokksmálgagnið
Pravda sagði í dag, að meiri líkur
væru á friði í Miðausturlöndum,
ef Bandaríkin og Sovétríkin
Framhald 'á bls. 18.
Ölafur Jóhannesson gerði grein
fyrir því á blaðamannafundinum,
hver væri munurinn á þessum
samkomulagsgrundvelli, og
tillögum Islendinga á siðasta við-
ræðufundi með Bretum hinn 4.
maí sl. Hann sagði, að þá hefði
það verið krafa af hálfu
Islendinga, að allir verksmiðju-
togarar yrðu útilokaðir frá veið-
um og 30 stærstu togarar en i
samkomulagsgrundvellinum
væru allir verksmiðjutogarar úti-
lokaðir, 15 stærstu togarar og 15
aðrir togarar. I tilboði Islendinga
frá 4. maí sl. hefði verið miðað við
4 svæði opin og tvö lokuð, en í
samkomulagsgrundvellinum væri
miðað við 5 svæði opin og eitt
lokað. 1 tilboði Islendinga 4. mai
sl. hefði verið miðað við 2 ára
gildistíma. I öllum umræðum um
þessi mál hefði verið miðað við,
að gildistimi samkomulagsins
Framhald á bls. 18.