Morgunblaðið - 20.10.1973, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 20.10.1973, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. OKT0BER 1973 7 Níræður er 1 dag Magnús Sig- urðsson, sem nú dvelst á elli- heimilinu á ísafirði, en hann var lengst af búsettur í Bolungarvík. Sjötug er á morgun frú María Ólafsdóttir frá Bakka á Skaga- strönd. Hún tekur á móti gestum í Hlégarði milli kl. 4 og 7 síðdegis sama dag. I dag verða gef in saman í hjóna- band'í Dómkirkjunni af séra Þóri Stephensen, Olöf Guðmunds- dóttir, Sólvallagötu 35, og Þórður Ásgeirsson, Suðurlandsbraut 91 H. Heimili þeirra verður að Ara- hólum 6, Reykjavík. í dag verða gef in saman í hjóna- band í Bústaðakirkju af séra Ölafi Skúlasyni, Svanhildur María Ólafsdóttir og Eðvarð Ingólfsson, Hrafnhólum 2, R. 1 dag verða gef in saman i hjöna- band af séra Ölafi Skúlasyni Sig- rún Edda Karlsdóttir og Guð- laugur Þórðarson. Heimili þeirra verður að Leirubakka 32, R. DAGBÓK BAHWWA., Þýtur í skóginum — Eftir Kenneth Grahame 2. kafli — Þjóðvegurinn Rottan tók í öxlina á honum og hristi hann. „Ætlarðu ekki að koma og hjálpa okkur?“ spurði hún byrst: „Unaðsleg sjón,“ tautaði forskur, en hreyfði sig ekki. „Hvílíkur hraði. Sá eini rétti ferðamáti. Hér í dag, þar á morgun. Eins og eldibrandur um þorp og bæi og borgir. Síbreytilegur sjóndeildarhringur. Ó, dásemd ... tukk-tukk ... ja-hérna-hér.“ „Hættu þessum fiflalátum, froskur," sagði mold- varpan í örvinglan sinni. „Og ég vissi ekkert um þetta,“ hélt froskur áfram dreyminni röddu. „Og öll árin að baki mér, sem ég hef eytt í fánýti . . . en nú veit ég allt . . . nú hefur runnið upp fyrir mér ljós. Framundan er vegurinn blómum stráður. Hvílíkir rykstrókar munu þyrlast upp í kjölfar mitt, þegar ég þeysi eftir veginum. Að ég nú ekki tali um alla þá vagna, sem ég á eftir að steypa í skurði við veginn ... óásjálegir litlir vagnar . .. ljótir gulir vagnar... “ „Hvað eigum við að gera við hann?“ spurði mold- varpan vatnsrottuna. „Ekkert,“ sagði rottan ákveðin. „vegna þess, að ekkert er hægt að gera við hann. Ég þekki hann vel og hef þekkt hann lengi. Nú hefur hann fengið nýja flugu í hausinn. Á þessu stigi málsins verður hann alltaf gagntekinn á líkama og sál. Svona verður hann nokkra daga. Gengur eins og í draumi og er til einskis nýtur. Við skulum ekki skipta okkur af honum. Við skulum heldur athuga, hvað hægt er að gera við vagninn." Eftir nánari athugun komust þær að þeirri niður- stöðu, að vagninn kæmist ekki lengra, enda þótt þeim mætti takast að rétta hann við. Öxullinn var boginn og hjólið, sem hafði dottið af, var mölbrotið. FRAMHALDSSAEAN „En hvað á að verða um frosk?,“ spurði mold- varpan kvíðafull, um leiðog hún trítlaði af stað. „Við getum ekki skilið hann eftir hér í reiðileysi, sitjandi úti á miðri götunni . Það er ekki óhætt. Setjum svo, að Ánnað Eins kæmi eftir veginum ?“ „Skítt með frosk,“ sagði vatnsrottan. „Ég er búin að fá nóg af honum.“ Ekki höfðu þær þó farið langt, þegar þær heyrðu fótatak að baki sér. Þar var kominn froskur. Hann tók undir sitt hvora framlöppina á þeim og starði stórum augum fram á veginn, andstuttur sem fyrr. Rottan teymdi hestinn með annarri framíöppinni og hélt á fuglabúrinu með skrækjandi fuglinum í hinni og hélt af stað. „Komdu,“ sagði hún við mold- vörpuna. „Það eru fimm eða sex mílur til næsta þorps, og við verðum að fara það gangandi. Því fyrr sem við leggjum af stað, því betra.“ Flöskumar tíu Hérna er létt reikniþraut fyrir yngstu lesendurna. Þetta er hann Palli og athugar tíu flöskur. Númer vantar á eina þeirra. Hvaða númer á það að vera? Og hvaða tala kemur út ef þú leggur saman númerin á öllum flösk unum tíu? gg rusnenj PENNAVINIR England Pauline Mary Carp, No 9 Bates Close, Pennywell Road, Easton, Bristol BS5. OUZ. England. Óskar eftir að skrifast á við Islending, karl eða konu. Safnar frímerkjum og póstkortum. Austur-Þýzkaland Bernd Epperlein, KaHsbader Str. 24 E, RDA—DDR x 9317 SEHMA, German Democratic Repubiic Hann er 19 ára og óskar eftir að komast 1 bréfasamband við ís- lenzka jafnaldra sína. Safnar frí- merkjum og póstkortum. Noregur Erling Chr. Darbo, 3322 Darbu, Norge. Hann er tíu ára og vill skrifast á við dreng á sínum aldri. Safnar frímerkjum. Gangíð úti í góða veðrinu PEANUTS ^Eð, MA'AM ...l’p LIKE T0 TRANðFER1 TEMPORAKlUf T0 ‘iDUK 5CH00L. 1 »1 1 i/V m fe m pap i$ oirr of toiúm.w £EE, AMP l‘M ðTAflNe IN CHUCK'ð 60E5T C0TTA6E 60 |‘LL BE 60IN6 10 THI5 5CH00L FOR AWHlLE If WLL HAVE ME...0KAl('? IM N0 6REAT 5CHOLAR, H'OO UNPEK5TANP, BUT l’M ALDAH'ð IN THEKE TRH,IN6„. lf IT'5“TRUEORFAL5E"OR “MliLTJPLE CHOlCE," l'LL BE IN THERE WITH THE BE5T OF ‘EM í (r ''./' f ' / 1) Já, fröken, ég vil flytjast f ykkar skóla f bili. 2) Pabbi er ekki f bænum, skilurðu, og ég bý I gesta- skála Kalla, svo að ég geng f skóla hér f dálftinn tfma, ef þið viljið taka mig . . .1 lagi? 3) Ég er ekkert gáfnaljós, skilurðu, að ég reyni samt alltaf eins og ég get. . . 4) Ef það er krossapróf, verð ég með þeim beztu! FERDINAND

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.