Morgunblaðið - 20.10.1973, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 1973
31
Hitaveita til Hafnarfiarðar:
Mesta hagsmuna-
mál Hafnfirðinga
fyrr og síðar
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar á fundi f fyrradag, þar sem hitaveitusamn-
ingurinn var samþykktur.
EINS og skýrt var frá í Morgun-
blaðinu i gær sambvkkti bæjar-
stjórn Hafnarfjarðar einróma á
fundi sínum I fyrrakvöld samning
við Reykjavíkurborg um, að Hita-
veita Reykjavikur taki að sér að
leggja og reka hitaveitu í Hafnar-
firði. Málið var einnig samþykkt í
borgarstjórn Reykjavíkur sama
kvöld. I saminignum er gert ráð
fyrir því, að hafizt verði handa
um framkvæmdir þegar í stað og
að lagningu hitaveitunnar verði
lokið 1976-1977.
Er hér um að ræðaframkvæmd-
ir, sem áætlað er að kosti um 600
milljónir króna, miðað við verðlag
1. ágúst. Er sá fyrirvari á fram-
kvæmdahraða, að Hitaveitu
Reykjavíkur takist að tryggja lán,
að upphæð um 410 milljónir
króna, til að fjármagna fram-
kvæmdirnar. Verður samningur-
inn formlega undirritaður nú
næstu daga.
Skv. samningnum fær Hitaveita
Reykjavlkur einkarétt á rekstri
hitaveitu í Hafnarfirði. Þá fær
Hitaveita Reykjavíkur rétt til
jarðhitaleitar og virkjunar til
húsahitunarf eignarlandi Hafnar-
fjarðarkaupstaðar í Krisuvík.
Nær þessi réttur eingöngu til
virkjunar til húsahitunar og ann-
arar venjubundinnar notkunar
Hitaveitu Reykjavíkur, og ráðist
hún í virkjun i Krisuvík, ber
henni að greiða bæjarsjóði
Hafnarfjarðar hlutfallslega sama
verð og hitaréttindin hafa kostað
Hafnarfjarðarkaupstað, skv. mati
á hitaréttindum, þegar kaup-
staðurinn fékk þau, og hlutfalls-
legan kostnað af rannsóknum,
sem fram hafa farið á jarðhita-
svæðinu, eftir nánara sam-
komulagi.
Þá er i samningnum kveðið á
um, að Hitaveita Reykjavíkur
tryggi rekstraröryggi veitunnar
og að þjónusta í Hafnarfirði verði
ekki lakari en í Reykjavík,
ennfremur, 'að Hafnfirðingar fái
heita vatnið á sama verði og Reyk-
vikingar. Gert er ráð fyrir, að
Hitaveita Reykjavikur fái 7% arð
af rekstri hitaveitu í Hafnarfirði,
en kveðið á um, að ef, að 15 árum
liðnum verði hreinar árstekjur
Hitaveitu Reykjavíkur hærri en
sem svarar 7% af hreinni endur-
metinni eign í ársbyrjun ár hvert,
skuli bæjarsjóði Hafnarfjarðar
frá þeim tíma greiddur hluti af
hreinum tekjum umfram framan-
greind 7%, miðað við hlutf all sölu
Hitaveitu Reykjavikur i Hafnar-
firði af heildarsölu Hitaveitunn-
ar.
Ekki er gert ráð íyrir neinni
eignaraðild Hafnarfjarðarbæjar
að hitaveitunni, en bæjarstjórn
Hafnarfjarðar er heimilt að til-
nefna fuiltrúa, er verði tengiliður
hennar við Hitaveitu Rvikur.
Skal hann hafa tillögurétt um
þau málefni, er snerta Hafnar-
fjörð sérstaklega, og skal engu
máli, er varðar Hafnarfjörð, ráðið
til lykta án umsagnar hans. Samn-
ingi þessum verður ekki sagt upp
nema með samþykki beggja aðila.
Þó fellur samningurinn úr gildi,
ef óviðráðanlegar aðstæður
hindra starfsemi Hitaveitu
Reykjavikur að dómi borgar-
stjórnar Reykjavíkur. Ef slíkar
aðstæður skapast á hvorugur aðili
bótarétt á hendur hinum.
Eins og fyrr hefur verð skýrt
frá, var samningurinn einróma
samþykktur i bæjars.tjórn
Hafnarfjarðar og borgarstjórn
Reykjavíkijr, en nefnd úr þessum
stjórnum gekk frá samningnum.
Þó urðu í bæjarstjórn Hafnar-
fjarðar harðar deilur áður en
samningurinn var samþykktur,
vegna bókunar fulltrúa Alþýðu-
flokksins, en þeir greiddu at-
kvæði með fyrirvara. Segir í
bókuninni, að fulltrúar Alþýðu-
flokksins greiði atkvæði með
samningnum í trausti þess, að síð-
ar verði gengið svo frá málum, að
Hafnfirðingar fái eignar- og
stjórnunaraðild að hitaveitunni.
Var það Hörður Zóphaniasson,
sem lagði bókunina fram.
Ami- Grétar Finnsson btejar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins tók
þá til máls og gagnrýndi Alþýðu-
f lokksmennina harðlega fyrir
þessa bókun, en taldi hana þó
ekki koma á óvart, þvi að Alþýðu-
flokkurinn hefði alltaf staðið
gegn lagningu hitaveitu til
Hafnarfjarðar, en viljað rafhitun
í staðinn. Harmaði Ami það, að
Alþýðuflokksmenn skyldu ekkert
hafa lært og að þeir væru ennþá á
móti lagningu hitaveitu til
Hafnarfjarðar, sem væri mesta
hagsmunamál bæjarbúa fyrr og
síðar. Hefði Alþýðuflokkurinn
um árabil beitt stöðvunarvaldi til
að tefja málið og þvi dýrmætur
timi farið í súginn. Eftir síðustu
bæjarstjórnarkosningar hefði það
verið Alþýðuflokkurinn, sem
tafði það í tvö ár, að ekki var
byrjað á hitaveitumálum. Var það
ekki fyrr en 8. apríl 1972, að sam-
þykkt fékkst I bæjarstjórn yfirlýs
ing um, að bæjarstjórn hefði
áhuga á hitaveitu. Gerðist lítið í
málinu, að sögn Árna Grétars
Finnssonar, unz samþykkt var í
sumar tillaga Stefáns Jónssonav
bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks
ins um, að skipuð yrði nefnd
bæjarfulltrúa til að ganga frá
samningum við borgarstjórn
Reykjavikur og það væri störfum
þessarar nefndar að þakka, að
samningurinn lægi nú fyrir og
málið væri komið heilt i höfn.
Stefán Gunnlaugsson forseti
bæjarstjórnar og fulltrúi Alþýðu-
flokksins tók þá til máis og mót-
mælti harðlega þessurn ásökunum
Ama Grétars Finnssonar og sagði
þær staðlausa stafí. Aiþýðuflokk-
urinn hefði aldvei staðið gegn
lagningu hitaveitu tii Hafnar-
fjarðar. Sagði Stefán, að þó að
Alþýðuflokksmaður hefði á sin-
um tíma verið i !,;taveitunefnd í
Hafnarfirði, hefði hann ekki ver-
ið þar á vegum Alþýðuflokksins,
hann hefði verið valinn persónu-
lega í nefndina og hans eigin
sannfæring hefði ráðið afstöðu
hans i þeirri nefnd. Sagði Stefán,
að bókun Alþýðuflokksins nú
væri til komin vegna þess, að
Alþýðuflokksmenn vildu stærri
hlut til handa Hafnfirðingum en
aðrir bæjarfulltrúar.
Spunnust út af þessu snarpar
og harðar deilur, tóku allir bæjar-
fulltrúar til máls og stóð fundur-
inn i tæpar 5 klst, en átti upphaf-
lega að vera stuttur og aðeins til
að samþykkja samninginn. Hörm-
uðu bæjarfulltrúar, að fundurinn,
sem átt hefði að vera fagnaðar-
fundur vegna giftusamlegrar af-
greiðslu mesta hagsmunamáls
Hafnfirðinga skyldi verða svo
mikill deilufundur.
Skógaskóli settur
Héraðsskólinn í Skógum var
settur 12. okt. sl. Nemendur eru
nú alls 129, fleiri en nokkru sinni
fyrr, i 5 bekkjardeildum. Heiman-
akstur nemenda hefur verið
aukinn talsvert, en einnig rekur
skólinn heimavist. Skólastjóri er
Jón R. Hjálmarsson.
FERMINGAR
BREIÐHOLTSPRESTAKALL
Fermingarbörn í Bústaðakirkju
sunnudaginn 21. okt. kl. 13.30.
STCLKUR:
Amanda Ingibjörg Einarsdóttir,
Gyðufelli 12
Anna Karlsdóttir,
Yrsufelli 11
Asta Kjartansdóttir,
Sólheimum
Asta Kristín Sæmundsdóttir,
Vesturbergi 70
Birna Mar Sigurðardóttir,
Leirubakka 18
Emma Marinósdóttir,
Vesturbergi 98
Ingibjörg Marinósdóttir,
Vesturbergi 98
Sigrún Inga Magnúsdóttir,
Grýtubakka 22
Sólveig Magnúsdóttir,
Geitastekk 6
Þórdís Hannesdóttir,
Völvufelh 24
Drengir:
Eymundur Kristjánsson,
Irabakka 4
FYiðrik Dungal Höskuldsson,
Irabakka 12
Guðmundur Hrafn Guðmundsson,
Skriðustekk 12
Hilmar Kristjánsson,
Irabakka 4
Karl Jón Karlsson,
Yrsufelli 11
Kjartan Þór Bjarnason,
Hjaltabakka 8
Lárus Kristjánsson,
Irabakka 4
Þórarinn Einarsson,
Gyðufelli 12
Ferming í Grensásprestakalli
sunnudaginn 21. október kl. 14.
Prestur: Síra Jónas Gíslason.
Alfons Jónsson,
Háaleitisbraut 36, R.
Amgrímur Þorgrímsson,
Háaleitisbraut 56, R.
Birgir Bragason,
Mariubakka 18, R.
Hörður Bragason,
Maríubakka 18, R.
Magnús Magnússon,
Vesturbergi 157, R.
Ferming f Dómkirkjunni
sunnudaginn 21. október kl. 2 e.h.
Prestur: sr. Þórir Stephensen.
Stúlkur:
Belinda Theriault,
Hringbraut 103
Karólina Margrét Jónsdóttir,
Vesturgötu 23
Þórunn Þórisdóttir,
Lambastaðabraut 1, Seltjn.
Drengir:
Asgeir Ragnar Bragason,
Vesturgötu 18,
Bessi Jóhannsson,
Ásgarði 21
Jón Helgason,
Efstasundi 90
Skafti Gunnarsson,
Bauganesi 32
Stefán öm Hjaltalín,
Hverfisgötu49
Svan Hector Trampe,
Lauga\egi 135
Úlfar Ingi Þórðarson,
Suðurgötu 35
Fermingarbörn i Dómkirkjunni,
sunnudaginn 21. okt. kl. 11. Séra
Óskar J. Þorláksson.
Stúlkur:
Helga Bragadóttir,
Yrsufelli 2
Lára Guðrún Agnarsdóttir,
Barónsstíg 13
Linda Sigurborg
Aðalbjörnsdóttir.
Meistaravöllum 25
Sigriður Guðjónsdóttir,
Hringbraut 54
Valdís Steinsson,
Holtagerði 54
Þórgunnur Hjaltadóttir,
Hlunnavogi 3
Drengir:
Barði Valdimarsson,
Selbrekku 1 K.
Guðmundur Kristinn
Baldursson,
Alftamýri 30
Júlíus Baldursson,
Álftamýri 30
Isak örn Sigurðsson,
Bólstaðarhlíð 62
Jónas Haraldsson,
Bræðraborgarstíg 37
Kristbjörn Haraldsson,
Bræðraborgarstíg 37
Margeir Pétursson,
Sólheimum 34
Ölafur Magnús Ölafsson,
Skaftahlíð 5
Sigurjón Helgi Kristjánsson,
Bauganesi 5
Tómas Óskar Guðjónsson,
Hringbraut 54.
Fermingarbörn í Neskirkju
sunnudaginn 21. október kl. 2.
Prestur: sr. Frank M. Halldörs-
son.
Aki Ingvarsson,
Hringbraut 94
Asmundur Ingvarsson,
Hringbraut 94
Guðný Garðarsdóttir,
Irabakka 20
Halldór Hilrnir Jónsson.
Bakkavör 9, Seltj.
Hrafnkell Viðar Gfslason.
Tómasarhaga 38
Jón Auðunn Gunnarsson,
Sörlaskjóli 48
Ömar Brynjarsson,
Skólabraut 55. Seltj.
Öm Brynjarsson,
Skólabraut 55, Seltj.
Ferming í Iláteigskirkju sunnu-
daginn 21. okt. kl. 2. Séra Jón
Þorvarðsson.
Svanhildur Haraldsdóttir,
Bollagötu 2
Gísli Baehtnann,
Eskihlíð 20
Jóhann Gröndal,
Flókagötu 58
Jónas Ragnar Halldórsson,
Drápuhlið 28
ÞIIRFID
ÞÉR
HÍRÝLI?
s Opið frá kl 10—6 á
laugardag.
s -jt Teikningar til sýnis á
skrifstofunni
Höfum til sölu 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir i þriggja hæða sambýfishúsum
og 8 hæða háhýsum í miðbænum í Kópavogi.
íbúðirnar verða afhentar tilbúnar undir tréverk
it Sameign verður fullfrágengin og húsin máluð að utan.
★ Sameiginleg bílgeymsla fylgir ibúðunum
★ Lóðin verður fullfrágengin og er hugsuð sem útivistarsvæði fyrir ibúana. Á
lóðinni verða hitaðir gangstígar og útskot með bekkjum
★ A svæðinu verða gróðursettir runnar, tré og gras og jafnframt verða reitir fyrir
sumarblóm
★ Hluti svæðisins verður nýttur fyrir leikaðstöðu smábarna, með leiktækjum,
sandkössum o.þ.h.
★ Á svæðinu verður dagvistunaraðstaða fyrir börn
Hibýli & skip
Garðastræti 38
Simi: 26277
Heimasímar:
Gisli Ólafsson 201 78
Guðfinnur Magnússon 51 970