Morgunblaðið - 20.10.1973, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. OKTOBER 1973
11
Milli-
svæða-
mótið í
Petro-
polis
Síðara millisvæðamótið I
skák fór fram í Petropolis í
Brasilfu dagana 23. júlí — 18.
ágúst sl. Úrslitin komu nokkuð
á óvart, en mótinu lauk með
öruggum sigri hins unga brasil-
íska stórmeistara H. Mecking.
Mecking er aðeins nýlega orð-
inn 21 árs gamall og þótt hann
hafi getið sér gott orð sem skák-
meistari að undanförnu munu
fáir hafa spáð honum sigri áður
en mótið hófst Flestir spáðu
ungverska stórmeistaranum
Portisch sigri, en hann hefur
unnið flest mót, sem hann
hefur tekið þátt í á undanförn-
um mánuðum.
Framan af mótinu hafði
júgóslavneski stórmeistarinn
Ljubojevic forystu, en hann
sprakk um miðbikið og þá
komst Portisch i efsta sæti.
Ungverjinn hélt svo forystunni
uns hann tapaði fyrir sovéska
stórmeistaranum Polugajevsky
í sfðustu umferð. Þá fyrst
komst Mecking í efsta sæti, en
þeir Pórtisch, Geller og
Polugajevsky deildu með sér 2.
— 4. sæti. Þar sem aðeins þrír
efstu menn komast áfram í
áskorendakeppnina urðu þeir
þremenningarnir að tefla um
tvö sæti og urðu úrslitin þau, að
Portisch sigraði, Polugjevsky
varð annar, en Geller varð að
bíta í það súra epli, að falla úr
leik. Ekki skulu úrslit mótsins
rakin frekar hér, enda hefur
það löngu verið gert í fréttum,
en við skulum Ifta á eina
skemmtilega skák frá hendi
sigurvegarans.
Hvftt: W. Savon (Sovétr.)
Svart: H. Mecking (Brasilfa)
Sikileyjarvörn
1. e4 — c5, 2. Rf3 — d6,3. d4 —
cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 —
a6,
(Najdorfafbrigðið hefur
lengst af verið eitt
skæðastavopn Mecking).
6. Bg5 — e6, 7. f4 — Rbd7, 8.
De2
Hér er algengast að leika
8. Df3. Þessi leikur er þó
ekki nýr af nálinni, en
Rússarnir hafa auðsján-
lega dustað af honum
rykið fyrir þetta mót, t.d.
beitti Bronstein honum í
þessari sömu umferð og
vann góðan sigur á
Georghiu).
8. — Dc7,9.g4
(Hér skildust leiðir,
Bronstein lék 9.0-0-0).
9. -- b5, 10. a3 — be7, 11. Bg2
— Bb7, 12. 0-0-0 — Hac8, 13.
Bh4?
(Slæmur afleikur.
Nauðsynlegt var hér 13.
Bxf6 og eftir 13. — Rxf6,
14. g5 — Rd7, 15. f5 er
staðan tvísýn. I 13. leik
gat svartur hins vegar
ekki leikið Bxf6 vegna 14.
Rxb5! og vinnur).
13. — Dc4!
(Nú nær svartur
af gerandi f rumkvæði).
14. Dxc4 — Hxc4,15. Bf 3
(15. g5 — Rg4 var ekki
ýkja álitlegt fyrir
hvítan).
15. — Rc5,16. Be2
(Ef 16. Hhel, þá Rfxe4!,
17. Bxe7 — Rxc3, 18.
Bxb7 — Rxdl, 19. Hxdl —
Kxe7 og svartur hefur
unnið tafl) •
16. — Rfxe4!
(Falleg leikflétta, sem
gerir út um skákina).
17. Rxe4 — Bxe4,18. Bxe7
(Hvftum hefur auðsjan-
lenga yfirsést hinn snotri
svarleikur svarts. Eftir
18. Bxc4 — Bxhi, 19.
Bxe7 — Kxe7,21. Hxhl —
bxc4 hefði svartur haft
peði meira og unna
stöðu).
18. — Rb3+!!
(Nú vinnur svartur enn
meira lið).
19. Kbl
(Ef 19. Rxb3 þá Hxc2+,
20. Kbl — Hxe2+ ásamt
Bxhl og vinnur).
19. — Hxd4, 20. Bxd6 — Bxhl,
21. cxb3 — Hxdl+, 22. Bxdl —
Kd7
(Svartur hefur unnið skipta-
mun og nú er það aðeins tækni-
legt atriði að innbyrða vinning-
inn).
23. Be5 — f6, 24. Be3 — Be4+,
25. Ka2 — Kc6, 26. a4 — Hd8,
27. Be2 — e5!
(Mátið er meira virði en
eittpeð).
28. fxe5 — fxe5, 29. Bxe5 —
Hd2, 30. Bfl — Hdl, 31. axb5+
— axb5, 32. Bh3 — b4,33. Bxg7
— Hd7 og hvftur gafst upp, þar
eð mát er óverjandi.
Jón Þ. Þór.
Ungur Reykvíkingur
til starfa í Bankok
Ungur maður, Einar
Bjamason Hjallavegi 5 hér í
borg, sem starfað hefur er-
lendis i nokkur ár, lagði leið
sína hér um fyrir skemmstu, er
hann var á leið til Bankok í
Thailandi. Hefur Einar starfað
sem fulltrúi fyrir stóra vestur-
þýska ferðaskrifstofu, T.U.I.,
og hefur aðalbækistöð i
Hannover. Var hann fyrir skrif-
stofuna á Majorka og annaðist
þar fyrirgreiðslu við ferðafólk.
Kringum 20. okt. ætlaði hann
að fara austur til Bankok ásamt
fleira starfsfólki frá þessari
ferðaskrifstofu til þess að ann-
ast fyrirgreiðslu við skemmti-
ferðafólk, sem i vetrarfríi legg-
ur leið sína til fjarlægari
austurlanda. Að sögn Einars
verður mikill straumur Þjóð-
verja þangað í vetur. 1 sam-
bandi við starf Einars þar
eystra mun hann ferðast til all-
margra austurlanda allt til
f jallaríkisins Negal.
Einar Bjarnson, sem varð
stúdent vorið 1968, hvarf frá
læknanámi, sem hann hugðist
leggja stund á í V.-Berlín, og
gerðist þar starfsmaður TUI-
ferðaskrifstofunnar. Lætur
hann vel af starfinu, sem hann
kveður gefa ungum mönnum
mikla möguleika.
Einar Bjarnason er sonur
Guðjóns Bjarnasonar sem
látinn er, en móðir Einars er
Lilja Bjamadóttir.
GULI PARDUSINN
Skoda
110R Coupé
Það eru næstum 80 ár síðan
bllaverksmiðjurnar í borginni
Mladá Boleslav í Tékkóslóvakiu
voru settar á fót. Þær voru
raunar í upphafi eingöngu
reiðhjólaverksmiðja og verk-
stæði, er tveir menn, þeir
Klement, sem var bóksali og
Laurin, sem var vélvirki, stóðu
fyrir. Arið 1898 hófu þeir fram-
leiðslu á vélhjólum og 1901 leit
fyrsti bíll þeirra dagsins ljós. ■—
Skoda nafnið kom fyrst á farar-
tækin 1928. — Skoda voru
kannski nokkuð lengi f öldudal
eftir síðari heimsstyrjöldina en
siðustu ár hefur Skodinn tekið
örum framförum og er nú
orðinn fyllilega boðlegur og
samkeppnisfær við aðra bila í
sama verðflokki.
Skoda 110R, sem er betur
þekktur undir nafninu „Guli
pardusinn" hefur fjögurra
strokka vél, sem er aftur 1 bíln-
um og knýr afturhjólin.
Krafturinn er 62 hestöfl
(SAE). Þjöppunarhlutfallið er
hátt, 9,5:1. Innsogið er ekki
lengur sjálfvirkt eins og
tíðkaðist á tímabili hjá Skoda.
Tjakkanum er komið fyrir milli
framsætanna. Diskabremsur
eru að framan en skálar að
aftan. Bremsukerfið er tvöfalt
og viðvörunarljós kviknar í
mælaborði ef aðalkerfið bilar.
Sjálfstæðar gormfjaðrir eru á
öllum hjólum. Hátt er undir
bflinn, 17,5 sm undir lægsta
punkt og plata er undir honum
að neðan. Skodinn er, andstætt
því, sem margir virðast halda,
vatnskældur og tekur kæli-
loftið inn um raufar á hliðar-
póstum að aftan. Rafgeyminum
er vel fyrir komið í hólfi á bak
við aftursætið. Þar er einnig
nokkurt geymslurými. Aðal-
farangursrýmið er hins vegar
frammi í bílnum. Þar eru
einnig geymd varadekk og
verkfæri. Hámarkshraðinn er
sagður yfir 140 km/klst. þó að
ekki hafi það verið reynt hér.
Skodinn liggur nokkuð vel og
er léttur að framan. Stýris-
hjólið er þægilega lítið.
Frágangur að innan er í
heildina góður en hávaði frá
vélinni er nokkuð mikill.
Bensíngeymirinn, sem er
fremst í bílnum er varinn högg-
um með járnplötu, sem er undir
bflnum að framan.
Miðstöðin er allkraftmik-
il og er blásarinn í
henni tveggja hraða. Fylgi-
hlutir eru óvenjulega margir
miðað við bíl í þessum verð-
flokki og má þar nefna úti-
spegla á frambrettum, ýmsa
aukamæla í mælaborði,
hnakkapúða á framsætum og
snúningshraðamæli. Pardusinn
er fimm manna bíll en fyrir háa
menn er lítið fóta- og höfuð-
rými aftur í. Undir stýri er
einnig nokkuð þröngt fyrir háa
menn þótt sætið sé í öftustu
stöðu. — Virkni stjórntækja er
ekki mjög nákvæm en þó e.t.v.
ekki lakari en búast má við
fyrir þetta verð.
Auk venjulegs ljósabúnaðar
eru felld önnur ljós í grillið við
hlið aðalljósanna. Þetta eru
mjög skær ljós (halogen) og er
ekki hægt að kveikja á þeim
nema háu ljósin séu áður
tendruð.
Argerð 1974 af Skoda 110R
kostar kr. 351 þúsund, en
ddýrasti Skodinn af nýjustu
árgerð kostar kr. 286 þúsund.
Skoda umboðið, eða
Tékkneska bifreiðaumboðið
hf., er við Auðbrekku 44 f
Kópavogi.
Br.H.