Morgunblaðið - 20.10.1973, Page 13

Morgunblaðið - 20.10.1973, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 1973 13 Gunnar Thoroddsen: Stefna Lúðvíks hættu- r leg hagsmunum Islendinga Gunnar Thoroddsen, formaður þingflokks sjáifstæðismanna var annar ræðumanna Sjálfstæðis- flokksins við útvarpsumræðurnar ( fyrrakvöld. Meðal þeirra atriða, sem Gunnar gat um f ræðu sinni voru: if Ef rfkisstjórnin lifði af þá einstæðu atburði, sem fram- koma ráðherra og málgagns Alþýðubandalagsins undan- farna daga eru, yrði hún ekki söm og áður. Tii þess hlyti trúnaður á milli ráðherranna að hafa beðið of mikinn hnekki. if Tilraun forsætisráðherra hinar sfðustu vikur til að ná bráðabirgðasamkomulagi við Breta væru lofsverðar. if Vegna þess, hvernig þróun fiskveiðiiögsögumáianna f heiminum hefði verið að undanförnu, væri nauðsyn- legt að miða iandhelgina við 200 mflur til að ná samkomu- lagi við þær þjóðir, sem leng- st vilja ganga f útfærsiu fisk- veiðiiögsögu. if Sjálfstæðismenn teldu Iffs- nauðsyn, að útfærsla f 200 mflur færi fram fyrir árslok 1974 vegna þeirra dýrmætu fiskimiða miili 50 og 200 mflna, sem nú væru f alvar- legri og yfirvofandi hættu. Slfka útfærslu styddu auk þess bæði stjórnmálaleg og iagaleg rök. if Stefna Lúðvfks Jósepssonar, sjávarútvegsráðherra, um að okkur bæri að bfða með út- færslu f 200 mflur, þar til breytt alþjóðalög beinifnis heimiiuðu slfka útfærslu, væri hættuleg hagsmunum lsiendinga. Ræða Gunnars Thoroddsen birtist hér á eftir f heild: LlFDAGAR RlKISSTJÓRNARINNAR „Herra forseti. Góðir hlust- endur. Þeir atburðir eru nú að gerast í stjórnmálum landsins, að fólk spyr um gervalla landsbyggð- ina tveggja spurninga: Verður samið við Breta? Getur stjórnin lifaðlengi úr þessu? Varla er við því að búast, að við óbreyttir alþingismenn getum svarað þessum spurningum. Fremur væri það forsætis- ráðherra og sjávarútvegsráð- herra, en mér er þó næst að halda, að hvorugur þeirra geti svarað. Þeir hafa báðir flutt ræður og munu menn jafnnær um svörin. Það væri kannski reynandi að spyrja ráðherra SFV, hæstvirtan félagsmála- og menntamálaráð- herra, sem báðir hafa dvalizt langdvölum í Alþýðubandalaginu og munu því vera þaulkunnugir heimilisháttum þar og vinnu- brögðum. Máltæki segir, að seint fyrnist fornar ástir, en ekki er vfst, að hið forna spakmæli eigi við um þá félaga. Ekki treysti ég mér til að spá um lífdaga stjórnarinnar. Ég hef áður látið í Ijós efasemdir um það, að þessi stjórn nái þriggja ára aldri fremur en aðrar þriggja flokka stjórnir á tslandi, en engin þeirra hefur orðið svo gömul. En ef núverandi ríkisstjórn lifir af þá einstæðu atburði í íslenzkri stjórnmálasögu, sem gerzt hafa í dag með framkomu ráðherra og málgagns Alþýðubandalagsins í garð hæstvirts forsætisráðherra ef stjórnin lifir þá atburði af, þá verður hún ekki söm og áður. Sá trúnaður og það traust, sem verður að ríkja á miili samstarfs- manna f ríkisstjórn og alveg sér staklega milli forsætisráðherra og samráðherra hefur beðið alvar- legan hnekki. Það er mál, sem varðar þjóðina alla. VIÐLEITNI ÓLAFS LOFSVERÐ Landhelgismálið gnæfir nú seir. fyrr yfir önnur islenzk mál. Þaf er að mínu viti tvíþætt. Annars vegar er lausn til skamms tima i deilunum við Breta. Sá grunvöll ur að samkomulagi, sem forsætis- ráðherra afhenti þingflokkum i gær sem trúnaðarmál, er til umræðu og athugunar. Vegna viliandi ummæla sjávarútvegsráð- herra, hér áðan, þá vil ég taka fram, að það voru ekki eingöngu tillögur forsætisráðherra, sem lagðar hafa verið fyrir þingflokk- ana. En á þessu stigi máls vil ég taka það fram, að viðleitni hæstvirts forsætisráðherra hinar síðustu vikur til þess að finna lausn til bráðabirgða er lofsverð. Og það er réttara að styðja þá viðleitni en reyna að gera hana tortryggilega í augum þjóðarinnar. Með einróma ályktun Alþingis 15. febr. 1972 með útfærslu í 50 sjómílur var ríkisstjórninni falið að halda áfram samkomulagstilraunum við ríkisstjórnir Bretlands og Þýzka- lands um þau vandamál, sem skapast vegna útfærslunnar. HORFT FRAM A VIÐ Hinn meginþáttur landhelgis- málsins horfir lengra fram á við. Hæstvirtur forsætisráðherra undirstrikaði í ræðu sinni f kvöld, að 50 mílna útfærslan hefði aðeins verið áfangi, en ekkert lokamark. Og á alþjóðavettvangi skipaði ísland sér í hóp þeirra þjóða, sem lengst vildu ganga i stækkun fiskveiðilandhelgi, og að Islendingar hefðu á undir- búningsfundum hafréttarráð- stefnunnar bæði flutt og stutt til- lögur um 200 mílna fiskveiði- mörk. Undir þessi orð hæstvirts forsætisráðherra tek ég og ætla ég, að ekki sé út af fyrir sig ágreiningur milli hans og Sjálfstæðisflokksins um þetta markmið. En hvernig er hyggilegast og hollast þjóðinni að standa að stækkun fiskveiðiland- helginnar út yfir 50 mflur? Þess er fyrst að geta, að stefna tslend- inga hefur verið landgrunnið allt með öllum þess fiskimiðum. Miðað við þá þróun, sem orðið hefur hin siðustu ár, væri nú eðli- legt að miðaytri mörk landgrunn- sins við a.m.k. 1000 metra dýpi eða við hagnýtingarmörk, þarsem þau ná lengra á haf út. Nú hafa mál þróazt þannig, að þau lönd, sem vilja víðáttumikla landhelgi og fylgja landgrunnsstefnunni, eins og við, telja yfirleitt sigur- vænlegast áð fylkja sér um 200 mflur. Liggja til þess einkum tvær ástæður. Lönd eins og Suður-Ameríkuríkin, sem þegar hafa tekið sér 200 mílur, hafa sum sáralítið landgrunn og því ekki sérstakan áhuga á þeirri viðmið- un. Önnur ríki, t.d. Kanada hafa landgrunn, sem nær miklu lengra út en 200 mflur og gera sér ekki vonir um að fá viðurkenningu á öllu sínu landgrunni. Þess vegna eru 200 mflurnar líklegastar til þess að sameina þessi ólíku Gunnar Thoroddsen sjónarmið, sem hafa það þó sam- eiginlegt að stefna að stórri land- helgi. 200 mflna landhelgi muni ná til þeirra fiskimiða, sem mestu skipta fyrir okkur og taka yfir landgrunnið og sums staðar ná lengra. Það samræmist því islenzkum hagsmunum að taka upp þá stefnu. HVERS VEGNA FVRIR ÁRSLOK 1974? En hvers vegna leggjum við sjálfstæðismenn til, að útfærslan í 200 sjómílur komi til fram- kvæmda fyrir árslok 1974? Við teljum það lífsnauðsyn fyrir íslenzku þjóðina vegna þess, að utan 50 mílna milli 50 og 200 eru dýrmæt fiskimið f alvarlegri, yfir- vofandi hættu. Þar má nefna dæmi. Loðnan hefur verið þjóðinni mikil búbót hin síðustu ár. Mikinn hluta ársins heldur hún sig fyrir utan 50 mflur, milli 70 og 150 mflna og um hávetur oft rétt utan við 50 mílur. Ef erlend fiskiskip hæfu loðnuveiðar að ráði, er þarna mikil hætta á ferðum. Síldin hefur nú í nokkur ár verið friðuð. Menn vonast til þess, að hún nái sér aftur upp og hér geti hafizt sildveiðar að nýju. Þá er brýn þörf, að landhelgin verði komin út i 200 mflur. Kolmunni kemur hingað oft í miklu magni og yfirleitt á milli 50 og 150 mílna og hafa erlendir togarar, einkum rússneskir, oft verið við þær veiðar með mikinn flota. Mikil grálúðumið eru fyrir norðan, vestan og austan land. Fyrir nokkrum árum var þar upp- gripaafli. Erlendir togarar komu hópum saman, og aflinn dróst stórlega saman vegna ofveiði. Ég nefni þessi fjögur dæmi. Fjöl- mörg önnur geta fiskifræðingar nefnt um mikilvæg mið vegna 50- 200 mflna. Heimurinn hefur horft upp á allt of mikið af rányrkju. Við sjálf höfum orðið vitni að eyðingu fiskstofna. Það er ábyrgðarhluti að halda að sér höndum. Við verðum, bæði sjálfra okkar vegna og annarra jarðarbúa, að gera allt, sem í okkar valdi stendur til þess að taka undir yfirráð okkar og verndarvæng öll þessi fiskimið og það sem fyrst. Þessi eru aðalrök okkar fyrir því að bíða ekki lengur en til næsta árs með út- færsluna. Til viðbótar koma ónnur rök, bæði stjórnmálaieg 3g lagaleg. Það er nú þegar orðin viðurkennd regla i þjóðarrétti, að strandri'ki eigi allar auðlindir i hafs- botninum á landgrunm sínu, svo sem olíu, málma og fleira. Skyldu þá ekki strandríki, sem byggja tilveru sína á fiskveiðum og hafa engin auðæfi fundið f hafs- botninum með sama rétti eiga auðæfin yfir honum? Þetta sjónarmið hefur allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna viðurkennt með ályktun sinni í des. s.l. Eftir undirbúningsfundi hafréttarráð- stefnunnai liggur það einnig fyrir, svo að ekki er vefengt, að meiri hluti þjóða heims er orðinn fylgjandi 200 mflna efnahags- eða auðlindalögsögu, sem inniheldur m.a. f sér fiskveiðilandhelgi. Hins vegar getur hafréttaráðstefnan tekið 2 eða 3 ár eða lengri tíma, og enginn veit, hvort þeir 2/3 hlutar atkvæða, sem þarf til þess að sam- þykktin verði að alþjóðalögum fást eða hvenær. Auk þess þarf staðfestingu margra ríkja á eftir. Þegar allt þetta kemur saman sýnist okkur sjálfstæðismönnum ekki ástæða til þess að biða, held- ur talsverður ábyrgðarhluti og áhætta að bíða ÖIlu lengur en við höfum lagt til. STEFNA LUÐVIKS Eftir að Sjáífstæðisflokkurinn birti stefnu sína í þessu máli, kom það í ljós, að einstaka maður var á öðru máli. Sumir vildu bíða og bíða Og það undarlega gerðist, að sjávarútvegsráðherra, Lúðvík Jósepsson, tók til máls. Jú, hann sagðist vera fylgjandi 200 mflunum, en bara ekki núna og bara ekki á næstunni, heldur ein- hvern tíma seinna. Hæstvirtur ráðherra hefur barizt að kappi miklu fyrir 50 mflunum og ein- blínir á þær. Trúin á 50 mílurnar byrgir sýn fram á veginn. Þess vegna sagði hann á ársafmæli út- færslunnar orðrétt á þessa leið: „Hitt er allt annað mál, hvort við Islendingar tökum okkar 200 mílna landhelgi einhvern tima í framtíðinni, þegar slíkt er heimilt samkvæmt breyttum alþjóða- lögum eða að aflokinni hafréttar- ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna." Þetta eru mjög alvarlegar yfir- lýsingar. Alvarlegar vegna þess, að Lúðvík Jósepsson virðist ekki vilja færa út í 200 mílur á næstunni. Slik afstaða er hættu- leg af þeim ástæðum, sem ég hef áður minnzt á. En þessi orð Lúð- víks eru einnig háskaleg vegna þess, að hann lýsir því yfir, að það sé brot á alþjóðalögum að færa út í 200 mílur. Ég hef áður skorað opinberlega á Lúðvík Jósepsson að taka aftur þessi orð sfn eða a.m.k. skýra þau nánar. Það hefur hann ekki gert. Það liggur þvf fyrir, að svo sjóndapur er Lúðvfk Jósepsson á hagsmuni fslenzku þjóðarinnar, að hann sér ekki út fyrir 50 mflna línuna. Hann vill ekki útfærslu f 200 mílur fyrr en kannski einhvern tíma f fram- tíðinni, og að hann keyfir sér það tilræði við hagsmuni þjóðarinn- ar að segja ólöglegar aðgerðir, sem við verðum að ráðast f á næst- unni. Lúðvfk Jósepsson sagði hér í ræðu sinni áðan, a það væru yfir- boðstillögur, sem sjálfstæðismenn væru að flytja. I rauninni stangast það nú á við ummæli forsætisráðherra sem ég rakti hér áðan. I sumar gerðist það, að 50 menn birtu áskorun á Alþingi og ríkisstjórn um stuðning við 200 mílur. Þetta voru þjóðkunnir menn, skipherrar, skipstjórar, aflamenn. Þeir f á nú þær kveðjur hjá sjávarútvegsráðherra, að hér sé um yfirboð að ræða hjá þeim, sem vilja sem fyrst 200 miiur. Hæstvirtur sjávarútvegsráð- herra er mikill kappsmaður og sést oft ekki fyrir. En afstaða hans gagnvart 200 rnilunum bend- ir til þess, að hann skorti yfirsýn. Og því er ekki að neita, að skortur á yfirsýn einkennir störf og stefnu ríkisstjórnarinnar í allt of mörgum málum, og þá ekki sízt í efnahagsmálunumÞar er þenslan gífurleg, jafnvægið allt úr skorðum, vettlingatök á flestum sviðum. LAUNAFÓLKI TIL ATHUGUNAR Þar sem einn ráðherra drap hér áðan á kjarasamninga, sem nú standa fyrir dyrum, þá vil ég nefna 3. atriði launafólki til athugunar og umhugsunar. 1) Stjórnin hét þvf í málefna- samningi sínum að veita opin- berum starfsmönnum verkfalls- rétt og því afnema kjaradóm. Nú er það ljóst, að stjórnin hugsar sér ekki að semja við opinbera starfs- menn, heldur ætlar að afhenda launamál þeirra kjaradómi og setur nú allt sitt traust á hann. 2) Verkalýðssamtökin hafa gert öllu meiri kröfur og hærri en áður oftast nær, eðarúmlega 40% kauphækkunarkröfur hjá þeim lægst launuðu. Benda þessar kröfur til þess, að launafólk leggi trúnað á fullyrðingar ríkis- stjórnarinnar um hina miklu aukningu kaupmáttar, sem sffellt er harmað á og haldið fram, hvað sem því líður, að fólkið veit það sjálft, hversu kaupið dugar í þessari sivaxandi dýrtíð. 3) Það er önnur aðalkrafa laun- þegasamtakanna, að stórfelld breyting verði gerð á þeim skatta- lögum, sem vinstri stjórnin setti, og sem þjaka launamenn mjög. Þessi þrjú atriði tala vissulega sinu máli. Tíma mínum er lokið. Ég þakka þeim, er hlýddu. — Góða nótt.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.