Morgunblaðið - 20.10.1973, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 1973
15
Dean játar á
sig samsæri
Washington, 19. okt. AP.
John W. Dean III, fyrrver-
andi ráðunautur Nixons for-
seta, játaði f dag á sig aðild að
samsæri um að hefta rannsókn
Watergatemálsins.
Dean kvað sig fúsan til sam-
vinnu í rannsókn þeirri á
Watergatemálinu, sem lögmað-
urinn Archibald Cox stjórnar. I
staðinn lofaði Cox að höfðaekki
fleiri ákærur gegn honum
nema um meinsæri ef fram-
burður hans reyndist falskur.
Dean á yfir höfði sér fimm
ára fangelsi og 5.000 dollara
sekt. John J. Sirica alríkisdóm-
ari frestaði dómsuppkvaðningu
þar til fram hafa farið fleiri
Watergate-réttarhöld þar sem
Dean kann að verða leiddur
sem vitni.
Með játningunni í dag er lok-
ið sex mánaða samningum
Deans og sækjenda f
Watergate-málinu. Dean krafð-
ist þess, að hann slyppi við
málssókn vegna friðhelgi allt
þar til hann samþykkti að játa á
sig eina einustu ákæru um sam-
særi.
I yfirheyrslum Watergate-
nefndarinnar í júní bar Dean
meðal annars, að hann hefði
reynt að takmarka rannsókn
innbrotsins f Watergate, að
Nixon forseti vissi um yfirhylm-
Framhald á bls. 18.
Gíslunum bjargað úr
bankanum í Beirút
Beirút, 19. október. AP.
Öryggisverðir ruddust með
skotvopnum inn í byggingu
Amerfkubankans f Beirút í dag,
Jafntefli Glig-
oric-Lombardy
Manila, 19. október. AP.
Svetozar Gligoric frá
Júgóslavfu og séra William
Lombardy frá Bandarfkjunum
gerðu jafntefli í 19 leikjum á
alþjóðlega skákmótinu á
Filippseyjum í dag.
Verðlaunin á þessu fyrsta al-
þjóðaskákmóti Filippseyinga eru
10.000 dollarar, og tefldar eru sjö
umferðir.
Bent Larsen frá Danmörku á
eftir að tefla við Florine Gheorgiu
frá Rúmeníu, Miguel Najdorf frá
Argentínu teflir við Eugene
Torre frá Filippseyjum, og
Ljubomir Lkubojevic frá Júgó-
slavíu teflir við Juan Miguel
Quinteros frá Argentínu.
Fylgi Heaths eykst aftur
London, 19. október. AP.
Vinsældir thaldsflokks Edward
Heaths forsætisráðherra hafa
Erlendir í Noregi
ÓSLÓ — Um 61.500 útlendingar
eru nú búsettir í Noregi, og þar af
hafa 21.000 atvinnuleyfi.
aukizt verulega eftir þing flokks-
ins og sfðan styrjöld Araba og
tsraela hófst, samkvæmt skoðana-
könnun, sem var birt f dag.
Verkamannaflokkurinn nýtur
enn meira fylgis, en forysta hans
hefur minnkað um helgina. Vin-
sældir Ihaldsflokksins hafa
aukizt á kostnað Frjálslynda
flokksins, sem komst fram úr
thaldsflokknum í októberbyrjun,
en er nú aftur í þriðja sæti.
Staða flokkanna er nú þessi,
samkvæmt skoðanakönnun ORC:
Verkamannaflokkur, 39% (34).
Ihaldsflokkur, 36% (31).
Frjálslyndir, 23 (32).
Aðrir, 2 (3).
drápu tvo skæruliða og björguðu
39 gfslum, sem 10 milljón dollara
var krafizt fyrir f lausnargjald.
Bandarfskur gfsl féll f skot-
bardaga.
Þrjátiu og tveir gislanna voru
líbanskir bankastarfsmenn, tveir
voru japanskir kaupsýslumenn og
fjórir af ókunnu þjóðerni. Banda-
ríkjamaðurinn var John Craw-
ford Maxwell, starfsmaður
Douglas-flugvélaverksmiðjanna í
Kaliforníu, áður búsettur í Winni-
peg í Kanada.
Upphaflega taldi lögreglan, að
gislarnir væru 66, en seinna
breytti hún tölunni i 34 og loks í
39. Lögreglan lamdi blaðamenn
með byssuskeftum og meinaði
þeim að telja gíslana, þegar þeir
komu út úr byggingunni.
Sex kröftugar sprengingar
skóku bygginguna, þegar lögregl-
an réðst til atlögu með táragas-
sprengjum og vélbyssum. Skæru-
liðarnir, sem voru fimm að tölu
svöruðu skotárásinni og köstuðu
sprengjum út á götuna.
Arásin var gerð, þegar við-
ræður stjórnvalda og skæruiiða
höfðu farið út um þúfur. Þremur
stundum áður en árásin hófst
fleygðu skæruliðar miða út um
glugga á byggingunni og hótuðu
að drepa gisla á fimm mínútna
fresti, ef kröfum þeirra yrði ekki
fullnægt.
Helztu kröfur skæruliða voru,
að allir palestínskir skæruliðar,
sem eru í haldi í Líbanon, yrðu
látnir lausir, að greitt yrði 10
milljón dollara lausnargjald til
styrktar stríði Araba gegn tsrael
og að flugvél flygi með þá til Alsír
eða Suður-Jemen
Sautján starfsmönnum bankans
tókst að flýja undan skæru-
liðunum með þvi að komast út á
þak nálægrar byggingar. Einn
skæruliðanna særðist og var
handtekinn meðan á umsátri lög-
reglunnar stóð. Einn lögreglu-
maður beið bana, og fimm banka-
menn, þrir lögreglumenn og
fimm vegfarendur særðust i um-
sátrinu.
White
sakbitinn
Sydney, 19. október. AP.
Astralski rithöfundurinn
Patrick White finnur senni-
lega til sektartilfinningar
vegna þess, að hann hefur hlot-
ið bókmenntaverðlaun Nóbels.
Hann sagði i viðtali fyrr á
þessu áru: „Ef ég fengi ein-
hvern tímann Nóbelsverðlaun-
in mundi ég finna til sektartil-
finningar. Mér finnst, að þrir
eða fjórir rithöfundar, sem
hafa ekki fengið þau, ættu að
fá þau.
Joyce fékk þau aldrei og
heldur ekki Tolstoy eða
Lawrence. Mér finnst þeir
betri rithöfundar en ég, og ef
ég fengi verðlaunin mundi ég
finna til sektartilfinningar."
Enginn veit um tilfinningar
Whites nú, þar sem dyrnar að
heimili hans í Sydney eru
harðlæstar. White er hlédræg-
ur og talar sjaldan við blaða-
menn.
Olafur Jóhannesson: ,
„SKYNSAMLEG HOFSmLING”
YIÐ GERÐ K JARASAMNINGA
t ræðu sinni á Alþingi f fyrra-
kvöld gerði Ólafur Jóhannes-
son forsætisráðherra, grein fyr-
ir horfum f efnahagsmálum á
þessu ári og sagði m.a.:
Þessu næst ætla ég að víkja
að horfum ársins í ár. Áætlað er
að þjóðarframleiðslan aukist á
árinu nálægt 4%. Vegna þess
að verðhækkun útflutnings,
sem nú er áætluð 45% að
meðaltali I fslensk-
um krónum reiknað, er
miklu meiri en jafnvel
hin óvenju mikla hækkun inn-
flutningsverðlags, sem er áætl-
uð 22%, verður aukníng þjóðar-
tekna meiri en aukning þjóðar-
framleiðslu, eða yfir 6%. I
sjávarútvegi er þó búist við
áframhaldandi minnkun þorsk-
aflans, sem þó er að verulegu
leyti bætt upp af mikilli afla-
aukningu á loðnuvertið. Vegna
ört hækkandi útflutningsverð-
lags batnar þó hagur sjávarút-
vegsins í heild verulega frá
fyrra ári, þrátt fyrir miklar
kostnaðarhækkanir. Almennt
er búist við nokkru hægari
vexti framleiðslu í flestum
greinum en á árinu 1972, þareð
framleiðsluöflin og þar með
möguleikamir til framleiðslu-
aukningar, eru nú fullnýttir. A
þetta ekki hvað sist við um
vinnuafl, en atvinnustig er nú
mjög hátt og ber raunar öll
merki umframeftirspurnar eft-
ir vinnuafli. Búast má við aukn-
ingu landbúnaðarframleiðslu
um nálægt 3% og aukningu
iðnaðarframleiðslu um 9 —
10%, aðallega vegna stækkunar
álverksmiðju og aukningar í
öðrum útflutningsiðnaði. Bygg-
ingastarfssemi mun einnig auk-
ast nokkuð og sömuleiðis mun
vera um framleiðsluaukningu
að ræða í öðrum greinum, svo
sem verslun og þjónustu.
4% kaupmáttaraukning 1973.
Tekjur launaþega á árinu
ráðast fyrst og fremst á hinni
almennu grunnkaupshækkun í
mars sl. og af hækkun verðlags-
bóta á Iaun eftir þeim reglum,
sem um þær hafa gilt á hverj-
um tíma. Nú er áætlað, að kaup-
taxtar launþega hækki um 23%
að meðaltali milli áranna 1972
og 1973 án áhrifa væntanlegra
kjarasamninga á kauptaxta árs-
ins í ár. Tekjur sjómanna munu
hækka nokkru meira vegna
hækkana fiskverðs, þrátt fyrir
rýrnandi afla á þorskveiðum. I
heild má gera ráð fyrir, að
brúttótekjur einstaklinga
hækki um 28% á þessu ári að
meðtalinni fólksfjölgun og ráð-
stöfunartekjum heimilanna um
27%. Miðað við síðustu spár um
verðlagsþróun felur þetta í sér
nálægt 4% kaupmáttaraukn-
ingu á árinu 1973 og má búast
við svipuðum vexti einka-
neyslu. Á árunum 1971,1972 og
1973 hefur kaupmáttur ráð-
stöfunartekna heimilanna i
heild aukist um 35%. Á sama
tima hefur raunveruleg aukn-
ing þjóðartekna numið um
27%. Hér er um stórstígar
framfarir að ræða. Þessi aukn-
ing kemur í kjölfar 15% aukn-
ingar kaupmáttar ráðstöfunar-
tekna árið 1970. Ekkert sam-
fellt fjögurra ára timabil síð-
asta aldarfjórðung hefur skilað
meiri allmennri aukningu
kaupmáttar.
Samneysla mun aukast
nokkru meira á árinu en einka-
neysla, eða um 6 — 7% að
magni, en af innlendri verð-
mætaráðstöfun mun aukningin
verða mest i fjármunamyndun,
þar sem búist er við nálægt
13% magnaukningu á árinu.
Gætir þar fyrst og fremst
óvenju mikils innflutnings
fiskiskipa, aðallega skuttogara,
en einnig er aukning í Ibúðar-
byggingum óvenju mikil, m.a.
vegna innflutnings húsa á veg-
um Viðlagasjóðs.
25% verðhækkun
Hin mikla hækkun útflutn-
ingsverðlags veldur því, að
þrátt fyrir miklar verðhækkan-
ir og mikinn eftirspurnarþrýst-
ing innanlands, er þess að
vænta, að heildargreiðslu-
jöfnuðurinn við útlönd
verði hagstæður um
yfir 1.500 milj. kr. á
árinu og gjaldeyrisstaðan batni
á árinu að sama skapi. I ágúst-
)ok var gjaldeyrisstaðan 7.093
millj. kr. og hafði þá batnað
frá áramótum um 1.280 millj.
kr.
Verðbólgan verður þannig
enn skýrar en áður helsta
vandamál efnahagsstefnunnar.
Verðhækkunum milli áranna
1972 og 1973 er áætluð 23% á
mælikvarða verðvisitölu
þjóðarframleiðslu, en 20% á
mælikvarða verðvísitölu al-
mennrar innlendrar verð-
mætaráðstöfunar. I þessari þró-
un veldur miklu óvenjumikil
verðhækkun innflutnings í er-
lendri mynt, sem nú er áætluð
um 10%. Við þetta bætast svo
áhrif gengisbreytinga. Ytri að-
stæður hafa þannig ýtt undir
verðhækkanir, bæði á innflutn-
ings- og á útflutningshlið. Hins
vegar er vafalaust, að verð- og
tekjumyndunarkerfið — þar
með vísitölukerfið — og þróun
eftirspurnar innanlands á hér
stóran hlut að máli.
Þótt horfur um afkomu
sjávarútvegs og greiðslujöfnuð
þjóðarbúsins séu allgóðar fyrir
næstu mánuði, getur hin öra
verðbólguþróun innanlands á
síðustu mánuðum, stefnt hvoru
tveggja í hættu, þegar fram I
sækir, greiðslujöfnuði og sam-
keppnisstöðu útflutnings og
annarra greina, sem mæta er-
lendri samkeppni. Þrálát verð-
bólguþróun hér á landi siðustu
35 árin sýnir glöggt, hve erfið-
lega hefur gengið að hafa í
senn hemil á verðbólgunni og
tryggja stöðuga framleiðslu og
atvinnu.
Andóf gegn verðbólgu
Árangursrikt andóf gegn
verðbólgu hlýtur að byggjast á
samstilltu átaki á sviði launa-
og verðlagsmála, fjármála ríkis-
ins og annarra opinberra aðila
og gengis-, peninga- og lána-
mála. Ríkisstjórnin mun eftir
þvi sem i hennar valdi stendur
stuðla að slíku samstilltu átaki.
Hinir almennu kjarasamning-
ar, sem standa fyrir dyrum í
haust, bæði milli ASl og vinnu-
veitenda og BSRB, BHM og
ríkisins, ráða miklu um það,
þvernig til tekst I þessurn efn-
um á árinu 1974.
Hin öra aukning kaupmáttar
tekna almennings siðastliðin
þrjú ár ætti að vera góð undir-
staða skynsamlegrar hófstill-
ingar við gerð hinna almennu
kjarasamninga, sem nú standa
fyrir dyrum. Afstaða ríkisvalds-
ins í kjarasamningum við
BSRB og BHM mun að sjálf-
sögðu einnig mótast af þessum
viðhorfum. Vonandi tekst einn-
ig að ná samkomulagi um
endurskoðun á núgildandi fyr-
irkomulagi vísitölubindingar
kaupgjalds, sem í senn tak-
markar svigrúm stjórnvalda til
hagstjórnar og veldur á margan
hátt óeðlilegri mismunun. Visi-
tölubindinguna má þó auðvitað
ekki skoða einangraða út af f yr-
ir sig, heldur sem hluta af að-
ferðinni við kaupgjaldsákvarð-
anir i heild.
Þegar vel er skoðað, er
ákvörðun launa eitt mikilvæg-
asta stjórntæki hagkerfisins.
Mikið er því i húfi, að vel sé á
þessu valdi haldið af handhöf-
um þess, samtökum verkalýðs
og vinnuveitenda.
Ríkisstjórnin mun á næst-
unni fyrir sitt leyti gera allt
það, er í hennar valdi stendur,
til að hamla gegn hættulegri
verðbólguþróun og stuðla að
varanlegra jafnvægi í þjóðar-
búskapnum. Það telur hún sitt
höfuð verkefni. Það má þvi vel
vera að fara verði eitthvað hæg-
ar í framkvæmdum á næsta ári
en þessu, bæði hjá hinu opin-
bera og af hálfu einkaaðila.
Slíks getur verið þörf til að
draga úr ofmikilli þenslu og
eins vegna ríkisf jármála.