Morgunblaðið - 20.10.1973, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 1973
fclk
í
fréttum
/i'*
* -t.
Þessi mynd er af brezka keppnisliðinu f Evrópukeppninni f reið-
mennsku, sem haldin var f Kænugarði fyrir stuttu. Önnur frá hægri á
myndinni er Anna prinsessa, en hún tapaði Evrópumeistaratitli sfnum
til Rússans Alexanders Evdokimov.
Jackie Stewart, heimsmeistari í
kappakstri, hefur lýst þvi yfir, að
hann muni ekki taka þátt í
kappakstri framar. Jackie er
skozkur og er 34 ára að aldri.
Astæðuna fyrir þessari ákvörðun
sinni hefur hann sagt vera þá, að
hann geti ekki hugsað sér að
halda áfram að taka þátt í íþrótt,
sem lagt hefur að velli marga
beztu vini hans.
Hann sagði meðal annars í við-
tali sl. sunnudag: „Frá og með
deginum í dag tek ég ekki þátt í
kappakstri. Ég er búinn að draga
mig í hlé, og sé ekki eftir að hafa
tekið þessa ákvörðun."
Akihito krónprins í Japan og
Michiko krónprinsessa komu til
Spánar sl. sunnudag. Þar tók
Franko þekkilega á móti þeim að
sveitarsetri sínu, E1 Pardo.
Liv Ullman, sem nú er ein vin-
sælasta „piparmey" í heimi, sagði
m.a. i blaðaviðtali nýlega:
„Daglega fæ ég fjöldann allan
af boðsbréfum, og ég er vön að
svara þeim öllum, hvort sem það
er neitandi eða játandi.. .
Ég verð að viðurkenna það, að
ég snobba fyrir gáfuðu fólki, og ef
maður, sem ég hef ástæðu til að
halda að sé gáfaður, býður mér út
með sér, þá tek ég boðinu með
þökkum."
Liv segir, að sá maður, sem hafi
vakið mestan áhuga hennar, sé
Henry Kissinger, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna.
„Ég hafði það á tilfinningunni,
að hann hefði lesið allar bækur,
séð allar kvikmyndir og leikrit og
hitt allt fólk. Það var nákvæmlega
sama hvað bar á góma, hann
kunni skil á því öllu. Til dæmis
töluðum við lengi um ritsmíðar
Sigrid Undset og hann kunni
heila kafla úr þeim utanbókar.
Auk þess að vera stórgáfaður,
hefur maðurinn einstaka per-
sónutöfra og „sex-appeal“.“
Liv ber Peter Finch, sem er
mótleikari hennar í kvikmynd
þeirri um Kristínu drottningu,
einstaklega vel söguna líka.
„Hann er frábær leikari. Oft
veit hann hvernig á að gera
hlutina áður en leikstjórinn hefur
gert sér grein fyrir því. Hann veit
Ifka hvernig við hinir leikaramir
eigum að haga okkur. Þetta gæti
verið óþolandi, en er það ekki,
þegar Peter Finch á í hlut,“ sagði
Liv.
Aðspurð sagði Liv Ullman, að
hún myndi gifta sig á stundinni,
ef hún fyndi mann, sem
sameinaði það að vera nógu vel
gefinn, og vilja giftast henni.
Hvað á fólk að gera þegar það
situr uppi með heila höll? Þegar
það er alvöru, gamaldags höll með
turnum, leynigöngum, þyrnigerði
og öllu tilheyrandi, og hefur þar
að auki verið í eigu ættarinnar í
mörg hundruð ár er ekkert
gamanmál að eiga að halda slík-
um húsakynnum við, nema rfki-
dæmið sé þeim mun meira.
Dunraven nokkur lávarður og
hefðarfrúin hans, en þau búa í
Adare Manor, sem er í bænum
Adare á Irlandi, hafa leyst vanda-
málið með þeim hætti, að þau
selja aðgang að höll sinni. Þau
hafa þar greiðasölu, svo að
gestirnir þurfa ekki að vera þurr-
brjósta á skoðunarferð sinni um
höllina oglandareignina.
Hjónin hafa sagt, að stundum
hafi verið freistandi að selja
höllina. Nýlega kom amerískur
milljónamæringur og bauð þeim
fimm milljónir dala fyrir góssið,
en þau stóðpst freistinguna, og
sögðu, að þau yrðu að hugsa um
orðstír og minningu forfeðranna.
Enda þótt Mogens Glistrup sé nú ekki eins mikið í fréttum og hann
var, er ljóst, að maðurinn og stefna hans hafa vakið talsverða athygli.
Við rákumst á þessa mynd, sem var tekin f einkasundlaug hans f
garðinum við villuna hans í Kaupmannahöfn, og gátum ekki stillt
okkur um að lofa lesendum að njóta lystisemdanna meðokkur. Sérstök
athygli er vakin á þvf, hvað maðurinn er lotlegur þrátt fyrir vel-
lystingarnar. Það er kannski engin furða, þar sem hann er maður
smásálarlegur og telur eftir sér að þurfa að greiða skatta, sem fara til
þarfa annarra.
súkkulaði og rjómatertu þá
skaltu ekki anza þvf.
Albert Einstein hafði greindar-
vfsitöluna 172, en lengi vel hafði
hann hæstu greindarvísitölu, sem
vitað var um. (Til samanburðar
má geta þess, að venjulegt fólk
hefur sjaldan hærri greindarvísi-
tölu en 100 stig). Nú hefur komið
í ljós, að ung amerísk kona,
Carolina Varga Dinica er með
greindarvísitöluna 186. Hún er32
ára, og er magister f þjóðfélags-
fræði við Columbiu-háskóla, auk
þess sem hún stundar magadans í
næturklúbbi einum. Það er ekki
gott að vita hverju Einstein hefði
tekið upp á hefði hann verið
kvenmaður.
Handtóku fimmtón manns
aAinil - Grunur unt að ólögleg
wlllU Ulv III ófengissala hefði ótt sér stað
Fimmtán manns voru hand- þarna hafi veriö -»vi
teknir af Kdpavogslögregiunni I sa*»
gærdag.
BfGtíÓHD
HÆTTA A NÆSTA LEITI
Eftir John Saunders og Alan McWilliams
FROM THE LOOKS
OFHIS WHEELS,X
DON'T THINK
HE'S GONNA / fj
RIP OFF OUR
LUNCH
MONEy/
Halló, komið hingað. Hver er þetta, Lee
Roy? Hann er allavega ekki nemandi hér;
þessi frakki, sem hann er f, er dýr vara. (2
mynd) Ef dæma skal eftir bflnum hans,
þá ætlar hann ekki að ræna okkur. Hann
hefur ekki þörf fyrir vasapeningana okk-
ar. (3 mynd) Þau bitu á Goldie, þau eru á
leiðinni hingað. Dragðu lfnuna hægt inn
góði, við skulum ekki trufla hina fiskana f
hylnum.