Morgunblaðið - 20.10.1973, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 1973
Reykjavíkurmótið í körfuknattleik:
Fastir liðir að
eða setur Valur strik í reikninginn?
Vinni tR-ingar Valsmenn f
Reykjavfkurmótinu f körfuknatt-
leik f Laugardalshöllinni annað
kvöld mun leikur KR og ÍR verða
hreinn úrslitaleikur f mótinu —
eins og venjulega. ÍR-ingar hafa
leikið mun betur f mótinu en við
var búizt, þvf mikil mannaskipti
hafa átt sér stað hjá liðinu frá
sfðasta keppnistfmabili. Kristinn
Jörundsson fyrirliði ÍR og nú
einnig þjálfari hefur náð góðum
árangri með sfna menn til þessa,
og lR-ingar eru sigurstranglegri
en Valsmenn. ÍR-liðið er þó enga-
n veginn öruggt með sigur, Vals-
menn eru f mikilli sókn og hverju
liði stórhættulegir.
Leikur Vals og ÍR hefst
klukkan 20.15 á sunnudaginn, en
að þeim leik loknum leika
Ármenningar við stúdenta.
Hvorugt liðið hefur unnið leik til
þessa í mótinu, Armenningar
tapaði báðum og ÍS sínum þrem-
ur. Hvorugt liðið sættir sig við
botnsætið, og leikurinn ætti þvf
að geta orðið jafn og skemmti-
legur baráttuleikur.
Staðan f Reykjavfkurmótinu f
körfuknattleik er nú þessi.
Kristinn Jörundsson er bæði fyr-
irliði og þjálfari ÍR-liðsins —
tekst honum að koma liði sfnu f
úrslitin á móti KR?
KR 3 3 0 209:191 6 stig.
IR 2 2 0 160:136 4 stig
Valur 2 1 1 145:133 2 stig.
Armann 2 0 2 128:148 0 stig.
is 3 0 3 206:240 0 stig.
Þrír
kvennaleikir
Reykjavíkurmótið I hand-
knattleik heldur áfram í dag, og
fara þá meðai annars fram þrír
leikir í meistaraflokki kvenna,
Víkingur leikur við Ármann,
KR gegn Fram og Valur á móti
IR. Fyrstu kvennalsikurinn
hefst klukkan 19.30, en
klukkan 15.30 hef jast leikir í 1.
flokki og að þeim loknum 4
leikir í 2. flokki karla.
FH — Grótta
í Reykjanesmóti
Níu leikir fara fram í Reykja-
nesmótinu í handknattleik á
morgun og má þar nefna viður-
eiga FH og Gróttu í meistara-
flokki karla. FH-ingar eru
vitanlega sigurstranglegri, en
liðinu hefur þó ekki gengið sér-
lega vel með Seltirningana.
Reykjanesmótið hefst klukkan
13.30 á sunnudaginn með
leikjum í 2. flokki karla, ÍBK —
Stjarnan og Haukar—Aftur-
elding. Þá leika FH — Breiða-
blik og Haukar — Grótta I 1.
flokki og loks eru fjórir
meistaraflokksleikir; IBK —
Haukar, Breiðholt — Stjaman,
Afturelding — Víðir og FH —
Grótta.
Fyrsta
badmintonmótið
Fyrsta opna mótið í badmin-
ton á vetrinum fer fram í
Laugardalshöllinni 28. október
nk. Keppt verður í einliðaleik
karla, þeir sem tapa leikjum
sínum í 1, umferð halda áfram
í aukaflokki, einnig verður
keppt í einliðaleik kvenna.
Þátttökutilkynningar þurfa að
berast til Hængs Þorsteinsson-
ar fyrir næsta fimmtudag í
síma 35770.
Landsliðið í badminton æfir
nú af fullum krafti fyrir NM og
vegna landsliðsæfingar falla
almennir tímar i Álftamýra-
skólanum niður eftir hádegi f
dag.
Landsleikur við Fær-
eyinga í friðaríþróttinni
Íslendingar leika landsleik við
Færeyjar í borðtennis á sunnu-
daginn, og hefst keppnin 1
Laugardalshöllinni klukkan
14.00. Á mánudagskvöldið fer svo
fram opið mót með þátttöku fær-
eyzku landsliðsmannanna. island
og Færeyjar léku borðtennis-
landsleik í Þórshöfn síðastliðið
vor, og sigruðu þá Islendingarnir
með nokkrum yfirburðum. Nú í
haust hefur unglingalandsliðs-
þjálfari Dana í friðaríþróttinni
þjálfað Færeyingana og hafa þeir
án efa tekið framförum. Lið Fær-
eyja er nú skipað yngri mönnum
en síðast, er þjóðirnar kepptu.
Ekki hefur verið ákveðið, hverjir
leika fyrir tslendinga á sunnu-
daginn, þeir sem taka þátt í
Norðurlandamótinu í næsta
mánuði verða örugglega i með
svo fimm aðrir, en keppt verður
með 10 manna Iandslið.
venju
Stighæstir:
Birgir Guðbjörnsson KR
Kolbeinn Pálsson KR
Þórir Magnússon Val
Albert Guðmundsson ÍS
Kristinn Jörundsson ÍR
Bjami Gunnar ÍS
Vftaskot (8 skot eðafleiri)
Bjarni Gunnar IS 22:16 =
Steinn Sveinss. IS 10:6 =
Birgir Guðbjörnss. KR
60,0%
Albert Guðmundss. IS
58,3%
Vftaskot á lið:
IR
IS
Ármann
KR
66.
56.
55.
53.
49.
47.
72,7%.
60,0%
10:6 =
12:7 =
Valur
36:20 =
68:35 =
28:12 =
40:17 =
36:15 = 41,7%
55,5%
51,5%
42,8%
42,5%
Enn setur
A
Asgeir met
Á kastmóti Ármanns á fimmtu-
daginn setti Asgeir Þór Eirfks-
son, ÍR nýtt piltamet f kúluvarpi,
varpaði 16.38. Er þetta 15. pilta-
met Ásgeirs á árinu. A sama móti
kastaði Hreinn Hlldórsson kúl-
unni 18 metra slétta.
Agúst ögmundsson er nú að nýju kominn f landsliðshópinn og heldur f
dag með liðinu f erfiða keppnisferð til Frakklands og italfu. Meðfylgj-
andi mynd er tekin af Agústi f leik f Reykjavfkurmótinu á dögunum.
Ágúst í landsliðið
— Leikið í HM við Frakka á morgun í Frakklandi
Valsmaðurinn Ágúst Ögmunds-
son kemur inn á sem 15. maður f
landsliðshópinn, sem ieikur við
Frakka í Heimsmeistarakeppn-
inni f handknattleik á morgun.
Leikurinn fer fram í Frakklandi
og er afar mikilvægur fyrir
fslenzka liðið. tsland þarf heízt að
vinna leikinn og má alls ekki tapa
með miklum mun til að komast f
úrslitakeppni HM f A-Þýzkalandi.
Frakkar léku við Itali á mið-
Víkingur og ÍS leika um fyrsta
Reykjavíkurmeistaratitilinn í blaki
Fyrsta Reykjavíkurmótið í
blaki hefst í Réttarholtsskólanum
i dag, klukkan 15.30. Aðeins tvö
lið í Reykjavík hafa blak á stefnu-
skrá sinni, ÍS og Víkingur, og
verður leikur liðanna í dag því
hreinn úrslitaleikur. Lið stúdenta
varð I fyrra í öðru sæti íslands-
mótsins í blaki, en kjaminn i liði
Víkings eru leikmenn, sem léku
með liði Hvatar í fyrravetur og
hlutu islandsmeistaratitilinn. Því
má segja, að tvö beztu blaklið
landsins taki þátt í fyrsta Reykja-
víkurmótinu og ætti áhorfendum
því að gefast kostur á að sjá
skemmtilega keppni í þessari ört
vaxandi íþróttagrein. Leikurinn
getur staðið í allt að tvær klukku-
stundir, en honum getur líka
lokið á um hálfri klukkustund, ef
annað liðið hefur yfirburði. Það
lið, sem fyrr sigrar þrjár hrinur,
vinnur leikinn.
Meðfylgjandi mynd er tekin f
heimsmeistarakeppninni f blaki
1970 f leik Tékka og A-Þjóð-
verja. Blak er ein alvinsælasta
fþróttareinin f heiminum og
iðkendaf jöldi meiri en f nokkurri
annarri iþróttagrein.
vikudaginn og unnu með 20
marka mun, 25:5. Er Island lék
við Italíu síðastliðinn sunnudag,
varð 17 marka munur, 26:9, fyrir
ísland. Hafa Frakkarnir því
þriggja marka forskot á ísland.
Frakkar hafa lokið útileik sínum
við Itali, en Islendingar leika úti-
leikinn á þriðjudaginn.
Eins og áður sagði kemur Ágúst
ögmundsson inn í landsliðs-
hópinn, en að öðru leyti er liðið
eins skipað og í leiknum við
Italíu. Eftirtaldir leikmenn fara i
ferðina til Frakklands og Ítalíu:
Guðjón Erlendsson, FVam,
Gunnar Einarsson Haukum,
Sigurgeir Sigurðsson Víkingi,
Gunnsteinn Skúlason Val, Jón
Karlsson Val, Ólafur H. Jónsson
Val, Agúst ögmundsson Val, Jón
Hjaltalín Magnússon Víkingi,
Einar Magnússon Víkingi, Viggó
Sigurðsson Víkingi, Axel Axels-
son Fram, Björgvin Björgvins-
son Fram, Viðar Símonarson FH,
Auðunn Öskarsson FH, og Hörður
Sigmarsson Haukum.
Övíst er, hvort Björgvin
Björgvinsson getur leikið á móti
Frökkunum, en hann er þó óðum
að ná sér af meiðslum þeim, sem
hann hlaut í leik Fram og Ár-
manns f Reykjavíkurmótinu. Þá
hafa þeir Axel, Einar, Gunnsteinn
og Auðunn átt við lítilsháttar
meiðsli að stríða, en munu þó allir
leika. i leiknum á móti Frökkum
á morgun nær Viðar Sfmonarson
sfnum 50. landsleik og leiki
Björgvin báða leikina í ferðinni
nær hann sömuleiðis 50 leikjum.
Hlaupið
á Miklatúni
Þriðja Miklatúnshlaup
Armanns á haustinu fer fram f
dag og hefst klukkan 16.00.
Keppendur eru beðnir um að
mæta tfmanlega til skráningar.