Morgunblaðið - 27.10.1973, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1973
(RAUOARARSTIG 3J
BILALEIGA
CAR RENTAL
T2 21190 21188
til 14444 •25555
I BlLALEIGA CAR RENTAL
/Sbílaleigan
V^IEYSIR
CAR RENTAL
«“24460
í HVERJUM BÍL
PIONŒIER
ÚTVARPOG STEREO
KASETTUTÆKI
SKODA EYÐIR MINNA.
Shodb
LE/GAI9
AUÐBREKKU 44-46.
SIMI 42600.
FEROABILAR HF.
Bllaleíga. ■ Simi 81260.
Fimm manna Citroen G.S. stat-
ion Fimm manna Citroen G.S.
8—22 manna Mercedes Benz
hópferðabílar (m bílstjórum)
Bílaleiga
Car Rental
41660 - 42902
STAKSTEINAR
Vaka vinnur á
Kosningar til nefndar
þeirrar, sem sjá á um 1. desem-
ber hátíðahöld stúdenta hafa
vakið mikla athygli. Vinstri
menn sigruðu með naumum
meirihluta, en listi Vöku,
félags lýðræðissinnaðra stú-
denta hlaut 48,5% atkvæða.
Urðu vinstri menn felmtri
slegnir yfir þessum úrslitum,
þvf sfðast er þeir áttu f kosn-
ingum um þetta sama efni —
Brottför hersins — þá hlaut
Vaka aðeins milli 20—30%
atkvæða.
Vaka hefur þvf unnið geysi-
lega á undanfarin tvö ár, þau
ár, sem þjóðin hefur búið við
vinstri stjórn. Auk þess er
vitað, að Vöku hefur ætfð
gengið ver, þegar kosið er á
stuttum framboðsfundi eins og
nú, en kjörfundur stóð aðeins í
einn og hálfan tíma. Vinstri-
meirihlutinn hafnaði kröfu
Vöku um, að kjörfundur stæði
allan daginn, svo sem flestum
gæfist kostur á að greiða at-
kvæði. Fóru þeir kænlega að
ráði sfnu, því að almennt er
talið vfst, að vaka hefði sigr-
að f kosningunum, ef kjörfund-
ur hefði staðið heiian dag.
Það er fróðlegt að fylgjast
með kosningasögu stúdenta
þau rúmu tvö ár, sem vinstri
stjórn hefur þraukað f landinu.
Fyrir tveimur árum hlaut Vaka
33% atkvæða. I fyrra hlaut
Vaka 46% atkvæða og
nú hlaut félagið 48,5%
atkvæða. Það er því
einsýnt, hvert stefnir. og eru
vinstri stúdentar þvf að vonum
orðnir mjög skelkaðir. Er eftir-
farandi klausa úr Þjóðvilj-
anum gott dæmi um það: „En
þrátt fyrir sigur vinstri manna
verða þeir að taka sig á í starfa.
Hinn litli atkvæðamunur sýnir
að Vökupiltar eru leiknir
smalar og fylgnir sér og eina
svar vinstri manna við þeim er
öflug skipulagning og starf.“
En ekki er þó vinstri stjórn-
inni einni að þakka, hversu lýð
ræðissinnum vex ásmegin.
Stúdentaráðsmeirihlutinn hef-
ur verið með eindæmum slapp-
ur í starfi og þvf hallast æ fleiri
stúdentar að Vöku. Enda sést á
hinum tilvitnuðu orðum úr
Þjóðviljanum, að lögð er
áherzla á að hvetja vinstri
menn til að hrista af sér slenið
og láta eitthvað að sér
kveða Og það er sannarlega
ekki að ástæðulausu, að
slík krafa kemur fram. Með-
an Vaka hafði meirihluta
í stúdentaráði var Félags-
stofnun stúdenta komið á fót.
Þá voru námslán aukin stór-
kostlega, svo að þau gerðu
mörgum kleift að sinna námi,
sem annars hefðu orðið frá að
hverfa. Ahrif stúdenta á stjórn
Háskólans jukust að miklum
mun og stúdentar stóðu fyrir
blómlegu starfi, fundahöldum
o.fl. Nú er öldin önnur. I tfð
vinstri manna hafa námslán
staðið í stað og reyndar lækkað
hlutfallslega. Ahrif stúdenta á
stjórn Háskólans hafa minnkað
að mun, eftir þvf sem þeim
hefur fjölgað f skólanum.
Stúdentaráð hefur stórskaðað
álit almennings á stúdentum
með þvf að senda í tfma og
ótfma frá sér vanhugsaðar og
álfalegar ályktanir, sem ekki
hafa borið vitni um hátt menn-
ingarstig. Öll önnur starfsemi
er í slfkum öldudal, að
mönnum er tekið að ofbjóða.
Skemmst er að minnast, að
Stúdentafélag Háskólans, sem
Vöku menn ráða varð að grípa
til sinna ráða til að fyrra
stúdenta frekari skömm. Hélt
félagið mjög glæsilegan borg-
arafund að Hótel Sögu, sem var
þrisvar sinnum fjölsóttari en
allir þeir smákommafundir til
samans, sem fundanefnd
Stúdentaráðs hefur boðað til.
Það er því engum blöðum um
að fletta, að bjart ætti að vera
framundan hjá Iýðræðissinn-
um, enda er öllum að verða
Ijóst, að þeir verða að hrinda af
sér ófögnuðinum og tryggja
Vöku hreinan meirihluta í
stúdentaráði. Enda bendir nú
flest til þess, að það gerist f
næstu stúdentaráðskosningum.
EINS og allir vita og
Björn Téhá manna bezt, þá er
myndlistin göfugust lysta fyrir
utan elektróníuna og jass-
ballettinn. Enda blómstra nú
myndir uppum alla veggi og
skúlptúrar (menningarlegt
orð) útumöllgólf. —
Gamlar konur utanaf svokall-
aðri landsbyggð taka sig upp og
sýna stórfeingleg lystaverk
aungvusíðuren Súmerar og
aðrir malbikarar. Sjónlausir
öldungar hella sér útí mynd-
fðnina á grafarbakkanum. Og
maður má þakka fyrir, meðan
Ragnheiður Brynjólfsdóttir og
það fólk þrifur sér ekki
pentskúf og meitil í hönd og
tekur til við myndlystina vía
miðla og aðra mörlanda. — Að
sjálfsögðu mundi Heiða af
tæknilegum ástæðum ekki
mála umkverfið, einsog það var
á hennar tið, heldur einsog það
er á okkar tímum. En það er
semsagt bara af tæknilegum
ástæðum.
En svo við höldum okkur við
lifendur, þá eru þau tíðindi
nýjust af lystamönnum, að
Alfráður Jógi hefur opnað
sýningu á verkum sínum og
boðið af því tilebbni frétta-
mönnum og gagnrýnendum og
öðrum menníngarvitum uppá
snarl undir einu stórvirki sínu,
sem ber hið tilkomumikla heiti
Teingdamanna eða búrtfkin í
gapastokknum.
Það er sko mysteríum, sagði
Jógi við oss menníngarvita, að
einginn hefur hugmynd um,
hvort teingdamamma er
bútíkin eða búrtfkin teingda-
mamma. Hins vegar er lystin i
eðli sinu mysteríum og magí og
maggý. Eða bara vorsjestersósa
bætti lystamaðurinn við og
þreif í vinstra frambrettið á
músinni sinni og strauk það
vingjarnlega.
— Það er öllum sönnum
lystamönnum Ijóst, hélt hann
áfram, að til þess að að bera
skyn á maggý þurfa menn að
hafa hesthúsað það vænan
skammt af alkóhóli, að mynd-
sýnin skerpist nægilega
tilþessað menn ajái íþað-
minnsta tvöfalt. — A
hinnbóginn er ég, einsog danir
vita, svo risavaxinn andi, hvar
sem á er litið, að einginn hefur
áður kviknað slíkur hér norður
við Dumbshaf. Og þarf ekki að
orðlengja það: Þetta er láng-
bezta sýning, sem opnuð hefur
verið til þessa dags og ...
David Cassidy
leysir frá
skjóðunni...
DAVID CASSIDY skrapp í
stutta ferð til Bretlands á
dögunum til að sýna sig í sjón-
varpi, rétt til að hressa upp á
plötusöluna (enda er nýjasta
platan hans komin í topp 10 í
Bretlandi).
Hundruðum saman reyndu
örvæntingarfullir aðdáendur
hans þar í landi með öllum
tiltækum ráðum að hafa
upp á dvalarstað hans,
en án árangurs. Blaðamað-
ur Melody Maker
komst þó að því fyrir klíkuskap,
hvar goðið væri að finna og dró
fram blokk og biýant og hélt af
stað. Kom hann aftur að vörmu
spori með svar Cassidys við
ýmsum spurningum, m.a.:
UM sögusagnir um að I)avid
hefði náð sér í vinstúlku í
Bretlandi:
„Ég er með tvær stúlkur með
mér í þessari ferð, en þær
sungu báðar með mér á nýju
stóru plötunni minni og þær
eru báðar giftar öðrum. Ég er
ekki að fara að gifta mig, nema
eitthvað eigi eftir að koma mér
hræðilega á óvart! Ég á ekki
einu sinni fasta kærustu.
Ég fór bara út úr bíl með
annarri þeirra í gær og nú
skilst mér, að við séum gift!
Maðurinn hennar var eins hissa
og ég — hann sendi mér
hamingjuóskakost í gærkvöldi!
UM Osmonds og Jackson
Five:
„Þetta eru hljómsveitir með
fimm eða sex strákum, og þær
spila góða tónlist. Ég held, að
það séu blöðin og plötufyrir-
tækin, sem reyna stöðugt að
binda okkur saman. Mér finnst
ég ekki vera tengdur þeim á
neinn hátt. Ég hef aðeins hitt
einn eða tvo af Jackson Five, en
ég hitti Osmonds eitt kvöldið í
upptökustúdíói. Plötufyrir-
tækin okkar líta kannski svo á,
að við séum að keppa, en ég lft
svo á, að ég eigi alls ekki í
neinni samkeppni við þá.“
UM tekjurnar:
„Ég hef ekki hugmynd um,
hvað ég græði. Það er misjafnt.
Ef ég kem fram á hundrað
hljómleikum, fæ ég auðvitað
miklu meira en ef ég kem ekki
fram á neinum. Ef milljón plöt-
ur með mér seljast, þá
auðvitað.... Þetta fer eftir
því, sem er að gerast hverju
sinni.“
UM úrsögn hans úr
Partridge-sjónvarpsþættinum
(Söngelska f jölskyldan):
„Ég á eftir tíu vikna upp-
tökur til viðbótar, og svo er ég
hættur að eilífu. Og það eru
engar áætlanir um, að ég komi
fram sem gestur í sjónvarps-
þáttunum, eftir að ég er
hættur. Ég held, að það sé gott,
að ég er að hætta — það er
orðið dálítið úrelt fyrir mig að
vera þar, það er allt og sumt.“
Hvernig koma þeir því inn í
söguþráðinn, að hann hætti?
„Ætli ég fari bara ekki í há-
skóla. Annaðhvort það eða þeir
grípa mig, hundinn og strætis-
vagninn og hrinda okkur fram
af klettum."