Morgunblaðið - 20.11.1973, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ — ÞRIÐJUDAGUR 20. NOVEMBER 1973
7
forum
worldfeatures
EftirGrafme Allan.
OFT er sagt að við höfum
gleymt upphaflegum til-
gangi júlahalds, að kaup-
mennska og sjálfsdekur
hafi varpað cugga á þá
staðreynd, • okkur er
ætlað að mmnast eins
merkasta atburðar
mannkynssögunnar —
fæðingar Krists.
Þetta er að sjálfsögðu
ekki fjarri sanni. En
annat- sannleikur, sem
sjalö i ber á góma, er sú
staðr. ynd, að skýring
Biblíunnar á jólunum
sjálfum byggist aðallega
á goð- og helgisögnum.
Goðsagnir jólanna
Jesú Kristur VAR til.
Jafnvel þeir vantrúuð-
ustu geta ekki gert lítið
úr þýðingu lífs hans og
dauða. En sagnfræðingar
og guðfræðingar hafa á
liðnum árum sannað, að
fæðing hans var ekki
eins og Bihlían lýsir
henni.
Því má ekki gleyma, að það
voru ekki sjónarvottar, sem
skráðu guðspjöllin, heldur voru
þau skráð heilli öld síðar af
mönnum, sem söfnuðu arf-
gengnum munnmælasögum.
Kennimenn fyrr og nú, sem allt
hafa gert til að bera sögur Bibl-
íunnar saman við staðreyndir,
hafa komizt að þeirri niður-
stöðu, að ekki sé unnt að stað-
hæfa hvaða ár Jesú fæddist, að
fæðingardagurinn hafi alls
ekki verið 25. desember, að
hann gæti hafafæðzt í fjárhúsi,
þótt ósannað sé, og að þar hafi
verið um eðlilega mannlega
fæðingu að ræða.
Þeir, sem þekktu Jesú, vissu
að hann átti fjóra yngri bræður
og tvær systur. Ekki er minnzt
einu orði á meyjarfæðingu í
elzta hluta Nýja testamentis-
ins — bréfum Páls, sem
skráður var meðan enn voru á
lífi menn, er höfðu þekkt Jesú
persónulega.
Sagan um meyjarfæðinguna
kemur frá Mattheusi og Lúkasi,
sem voru að koma á framfæri
helgisögnum, er ekki komust á
kreik fyrr en að Jesú látnum.
Sagnfræðingar telja að Matt-
heus hafi misskilið spádóm
Isaiah, því upphafleg merking
hebrezka orðins mey var ógift
kona.
Dýrkun Maríu hófst löngu
seinna. A kirkjuþinginu árið
431 var hún útnefnd Guðs-
móðir, og á kirkjuþinginu 649
ævarandi mey. Þá var því
einnig lýst yfir, að bræður og
systur Jesú hafi verið úr fyrra
hjónabandi Jósefs og því upp-
eldisbörn Maríu.
Sérfræðingar í dag telja lík-
legast, að Jesú hafi fæðzt annað
hvort árið 4 eða 7 fyrir Krist.
Mattheus segir, að það hafi
verið á dögum Heródesar kon-
ungs — og hann lézt árið 4 f.K.
Lúkas getur þess, að hann hafi
fæðzt á tímum manntalsins,
þegar Cyrenius var landsstjóri f
Sýrlandi, en það var á árunum
7 og 6 f.K.
Lúkas segir einnig, að Jósef
hafi þurft að fara frá Nazaret
til Betlehem vegna manntals-
ins, en það hefði þýtt 10 daga
ferð á asna eða úlfalda á síð-
ustu dögum meðgöngutíma
Mariu.
Samkvæmt helgisögnunum
er skúti nokkur við Betlehem
fæðingarstaðurinn, en prestur,
sem lézt árið 420. sagði, að þar
hafi áður verið altari Adonis.
Er talið, að Kristnir menn hafi
helgað sér það á fyrstu árum
Kristninnar.
I öðrum guðspjöllum er talað
um Jesú „frá Nazaret", en
Betlehem hvergi getið, svo
sennilegt er, að hann sé fæddur
f Nazaret.
Hugsanlegt er, að Jesú hafi
fæðzt í jötu, þvf á þeim tímum
voru gististaðir aðeins afgirt
svæði fyrir húsdýr með aðskild-
um skýlum fyrir ferðamennina.
Dagsetningin 25. desember
var ákveðin í Róm fljótlega
eftir árið 300, en fyrir þann
tima töldu helgisagnir, að Jesú
hefði fæðzt ýmist 28. marz, 19.
apríl eða 29. maí. Sagnfræðing-
ar benda á, að sennilegra sé, að
það hafi verið að vori, því fjár-
hirðar hafi verið úti á engjum,
en skepnu1- h"r; jftast verið
hýstar í desr’ ,oer.
Stjarnfræðingar, sem hafa
kannað frásögnina um
stjörnuna miklu í austri, segja
að sennilega sé átt við það fyrir-
bæri, þegar reikistjörnurnar
Júpíter og Saturnus bar saman
frá jörðu að sjá unt nokkurt
skeið frá febrúarmánuði árið 7
f.K.
Af þessum og mörgum fleir <
niðurstöðum vísindamanna
virðist aðeins eitt vfst í sam-
bandi við jólasöguna — það að
Jesú var til. Og sú vissa er
kristnum mönnum sannarlega
næg.
NAUTAKJÖT — SVÍNAKJÖT — FOLALDAKJÖT Látið ekki hnífinn standa í nautinu. ég útbeina eftir óskum ykkar Kem á staðinn Uppl. í síma 371 26 BROTAMÁLMAR Kaupi allan brotamálm langhæsta verði Staðgreiðsla Nóatún 2 7, stmi 25891.
HAFNARFJARÐARAPÓTEK Opið öll kvöld til kl 7. nema laugard. til kl. 2. Helgidaga frá kl. 2—4. MOSKVICH '72 til sölu í góðu standi. selst með 3ja ára skuldabréfi Upplýsingar i sima 31 09 og 31 97, Eyrabakka.
KONA ÓSKAST á litið heimili Má hafa 1 —2 börn. Húsnæði og fæði Gæti verið sem aukavinna Hjón koma einnig til greina. Tilb sendist afgr Mbl fyrir mánaðamót merkt „5049" ÚRVALS SÚRMATUR Súrsaðir lundabaggar, hrútspung- ar, sviðasulta, svinasulta Úrvais- hákarl, sild og reyktur rauðmagi. Harðfiskur, bringukollar Kjötmiðstöðin, Laugalæk 2, sími 35020
FIAT 128 til sölu Benz 220 árgerð 1970, Cortina árgerð 1970, Citroen D S special 1971, Toyota Crown 1971 Bíla og fasteignaþjónusta Suðurnesja, sími 92-1 535 heima 2341. KEFLAVÍK — SUÐURNES skemmtileg 5 herb 1 32 fm íbúð til sölu Einnig 2ja og 3ja herb íbúðir. Bíla og fasteignaþjónusta Suður- nesja, sími 92-1535 heima 2341.
Hafnarflrðl - Til sdlu
mjög góð 3ja herb. íbúð í nýlegu fjölbýlishúsi við
Álfaskeið. íbúðin er 96 fm. Afhending nú þegar. Gott
verð og greiðsluskilmálar.
Árni Grétar Finnsson, hrl.,
Strandgötu 25, Hafnarfirði, sími 51500,
heimasími 50115.
Ibúcf óskast
Óskum eftir að taka á leigu litla íbúð, sem fyrst.
Upplýsingar í síma 26866 milli kl. 9.00 og 1 7.00.
Kúpllngs-
diskar
í flestar gerðir
bifreiða
fyrirliggjandi
STORÐ H. f.
Ármúla 24.
Sími 81430.
&
DUNIsOP
Lyflaradekk
23x5 650x10
25x6 750x10
27x6 825x10
18x7 27x10-12
29x7 700x12
500x8 600x15
21x8-9 700x1 5
600x9 750x1 5
700x9 825x15
flUSTURBflKKI
fSÍMl: 38944