Morgunblaðið - 20.11.1973, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ — ÞRIÐJUDAGUR 20 NÖVEMBER 1973
21
Minning:
Guðmundur Pálsson
„Verið karlmannlegir, verið
styrkir, megi allt með yður vera
af kærleika gjört“. Svo segir Páll
postuli frá Tarsos í fyrra Korintu-
bréfi.
Guðmundur Pálsson lézt á heimili
sínu að morgni þess 11. nóvember
s.l. Guðmundur var fæddur þann
12. Janúar 1906 á Stokkseyri
sonur hjónanna Páls Pálssonar
og Guðrúnar Jónsdóttur. Hann
fluttist með foreldrum sínum i
Gerðahrepp á ungum aldri og átti
síðan um allmörg ár heima í
Keflavík, eða til ársins 1940, en
þá fluttist hann til Hafnarfjarðar
og ól aldur sinn þar síðan, og nú
síðast að Melabraut 7.
Árið 1927 kvæntist Guðmundur
Kristinu Þorvarðardóttur, Áma-
sonar frá Reykjavík, mestu ágætis
og myndarkonu, sem lifir mann
sinn. Þau eignuðust 6 börn, 2 dóu
í frumbernsku, en þau, sem upp
komust voru Ása dó 34 ára 1961,
Sunna, Selma og Heiðveig.
Barnabörnin eru nú 11 og þar
af ól Guðmundur og hans kona
upp 3 að öllu leyti. Guðmundur
var lengst af ævi sjómaður og alla
seinni heimsstyrjöldina var hann
togarasjómaður, lengst af á
togaranum Júní með hinum
kunna aflamanni Benedikt
Ögmundssyni. Guðmundur hætti
til sjós 1954, var um tíma síðan
verkstjóri hjá Aðalverktökum á
Keflavíkurflugvelli, en síðar og
til æviloka með eigin verktaka-
starfsemi.
Guðmundur Pálsson var hið
mesta glæsimenni, fullar3 álnir á
hæð, handtakagóður og eftir-
sóttur til allra starfa, enda var
það mál manna að bað rúm væri
ávallt/ivel skipað, sem Guðmund-
ur væri í. Segja má að það hafi
viss manngerð, sem skipaði ís-
lenzka sjómannastétt á fyrstu
tugum aldarinnar og allt sem
fram fram yfir miðbik hennar.
Þessir ármenn íslands, sem lagt
hafa kjölfestuna að velferðarþjóð-
félagi nútímans. Mennirnir, sem
samfélagið f dag er í mikilli
þakkarskuld við. Þegar ég nú á
skilnaðarstund minnist látins
föðurbróður, leita á hugann minn-
ingar frá liðnum dögum.
Minningar þessar eru varðaðar af
yl og hlýju, því fyrir innan harða
skel sló hjarta góðs manns, sem
ævinlega vartilbúinn til góðverka
og láta gott af sér leiða.
Á skilnaðarstundu votta ég og
fjölskylda mín eftirlifandi eigin-
konu, börnum og öðrum vanda-
mönnum dýpstu samúð og bið
hinum framliðna blessunar á
guðsvegum.
Páll Axelsson.
ÞEIM fækkar nú óðum frumherj-
um verkalýðshreyfingarinnar á
Suðurnesjum. Mönnunum, sem
fyrstir báru gæfu til að vekja
félaga sína og starfsbræður til
umhugsunar um sín hagsmuna-
mál og benda á leiðir, til þess að
vinna að þeim með félagslegum
samtökum.
Einn þessara manna var
Guðmundur Pálsson, Melabraut
7, Ilafnarfirði. En hann var eldri
Keflvíkingum vel kunnur. Hann
lézt af hjartaslagi sunnudags-
morguninn 11. þ.m. á 68.
aldursári.
Hann átti heima í Keflavík um
miðbik ævi sinnar. Fyrst í
foreldrahúsum, en síðar stofnaði
hann eigið heimili með eftir-
lifandi konu sinni, Kristínu Þor-
varðardóttur. Þau fluttu til
Ilafnarfjarðar 1940 og bjuggu þar
síðan.
Hér að framan hafa verið rakin
að nokkru æviatriði Guðmundar
og verður það ekki nánar gert
hér. Aðeins langar mig að
minnast og vekja athygli á einum
degi f lífi þessa horfna vinar, 28.
desember 1932, stofndegi Verka-
lýðs- og sjómannafélags Kefla-
víkur. Hér var Guðmundur ekki
aðeins stofnandi fundarins, hann
var sá, er setti fundinn og var
fyrsti málshefjandi fundarins. Og
fundarefnið var: A Verkalýðs-
félag Keflavfkur að halda áfram
eða ekki?
Hann var hér kominn ásamt
nokkrum félögum úr fyrsta
verkalýðsfélagi Keflavikur og
voru þeir staðráðnir f því að
treysta sín samtök til sóknar og
Framhald á bls. 23.
The New York Times
VIKUBLÖÐ - ENSK mánaðarrit: The Times Daily Telegraph The Guardian Die Welt Frankfurter Allgemeine
Trader Woman British Chess
Books & Bookmen Weekend Hojpemaker BT
Goodhousekeeping Brides Homes & Gardens Ekstrabladet
Encounter Hitchocks Mag. Television Berlingske Tidende
Golf Monlhly Mad Prediction
M.sical Express Playboy True Mag.
Weekly Daily Mirror Vogue True Story
Melody Maker Harpers Queen Stamp Magazine VIKUBLÖÐ m/flugi
Flight World Soccer Studio
Jackie World Sports Mayfair Sunday Telegraph
Petticoat Bucha.no Football She Sunday Times
Mirabelle Practical Motorist Air Enthusiast Sunday Observer
Valentine Trout & Salmon Womans Journal Sunday People
Fabulous Ideal Home Woman & Home Sinday Express
Woman's Realm Films & Filming Practical Electronics Sunday Mirror
Autocar Photoplay Practical Woodworker News of the World
Disc Gramophone True Romances New Stateaman
Sounds Yachting World Yoga & Health Time
Goal Wireless World Qui Newsweek
Motor Air Pictorical House & Garden L’Express
Amateur Photo Bridge Der Spiegel
DÖNSK
ÞÝZK
Famille Journal Anders And Co. Burda Freizeit-Revue
Hjemmet Romanbladet Bunte lllustrierte Neue Mode
Alt for Damerne ' Ugeromanen Neue Revue Capital
Femina Fart og Tempo Möbel und Bau-Schreiner Das Haus
Sendags B. T. Mad og Gæster Mein Schöner Garten Rátzel-Zeilung
Billedbladet Det Man Læser Auto. Motor. Sport Bravo
Se og Hör Ugens Rapport Freizeit Revue Romanhefte
Ude og Hjemme Bo Bedre Quick Felix
Dansk Familieblad Slern Interavia
Hendes Verden Foto og Smalfilm 7 Tage Eltern
Det Bedste Populær Mekanik Brigitte Zuhause
Fúr Sie Pop
ÚTVEGUM ÖLL FÁANLEG ERLEND
BLÖÐ OG TÍMARIT
Praline
.iasmin
Freundin
BÓKAVERZLUN SIGFÚSAR EYMUNDSSONAR
Austurstræti 18 Reykjavík símar 18880, 13135
VESTFROST frystikisturnar eru bún-
ar hinum viðurkenndu Danfoss frysti-
kerfum.
Hverri VESTFROST frystikistu fylgja
1—2 geymslukörfur. Aukakörfur fá-
anlegar á mjög hagstæðu verði.
VESTFROST frystikisturnar eru allar
búnar sérstöku hraðfrystihólfi og
einnig má læsa kistunum.
VESTFROST verksmiðjurnar í Es-
bjerg eru stærstu útflytjendur í Dan-
mörku á f/ystitækjum til heimilisnota,
VESTFROST ER
DÖNSK
GÆÐAVARA
vC'i 1 Laugavegi 178 Sími 38000
litrar 195 265 385 460 560
breidd cm 72 92 126 156 186
dýpt cm íán handfangsi 65 65 65 65 65
haeð cm 85 85 85 85 85
Frystiafköst pr. sólarhring kg 18 23 27 39 42
195 Itr. kr. 29.707 — 265 - - 33.591 — 385 - - 36.931 — 460 - - 44.290 — 560 - - 52.640 —