Morgunblaðið - 01.12.1973, Síða 5

Morgunblaðið - 01.12.1973, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1973 5 r Kirkjudagur Arbæjarsafnaðar Sunnudaginn 2. desember (1. sunnudag í aðventu) verður kirkjudagur Árbæjarsafnaðar haldinn í samkomusal Arbæjar- skóla. Þetta er í þriðja sinn, sem slikur hátíðisdagur er haldinn í söfnuðinum, helgaður safnaðar- starfinu og til fjáröflunar fyrir byggingu safnaðarins. Þótti fara vel á þvi að halda kirkjudaginn á nýársdegi kirkjuársins. Mikill fjöldi fólks hefur sótt dagskrár- liði fyrri kirkjudaga og hafa þeir að flestra dómi tekizt vel. Von okkar er sú, að svo verði enn á sunnudaginn kemur, að sá dagur verði söfnuðinum til sóma og slarfi hans til styrktar. Allur ágóði af fjáröflun þessa dags rennur beint f byggingarsjóð safnaðarins eins og áður. Fyrsta skóflustungan að krikju- og safnaðarheimili í Árbæ var tekin 26. ágúst i sumar og eru fram- kvæmdir hafnar. í fyrsta áfanga er fyrirhugað að steypa upp jarð- hæð og plötu undir aðalskipið og fullgera til notkunar næsta haust. Hér er um kostnaðarsaman áfanga að ræða, er útheimtir sam- stillt átak allra, eigi áætlanir að standast. Þvi heiti ég á safnaðar- fólk aðfjölmenna i Árbæjarskóla á sunnudaginn og styðja fjár- öflunarstarfið. Þökkuð er vinna og fjárgjafir, bænir og góðar óskir allra vina kirkjunnar til þessa dags. Guð blessi byggingarstarf Arbæjarsafnaðai- og gefi því vöxtinn. Dagskrá kirkjudagsins verður í aðalatriðum sem hér segir: Kl. 10.30 verður barnasamkoma í Árbæjarskóla og guðsþjónusta fyrir alla fjölskylduna kl. 2. Eftir messu hefst kaffisala kvenfélags- ins, verða veitingar til reiðu fyrir Árbæinga og aðra Reykvíkinga Ifeflhafliékáð Magnús E. Baldvlnsson Laugavcgt 12 - Slml 22804 BÚIÐ VELOGÓDÝRT í KAUPMANNAHÖFN Mikið lækkuð vetrargjöld. Hotel Viking býður yður ný- tízku herbergi meðaðgangi að baði og herbergi með baði. Símaríollum her- bergjum, fyrsta flokks veit- ingasalur, bar og sjónvarp. 2. min frá Amalienborg. 5 min. til Kongens Nytorg og Striksins. HOTEL VIKING Bredgade 65, 1260 Kobenhavn K Tlf. (01) 12 45 50, Telex 19590. Sendum bækling og verð. fram eftir degi og einnig á kvöld- samkomunni. Jafnframt verður efnt til skyndihappdrættis með mörgum góðum vinningum og til sölu verða jólakort og ljósaperur á vegum bræðrafélagsins. Kl. 8.30 síðdegis hefst svo hátfðasamkoma í skólanum. Þar flytur Birgir Isleifur Gunnarsson borgarstjóri ræðu, Friðbjörn G. Jónsson syngur einsöng og haldinn verður tízkusýning á veg- um Karonsamtakanna, auk fleiri dagskrárliða. Árbæingar og aðrir Reyk- víkingar. Verið öll velkomin í Árbæjarskóla á sunnudaginn. Njótum þess, sem þar verður framreitt bæði fyrir líkama og sál, og eigum hclga hátíðarstund saman. _ . Guðmundur Þorsteinsson. KIRKJUDAGUR í BÚSTAÐASÓKN Á MEÐAN heimili Bústaða- safnaðar var í Réttarholtsskólan- um, var kirkjudagurinn ætið á vorin. Þá var notað hið stóra og þægilega eldhús skólans og lagt á borð fyrir stóra hópa í salarkynn- um skólans. Vai' sú aðstaða mikils virði og þakksamlega þegin og metin. Franihald á bls. 20. Skaftfellingar Spilakvöldið, sem átti að verða 1. des. á Hótel Esju er frestað vegna verkfalls þjóna, en verður laugardaginn 8. des. í Félagsheimilinu, Seltjarnarnesi. Skaftfellingafélagið. SK RIFSTO FUHÚSNÆÐI ÓSKAST Opinber stofnun óskar eftir að taka 2 — 3 herbergi á leigu frá 1. janúar n.k helst i miðbænum. Tilboð merkt: „skrifstofuhúsnæði 1272" sendist. af- greiðslu blaðsins fyrir 5. des. n.k. ÍBÚÐ TIL LEIGU Grettisgötu 46, efstu hæð til hægri. Stærð 4 herbergi, eldhús og bað Til sýnis laugardag kl. 2—4 og sunnu- dag 1—2. Tilboð á afgreiðslu Morgunblaðsins skulu leggjast inn merkt: „íbúð — 4716" fyrir þriðjudags- kvöld n.k. íbúðin ertilb. til að flytja inn í hana. Basar KFUK verður í dag kl. 4 að Amtmannstíg 2b. Þar eru margir góðir handunnir munir, hentugir til jólagjafa svo og heimabakaðar kökur. Allmenn samkoma kl. 20,30. Fjölbreytt dagskrá. Séra Lárus Halldórsson flytur hugleiðingu. Gjöfum til starfsins veitt móttaka. Allir velkomnir. Stjórnin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.