Morgunblaðið - 11.01.1974, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 1974
3
tslenzki dansflokkurinn og stjórnendur hans. Loksins hefur ballett-
uppbvggingin verið tekin föstum tökum.
ISLENZKI dansflokkurinn er
nú i fullum gangi, en mennta-
málaráðuneytið hefur ákveðið,
að standa straum af kostnaði
við rekstur og starf flokksins.
Stjórnandi ballettsins er
Alan Carter, ballettmeistari er
Julia Claire og framkvæmda-
stjóri er Ingibjörg Björnsdóttir.
Á blaðamannafundi í gær
með þjóðleikhússtjóra, Sveini
Einarssyni, og stjórnendum
dansflokksins, kom það fram,
að mikill hugur er í dansfólk-
inu og margt á döfinni.
Starf dansflokksins byggist á
þvi, að byggja upp ákveðinn,
mjög góðan, íslenzkan dans-
flokk, en dansflokkurinn starf-
ar mikið til sjálfstætt þótt hann
sé í nánum tengslum við Þjóð-
leikhúsið.
Danskennsla og þjálfun er á
hverjum degi frá kl. 2 —11 með
matarhléi, en miðað er við 10
manna dansflokk í byrjun. Geta
má þess, að 100 nemendur eru í
dansskóla Þjóðleikhússins, sem
kemur væntanlega til með að
heita Skóli íslenzka dansflokks-
ins. I skólanum er meðal ann-
ars kennd undirstaðan fyrir
samningu dansa.
Þá hefur dansflokkurinn
ákveðið að safna styrktar-
meðlimum og mun undir-
skriftasöfnun hefjast innan
tíðar.
Dansflokkurinn mun fram-
vegis hafa sýningar í æfingar-
sal sínum í Þjóðleikhúsinu og
kváðust forráðamenn hans von-
ast til þess, að fólk kæmi á
sýningar, því það væri mikils
virði fyrir dansarana að fá
tækifæri til að dansa oft fyrir
áhorfendur um leið og það væri
skemmtilegt fyrir áhorfendur
að kynnast hinu erfiða og
stranga námi, sem ballettdans
væri. Fyrstu sýningar verða 14.
jan., 21. jan., 24. jan. og 28. jan.
Æfingarsalurinn rúmar 50
manns, en verkefnin eru
Sköpunin og Jónas í hvalnum.
Sýningar hefjast kl. 21, en
aðgöngumiðar eru seldir í miða-
sölu Þjóðleikhússins og við inn-
ganginn á austurhlið hússins.
I hverjum mánuði verða sýn-
ingar með nýjum verkefnum.
Fyrst verður byrjað á gömlum
ballettum, síðan nýrri verkum,
og væntanlega verður þess ekki
langt að biða, að íslenzkir
ballettar sjái dagsins ljós.
Islenzki dansflokkurinn
hefur talað við fræðslustjóra
Reykjavíkur um möguleika á að
dansa i skólum og einnig að
skólanemendur komi á sýn-
ingar í æfingasalnum og yrði
slíkt mjög til uppbyggingar.
inn eflist stöðugt
Einnig hefur flokkurinn hug á
að sýná í sjúkrahúsum. Þá
verður dansflokkurinn væntan-
lega með verkefni á Listahátíð-
inni í sumar og reynt verður að
ferðast um landið.
Síðasta ár tók sjónvarpið upp
þátt með dansflokknum, Sköp-
unina, og kvaðst Carter hafa
haft góða samvinnu við Jón
Þórarinsson dagskrárstjóra,
sem hann vonaðist til að héldi
áfram, því slíkt ætti bæði að
vera hagur dansflokksins og
sjónvarpsins.
Dansararnir í tslenzka dans-
flokknum eru: Auður Bjarna-
dóttir, Ásdís Magnúsdóttir,
Guðmunda Jóhannesdóttir,
Guðrún Pálsdóttir,.Helga Bern-
hard, Helga Eldon, Ingibjörg
Pálsdóttir og Kristín Björns-
döttir. Einnig er Áskell Másson
trymbill í dansflokknum og
mun hann leika fyrir dansi og
semja með flokknum.
Og það er ekki svo iftið, sem dansararnir þurfa að teygja úr sér á
œfíntninum. Askell trvmhvli slær taktinn.
Islenzki dansflokkur-
úisnin
^ulinn
Bergstaðastræti 4a Sími 14350
úisnm
X •
lll! IHllil i nllílll.
TOKUM FRAM NYJAR VORUR
Á ÚTSÖLUNNI í DAG
BUXUR FRA KR.950.-
JAKKAR FRÁ KR. 2.000.-
KULDAJAKKAR FRA KR. 3.000.-
LEÐURJAKKAR FRÁ KR. 5.000.-
ýjiiiLué;'
ENNFREMUR: PEYSUR, BLUSSUR, SKYRTUR, BOLIR
OG NOKKURPÖR AFSKÓM
- OPIÐ TIL KL.10 -
ATH.: UTSALAN STENDUR AÐEINS YFIRINOKKRA DAGA