Morgunblaðið - 01.02.1974, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.02.1974, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. FEBRUAR 1974 Loðnufrysting á Aust- fjörðum og í Eyjum FYRSTA loðnan, sem ætluð er til útflutnings, var fryst í fyrrinótt á Stöðvarfirði, Breiðdalsvík og Fá- skrúðsfirði, alls um 80 lestir. 1 gærmorgun hófst svo frysting í Vestmannaeyjum, en þá voru tek- in 40 tonn til frystingar hjá tsfé- laginu. Heimir SU-100 kom til Stöðvar- fjarðar í fyrradag með rösklega 400 lestir af loðnu, sem skipið hafði fengið við Ingólfshöfða. Loðnan, sem nú veiðist þar, hefur orðið meira en 10% hrognainni- hald, en við það er miðað, tilþess að hægt sé að taka loðnu í fryst- ingu. Landað var um 80 lestum úr Heimi i Stöðvarfirði og var loðnan tekin til frystingar í frysti- húsunum þar, á Breiðdalsvík og Fáskrúðsfirði. Eftir að búið var að landa úr Heimi á Stöðvarfirði fór skipið til Reyðarfjarðar, þar sem Iokið var við að landa aflan- um. 1 gærmorgun voru frystar 40 Iestir af loðnu hjá ísfélaginu í Vestmannaeyjum. Sú loðna kom úr Bergi, en báturinn fékk aflann við Ingólfshöfða eins og Heimir. Loðnan, sem bátarnir komu með, þótti mjög góð til frystingar og var úrgangur tiltölulega lltill. Endanlega gengið frá loðnusölu til Japans um helgina UM HELGINA munu Sölumið- stöð hraðfrystihúsanna og sjávar- afurðadeild S.Í.S. væntanlega ganga frá samningum á sölu af miklu magni af frystri loðnu til Japans. Sendinefndir japanskra fyrirtækja hafa verið hér undan- farna daga, og fulltrúar a.m.k. tveggja fyrirtækja eru væntan- legir hingað í dag. Eyjólfur isfeld Eyjólfsson, framkvæmdastjóri S.H., sagði í samtali við Morgunblaðið I gær- kvöldi, að S.H. myndi ganga frá samningum um helgina. Japönsku kaupendurnir hefðu dskað eftir að minnsta kosti 25 þús. lestum af fiystri loðnu, en S.H. hefði ekki enn treyst sér til að lofa því magni. Hann sagði, að ekki væri enn búið að ganga frá verði, en i því sambandi þyrftu menn ekki að vera mjög svartsýnir, og endan- legayrði gengið frá því nú. Ólafur Jónsson, aðstoðarfram- kvæmdastjóri sjávarafurða- deildar S.Í.S., sagði, að þeir væru búnir að ræða við einn japanskan Guðmundur stefnir að stór- meistaratitli aðila og aðeins ætti eftir að stað- festa samningana við hann. Þá væru í dag væntanlegir fulltrúar frá tveimur japönskum fyrirtækj- um til að ræða um kaup á frystri loðnu. Sagði hann, að endanleg;a yrði gengið frá verði um helgina og gert væri ráð fyrir, að frystihús Sambandsins gætu fryst allt að 8 þúsund lestir af loðnu I vetur. ----— Loðnan: Bræla og lítið að hafa Eftirtalin loðnuskip höfðu til- kynnt um afla síðan á miðnætti í fyrrakvöld til kl. 19.00 í gær- kvöldi: Jón Finnsson GK 300, Keflavíkingur KE 130 og Harpa RE 250. Samtals 680 lestir. Bræla var á miðunum, en einhverjir bátar höfðu þó verið að reyna að athafna sig, en ekki vitað um árangur. 3NAT0 Loðnan getur líka verið höfuðverkur Landað úr Jóhannesi Gunnari I Grindavíkurhöfn. LOÐNUBÁTARNIR mala nú gullið og streyma hlaðnir til hafna vfðs vegar á landinu dag- inn út og inn. Þeir eru farnir að koma til Grindavfkur og þar lágu nokkrir bátar í gærdag, með fullfermi, og biðu þess að landa. Fleiri voru á leiðinni. En loðnan er ekki bara „gló- andi gull“, fyrir suma er hún höfuðverkur. Sveinn Sigurjónsson er eig- andi og skipstjóri á Jóhannesi Gunnari frá Grindavík. Þetta er í fyrsta skipti, sem hann fer með bátinn á loðnu, og þeir voru að koma úr fyrsta túrnum. Höfuðverkur Sveins er, að Jó- hannes Gunnar er ekki nema 130 tonn og því er hann eigin- lega of lítill til loðnuveiða, en það er ekki um annað að velja. — Við getum komið svona 110 tonnum í hann í mesta lagi og það er of lítið, við erum auðvitað alls ekki samkeppnis- færir við stóru bátana. En það er annaðhvort að gera út á loðnu eða pakka saman, því það fæst enginn maður á aðrar veið- ar meðan á vertíðinni stendur. — Það er gifurleg fjárfesting í þessu. Það tók á fjórða mánuð að breyta honum fyrir loðnu- veiðarnar og beini kostnaður- inn er rúmar fimm milljónir. Það er ekki minna en það kost- ar á útbúa stóru bátana en hins vegar ermikillmunurá burðar- þoli svo við megum hafa okkur alla við til þess að þetta borgi sig. Ég held, að flestirþeir, sem eiga báta í þessum stærðar- flokki, hafi tekið þann kostinn að breyta þeim fyrir loðnu, því að við eigum einfaldlega ekki um annað að velja. — Hingað til hef ég eingöngu verið með bátinn á netum og trolli en sá nú framá, að ekki Sveinn Sigurjónsson skipstjóri. þýddi annað en bætast í loðnu- flotann. Við erum 10 um borð og erum nú bjartsýnir á að þetta gangi vel þvi við setjum ekkert fyrir okkur, fremur en aðrir, þótt við verðum að sækja stlft. Hins vegar má ekkert útaf bera hjá okkur, við höfum ekk- ert uppá að hlaupa. — Þessa loðnu fengum við 6—7 mflur austur af Ingólfs- höfða, bátarnir voru þá flestir á þeim slóðum en þessi ganga, sem við náðum I, var á vestur- leið. Kannski náum við henni aftur, við förum beint út þegar búið er að landa. — ðt. -herstöðvar á Jótlandi Bandarísk herstöð á yfirráðasvæði Dana í Grænlandi VARLA verður þess nú lengi að bíða, að Guðmundur Sigurjónsson skákmeistari hljóti stórmeistara- titil, en til þess þarf hann að ná stórmeistaraárangri í tveimur mótum, eða alls 25 skákum. Hann verður meðal þátttakenda á al- þjóðlega mótinu, sem er að hefjast í Reykjavík, en stór- meistaraárangur i því móti telst 10*/í vinningur. Guðmundur náði stórmeistaraárangri á móti árið 1970, en aðspurður taldi hann ekki líklegt, að það gilti í þessu sambandi þar sem hann hefði ekki verið orðinn alþjóðlegur meistari þá. Sem kunnugt er, hef- ur Guðmundur hug á því að gerast atvinnumaðurí skák. Peningagjáin í Kópavogi víkkuð VIÐ höfðum samband við Guð- mund Arason hjá Vegagerðinni I gær og spurðum við hvaða fram- kvæmdir væri verið að vinna við Kópavogslækinn. „Ætli það sé ekki vegna útvíkkunarinnar á peningagjánni," svaraði hann léttur I bragði, „það er verið að sprengja í gjánni I gegn um Kópa- vog og grjótið er flutt suður fyrir lækinn.“ EINS og Morgunblaðið hefur áður skýrt frá, hefur Þjóðviljinn komizt svo að orði I forystugrein, að tslendingar eigi ekki að ganga lengra I að uppfylla skuld- bindingar sínar við Atlantshafs- bandalagið „heldur en Danir og Norðmenn“ og verða þessi um- mæli ekki skilin á annan veg en þann, að Þjóðviljinn telji, að Is- lendingar eigi að uppfylla skuld- bindingar sfnar við Atlantshafs- bandalagið til jafns við þessar tvær bræðraþjóðir. Morgunblaðið skýrði frá því s.l. fimmtudag, með hverjum hætti Norðmenn uppfylltu skuld- bindingar sínar við Atlantshafs bandalagið, en blaðið gat þess jafnframt, að það hefði ekki handbærar jafn nákvæmar upplýsingar um samstarf Dana við bandalagið. En nú hefur blað- ið af lað sér þessara upplýsinga og er ástæða til að geta þeirra, svo að íslenzka þjóðin viti betur en áður, með hverjum hætti málgagn kommúnista hér á landi telur, að islendingar geti verið þekktir fyrir að uppfylla skuldbindingar sínar við Atlantshafsbandalagið. Kjarni málsins er sá, að á Jótlandi eru hvorki meira né minna en 3 NATO-herstöðvar, sem Danir reka I nánu samstarfi við aðrar aðildarþjóðir Atlants- hafsbandalagsins. Herstöðvar þessar eru I Karup og Tirstrup á Norður-Jótlandi og I Skrydstrup á Suður-Jótlandi. Eins og öllum er kunnugt, hafa Danir sinn eigin her eins og Norðmenn, og af þeim sökum geta þeir að mestu rekið þessar herstöðvar og séð um mannvirki þar. Danir hafa sér- þjálfaða tæknifræðinga, flug- menn og aðra þá starfsmenn, sem nauðsynlegt er að starfræki slíkar varnarstöðvar. Á þessum NATO- flugstöðvum I Danmörku eru jafnan orrustuflugvélar til taks, ef á þyrfti að halda, auk könnunarflugvéla og annarra þeirra hertækja, sem nauðsynleg eru á slíkri flugstöð, að dómi hernaðarsérfræðinga. Þessar flugstöðvar gegna því raunveru- lega mikilvægara hernaðarhlut- verki en til að mynda flugstöðin á Keflavíkurflugvelli, sem ávallt hefur verið rekin sem gæzlustöð, eins og kunnugt er, þar sem flug- vélar Atlantshafsbandalagsins hafa getað haft eftirlit með ferð- um rússneskra kafbáta, herskipa og flugvéla i varúðarskyni. Þó hefur á Keflavíkurflugvelli einn- igverið þó nokkuð „hreyfanleg" flugsveit til þess að inna af hendi þau störf, sem talið er að nauðsyn- leg séu, i upphafi átaka, en auð- vitað eru þessar orrustuflugvélar á Keflavíkurflugvelli einungisör- lftið brot af því, sem gengur og geriðst i herstöðvum Atlantshafs- bandalagsins bæði í Noregi og Danmörku og annars staðar I Evrópu. Ekki getur Morgunblaðið gefið upplýsingar um mannafla á fyrr- nefndum NATO-herstöðvum I Danmörku, því að það er nkis- leyndarmál Dana og hefur ekki verið gefið upp, svo að blaðinu sé kunnugt. Aftur á móti má geta þess, að oft og einatt eru sameiginlegar heræfingar Atlantshafsbandalagsríkja, sem hersveitir frá þessum herstöðvum taka þátt í, og yfirstjórn þessara þriggja herstöðva á Jótlandi er auðvitað í nánu sambandi við yfir- stjórn annarra herstöðva Atlants- hafsbandalagsins í Evrópu. Sam- starfið hefur jafnvel gengið svo langt, að v-þýzkir hershöfðingjar og v-þýzkir hermenn hafa verið þátttakendur I þeirri starfsemi, sem þar fer fram og voru þó Þjóð- verjar höfuðandstæðingar Dana í siðustu styrjöld, eins og kunnugt er, en Dönum þykir sjálfsagður hlutur, að úr því þeir hafa sam- starf við önnur Atlantshafsbanda- lagríki, þá eigi þeir ekki síður samstarf við þýzka hermenn en hermenn frá öðrum ríkjum bandalagsins. Atlantshafsbandalagið tekur því þátt i starfrækslu herstöðva í Danmörku og er það raunar leyndarmál í hve ríkum mæli bandalagið hefur veitt fjármagni til þessarar starfsemi og hve mikil aðild þess er að herstöðvum þessum. Tækniþjálfaðir sér- fræðingar eru danskir, en þess ber að geta, að þeir starfa innan danska hersins. Vitað er, að Danir hafa mestan áhuga á því, að radarstöðvarnar og önnur eftirlitsstörf, sem fram fara á vegum bandariska varnar- liðsins á íslandi, verði með svipuðum hætti og verið hefur, því að þeir telja, að nauðsynlegt sé fyrir Atlantshafsbandalagið að geta fylgzt með ferðum flugvéla, kafbáta og herskipa frá Sovét- ríkjunum á Norður Atlantshaf- inu. Leggja þeir þvi ríka áherzlu á, að tækniútbúnaður varnar- stöðvarinnar á íslandi sé mannað- ur með þeim hætti, að ekki sé ástæða til annars en treysta megi Framhald á bls. 22. Varið land Skrifstofan í Miðbæ við Háaleitisbraut, sími 36031, verður opin til kl. 10 á kvöldin fram yfir helgi. Forgöngumenn undirskrift- anna leggja áherzlu á, að fólk skili listum til þess að auðvelda taln- ingu. Skrifstofa var opnuð í Keflavik I gær. Er hún í Hafnargötu 46, sími 2021.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.