Morgunblaðið - 01.02.1974, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 01.02.1974, Blaðsíða 40
LESIÐ JRnpnUtti^ DflCIECn nUGLVSincnR ^L*~»22480 26. tbl. 61. árg. FÖSTUDAGUR 1. FEBRUAR 1974 Siglufjörður: Rúðubrot og járnfok / f/ • i iarviðri Siglufirði 31. janúar StÐASTLIÐNA nótt og fyrrihlut- 'ann f dag er búið að vera hér brjálað veður og talsvert tjón hef- ur orðið á eignum af völdum veð- urofsans. Þakplötur hafa fokið víða af húsum, gluggar brotnað í mörgum húsum og ljósaútbúnað- ur á götum fokið og skemmzt unn- vörpum. Mjög slæm færð er vegna hálku og bleytu um götur bæjarins, þvf þessu fylgdi mikið slyddu-og vatnsveður. Þess má geta, að flugvél frá Vængjum gat ekki lent hér í gær vegna dimmviðris, sem var und- anfari þessa veðurs. Sveimaði vél- in lengi hér yfir en gat ekki lent og fór hún því á Sauðárkrók. Far- þegar héðan, sem ætluðu að ná vélinni þar, urðu að ganga 300—400 m leið yfir ófæru á leið- inni, en þar biðu bílar. Skotfæri er beggja vegna við þennan kafla, sem er í Skriðunum. Farþegamir misstu þó af vélinni og dúsa á Sauðárkróki, svo og þeir farþeg- ar, sem hingað ætluðu. Þykir hálf hart, að þessi litli kafli á veginum teppi umferð þar sem ekki tæki meira en eínn til tvo tíma að ryðja hann. Mikið annríki er hjá rafmagns- mönnum og trésmiðum við að gera við skemmdir. Hluti af bæn- um varð rafmagnslaus um tíma þvi þakplata fauk á rafmagnslínu og sleit hana. — Steingrfmur Lfkan af Þjóðarbókhlöðunni. Neðst til hægri sést Melatorg en ofarlega á myndinni má sjá Hótel Sögu (ásamt fyrirhugaðri viðbótar- byggingu) en þar á milli eru bílastæði. Framkvæmdir við Þjóðarbókhlöðu eiga að hefjast seint á árinu STEFNT er að þvf seinni hluta þessa árs, að hafizt verði handa um byggingu Þjóðarbókhlöðunn- ar. Borgarráð samþykkti nýlega endaniega staðsetningu hússins samkvæmt tillöguteikningum, arkitektanna Manfreðs Vil- hjálmssonar og Þorvalds S. Þor- valdssonar. Mun bókhlaðan rísa á svæðinu milli Birkimels, Hring- brautar og Suðurgötu. Ráðgert er. Vatnsleiðslan og raf- strengurinn á leið til Eyja DANSKA kapalskipið, sem er á leið til Vestmannaeyja með viðbót við vatnsleiðsluna og rafstreng- inn, sem eyðilögðust í eldgosinu, er nú komið til Færeyja. Skipið lagði af stað 9. janúar, en hefur tafizt vegna óveðurs á hafi úti. Strax og skipið kemur tilEyja og þegar veður leyfir, verður lögð 1,6 km löng vatnsleiðsla til viðbdtar við nýju 7 tommu leiðsluna. Verða vatnsmálin þá komin I samt lag aftur, en rafstrengurinn verð- ur ekki lagður fyrr en í vor, nema eitthvað sérstakt komi tiL að byggingunni verði lokið síðla árs 1978 en byggingarkostnaður er 408 milljónir króna — sam- kvæmt áætlun f ársbyrjun 1973 og kostnaður við húsbúnað er áætlaður um 120 milljónir króna. Þjóðarbókhlaðan verður um margt óvenjuleg bygging, eins og nánar er greint frá á bls. 3. Helzta sérkenni hennar sem safns verð- ur þó svokallaður sjálfbeini — sjálfsafgreiðsla á bókum. Þessi lausn er upprunnin og nokkuð Varið land: 100% skrif- uðu undir Mikil þátttaka er norðanlands f undirskriftasöfnuninni Varið land og til dæmis skrifuðu allir nema tveir undir f Grfmsey og á Hauganesi f Eyjafirði skrifuðu 100% íbúanna undir áskorunina tilrfki sstjórnarinnar. algeng við ranhsóknabókasöfn í Bandaríkjunum en á sér fáar fyr- irmyndir f Evrópu. Þjóðarbók- hlaðan verður — eins og kemur fram hér á undan — fyrst og fremst rannsóknabókasafn og bókageymsla, enda er henni ætlað að hýsa bæði Landsbókasafnið núverandi og Háskólabókasafnið. Fyrirætlanir um byggingu Þj óðarbókhlöðunnar voru sam- þykktar á Alþingi hinn 30. apríl 1970 fyrir frumkvæði rikisstjórn- arinnar, og skyldi með því minnzt ellefu hundruð ára afmælis ís- landsbyggðar. Síðan hefur verið unnið að undirbuningi og voru arkitektarnir Manfreð Vilhjálms- son og Þorvaldur S. Þorvaldsson ráðnir til að teikna bygginguna. Hafa þeir fyrir allnokkru lokið við tillöguteikningar að Þjóðar- bókhlöðunni. Loðnubátar brjóta reglur loðnunefndar MORGUNBLAÐINU er kunnugt um, að minnsta kosti tveir bátar, Bergur frá Vestmannaeyjum og Vörður frá Grenivík, hafa brotið tilkynningarákvæði þau, sem loðnuskipum er sett, þegar þau faratil lands með loðnufarma. Blaðið hafði samband við starfs- 170 áhrifamenn í Framsóknarflokknum: Andvigir uppsögn vam- arsamningsins ÞRJÁTlU og tveir félagar f Framsóknarflokknum gengu sl. miðvikudag á fund Ölafs Jóhannessonar forsætisráðherra og formanns Framsóknarflokks- ins, og afhentu honum ályktun um utanrfkis- og varnarmál, sem undirrituð er af 170 framsóknar- mönnum úr öllum landsfjórðung- um. Eru I þessum hópi ýmsir for- ustu- og framámenn innan flokks- ins. 1 ávarpinu kemur fram, að þessir menn telja, að aðild Is- lands að Atlantshafsbandalaginu hafi reynzt landinu til góðs, að samvinna íslands og Banda- ríkjanna innan vébanda banda- lagsins hafi gegnt mikilvægu hlutverki á viðsjálum tfmum í alþjóðamálum og sfðan lýsa þess- ir stuðningsmenn Framsóknar- flokksins þvf yfir — að gefnu tilefni — að þeir vilji fara með fyllstu gát í mótun nýrrar stefnu f utanrfkismálum og lýsa sig jafn- framt andvfga uppsögn varnar- samningsins nú. Þessir 170 stuðningsmenn Framsóknarflokksins eru flestir úr Reykjavík, Reykjaneskjör- dæmi, Norðurlandskjördæmun- um báðum og af Vestfjörðum. Þegar það fréttist innan raða | Framsóknarflokksins að þessi undirskriftasöfnun væri hafin gerðu ýmsir úr forustuliði flokks- ins ítrekaðar tilraunir til að fá gefin upp nöfn undirskrifta- manna og í ýmsum þeim til- fellum, sem það tókst, var reynt með fortölum að fá þá menn til að draga undirskriftir sínar til baka. Er Morgunblaðinu kunnugt um, að það tókst í nokkrum tilfellum. í þeim hluta ávarpsins sem fjallar um utanríkis- og varnar- mál segir m.a.: „Undirritaðir stuðningsmenn Framsóknarflokksins vilja leggja á það ríka áherzlu, að utanríkis- mál eru ein örlagaríkustu mál hvers sjálfstæðs rikis. Fram- kvæmd þeirra og stefnumörkun á hverjum tíma þarf að mótast af víðsýni, varkárni, fyrirhyggju og raunsæu mati. Við teijum nauðsynlegt, að grundvallaratriði utanríkismála séu hafin yfir dægurbaráttu flokkslegra stjórnmálaátaka, og að um þau megi takast sem mest þjóðarsamstaða. Við teljúm, að aðild Islands að Atlantshafsbandalaginu hafi reynzt íslandi til góðs, á sama hátt og fjölmörgum öðrum bandalags- ríkjum, og hafi bandalagið átt mjög rikan þátt í því að tryggja frið í Evrópu á áhrifasvæði þess og verið skjöldur þess andlega frelsis og efnahagslegu framfara, sern ríkt hafa í Vestur-Evrópu. Við teljum enn fremur, að sam- vinna tslands við Bandaríkin um öryggismál innan vébanda banda- lagsins hafi þjónað mikilvægu hlutverki á viðsjálum timum í al- þjóðamálum og stuðlað í senn að öryggi og sjálfstæði íslands og bandalagsríkja okkar. Framhald á bls. 22. menn loðnuneíndar og spurði hvort hér hefði verið um alvarleg brot að ræða. Við fengum þær upplýsingar, að hér hefði verið um frekar vægt brot að ræða, og hefðu skipstjórar bátanna verið varaðir við. Bátarnir tilkynntu til loðnunefndar um afla, þegar þeir voru búnir að fylla sig og báðir sögðust þeir fara i vesturátt, en þeir voru á veiðum við Ingólfs- höfða. Sfðan fréttist ekkert af bátunum fyrr en þeir voru komn- ir til hafnar, reyndar var annar báturinn á útleið aftur þegar fréttist hvar Þann hefði landað. Sögðu starfsmenn loðnunefndar, að það væri skylda hvers skip- stjórnarmanns að senda skeyti til nefndarinnar um það til hvaða hafnar báturinn ætlaði með aflann. Loðnunefnd starfar eftir sér- stökum reglum, sem alþingi setti s.l. haust, og hefur nefndin heimild til að beita refsiákvæð- um, ef ekki er farið eftir starfs- reglum hennar. Kokkar semja VEITINGAHÚSAEIGENDUR og kokkar hafa skrifað undir samn- inga með fyrirvara um samþykki félagsfunda, sem verða n.k. mánudag. Kemur því ekki tilboð- aðs verkfalls kokka. Að sögn Konráðs Guðmunds- sonar hótelstjóra á Hótel Sögu eru aðalatriði samninganna þau, að kokkarnir fá 10% kauphækk- un, strax, 4% í sept. n.k. og 4% í aprfl 1975. Samið er til tveggja ára. /

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.