Morgunblaðið - 01.02.1974, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 01.02.1974, Blaðsíða 37
Enduruppbygging Súez-bæjar hafin Bensín og olía hækka í Svíþjóð Kairó, 30. jan. NTB. FULLTRÚAR stjórnar Egypta- lands komu til bæjarins Suez í dag og hófu þegar að skipuleggja uppbyggingu bæjarins, sem lagS- ur var f rúst í átökunum við Isra- Grivas jarðsettur Limassol, Kýpur, 30. jan. NTB. GEORG Grivas hershöfðingi var jarðsettur í dag í grennd við hús það, sem var felustaður hans á árunum upp úr 1950 og er í einu af úthverfum Limassol. Þúsundir manna höfðu safnazt saman til að votta hinum látna virðingu og báru margir myndir eða spjöld af Grivasi. Margir grétu beizklega, þegar kistan var látin sfga f gröfina, segir f fréttum NTB fréttastof unnar. í kveðjuræðu við gröfina sagði Georg Vassiliades, sem er yfir- maður stjórnmáladeildar þeirrar sámtaka, sem Grivas var foringi fyrir, að baráttunni fyrir sameiningu við Grikkland yrði vissulega haldið áfram. Laust mannfjöldinn upp hrópi og kallaði „enosis, enosis" hvað eftir annað. Ekki var fulltrúi frá ríkis- stjórninni við útförina. Breytingum lok- ið á frystihúsinu á Eskifirði Eskifirði, 30. janúar. I DAG hófst á ný vinnsla á fiski f hraðfrystihúsi Eskifjarðar, eftir að húsið hafði verið lokað um tíma vegna nýbyggingar og breyt- inga á eldra húsnæði. Nýir og fullkomnir flökunar- og pökkun- arsalir hafa verið gerðir, og kaffi- stofur, snyrtiherbergi og fata- geymslur starfsfólks eru ný- byggð. Ohætt er að fullyrða, að aðstaða starfsfólks fyrirtækisins sé til mikillar fyrirmyndar. Hólmatind- ur landaði í dag fyrsta aflanum í hið nýja hús, um 100 lestum af þorski. Nýi skuttogarinn Hólma- nes SU 1 er væntanlegur til lands- ins frá Spáni í næstu viku. Fyrst kemur hann við i Noregi, en þar tekur hann fiskkassa. í morgun þöfðu borizt hér á land um 11000 lestir af loðnu, en þá var verið að landa úr fjórum bátum, sem allir voru með full- fermi. Bræðsla loðnunnar gengur vel. Fréttaritari. 4000 lestir loðnu til Vopnafjarðar Vopnafirði 30. janúar. BÚIÐ er að landa hér um 3600 lestum af loðnu, en enn er þróar- rými fyrir 4000 lestir. I gær lönduðu hér Gísli Árni 550 lest- um, Fífill GK 350 lestum, Eldborg GK 550 lestum og Hilmir SU 380 lestum. Þorsteinn Erlingsson skipstjóri á Hilmi sagði í samtali við frétta- ritara blaðsins, að skipið væri nú búið að fá um 2500 lestir og alltaf hefði verið landað á Austfjarða- höfnum. Nú færi að verða erfitt að losna við aflann, nema fara norður fyrir Langanes, en ekki væri gott að gera það á skipi eins og Hilmi. Sagði hann, að greiða þyrfti góða flutningsstyrki til að fá bátana til að fara sem viðast með aflann, en helzt þyrfti að vera flutningaskip til að flytja aflann norður fyrir land. Þá sagði Þorsteinn, að hann áliti, að endurnýja þyrfti nóta- veiðiflotann um 7—8 stór skip á ári, ef einhver framtið ætti að vera í toðnuveiðúnum. el. 1 næsta mánuði er fyrirhugað, að egypzka stjórnin komi þar saman til fundar til að ræða upp- bygginguna og möguleika íbú- anna, sem þaðan flúðu til að flytj- ast heim á ný. Ráðherra Egypta, sem fjallar um mái þetta, Osman Ahmed Os- man, hefur þegar lagt fram áætl- un um endurskipulagningu bæj- arins, og gerir þar m.a. ráð fyrir, að göng verði gerð frá bænum undir Suez-skurð til næsta bæjar handan hans. Egypzkir hermenn hafa tekið við herstöðvum ísraelsmanna um- hverfis bæinn, sem þeir aldrei tóku herskildi í átökunum. Jafn- framt er áfram haldið brottflutn- ingi ísraelsku hersveitanna frá vesturbakka Suezskurðar og var i dag stöðugur straumur flutninga- bifreiða yfir skurðinn með her- gögn og herföng ísraelsmanna frá víglfnu þeirra um 20 km frá skurðinum. Þessum flutningum á að vera lokið 5. marz. Frá Kairo herma áreiðanlegar heimildir, að samskipti Banda- rikjanna og Egyptalands batni með hverjum degi. Hafi sendi- herra Bandaríkjanna í Kairo, Herman Eilts, átt þriðja fund sinn í dag með Ismail Fahmy, utanrik- isráðherra, á jafnmörgum dögum. Kairoblaðið ,,A1 Ahram“ segir, að Henry Kissinger, utanrikisráð- herra Bandaríkjanna, hafi sent Fahmy hugsmyndir sinar um það, hvernig skilja megi milli her- sveita Israels og Sýrlands í Golan- hæðum. Egyptar hafa tilkynnt, að þeir muni ekki taka þátt í öðrum þætti friðarviðræðnanna í Genf fyrr en því verki sé lokið. Stokkhólmi, 30. jan. NTB KJELL Olof Feldt, viðskipta- málaráðherra Svíþjóðar, upplýsti í gærkveldi, að hætt yrði við skömmtun á bensíni og öðru eldsneyti á miðnætti í nótt. Jafn- framt yrði verð á bensíni og olíu til húsahitunar hækkað til þess að standa straum af frekari hráolíu- kaupum. úpphaflega stóð til að skömmtun stæði út febrúar. Verð á bensinlitra hækkar um 23 aura sænska, upp í 1.72 sænsk- ar krónur (um 31 kr. ísl.) en verð á oliu til húsahitunar hækkar um 128 s.kr. pr. tonn og fer í 528 kr. sænskar, sem svarar rúmlega 9.600 kr. ísl. Eftir sem áður verður nokkuð takmarkað það magn, sem menn geta fengið til húsahitunar, bæði ibúðarhúsa og iðnaðrahúsnæðis. Og hugsanlegt er, að almenn skömmtun verði tekin upp að nýju 1. marz nk. Ráðherrann upplýsti, að orkunotkun hefði minnkað mjög verulega i Svíþjóð eftir að skömmtun hófst. Fyrstu tvær vikurnar hefði bifreiðaumferð minnkað um 35% og notkun al- menningsfarartækja jafnframt færzt mjög i aukana, til dæmis hefði farþegaaukning járn- brautarlesta verið allt að 40%. 4 aiinn Bergstáðastræti 4a Sími 14350 í* r DOMU- OG HERRASKORNIR ERU KOMNIR TOKUM UPP I DAG MARGAR GERÐIR KJOLA VELOUR DOMUBUXUR BAGGY BUXUR ÚR DENIM OG FLAUEL FYRIR DÖMUR OG HERRA — NÝ SNIÐ — NÝIR LITIR MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1974

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.