Morgunblaðið - 01.02.1974, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 01.02.1974, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ.FÖSTUDAGUR 1. FEBRUAR 1974 Vernda verður r gróður í Amessýslu STEINÞOR GESTSSON: Á FUNDI sameinaðs þings sl. þriðjudag mælti Steinþór Gests- son (S) fyrir þingsályktunartil- lögu, sem hann flytur um áætlunargerð um verndun gróðurs og uppgræðslu lands f Árnessýslu. Er tillagan svo- hljóðandi: „Alþingi ályktar að skora á rfkisstjórnina að skipa nefnd þriggja manna til þess að gera, f samvinnu við viðkomandi sveitar- stjórnir og gróðurverndarnefnd, áætlun um verndun gróðurlendis og uppgræðslu örfoka lands f Árnessýslu. Áætlunin skaf taka til alls lands upp að 400 m hæðarlínu og fela í sér tillögur um það, hvar skuli í þessu skyni beita skógrækt og hvar grasrækt, svo og um hag- nýtingu þess lands, sem áætlunin nær tiL Nefndin getur krafist aðstoðar Rannsóknastofnunar landbúnaðarins, Búnaðarfélags fslands og annarra opinberra stofnana um viss tæknileg atriði, sem áætlun þessa kynni að varða. Stefnt skal að því, að áætlunin liggi fyrir svo tímanlega, að Álþingi geti fjallað um hana á haustþingi 1974 og ákveðið þá um fjárframlög til fyrstu fram- kvæmda samkvæmt henni á árinu 1975. 1 nefndinni skulu vera þessir embættismenn: skógræktarstjóri, Ný þingmál FULLORÐINSMENNT- UN Fyrirspurn til menntamála- ráðherra frá Stefáni Gunn- laugssyni (A). Fyrirspurn Stefáns er svohljóðandi: Hvað líður athugun menntamála- ráðuneytisins á því, hvernig fullorðinsmenntun verði bezt fyrir komið? NVSKIPAN IÐNFRÆÐSLU Fyrirspurn til menntamála- ráðherra frá Þórarni Þórarins- syni (F), svohljóðandi: Hvað líður störfum nefnda þeirra, sem menntamálaráðherra skipaði sl. vetur til að vinna að nýskipan iðnfræðslu og tækni- menntunar? landgræðslustjóri og iandnáms- stjóri, og skal hann vera for- maður nefndarinnar.“ í upphafi ræðu sinnar sagði Steinþór Gestsson: „Eins og fram kemur I greinar- gerð með tillögunni, telja margir þeirra, sem kunna nokkur skil á jarðvegsuppbyggingu, að innan Arnessýslu sé að finna þau land- svæði, sem einna viðkvæmust séu hér á landi fyrir eyðingu og upp- blæstri. Þurrlendisjarðvegurinn þar er yfirleitt laus í sér, léttur og því fokgjarn, enda er hann mjög blandaður gosefnum. Gróður- verndarnefnd Árnessýslu hefur samið umfangsmikla greinargerð um þróun jarðargróðurs, sauð- fjáreign og annað álag á landið. Þar segir svo f álitsgerð um ástand jarðvegs og gróðurs, með leyfi hæstv. forseta. „Upphaf þess, að slíkur jarðvegur byrjar að losna og berast burt af einum stað á annan er ævinlega það, að með einhverjum hætti rofnar gróðurhulan, sem bindur yfirborð jarðvegsins. Algengar ástæður eru, frostbrestir, mikil umferð fénaðar eða farartækja, sem mynda gróðurlausar slóðir strax vegna verklegra framkvæmda, svo sem vegagerðar, línulagna eða bygginga og sandfok, svo nokkur dæmi séu nefnd. Að sjálfsögðu er gróðurhulan viðkvæmari fyrir slíkum áhrifum, sem gróðurskil- yrði eru lakari, svo sem kalt ár- ferði og mikið beitarálag.“ Eins og komið er að í þessum til- vitnuðu orðum gróðurverndar- nefndar Árnessýslu eru gjarnan fleiri atvik samverkandi um upp- haf uppblásturs á grónu landi. Það er þess vegna nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því, á hvern hátt landið er hagnýtt nú, svo hægt sé að gera áætlanir um varð- veislu þess samfara nauðsynlegri nýtingu." Þá gerði hann grein fyrir skýrslu gróðurverndarnefndar Árnessýslu, þar sem finna má samanburð á sauðfjáreign árið 1931 og árið 1971 í einstökum hreppum sýslunnar. Ef litið væri til Árnessýslu allrar mætti segja, að sauðfjáreign hefði staðið i stað frá árinu 1931. Vetrarfóðraðar Þann 14. janúar siðastliðinn var til moldar borin Jónína Lofts- dóttir húsfreyja frá Kirkjubóli við Önundarfjörð. Síðustu árin var hún búsett hér i Reykjavík og andaðist hér í hárri elli. Maður hennar, Daníel Benediktsson, sá valinkunni heiðursmaður, lézt fyrir nokkrum árum. Með þeim hjónum eru gengnir verðugirfull- trúar þeirra kynslóða, sem gera okkur íslendingum Ijtleift að minnast á þessu ári ellefu hundruð ára afmælis íslands- byggðar. Eins og endranær lætur dauð- inn skammt stórra högga í milli, og nú hverfur óðum af sjónarsvið- inu síðasta kynslóð íslendinga, sem þekkti af eigin raun forna búskaparhætti og lifsbaráttu þjóðarinnar á liðnum öldum. Við þau aldahvörf, sem nú eru orðin á íslandi, er bæði rétt og skylt að minnast þess fólks, sem borið hef- ur hita og þunga þessara ellefu alda og haldið hátt á loft merki íslenzks manndóms, hvað sem i skarst. Þess fólks, sem í sveita sins andlitis arði harðbýlar jarðir og sótti gull í greipar Ægi, þótt á móti blési. Á þessum vettvangi lifðu þau Jónína og Daniel lífi sínu og unnu sitt ævistarf af heiðarleika og trúmennsku. Nú er Jónína Loftsdóttir gengin og er það vissulega sjónarsviptir. Um æviatriði hennar er mér ekki nógu kunnugt í einstökum atrið- um, en hitt veit ég, að hún var hin mesta greindar- og merkiskona og verður minnisstæð þeim, sem til hennar þekktu. Er ég hugsa til kynna okkar Jónínu Loftsdóttur er mér einkar hugstæður einn bjartur sólskin- dagur, er hún sat undir hús- veggnum heima hjá sér, gráhærð og virðuleg, með prjónana sína. Við tókum tal saman og sagði hún mér þá margt heiman úr sveit- inni sinni, um líf fólks- ins þar og lífsbaráttuna áður fyrr og síðast en ekki sizt sagði hún mér af blessuðum lömbunum og blessuðum kún- um, sem hún nefndi svo. Það orðalag hennar lýsir betur en langt mál þeim bæjarbrag, sem rikt mun hafa á hennar heimili. Ég hef stundum hugsað um það síðan, að líkar því, sem hún var á þeirri stundu, hafi þær verið fs- lenzku bændakonurnar öld eftir öld, er þær gáfu sér tóm til þess að tylla sér niður í hlaðvarpann í | sólskininu og spjalla um það, sem þeim var hugleiknast. — Með þessum fáu orðum vil ég kveðja þau heiðurshjónin Jónínu Lofts- dótturog Daníel Benediktsson. Þorbjörg Bjamar Friðriksdóttir. Kveðja: Jónína Loftsdóttir kindur í sýslunni hefðu bæði til- greindu árin verið yfir 71 þúsund talsins. Rakti hann spár, sem gerðar hafa verið, m.a. á vegum Framkvæmdastofnunarinnar, um aukningu á landbúnaðarfram- leiðslunni á næstu árum og nauð- synina á að skipuleggja vandlega, hvernig verndun gróðurs og uppgræðslu lands yrði háttað til að svara þessari þróun. Siðar i ræðu sinni sagði Steinþór G estsson: „Tillaga mín gerir ráð fyrir því, að áætlunin skuli taka til alls lands upp að 400 metra hæðar- linu. Þessi hæðarmörk eru ákveð- in með það fyrir augum, að taka fyrst til meðferðar þau upp- blásturssvæði, sem næst liggja aðalgróðurlendinu og sem h'k- legust eru til að gefa mestan arð og veita byggðinni skjól og öryggi. Líklegt er, að innan þeirra marka séu allt að 35 ferkm. land, sem nú er gróðurlaust en ræktanlegt. Þá munu og vera undir 400 metra hæðarlinunni stór gróðurlönd, sem þarf að styrkja. í því efni má nefna t.d. Haukadalsheiðina, sem hefur um langt árabil verið eitf. mesta uppblásturssvæði á Suður- landi. Þar hefur landgræðslan unnið nokkrar varnaraðgerðir, sem þó þarf að auka verulega, svo að vörnin, snúist í sókn. Höfuðvið- fangsefnin til sandræktunar munu sjálfsagt beinast að söndun- um í Selvogi og í Þorlákshöfn, svo og í Þjórsárdal og í norður frá Þingvöllum við Sandkluftavatn og nærliggjandi viðáttusanda. Hér er um mikla landvinninga að ræða, sem munu koma til marg- vfslegra nota, ef rétt er á málum haldið. Áhugi manna er vaxandi fyrir þessu mikilvæga máli. Það mun hafa verið árið 1965, sem félagar úr Lionsklúbbnum Baldri f Reykjavik riðu á vaðið við upp- græðslu örfoka lands, þegar þeir dreifðu áburði og fræi við Hvítár- vatn það ár. Þetta framtak Baldursmanna hefur smitað frá sér. Nú sinna ýmsir félagshópar uppgræðslu, sáningarstarfi og eru ungmennafélögin einna drýgst í því liði. Starfsemi þessara áhuga- manna hefur komið að góðu liði og þarf að gefa því verðmæta starfi gaum og ætla siíkum starfs- hópum ákveðinn hlut í þeirri áætlun, sem tillaga þessi miðar að hrinda fram.“ MMAGI Solzhenitsyn þok- ar fyrir Brezhnev Moskva 30. jan. NTB. HELDUR hefur dregið úr árásum sovézkra fréttastofnana á rithöf- undinn Alexander Solzhenitsyn allra síðustu daga, enda sovézk blöð uppfull af frásögnum um heimsókn flokksleiðtogans Brezhnevs til Kúbu. Þó birtir vikurit Rithöfunda- samtakanna lesendabréf i dag frá rithöfundinum Alezander Rem- etsjuk, þar sem hann segir Solzhenitsyn augljósan andbylt- ingarsinna og fjandmann allra þeirra glæstu sigra, sem hið sov- ézka, sósialiska samfélag hafi unnið með ötulu starfi. Hann gagnrýnir Solzhenitsyn fyrir það, sem hann segir um Gorki og Sjolokov og þykir það benda til, að hann hafi lesið bók- ina, þótt ekki sé vitað með hvaða leiðum hann komst yfir handrit af henni. Solzhenitsyn er kallaður „Vlasovstuðningsmaðurinn". Vlasov var sovézkur herforingi, sem var tekinn til fanga af Þjóð- verkjum í styrjöldinni, en síðan tók hann að sér yfirstjórn rúss- neskra sjálfboðaliða, sem börðust gegnRauða hernum. Solzhenitsyn fjallar um Vlasov málið af vissum skilningi í bók sinni, segir frétta- ritari NTB í Moskvu. „Rússneski björninn brosir,,: Vaxandi efasemdir vegna aukins vígbúnaðar Rússa DAILY AMERICAN, blað út- gefið í Rómaborg, túlkar vax- andi efasemdir á Vesturlöndum vegna aukins vígbúnaðar Rússa í eftirfarandi forystugrein. Sovétríkin ogBandaríkin tala um frið, en keppast við að auka hernaðarmátt sinn. Vígbúnaður þeirra er svo stórfelldur, að þrátt fyrir róandi orð á afvopn- unarviðræðunum f Genf lítur út fyrir, að ráðstefnan fari út um þúfur. Rússar líta alltof oft á vax- andi spennu sem einhliða mál, sem þýði, að Vesturlönd — einkum Bandarikin — geri flestar tilslakanirnar í staðinn fyrir örfá loforð. Sannleikurinn er sá, að margir Vesturlanda- búar hafa árum saman blekkt sjálfa sig um það, sem fyrir Rússum vakir. Rússneski björninn brosir — og afvopnar okkur alla. Ef hann bítur, hópast Vesturlönd- in saman eins og lítil börn í skógi. Gallinn er, að svo stíft bros hefur verið á andliti rússn- eska bjarnarins í tæpan áratug, að við höfum slakað á árvekni okkar. Jafnvel þótt viðurkennt sé, að landher Varsjárbandalags- ins sé langtum fjölmennari en það lið, sem NATO getur safnað saman, föllum við ennþá fyrir ,,opinberum“ tölum Rússa, sem sýna, að stjórnin í Moskvu ver aðeins um 9% þjóðarteknanna til landvarna. Ef svo væri, væri ekkert að óttast. En nægar sannanir sýna, að í raun og veru neina framlög Rússa til landvarna um 40 til 50% heildarþjóðartekna Sovét- ríkjanna. Þó hefur þessi iskyggilega þróun ekki leitt til sársaukafulls endurmats á Vesturlöndum. Við göngum ennþá glaðir í lund eftir vegin- um, sem við vonum að liggi í átt til minnkandi spennu. Og ekki þarf neinn speking i efnahagsmálum eða hermálum til að skilja, hvað Rússar gera við alla þá peninga, sem þeir vinna inn. Þrátt fyrir allrífleg- ar þjóðartekjur lifa sovézkir ennþá hálfgerðu meinlætaiífi. Ef hervigbúnaður gleypir allt að 50% þjóðarteknanna, fá venjulegir borgarar auðvitað ekki eins þægileg heimili og ekki eins mikið af matvælum, bifreiðum og gæðum lifsins. John í New York, Hans í Köln og Guiseppe í Mílanó geta yfir- leitt keypt sér skó án þess að þeir þurfi að hugsa sig um tvisvar. En það getur Sergei í Kiev áreiðanlega ekki. Rússum tekst að verja svona geysiháu hlutfalli þjóðartekn- anna til varnarmála — eða sóknarmála — með því að beina framlögunum i óbeina eða falda farvegi. Milljónir rúblna eru til dæmis lagðar til hliðar til þess að bæta „almannasam- göngur“. Hvers konar samgöng- ur? Skriðdreka og brynvagna? Þotna og sprengjuflugvéla? Rangt mat Vesturlanda á upphæðunum, sem Sovétríkin verja til hernaðarmáttar síns, sást, þegar Bandarikin áætl- uðu, hve Rússar verðu miklu fjármagni til hernaðarviðbún- aðarins á púðurtunnulanda- mærunum gagnvart Kína. Þeg- ar tvær grímur runnu á ein- hvern i Washington, hækkaði matið á einni nóttu úr 6 millj- örðum i 40 milljarða dollara. Þetta þýddi, að framlög Rússa til hermála á kinversku landamærunum voru raunveru- lega þrefalt meiri en lengi hafði verið talið. Hvernig sem á þetta er litið, sýnir þetta eftir- tektarverð mistök hjá leyni- þjónustu-sérfræðingum. Sér- fræðingarnir reyndu sjálfir að fara undan í flæmingi, er þeir sögðu, að þeir hefðu útilokað gerð 30 ristastórra þotuflug- valla, þar sem áður voru beiti- lendi, og aðra „birgðaþætti". Hættan er sú, að jafn stórlega villandi áætlanir hafa nú ófyr- irsjáanleg og skaðleg áhrif á bandaríska valdamenn, sem móta stefnuna. Hver veit nema sérfræðingarnir hafi gert jafn- stórfelldar skyssur í öðrum málum. Jafnvel þjóðir eins og Frakkar, sem hafa lengi verið vingjarnlegir í garð Rússa, hafa nú alvarlegar áhyggjur af stöð- ugt vaxandi hernaðarmætti sov- étblakkarinnar. Þetta eru hætturnar, sem sjálfsblekkingin leiðir okkur út I. Þetta eru hætturnar, sem verður að gaumgæfa sem allra fyrst, ef Vesturlönd eiga að mega sín einhvers við samn- ingaborðið í hvers konar samn- ingaviðræðum í framtiðinni við hina undirförlu Rússa. Vel- meint einlægni er ekki nóg og hefur aldrei verið nóg.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.