Morgunblaðið - 01.02.1974, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ.FÖSTUDAGUR 1. FEBRUAR 1974
15
Vöraskiptajöfn-
uðurinn óhag-
stæður um 5,8
milljarða 1973
VERÐMÆTI útflutnings lands-
manna á árinu 1973 nam 26.039,4
milljónum króna, en árið áður
16.697,9 milljónum kr., og hafði
aukizt um 55,9%. Verðmæti inn-
flutningsins jókst örlitið meira,
eða um 56%, í 31.856,3 milljónir
kr. úr 20.419,6 milljónum kr.
Vöruskiptajöfnuðurinn var á ár-
inu 1973 óhagstæður um 5.816,9
milljónir kr., sem var 56,3%
aukning frá árinu áður, er hann
var óhagstæður um 3.721,7 millj-
ónir kr. Kemur þetta fram í
fréttatilkynningu Hagstofunnar
um bráðabirgðatölur um verð-
mæti inn- og útflutnings á árinu
1973.
Þar kemur ennfremur fram, að
verðmæti áls og álmelmis, sem
flutt var út, nam á árinu 1973
4.441,3 milljónum kr. og hafði það
aukizt um 63,5% frá árinu áður,
er það var 2.716 milljónir kr.
Á árinu 1973 voru flutt inn 554
timburhús á vegum Viðlagasjóðs,
að verðmæti 892,2 milljónir kr. 10
þeirra voru gefin frá Kanada, en
hin voru flest keypt frá Noregi,
eða 264, og frá Svíþjóð 192 hús, en
frá Danmörku komu 20 hús og frá
Finnlandi 68 hús.
Á árinu 1973 voru f lutt inn skip
fyrir 3.818 milljónir kr., sem er
nær þrisvar sinnum hærri upp-
hæð en árið áður, er flutt voru inn
skip fyrir 961,5 milljónir kr. Mun-
ar mest um skuttogarana, en á
árinu 1973 var fluttur inn 21 skut-
togari að verðmæti 3.181,8
milljónir kr.
Á árinu 1973 voru fluttar inn
flugvélar fyrir 50,7 milljónir kr.,
sem er tæpur þriðjungur upphæð-
ar ársins á undan, er fluttar voru
inn flugvélar fyrir 156,9 milljónir
kr.
Á árinu 1973 var flutt inn til
framkvæmda Landsvirkjunar
fyrir 45,9 miUjónir kr., sem er
þriðjungur upphæðar ársins á
undan, er flutt var inn fyrir 138,3
milljónir kr.
Á árinu 1973 var flutt inn til
Islenzka álfélagsins fyrir 2.147
milljónir kr. sem er 57,3% aukn-
ing frá árinu áður. Hér á undan
kom fram, að útflutningur áls og
álmelmis jókst um 63,5% miUi
þessara tveggja ára, eða nokkuð
meira en aukning innflutningsins
var. Ef borið er saman verðmæti
innflutningsins til ísl. álfélagsins
og verðmæti útflutts áls og ál-
melmis kemur i ljós, að verðmæti
útflutningsins er 106,9% meira
enverðmæti útflutningsins.
MÁLNING—VEGGFÓÐUR—GÓLFDÚKAR—GÓLFTEPPI—GÓLF FLÍSAR—LÍM—VERKFÆRI — MÁLNING —VEGGFÓÐUR—
i
g Elsta og reyndasta sérverzlun landsins sinnar teg.
UJ
OPNAR Á MORGUN
O
< nýja verzlun I eigin húsnæfti a& GRENSÁSVEGI 11
\ MH á einni hB9d MjíMRÍKN I
| J * BANKASTRÆTI 7 — SIMI 11496
> GRENSÁSVEGI 11 — SIMI 83500
MÁLNING—VEGGFÓÐUR—GÓLFDÚKAR—GÓLFTEPPI—GÓLFFLÍSAR—LÍM—VERKFÆRI — MÁLNING —VEGGFÓÐUR_
Á VEGGI—Á GÓLF—Á LOFT— Á VEGGI