Morgunblaðið - 01.02.1974, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1974
19
Þokar í rétta
átthiáEBE
Brussel, 31. janúar — NTB.
RAÐHERRANEFND Efnahags-
bandalagsins tókst ekki ( gær að
finna iausn f deilunni um svæða-
stefnu bandalagsins næstu þrjú
árin, en WalterScheel utanríkis-
Á sunnudag hefst alþjóðlega
skákmótið í Reykjavfk. Fyrstu
erlendu þátttakendurnir eru
farnir að koma til landsins og
þeir ekki af verri endanum:
Skáksnillingarnir V. Smyslov
og Bronstein, sem báðir hafa
keppt um heimsmeistaratitil-
fnn og sá fyrmefndi raunar
haldið honum um tíma. Hér
sjást þeir við komuna á Kefla-
vfkurflugveili og það er Frið-
rik Ólafsson stórmeistari, sem
tekur á móti þeim.
Samuel Goldwyn látinn
ráðherra Vestur-Þýzkalands sagði
eftirfund nefndarinnar, að ieiðin
til lausnar væri þó f sjónmáli
Nefndin ákvað að ræða svæða-
stefnuna að nýju 18. febrúar, en í
millitfðinni verða lagðar fram
nýjar tilfögur fyrir aðildarlöndin,
sem þau verða að taka afstöðu til
fyrir næsta fund. Scheel sagði
einnig á blaðamannafundi, að
ekki yrði komið á svæðasjóði upp
á u.þ.b. 240 milljarða fsl. kr. fyrir
þessi þrjú ár, eins og lagt hafði
verið til, heldur yrði hann minni
og úthlutað úr honum eftir öðmm
reglum.
Walter Scheel sagði, að hann
teldi þennan fund ráðherranefnd-
arinnar veruiegt spor i rétta átt,
einkum og sérilagi vegna þess, að
brezki utanríkisráðherran, sir Al-
ec Douglas-Home, hefði lýst því
yfir, að ekki skyldi takmarka
svæðastefnuna eingöngu við
orkustefnuna og efnahags- og
gjaldeyrismál.
Rannsóknir
í Grikklandi
Aþenu, 31. janúar —-NTB
HINIR nýju valdamenn f
Grikkiandi hafa sett f gang
rannsókn vegna fregna um
að fyrrverandi ráðherrar,
ráðuneytisstjórar og fleiri
hafi misnotað valdaaðstöðu
sína, að því er nokkur grfsk
dagbföð hafa eftir góðum
heimildum I dag. Segja blöð-
in, að yfirvöld muni bráð-
lega gefa út yfirlýsingu um
mál þetta.
Nöfn þeirra, sem eiga að
hafa misnotað áhrif sin, hafa
ekki verið gefin upp. Hins
vegar er talið liklegt, að um
ýmsa ráðherra fyrrverandi
stjórnar Papadopoulosar sé
að ræða, en margir þeirra
hafa þegar verið handtekn-
ir.
Ur einni af frægustu mynrium Goldwyns, „Tfðindalaust af vesturvfgstöðvunum“, sem Lewis
Milestone stjórnaði árið 1930 með Lew Ayres f aðalhfutverki. Myndin var gerð eftir skáldsögu
Erich Maria Remarque.
Los Angeles, 31. janúar.
AP—NTB
SAMUEL Goldwyn, einn af
frægustu og sjálfstæðustu
kvikmyndajöfrum Hollywood
lézt f dag 91 árs að aldri, að
heimili sfnu í Beverly Hilfs, en
Goldwyn hafði verið rúmfast-
ur f nokkur ár eftir að hafa
fengið slag árið 1967, og sfðan
þjáðst af ýmsum ellimeinum.
Samuel Goldwyn var einn af
brautryðjendum bandarfska
kvikmyndaiðnaðarins, og
meðal frægra mynda, sem
hann framleiddi, má nefna
„Best Years of Your Life“,
„Wuthering Heights", „Hans
Christian Andersen", „All
Quiet on the Western Front“,
„Guys And DoIls“, ,J*orgy And
Bess“ og „The Pride of the
Yankees" — allt pottþéttar
afþreyingar- og fjölskyldu-
myndir.
Samuel Goidwyn skapaði
ýmsar stjörnur, m.a. Gary
Cooper, Will Rogers, David
Niven, og Danny Kaye, og
hann gekkst fyrir því, að ýmsir
kunnir rithöfundar færu að
skrifa beinlinis fyrir kvik-
myndaiðnaðinn. Hann kom
síðast fram opinberlega árið
1971, þegar Nixon forseti
heimsótti hann. og sæmdi
frelsisorðunni, æðsta borgara-
lega heiðursmerki Banda-
ríkjanna. Við það tækifæri
hrósaði Nixon Goldwyn fyrir
að gera myndir, sem væru
skemmtilegar, spennandi, f jár-
hagslega traustar án þess að
vera ómerkilegar, „og ekki
klámfengnar“.
Samuel Goldwyn fæddist í
Póllandi, fór 11 ára að aldri til
Englands og tveimur árum
siðar til Bandaríkjanna.
Fyrstu kynni hans af kvik-
myndaiðnaðinum urðu hins
vegar árið 1913, þegar hann og
Cecil B.de Mille heitinn og
Jesse L. Lasky framleiddu
fyrstu kvikmyndina í fullri
lengd, „The Squaw Man“, í
leigðri hlöðu. Goldwyn var
einn af stofnendum Metro
Goldwyn Mayerkvikmynda-
félagsins á árunum 1923-4.
Fjöldinn allur af myndum
Goldwyns hlaut Oscarsverð-
laun og ýmis önnur verðlaun.
Goldwyn var kvæntur
Frances Howard, fyrrum leik-
konu á Broadway, og sonur
hans Samuel Goldwyn jr., sem
nú er 43 ára, hefur fylgt í
fótspor föður sins sem fram-
leiðandi og leikstjóri.
Berjast Kína og S-Víet-
nam næst um Spratly-eyjar?
Saigon, Hong Kong, 31. janúar-
NTB
SUÐUR-Vfetnamar hafa sett her-
sveitir á land á hinum umdeildu
Spratl-eyjum f Suður-Kínahafi
til þess að vera á undan Kínverj-
um ef til vopnaviðskipta kemur,
að því er áreiðanlegar heimildir
herma 1 Saigon. Spratl-eyjarnar
eru skammt frá Paracel-eyjum,
sem kfnversk og suður-víetnömsk
herskip börðust um fyrir 11 dög-
um, en Ifkur benda til, að á þessu
svæði séu auðugar olfulindir á
hafsbotni. Bæði Kfna og Suður-
Víetnam gera tilkall til Spratleyj-
anna, en þær eru í um 700 kfló-
metra fjarlægð frá Saigon og
segja Suður-Víetnamar, að þær
tilheyri landgrunni þeirra. Einn-
ig krefjast Filipseyjar og Taiwan
eignar á eyjum þessum.
□ 1 dag slepptu kfnversk yfirvöld
úr haldi einum Bandaríkjamanni
og sex Suður-Víetnömum, sem
teknir voru til fanga í viðureign-
inni um Paracel-eyjarnar, og
komu þeir til Hong Kong eftir
Karpov — mætir hann Spassky?
landamærabrúnni Lo Wu. Þetta
er fyrsti hópurinn af fleirum,
sem teknir voru til fanga í bar-
dögunum, en alfs munu Kfnverj-
ar sleppa 48 suður-vfetnömskum
hermönnum.
Hersveitirnar, sem sagt er að
hafi verið settar á land á Spratl-
eyjum í gær, munu vera vel vopn-
London, 31. janúar. AP—NTB
ÞESS er nú beðið með mikilli
eftirvæntingu f Bretlandi hvort
ríkisstjórn Edwards Heaths takist
eftir allt saman að koma f veg
fyrir allsherjarverkfall náma-
verkamanna og jafnframt ljúka
við samninga við brezka verka-
lýðssambandið í heild.
Atkvæðagreiðslu námaverka-
mannanna lýkur í kvöld og talið
er víst, að þeir samþykki verk-
fallsheimildma með miklum
meirihluta atkvæða. Nokkurra
vona um að hægt yrði að forða
verkfalli gætti í gær eftir langan
fund stjórnar Heaths, þar sem
samþykkt var að bjóða leiðtogum
námaverkamanna, brezku verka-
lýðssamtakanna TUG og leiðtog-
um vinnuveitenda til nýs
samningafundar. Miðstjórn
verkalýðssamtakanna mun ræða
málið á fundi í fyrramálið, en
vinnuveitendur á mánudag.
Heimildir í Lundúnum herma, að
tilgangurinn með því að fá leið-
toga verkalýðssamtakanna inn f
málið, sé að koma i veg fyrir, að
önnur verkalýðsfélög fylgi i kjöl-
farið með svipaðar kröfur og
námaverkamenn, sem krafizt
hafa 30—50% hækkana, en þær
um búnar og hafa miklar vistir,
þannig að allt bendir til, að þær
búi sig undir langa setu á eyjun-
um, sem samanstanda af fimm
stórum eyjum og mörgum smærri.
Herma heimildir innan hersins,
að Suður-Vfetnamstjórn óttist al-
varlega, að Kínverjar muni reyna
að taka eyjarnar með vopnavaldi.
hækkanir eru langt utan þess
ramma, sem ríkisstjórnin hefur
sett utan um launahækkanir f
baráttunni gegn verðbolgu.
Námamönnum hefur nú verið
gert tilboð um 16,5% almenna
launahækkun.
Þegar voru fyrir á Spratl-eyjum
talsverður fjöldi hermanna frá
Suður-Víetnam, en þeir voru
sendir þangað í september í fyrra
eftir að Nguen Van Thieu forseti
hafði lýst því yfir, að eyjarnar
hefðu verið innlimaðar í
Phuochouy-hérað í SuðurViet-
nam.
Frá því var skýrt i Lundúnum í
gær, að frá því að stjórn Heaths
tók við i júní 1970 hafi 50 milljón
vinnudagar tapazt vegna verk-
falla. Eru það tvöfalt fleiri verk-
fallsdagar en í stjórnartíð
Wilsons á árunum 1964—1970.
Bretland:
Er enn vonarglæta?
Karpov í úrslit?
Moskvu, Augusta, 31. janúar.
AP
ANATOLY Karpov, hin 22 ára
gamla skákstjarna Sovétríkjanna,
sem margir spá að muni svipta
Bobby Fischer heimsmeistara-
tigninni á næsta ári, hefur nú
fengið tvo af þeim þremur vinn-
ingum f einvíginu viðLev Poluga-
yevsky, sem hann þarf til sigurs
og keppni f undanúrslitum
heimsmeistarakeppninnar gegn
Boris Spassky f aprfl næstkom-
andi. Karpov sigraði Poluga-
yevsky f sjöttu skák þeirra f
M oskvu í gær.
Skák þeirra Viktor Korchnoi fr-
á Sovétríkjunum og Henrique
Mecking frá Brasilíu fór i bið f
gær í Augusta, en átti að teflast
áfram í dag. Korchnoi hefur 2—0
forystu í einvíginu og sigri hann,
verður andstæðingur hans i
undanúrslitunum sigurvegari ein-
vigis Petrosjans og Portisch á
Mallorca. Skáksérfræðingar eru
ekki á einu máli um horfurnar i
biðskákinni i dag — sumir telja
Korchnoi sigurvissan, en aðrir
spá enn einu jafnteflinu.
Attunda skák Karpovs og
Polugayevskys verður tefld á
föstudag.