Morgunblaðið - 01.02.1974, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. FEBRtTAR 1974
Minning:
Valgerður Björg
Björnsdóttir
Nú eru dagar Valgerðar frænku
taldir. Hún lézt á Landspítalanum
að morgni sunnudagsins 27.
janúar eftir stutta legu. Með
henni er gengin merk kona, sem
margir munu sakna og minnast
með þakklátum huga.
Valgerður Björnsdóttir var af
norðlenzku bergi brotin. Móðir
hennar, Lilja Daníelsdóttir og
faðir hennar Björn Sigfússon áttu
von á fyrsta barni sinu, þegar
Björn drukknaði, svo að Valgerð-
ur sá aldrei föður sinn. Oft hefi ég
hugsað um það, hvort það muni
ekki hafa verið ein megin ástæða
þess, hve innilega vænt henni
þótti um föðurbræður sína og,
hve óvenjulega mikinn kærieika
og ræktarsemi hún sýndi þeim
alla tíð. Þær voru ófáar ferðirnar,
sem hún fór til Halldórs, eftir að
hann var kominn til dvalar á elli-
ho'mili, en hann lézt i hárri elli,
og föður mínum var hún sem
bezta dóttir allt til hins síðasta.
t
Alúðarþakklæti fyrir auðsýnda
samúð og vináttu vegna fráfalls
SIGURBERGS
EINARSSONAR.
Guðrún Gamalíelsdóttir
og aðrir aðstandendur.
Kannski fannst henni, að hjá
þeim fyndi hún eitthvað af föður
sínum, sem hún aldrei þekkti og
alltaf harmaði að hafa ekki fengið
að njóta samvista við. Móðir Val-
gerðar giftist aftur norskum
manni, Edvard Solnes, og er Jón
Sólnes á Akureyri kjörsonur
þeirra.
Eg kynntist þessari frænku
minni fyrst eftir að hún var gift
og hafði reist bú með manni
sínum, hinum gagnmerka lækni
Hannesi Guðmundssyni. Þau
bjuggu þá að Hverfisgötu 12 hér í
borg og þar átti hún heima til
æviloka. Heimili þeirra hjóna
verður mér ógleymanlegt fyrir
margra hluta sakir. Ég stóð á
tröppunum um miðja nótt og
hringdi bjöllunni. Áætlunarbflk
inn að norðan hafði oltið út í
skurð á Kjalarnesi og farþegarnir
lent i hrakningum.
Valgerður faðmaði mig að sér,
bjó mér gott rúm og gaf mér heitt
að drekka. Það gerði hreint ekk-
ert til, þótt ég vekti hana af vær
um svefni. Ég var innilega vel-
komin. Þannig var hún alla tíð.
Hún var aldrei glaðari en þegar
hún gat leyst vanda einhvers,
hjálpað, gefið, gert öðrum gott.
Og löng væri sú skýrsla, ef allt
væri skráð.
Sennilega hefirhún líkst föður-
ömmunni, Önnu Björnsdóttur að
Grund í Svarfaðardal, en gamalt
fólk þar í sveit sagði mér, að hún
hefði verið sígefandi jafn sár-
fátæk og hún var. Einhvern tima
t
Hjartkær móðir okkar og tengdamóðir,
V
STEINUNN ÞÓRÐARDÓTTIR,
frá Skáleyjum,
lézt á Hrafnistu, að kveldi 30. þ.m.
Þórhildur og
Baldur Snæland,
María Hafliðadóttii Björn Jónsson.
t
Eiginmaður minn og faðir
SIGURÐUR ÞORSTEINSSON
frá Kúfhól, Austur-Landeyjum,
lézt að Hrafnistu 30. janúar.
Guðríður Ólafsdóttir
og börn.
t
Elskuleg eiginkona mín
ARNÞRÚÐUR SÍMONARDÓTTIR
Safamýri 33
andaðist að heimili sínu aðfaranótt 31. þm. Fh. barna, tengdabarna og
annara vandamann.
Valdimar Guðlaugsson.
Eiginkona min og móðir,
KRISTÍN PÁLSDÓTTIR,
Nesvegi 82,
lézt á Borgarsjúkrahúsinu 29. janúar s.l.
Jón G. Guðjónsson,
Hreggviður Jónsson.
t
Dóttir mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma
BRYNHILDUR BJÖRGVINSDÓTTIR
Óðinsgötu 3,
lést i Borgarspítalanum 30 janúar.
Sigurrós Böðvarsdóttir
Ása Björk Snorradóttir, Krístmn Aadnegard
Auður Snorradóttir, Tómas Ragnarsson
og barnaborn
sást hún leysa af sér svuntu f
hlaðvarpanum og stinga að
snauðri förukonu, þegar þær
kvöddust. Þetta hefði Valgerður
líka getað gert.
Á þessum árum bjó tengdafaðir
Valgerðar, Guðmundur Hannes-
son prófessor, hjá þeim, enda
Hverfisgata 12 hans gamla hús og
heimili, og börn Valgerðar og
Hannesar voru þá öl 1 ung að árum
og í foreldrahúsum. Heimilisbrag-
urinn var töluvert sérstæður.
Hinn stórgáfaði og menntaði afi
barnanna var þá enn ern, og
margar voru stundirnar, sem
setið var við sagnabrunn hins
mikla fræðara. Hannes Guð-
mundsson var óvenjulega ljúfur
heimilisfaðir og lét sér mjög annt
um uppeldi og menntun barna
sinna. Þegar ég hugsa til þessara
ára, sé ég í hugskoti minu stóra
borðið i borðstofunni þétt setið
stórri fjölskyldu, sem stundum
tvöfaldaðist vegna gestakomu, og
húsbóndann fyrir öðrum enda
með Helgu litlu í fanginu. Það
var hennar staður. Hús-
freyjan var á þönum að reyna að
gera öllum til geðs, glöð og kát og
aldrei kátari en þegar margt var
um manninn. Heimilið var ákaf-
lega gestkvæmt, þar var opið hús
alla tíð og allir velkomnir.
Ég man stórar veizlur læknis-
hjónanna, þar sem allt var með
miklum rausnar- og glæsibrag, og
ég man líka, hvernig hún tók á
móti einstæðingum og þeim, sem
áttu í erfiðleikum á einn eða
annan hátt. Hún var stórbrotin
þessi frænka mín, kunni að
gieðjast með glöðum og samfagna,
þegar vel gekk. Hún gat verið
hvöss, ef henni líkaði miður, en
hún var lika manna fljótust til að
rétta hjálparhönd, sýna samúð
sina og það var ekki gert af neinni
hálfvelgju. Hún gerði hlutina um-
yrðalaust, hlífði sér aldrei, taldi
það gæfu sina að mega liðsinna
öðrum.
Hannes og Valgerður áttu
indælan bústað í Fossvogi og mik-
inn trjágarð, en húsbo'ndinn var
ræktunarmaður og undi sér með
fjölskyldu sinni i þessum friðsæla
gróðurreit, þegar færi gafst frá
erilsömu læknisstarfi.
Valgerður syrgði mann sinn
mjög, er hann lézt á bezta aldri
fyrir tæpum 15 árum. Það var
mikið áfall, þegar hinn góði og
gáfaði eiginmaður var horfinn.
En hún átti mikinn fjársjóð þar
sem voru 4 mannvænleg börn
þeirra hjóna. Hún elskaði börn
sín, tengdabörn og barnabörn og
hugurinn var hjá þeim öllum
stundum, þegar hún var ekki sam-
vistum við þau.
Börnin eru: Leifur bygginga-
verkfræðingur kvæntur Áslaugu
Stefánsd.; Valgerður gift Ölafi
Ólafssyni iðnaðarmeistara; Lína
Lilja gift Hilmari Pálssyni vá-
tryggingarmanni og Helga læknir
gift Jóni Stefánssyni geðlækni.
Fjölskyldan var hennar heimur
og hún var alltaf reiðubúin til að
liðsinna, ef með þurfti. Margar
ferðir fór hún til Bandaríkjanna
til Helgu dóttur sinnar til að Iita
eftir þrem ungum barnabörnum,
þegar dóttir hennar var í erfiðum
prófum við framhaldsnám sitt.En
greiðvikni Valgerðar náði langt
út fyrir landamæri fjölskyld-
unnar, miklu lengra en nokkurn
grunar. Um það mætti skrifa
langa sögu. Nú er hún horfin okk-
ur — dagar hennar taldir — og
við, sem enn eigum hér daga, fáa
eða marga, kveðjum hana með
þakklátum huga. Samúð okkar er
með börnum hennar og nánustu
fjölskyldu, sem nú sjá á bak kær-
leiksríkri móður, tengdamóður og
ömmu, sem átti þá ósk stærsta, að
sjá þeim farnast vel í lffinu.
+
Hjartkær maðurinn minn, faðir okkar og sonur
HÖRÐUR SIGFÚSSON,
Barðavogi 26,
sem lézt 24 þ.m., verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju, laugardaginn
2. þ.m. kl. 1 0.30 f.h.
Jóhanna Guðmundsdóttir,
Jóna S. Harðardóttir, Halldór Harðarson.
Jóna S. Jónsdóttir.
Föðurbróðir okkar,
SVEINN PÁLSSON,
Nýjabæ. Miðnesi,
verður jarðsunginn frá Hvalsneskirkju, laugardaginn 2. febrúar kl. 2.
Bílferð verður frá Fossvogskirkju kl. 1 2
Jónína Ásbjörnsdóttir, Magnús Loftsson,
Sigríður Ásbjörnsdóttir, Eggert Ólafsson.
t
Innilegustu þakkir fyrir sýnda samúð og vináttu vegna fráfalls
INGIBJARGAR ÞORSTEINSDÓTTUR.
Kjartan Á Jónsson, Þorsteinn Kjartansson,
Sigþóra Oddsdóttir Guðmundur Kjartansson,
og börn.
+
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför
SIGRÍÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR
Flugumýri, Skagafirði.
Þurfður Jónsdóttir,
Ingibjörg Jónsdóttir,
Valdimar Jónsson,
Helga Jónsdóttir,
Ásta Tryggvadóttir,
og barnabörn.
Björn Sigtryggsson,
Rögnvaldur Jónsson,
Dóra R. Guðnadóttir,
Sigrún Jónsdóttir,
Það er stórt skarð í ættargarð-
inn við fráfall Valgerðar Björns-
dóttur.
Blessuð sé minning hennar.
Anna Snorradóttir.
Hún andaðist í Landspitalanum
að morgni sunnudagsins 27. jan.
sl. eftir skamma legu,langt komin
á 75. aldursárið.
Valgerður Björg Björnsdóttir
var fædd að Grund í Svarfaðardal
14. maí 1899. Voru foreldrar
hennar hjóninLilja Danielsdóttir
bónda í Tjarnargarðshorni Jóns-
sonar og Björn Zóphonías Sigfús-
son bónda að Grund Jónssonar,
og eru þetta þekktir og traustir
ættleggirþar um slóðir.
Ekki varð sambúð þeirra Lilju
og Björns nema nokkrir mánuðir,
þvf hann drukknaði af fiskibáti
í lendingu við Böggvisstaðasand
3. nóv. 1898, og varð öllum sveit-
ungum harmdauði, því að hann
var vaskur maður og þótti manns-
efni gott. Ólst því Valgerður upp
með frændfólki sinu og móður
sinni, sem var atorkusöm rausnar-
og sæmdarkona. Síðar giftist hún
norskum manni, Edvard Sólnes,
vænum dreng, en missti hann lika
í sjóinn eftir nokkurra ára sam-
búð. Það hjónaband var barn-
laust, en dreng ólu þau upp frá
bernskualdri, Jón (Guðmunds-
son) Sólnes, núverandi banka-
stjóra og forseta bæjarstjórnar á
Akureyri, sem jafnan reyndist
þeim mæðgum vel og sýndi þeim
verðskuldaða ræktarsemi og
tryggð.
Valgerður Björg tók snemma
þátt i ýmsum störfum með móður
sinni og þótti hvarvetna frá-
bær að trúmennsku og dug, svo á
orði var haft þá. Og einnig það, að
þar sem hún gat komið því við,
rétti hún þeim hjálparhönd, sem
minna máttu sín. Kom þar
snemma i ljós innræti hennar,
sem alla ævi lét sig ekki án vitnis-
burðar svo sem öllum er kunnugt,
sem hana þekktu.
Um tvítugsaldur sótti Valgerð-
ur lýðháskólann á Voss í Noregi
og var þar við nám einn vetur.
Hafði skólastjórinn þar orð á því
við mig síðar, hve afbragðs vel
honum hefði líkað við þessa ungu
frænku mfna, enda fékk hún það-
an lofsamlegan vitnisburð. í
þeirri för gekk hún á bókhalds-
námskeið i Bergen og hlaut þar
ágætiseinkunn að námi loknu, og
með slikt vottorð í höndum hlaut
hún bankaritarastöðu á Akureyri,
er hún hafði á hendi um árabil.
Hinn 11. júlí 1929 giftist Val-
gerður Hannesi Guðmundssyni
iækni iReykjavík, syniGuðmund-
ar Hannessonar prófessors, hin-
um ágætasta lækni og dreng-
skaparmanni, og stofnuðu þau
heimili sitt á Hverfisgötu 12, þar
sem Guðmundur prófessor hafði
byggt og búið, en var þá orðinn
ekkjumaður. Dáði hann löngum
þessa tengdadóttur sína, umönn-
un hennar og fágætt hjartalag.
Á Hverfisgötu 12 bjuggu þaú
Hannes og Valgerður meðan bæði
lifðu, en hann lézt 27. maí 1959 á
bezta aldri, og varð það henni og
börnum þeirra mikið áfall. En
heimilinu hélt Valgerður i sömu
skorðum og áður, þar sem börn
þeirra hafa átt athvarf meðan þau
þurftu þess með. Og raunar miklu
fleiri en þau, þvi að heita mátti,
að þar hefði verið opið hús öllu
venzla- og frændfólki. Og þaðan
streymdu jafnan góðvild, gjaf-
mildi og hjálpfýsin, sem aldrei
þvarr.
Framhald á bls. 22.
+
Minningarathöfn um
KARL ÞORSTEIN
GUÐMUNDSSON,
frá Þorláksstöðum
! Kjós,
sem lézt af slysförum á Norðfirði
5. desember s I verður gerð frá
Hafnarfjarðarkirkju laugardaginn
2 febrúar kl 1 1.00
Fyrir hönd aðstandenda
Birna Lárusdöttir,
Pálmi Ingólfsson,
Ólaffa Karlsdóttir.