Morgunblaðið - 01.02.1974, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ.FÖSTUDAGUR 1. FEBRUAR 1974
39
| iÞRÓnAFRtniB WORCOBIBLAflSliyS
Misnotað vitakast
kostaði ÍR stig
Það eina stig, sem tR-ingar fengu f viðureign sinni við Vfkinga f 1.
deildar keppni Islandsmótsins f handknattleik f fyrrakvöld, nægir til
þess að koma liðinu úr baráttunni við failið f 1. deild. fR-ingarnir hafa
nú krækt sér f sjö stig, en fremur ólfklegt má teljast, að Þór frá
Akureyri nái þeirri stigatölu, þótt möguleikinn sé auðvitað fyrir
hendi. iR-ingar voru reyndar óheppnir að ganga ekki frá leiknum f
fyrrakvöld með bæði stigin með sér. A sfðustu mfnútu, er staðan var
jöfn, var dæmt vftakast á Víking, en Vilhjálmur misnotaði það
herfilega. Ætlaði að vippa yfir Sigurgeir Vfkingsmarkvörð, en tilraun-
in var heldur kæruleysisleg.
Mörk Vfkings: Einar Magnús-
son 11, Guðjón Magnússon 9,
Skarphéðinn Öskarsson 2, Páli
Björgvinsson 2, Stefán Halldórs-
son 1.
Brottvfsanir af velli: Hörður
Arnason og Olafur Tómasson, IR,
í 2 mín., Viðar Jónasson og Jón
Sigurðsson, Víkingi, í 2 mfn.
I þessum leik komu bráð-
skemmtilegir leikkaflar, þar sem
liðin náðu sínu bezta fram, en
þess á milli datt leikur þeirra
niður f meðalmennskuna, og jafn-
vel niður fyrir hana. Einkum var
varnarleikurinn stundum glopp-
óttur, og andstæðingunum gefin
mikil tækifæri.
Til að byrja með var leikurinn
nokkuð jafn, en iR-ingar höfðu
náð tveggja marka forystu í hálf-
leik og tókst að auka hana í fimm
mörk um tfma. 13 mínútum fyrir
leikslok höfðu þeir 3ja marka for-
ystu, en þá náðu Víkingar sínu
bezta i þessum leik, þéttu vörn
sína og léku af ákveðni og áhuga,
og þegar 5 mínútur voru til leiks-
loka höfðu þeir náð tveggja
marka forystu 24:22. En ÍR-ing
arnir gáfu þá hvergi eftir, og voru
betri aðilinn það sem eftir var.
Þrfr leikmenn báru af í Vfk-
ingsliðinu i þessum leik: Guðjón
Magnússon, Einar Magnússon og
Páll Björgvinsson. Einar skoraði
11 mörk í leiknum, flest úr víta-
köstum, og má segja að Páll
Björgvinsson hafi átt töluverðan
þátt í flestum þeirra marka, þar
sem hann var iðinn við að „fiska“
vftaköst. Auk þess var Páll síógn-
andi í vörninni og fljótur að eygja
möguleikana. Guðjón Magnússon
er nú með öllu óþekkjanlegur frá
þvf, sem hann var fyrst í vetur.
Hraði hans, kraftur og áhugi, gera
hann að fyrsta flokks leikmanni,
og er vissulega ánægjulegt, að
Guðjón skuli nú vera að ná sér
svona vel á strik, rétt fyrir hið
mikilvæga verkefni íslenzka
landsliðsins.
6. 3:3 Skarphéðinn
7. Asgeir 4:3
8. 4:4 Einar (v)
9. 4:5 Einar (v)
9. Agúst 5:5
10. 5:6 Einar
12. Agúst 6:6
14. 6:7 Einar (v)
17. Gunnlaugur 7:7
19. Gunnlaugur 8:7
19. 8:8 Einar
20. 8:9 Guðjón
22. Vilhjálmur (v) 9:9
23. 9:10 Guðjón
25. Vilhjálmur 10:10
26. Vílhjálmur 11:10
27. 11:11 Guðjón
27. Agúst 12:11
28. 12:12 Guðjón
28. Agúst 13:12
30. Þórarinn 14:12
Hálfleikur
31. Agúst 15:12
31. Gunnlaugur 16:12
32. 16:13 Stefán
33. 16:14 Skarphéðinn
34. HörðurA. 17:14
36. Gunnlaugur 18:14
36. Asgeir 19:14
37. 19:15 Páll
38. Asgeir 20:15
38. 20:16 Guðjón
41. 20:17 Einar (v)
44. 20:18 Einar (v)
45. Gunnlaugur 21:18
46. 21:19 Guðjón
47. Vilhjálmur (v) 22:19
47. 22:20 Einar(v)
48. 22:21 Guðjón
49. 22:22 Einar (v)
52. 22:23 Páll
55. 22:24 Einar (v)
55. Agúst 23:24
56. Jóhannes 24:24
57. 24:25 Guðjón
58. Vilhjálmur (v) 25:25
Mörk IR: Ágúst Svavarsson 7,
Gunnlaugur Hjálmarsson 5, As-
geir Elfasson 5, Vilhjálmur Sigur-
geirsson 5, Þórarinn Tyrfingsson
1, Hörður Arnason 1, Jóhannes
Gunnarsson 1.
Misheppnuð vftaköst: Rós-
mundur Jónsson varði vítakast
Vilhjálms á 20. mín. og Vilhjálm-
ur kaut yfjr úr vitakasti á 59. min.
Guðmundur Gunnarsson varði
vítakast Einars Magnússonar á
24. mín. og Einar skaut framhjá
úr vítakasti á 29. mín.
Dómarar: Valur Benediktsson
og Magnús V. Pétursson. Þeir
dæmdu leikinn allvel.
Manchester
City í úrslit
deildar-
bikarsins
MANCHESTER City tryggði sér
rétt úl að leika í úrslitum deildar-
bikarsins enska í knattspyrnu
með því að sigra Plymouth 2:0 i
fyrrakvöld. Fyrri leik liðanna
lauk 1:1 og sigraði því Manchest-
er-liðið 3:1 samanlagt og mætir
Ulfunum á Wembley 2. marz.
I fyrrakvöld var einnig leikið í
FA-bikarnum Aston Villa Iék
Arsenal sundur og saman og sigr-
aði verðskuldað 2—0. Einnig datt
annað 1. deildar Iið út úr bikar-
keppninni, West Bromvich vann
Everton 1—0.
Derby datt út úr keppninni, tap-
aði fyrir Coventry 0—1. Leicester
vann Fulham 2—1.
Gunnlaugur Hjálmarsson kemst framhjá Jóni og Guðjóni og skorar.
Asgeir Elíasson var bezti maður
IR-Iiðsins í þessum leik, hreyfing-
ar hans úti á vellinum eru mjög
snöggar og skemmtilegar og
skapa bæði honum sjálfum og fé-
lögum hans tækifæri. I vörn er
Asgeir einnig afbragðsgóður leik-
maður, og baráttugleði hans virð-
ist ódrepandi. Gamla kempan
Gunnlaugur Hjálmarsson kom
einnig sterkur frá þessum leik, og
er sýnilega í mun betra formi i ár,
en hann var í fyrra.
I STUTTU MALI:
Laugardalshöll 30. janúar
Islandsmótið 1. deild
URSLIT: IR — VlKINGUR 25:25
(14-12)
Gangur leiksins:
Mln. ÍR
1. Asgeir
3. Asgeir
3.
4. Agúst
5.
Víkingur
1:0
2:0
2:1
3:1
3:2
Eínar
Geir Hallsteinsson skrifar um andstæðinga okkar í HM:
Varnirnar eru ótrúlega góðar
Guðjón
FYRIR nokkru fór fram f V-
Þýzkalandi handknattleiksmót
með þátttöku fjögurra liða,
Júgóslavfu, V-Þýzkalands, Tékkó-
slóvakíu og Noregs. Tvö þessara
liða, V-Þýzkaland og Tékkó-
slóvakfa, verða með Islendingum
f riðli í heimsmeistarakeppninni
f Austur-Þýzkalandi f lok þessa
mánaðar. Geir Hallsteinsson
fylgdist með þessu móti og hér á
eftir segir Geir frá frammistöðu
liðanna.
„Leikið var f Múnchen á
fimmtudegi, Göppingen á föstu-
degi og í Böblingen á laugardegi.
Urslit í mótinu urðu sem hér
segir:
Júgóslavía — V-Þýzkal. 21:15
LIÐ IR: Guðmundur Gunnarsson 2, Asgeir Elfasson 4, Guðjón
Marteinsson 1, ólafur Tómasson 2, Þórarinn Tyrfingsson 2, Agúst
Svavarsson 3, Hörður Arnason 2, Vilhjálmur Sigurgeirsson 2,
Gunnlaugur Hjálmarsson 3, Jóhannes Gunnarsson 1, Jens Einars-
son. 1.
LIÐ VlKINGS: Sigurgeir Sigurðsson 2, Jón Sigurðsson 2, Guðjón
Magnússon 3, Einar Magnússon 4, Skarphéðinn Oskarsson 2,
Sigfús Guðmundsson 1, Páll Björgvinsson 3, Olafur Friðriksson 1,
Viðar Jónasson 1, Stefán Halldórsson 2, Viggó Sigurðsson 1,
Rósmundur Jónsson 1.
Rússl.—Noregur 17:16
Rússl.—Júgóslavía 19:18
V-Þýzkaland — N oregur 20:14
Júgóslavía—Noregur 25:14
V-Þýzkaland—Tekkóslv 20:17
Lokastaðan varð þvf þessi:
Júgóslavía 3 2 0 1 64:48 4
V-Þýzkaland 3 2 0 1 55:52 4
Tékkóslóvak. 3 2 0 1 53:54 4
Noregur 3 0 0 3 44:62 0
Það, sem mest kom á óvart f
þessari keppni, eins og blöðin
komust að orði, var að öll löndin
mættu með sína sterkustu leik-
menn og það aðeins einum
mánuði fyrir átökin i A-Þýzka-
landi. Það var greinilegt, að
þjálfararnir voru að reka smiðs-
höggið á leikkerfin og reyna að
finna sterkasta kjarnann. Sem
dæmi um þetta má nefna þýzka
liðið, 16 leikmenn voru til taks i
hverjum leik og var gaman að sjá
hvernig þjálfarinn, prófessor
Horst Kastler, reyndi að samstilla
ákveðna menn.
Athyglisverðast við þessa leiki
var hvað markvarzlan er orðin
ótrúlega góð og varnirnar eins og
klettur með 6:0 uppstillingu yfir-
leitt. Ut frá þeirri aðferð koma
svo aðrar varnaraðferðir þegar
það á við. Þá er komin stefnu-
breyting í handknattleiknum,
hún er sú, að liðin leika nú 2:4 f
sókninni, þannig að liðin skora
2/3 hluta marka sinna af línu,
utan af kanti eða með gegnum-
brotum. Leikmennirnir tveir á
miðjunni eru á stöðugri
hreyfingu og hjálpa kantmönnun-
um mikið, sem koma hlaupandi
inn í eyðurnar.
Þetta var sérstaklega vel útfært
hjá Tékkunum og Júgóslövunum
og voru þessi lið með óteljandi
leikaðferðir. Nú eiga sóknarleik-
menn orðið erfitt með að athafna
sig vegna vel útfærðs varnarleiks
og snillinganna i markinu. Kom
greinilega fram í þessari keppni,
að stórskyttur eins og Hansi
Schmidt, V-Þýzkalandi, Lacarevic
og Lavrnic, Júgóslavfu, máttu sín
lítils, en gáfu í staðinn á línu-
mennina — oft stórkostlega.
Ég vil aðeins fjalla um tvo leiki
— þá beztu og áhugaverðustu
fyrir okkur íslendinga — leik
Tékka gegn Júgóslavíu og V-Þjóð-
verja gegn Norðmönnum, en báða
þessa leiki lét ég taka upp á filmu.
Tékkarnir hafa alltaf átt erfitt
með Júgóslavana og f upphafi
leiks liðanna leit einnig út fyrir
að svo yrði að þessu sinni. Eftir 15
mínútur var staðan 6:2 fyrir Júgó-
slaviu, en þá hófu Tékkar mjög
góðan leikkafla og f hálfleik
höfðu þeir minnkað muninn nið-
ur í eitt mark 11:10. Júgóslavarn-
ir voru ekki á því að tapa þessum
leik og Horvat, Lavrnic og
Lacarevic léku allan siðari hálf-
leikinn, en það dugði ekki.
Tékkarnir gerðu sfn mörk aðal-
lega af linu og utan af köntunum,
með Statrapa og Jary stöðugt
ógnandi fyrir utan. Þeir eru mjög
ólfkir leikmenn, sá fyrrnefndi
skorar með undirskotum, en sá
síðarnefndi aðeins með upphopp-
um, en gefur mikið inn á línu. Þar
ráða ríkjum þeir Konecny og
Krepsind. Uti á köntunum eru
stórhættulegir menn eins og
Benes — örvhentur — Papier-
mik, Haber og Lukosik. Tékkarn-
ir unnu þennan leik verðskuldað
19:18 og er þetta einn bezti leikur,
sem ég hef séð á mfnum keppnis-
ferli. Ef Tékkarnir leika gegn
okkur eins og þeir léku þennan
leik, verða þeir okkur erfiðir í
Framhald á bls. 22.