Morgunblaðið - 16.02.1974, Page 13

Morgunblaðið - 16.02.1974, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. FEBRUAR 1974 13 Sinfóníutmleikar Stjórnandi: Jussi Jalas % Einleikari: Arve Tellef- sen % Kodaly: Hary Jan- os svítan • Bruch: Fiðlu- konsert # Sibelius: Sinfónfa nr. 2. Eftir því sem undirritaður hefur vit til og hægt er að dæma, vil ég halda því fram að sinfóniuhljómsveitin hafi í vet- ur leikið betur, að öllu jöfnu en nokkru sinni áður, þó einstök tilfelli megi tilgreina um frávik til eða frá. Saga Sinfóníuhljóm- sveitar íslands, er saga nokk- urra manna, sem trúðu því að við íslendingar gætum haldið uppi hljómsveit, boðið upp á góðan flutning og hefðum þörf fyrir góða tónlist. Einn þeirra manna, sem bókstaflega talað hafa fórnað sér fyrir þennan draum, er fyrrverandi konsert- meistari hljómsveitarinnar, Björn Ölafsson fiðluleikari. Undir hans leiðsögn, fyrir óþrotlega elju hans sem kenn- ara og óbilandi trú, hefur hljómsveitin náð þessu marki. Því minnist ég á Björn, að ný- verið hefur starf konsertmeist- ara, sem hann hefur gegnt frá stofnun hljómsveitarinnar, verið auglýst til umsóknar, og að á næstu tónleikum mun hann leika fiðlukonsert Beethovens. Þeir sem láta sig varða ísl. tónlistarlíf ættu að fjölmenna á þessa tónleika. Með því móti getum við bezt þakkað Birni og sýnt honum að starf hans hefur borið ríkulegan ávöxt. Hary Janos svítan er meðal þekktari verka Kodaly, senni- lega vegna þess hve aðgengileg Tðnllst eftir JÓN ÁSGEIRSSON hún er. Flutningur verksins var mjög áheyrilegur og auðheyrt að stjórnandinn lagði meiri áhersiu á skýrleik forms og glettni, en „virtuósiskan" leik. Fiðlukonsertinn eftir Bruch er ekki mjög stórbrotið verk, en sérdeilislega fallegt og naut sín mjög vel i meðferð Arve Tellef- sen. Síðasti kaflinn var helzt til of hraður og leikur Tellefsen nokkuð ofdrifinn, fyrir ekki stórbrotnara verk. Tellefsen er án efa meðal beztu fiðluleikara á Norðurlöndum og þó víðar væri Ieitað. Hápunktur tónleik- anna var flutningur sinfóniu nr. 2, eftir Sibelius. Á sama hátt og 1 Hary Janos svítunni, lagði stjórnandinn, Jussi Jalas áherzlu á skýra formmótun verksins. Slík vinnubrögð eru því miður ekki eins algeng og ætla mætti, því mörgum stjórn- andanum hættir oft til að fórna tónsmíðinni fyrir virtúósiskan hraða. Hér var tónsmíðin tekin til meðferðar, lögð áherzla á blæbrigði og skýra mótun stefja. Edda Þórarinsdóttir og Þor- steinn Gunnarsson f aðalhlut- verkum. „Vér morðingj- ar” í sjónvarp á Norðurlöndum DAGANA 6.—8. febrúar var haldin hér í Reykjavík fundur leiklistardeilda sjónvarpsstöðv- anna á Norðurlöndum, og sóttu hann 17 erlendir fulltrúar. R;edd voru ýmis mál varðandi samvinnu og samskipti stöðvanna á sviði leikritaflutnings og skoðuð þau leikrit, sem fram eru boðin til skipta á næstu mánuðum. Af hálfu íslenzka sjónvarpsins var boðið fram leikritið „Vér morð- ingjar“ eftir Guðmund Kamban, og verður það tekið til flutnings í danska, norska og sænska sjón- varpinu á næstunni. Siðar mun verða tekin ákvörðun um, hvort það verður einnig sýnt í finnska- sjónvarpinu. Leikritið „Vér morðingjar'* var frumsýnt í íslenzka sjónvarpinu á sl. jólum. Aðalhlutverkin eru leikin af Eddu Þórarinsdóttur og Þorsteini Gunnarssyni. Lekstjóri var Erlingur Gíslason og stjórn- andi upptöku Tage Ammendrup. Addo-X 9101 rafeindareiknivélin er fullkomin lausn á samlagningarvél og kalkúlator. Vélin hefur hið vel þekkta lykilorð með fisléttum áslætti, lykilborðsloku og svörun í hverjum takka. Reiknar allar fjórar reikniaðferðir, talnarými 14+14 tölustafir. Tvö reikniverk, konstant, prósentutakki o.m.fl. GENGUR AÐEIIMS MEÐAIM ÝTT ER Á TAKKA. KJARANhf skrifstofuvélar & -verkstæði Tryggvagötu 8, simi 24140 Mikil snjóflóða- hætta á Flateyri GlFURLEGT fannfergi er nú f Önundarfirði og muna menn ekki annað eins. Mikið hefur fallið af snjóflóðum úr fjöllunum við fjörðinn og hafa þau brotið niður rafmagnsstaura og borið fiskhjall og litla sjónvarpsendurvarpsstöð út á sjó. Ekki hafa snjóflóðin lent á fbúðarhúsum, en litlu munaði, að eitt snjóflóðið lenti á bænum Ytri-Veðrará. t fjallinu Þorfinni hefur fallið snjóflóð úr hverju einasta gili og tvö snjóflóð féllu úr Eyrarfjalli, þar sem menn muna ekki að snjóflóð hafi fallið áður og er raunar vitað, að á öðrum staðnum hefur ekki fallið snjóflóð a.m.k. sfðan á sautjándu öld. Að sögn Kristjáns Guðmunds- sonar, fréttaritara Mbl. á Flateyri við Önundarfjörð, er allt á kafi i snjó á Flateyri ogþar sem göturn- ar hafa verið ruddar, eru skafl- arnir margir metrar á hæð. Þegar snjóflóðin féllu, brutu þau niður 25—30 staura i raflin- um og rofnaði því straumurinn frá Mjólkárvirkjun og er allt svæðið fyrir norðan Önundar- fjörð án rafmagns frá virkjun- inni. Á Flateyri voru tvær dísil- rafstöðvar, en á mánudagskvöldið kviknaði í rafstöðvarhúsinu og brann rafall annarrar stöðvarinn- ar, þannig að aðeins hin er not- hæf. Sér hún Flateyri fyrir dá- litlu rafmagni og eru hús þar upp- hituð, en bæir i sveitinni eru gjör- samlega án rafmagns og eru margir óupphitaðir. Snjóflóð tók litla sjónvarpsend- urvarpsstöð, sem sett hafði verið upp til bráðabirgða fyrir nokkr- um árum, og bar út á sjó. Aðal- endurvarpsstöðin er hins vegar að Holti, en vegna rafmagnsleysis hafa önfirðingar hvort sem er ekki séð sjónvarp síðan á mánu- dagskvöldið. Frá þeim tíma var lika símasambandslaust að mestu til Reykjavikur þar til í gær. Gifurlegur veðurofsi var frá því á mánudag fram á miðvikudag. Ungur maður, sem farið hafði til gegninga á eyðibýli 1 sveitinni, varð að hirast þar i fjósinu í nær tvo sólarhringa, vegna veðurofs- ans. Viðgerðarflokkar komu i fyrra- dag með varðskipi og báti frá Þingeyri og Bíldudal og i gær frá ísafirði með póstbátnum. Eru við- gerðir á raflinum hafnar, en ganga erfiðlega vegna ófærðar- innar og af þvi að ekki eru til nægilega margir staurar. Kristján sagði, að enn væri hriðarbylur og enn væri mikil snjóflóðahætta. Hingað til hefðu íbúðarhús sloppið, en þau væru ennþá i mikilli hættu. Þýzka kvikmyndin (frá 1960) „Eln glass wasser” með Gustav Grúndgens, sýnd í Nýja bíó kl. 2 í dag. Germanía.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.