Morgunblaðið - 16.02.1974, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. FEBRUAR 1974
21
Ráðstefna sérfræðinga um
jarðskjálfta hér 1 sumar
Húsgagnasýning í
Laugardal í apríl
_ Félagsstarf
Sjálfstœðisflokksins
HAFHARFJORÐUR
Sjálfstæðiskvennafélagið Vorboði heldur fund i Sjálfstæðishúsinu
mánudaginn 1 8. febrúar kl. 8.30. Fundarefni:
Stefán Jónsson, bæjarfulltrúi, ræðir sveitarstjórnarmál.
Myndasýning.
Kaffidrykkja.
Eddu-konur úr Kópavogi koma i heimsókn.
Stjórnin.
Kópavogur
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna i Kópavogi er boðað til fundar í
Sjálfstæðishúsinu við Borgarholtsbraut, þriðjudaginn 19. febrúarn k
kl. 20.30.
Dagskrá:
1 formaður uppstillingarnefndar, gerir grein fyrir skoðanakönnuninni,
2. febrúar s.l.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Landsmálafélaglð Vðrdur
Vlðtalsthnl
Ragnar Júllusson, formaður Varðar verður til
viðtals á skrifstofu félagsins að Laufásvegi
46, þriðjudaginn 19. febrúar kl. 5—7 slðdeg-
Fyrirhugaðri ÁRSHÁTÍÐ HEIMDALLAR, sem halda átti í
SIGTÚNI í kvöld, 16. febrúar verður frestað til laugar-
dagsins 23. febrúar, vegna óviðráðanlegra orsaka.
FJÖLMENNIÐ þann 23. febrúar.
Skemmtinefndin.
VIÐTALSTIMI
o O
Alþingismanna og
borgarfulltrúa
stæðisflokksins
ykjavik
Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða til
viðtals á laugardögum frá kl. 14:00 til 16:00 i Galtafelli,
Laufásvegi 46.
Laugardaginn 16. febrúarverða til viðtals: Auður Auðuns, alþingis-
maður, Sigurlaug Bjarnadóttir, borgarfulltrúi og Baldvin Tryggva-
son, varaborgarfulltrúi.
MijpMSWI ' HOj
Iðnnemar krefjast aðildar að L.Í.N.
JULlUS Sólnes prófessor er
nýkominn heim frá Júgóslavíu,
þar sem hann hélt 1 sex vikur
fyrirlestra á vegum Sameinuðu
þjóðanna við háskólann 1 Skolpje,
en þar er fremsta deild í Evrópu,
er stundar frumrannsóknir á
jarðskjálftum og áhrifum þeirra
á mannvirki. Júlíus er þekktur
sérfræðingur í þeim fræðum og
stendur þar framarlega á alþjóða-
vettvangi. Hann skipulagði t.d. og
stýrði f fyrrasumar alþjóðlegri
ráðstefnu Izmfr í Tyrklandi um
jarðskjálftavandamái. Og í sumar
verður hér á Islandi önnur ráð-
stefna jarðskjálftafræðinga og
eðlisfræðinga um spennuástand í
ýmsum efnum og um jarðskjálfta
og veitir Júlíus henni forstöðu,
ásamt verkfræðideildarprófessor-
um frá Kaupmannahafnar-
háskóla. En UNESCO veitir til
þessa 26 þúsund dollara fjárfram-
lag.
Mbl. náði tali af Júlíusi Sólnes
og spurði hann nánar um þetta
efni. Hann sagði að ráðstefnan í
sumar yrði dagana 11. ti 120. ágúst
á Hótel Loftleiðum. Hún væri að
nokkru skyld annarri ráðstefnu,
sem hér yrði i byrjun júli og fjall-
aði um sprungumyndunina á jörð-
inni og jarðskorpuhreyfinguna.
Er ætlunin á síðari ráðstefnunni
að reyna að gera sér grein fyrir,
hvernig jarðskjálftar verða tiL
hvaða öfl leysa þá úr læðingi og
hvemig efni senda frá sér slíkar
bylgjur. 10 þekktir sérfræðingar i
þessum greinum koma hingað og
flytja fyrirlestra á ráðstefnunni.
Og einnig sækja fundinn jarð-
skjálftafræðingar og eðlisfræð-
ingar og aðrir, sem velta fyrir sér
spennuástandi i efnum yfirleitt.
Aðdragandi þessarar ráðstefnu
var ráðstefnan i Izmir i Tyrklandi
í júlí 1973, sem vísindanefnd Nato
styrkti, og sem Júlíus skipulagði í
samvinnu við tækniháskólann í
Ankara. Hana sóttu verkfræð-
ingar, sem fást við byggingar á
jarðskjálftasvæðum og vandamál
fólks á þéttbýlum svæðum, þar
sem jarðskjálftahætta er. Þar var
málefnið tekið fyrir á mjög breið-
um grundvelli, og með tilliti til
þess að byggingaryfirvöld land-
anna gætu framkvæmt langtíma-
skipulagningu á svæðunum með
tilliti til þessa vanda og einnig
komið upp almannavörnum, sem
bezt megi verða að liði. — Það
kom greinilega fram á ráðstefn-
unni í Izmir, að frumorsök jarð-
skjálftanna og spennuástandið í
berginu, sem er undanfari jarð-
skjálftanna er óþekkt, sagði
Júlíus Sólnes. Og það var allra
manna mál, að þetta vandamál
þyrfti að taka fyrir. Og þannig
fæddist hugmyndin um að efnatil
ráðstefnu, sem síðar var ákveðin i
Reykjavík í sumar.
í Skolpje í Júgóslavíu varð mik-
ill jarðskjálfti 1963, sem kunnugt
55 ára er í dag Svava Sigurðar-
dóttir, Varmalandi, Sandgerði.
Hún er þriðja barn foreldra
sinna, en alls urðu börnin tíu,
frumburðurinn drengur, er dó i
bemsku, en dæturnar níu, sem
allar eru á lífi.
Mér er ljúft að senda Svövu
kveðju á afmælisdaginn hennar,
svo margt höfum við átt saman að
sælda um dagana, og allar eru
minningarnar bjartar og góðar,
glaðværð og létt lund hafa ætið
prýtt Svövu og er þess vegna
yndislegt að vera i návist hennar.
Ekki er það þó svo, að hún hafi
alltaf gengið rósum stráðan veg á
lffsleiðinni. Þegar hún var um
tvftugt, veiktist hún og var lengi
alvarlega veik og lá þá á Vifils-
stöðum og síðan á heimili foreldra
sinna. Voru veikindi hennar þá
svo alvarleg, að henni var vart
hugað líf, en eftir nokkur ár
Próf. Júlfus Sólnes
er, og lagði borgina i rúst. Eftir
það var byggð upp við háskólann i
borginni, sem ber nafn höfunda
kyriliska stafrófsins, Kyrils og
Metods, sérstök jarðskjálftadeild.
Sú stofnun er einhver sú fremsta
i Evrópu og er i hraðri uppbygg-
ingu, sagði Július. Þarna fara
fram grundvallarrannsóknir á
jarðskjálftum og áhrifum þeirra á
byggingar, með tilliti til þess að
bæta byggingarhætti. Sameinuðu
þjóðirnar styðja þessa stofnun á
tvennan hátt. Annars vegar með
fjárframlögum til tækjakaupa og
fleira og hins vegar með þvi að
kosta sérfræðinga þangað til
rannsóknastarfa og fyrirlestra-
halds. Auk Júlíusar voru þar í
vetur indverskur prófessor og
rúmenskur prófessor á vegum
samtakanna.
Júlíus flutti fyrirlestra um
sveiflur á byggingarmannvirkj-
um í jarðskjálftum og í miklum
vindum. En hann hefur lagt stund
á þessa sérgrein í Kaupmanna-
höfn og Japan, og hefur staðið í
sambandi við flesta sérfræðinga á
Húsgagnameistarafélag Reykja-
víkur og Meistarafélag husgagna-
bólstrara efna til hús-
gagnasýningar í sýningarhöllinni
í Laugardal dagana 18. — 28.
apríl n.k.
Þetta er þriðja sýningin sem
ofangreind félög gangast fyrir
undir heitinu „Húsgagnavika" og
heimti hún heilsuna á ný og telja
margir kunnugir, það hreinasta
þessu sviði og hitt þá á ráðstefn-
um um þessi mál og víðar. Til
dæmis var hann á sérfræðinga-
fundi, sem efnt var til 1971 í
Banja Luca, sem hrundi í jarð-
skjálftum 1969. Og því hafa Sam-
einuðu þjóðirnar leitað til hans
um stjórnun funda og fyrirlestra-
hald.
— Siðustu árin hefur þekking
manna á áhrifum jarðskjálfta á
byggingar tekið miklum fram-
förum og möguleikar aukizt mjög
á því að geta tekið tillit til þess við
gerð mannvirkja, sagði Július.
Borgir, sem hafa orðið fyrir jarð-
skjálftum hafa verið mikið rann-
sakaðar og aflað þekkingar þaðan.
UNESCO hefur til dæmis strax
sent þangað fólk til að kynna sér
allar aðstæður. Samfara þessu
hafa farið fram grundvallarrann-
sóknir á áhrifum jarðskjálfta á
byggingar. Og á þennan hátt
glæðast vonir um, að hægí sé að
bæta úr hörmungum, sem gjarn-
an fylgja slikum jarðskjálftum.
Að vísu er aldrei hægt að byggja
það traust, að mannvirki standist
hörðustu jarðskjálfta, því það
yrði alltof óhagkvæmt frá fjár-
hagslegu sjónarmiði.
— Það var mjög fróðlegt að
dvelja við þessa stofnun i Skolpje,
sagði Júlíus að lokum. Makedonia
er frumstæður hluti af Júgó-
slavíu, og það vakti furðu mína,
hve miklar og góðar rannsóknir
eru unnar á jarðskjálftastofnun-
inni og hve mikið af hæfum
mönnum starfar þar. Hugmyndin
er að þarna verði höfuðstöðvar
þessara rannsókna i Evrópu. Það
verði skólastofnun, sem taki við
nemendum frá Evrópu i þessari
sérgrein. Þeir sækja þá námskeið
og fyrirlestra þangað i þeim fræð-
um. Og það er merkilegt, hve vel
er búið að byggja þarna upp og
athyglisvert hvernig Júgóslavar
gera það. Þeir eru með steyptar
byggingar eins og við og fróðlegt
að sjá, hve aðferðir þeirra virðast
fullkomnari en hér.
— E.Pá.
er tilgangur sýningarinnar eins
og áður sá, að gefa framleiðend-
um húsgagna og innréttinga kost
á að kynna nýjungar í framleiðslu
sinni fyrir húsgagnakaupmönn-
um og almenningi. Allir framleið-
endur húsgagna og innréttinga
geta tekið þátt í sýningunni, eftir
þvi sem húsrúm leyfir.
kraftaverk, varð heilsa hennar
svo góð, að hún gat farið að
stunda vinnu, sem var þá hvers
konar vinna við fisk svo sem vasR
og önnur kulsæl vinna, en heils-
an, sem hún hafði fengið, reynd-
ist svo vel, að Svava gat staðið við
hlið hinna hraustustu og stóð
þeim ekkert að baki.
Á þessum árum kynntist hún
ungum manni frá Færeyjum og
bundust þau tryggðaböndum og
stofnuðu heimili sitt i Sandgerði
og hafa búið þar æ síðan. Tvö
börn hafa þau hjón alið upp sem
sin eigin börn og eru þau bæði
uppkomin. Fyrir nokkru veiktist
Svava af öðrum sjúkdómi og varð
af þeim sökum að dvelja nokkra
mánuði á sjúkrahúsi en Ijúflyndi
sitt og lífsgleði missti hún ekki,
það var eins og hún virti sólina
alltaf fyrir sér á bak við skýin
hvað myrk sem þokan varð, enda
vann hún hylli allra,- sem ineð
henni voru, bæði sjúklinga og
starfsfólks. Ég veit, að það munu
margir senda henni hlýjar kveðj-
ur á þessum degi.
Vinkona.
A fundi sem iðnnemar héldu á
mánudaginn 11. febrúar sl. var
samþykkt ályktun þar sem þess
var krafist að iðnnemar í verk-
námsdeildum Iðnskólans í
Reykjavík fengju nú þegar á yfir-
standandi Alþingi aðild á Lána-
sjóði íslenskra námsmanna.
Á fundinum voru mættir full-
trúar Iðnnemasambands Islands
og fjölluðu þeir um lánasjóðinn
og frumvarp til laga um námslán
og námsstyrki, sem nú liggur
fyrir Alþingi. Einnig fjölluðu þeir
um þær breytingar, sem nú eiga
sér stað í iðnnámi i þá átt að
leggja niður meistarakerfið, þ.e.
nám á vinnustað, og færa námið
inn í iðnskólana.
IfífirfjimMaöitJ
margfaldar
marhoð yðar
Afmœli:
Svava Sigurðardóttir