Morgunblaðið - 16.02.1974, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. FEBRUAR 1974
31
Þróttur leikur heima-
leiki sína á eigin velli
MEISTARAFLOKKUR Þróttar
mun ekki leika sína heimaleiki í
2. deildinni i knattspyrnu á Mela-
vellinum, eins og Reykjavíkur-
félögin í 2. deild hafa gert.
Hyggjast Þróttarar nýta sinn
eigin heimavöll við Sæviðarsund
undir heimaleikina. Sagði Helgi
Þorvaldsson stjórnarmaður í
Þrótti í viðtali við Morgunblaðið
að ástæðan fyrir því að þeir vildu
frekar leika á eigin velli en
gamla Melavellinum, væri sú að
þeir væru búnir að fá Ieið á að
borga með sér ár eftir ár á Mela-
vellinum. Þeir vildu heldur leika
á raunverulegum heimavelli eins
og utanbæjarfélögin í 2. deild.
Guðbjörn Jónsson hefur verið
endurráðinn þjálfari Þróttar
þriðja árið í röð. 20 ár eru nú liðin
frá því að Guðbjörn þjálfaði fyrst
hjá Þrótti og hefur Guðbjörn yfir-
leitt náð mjög góðum árangri með
Þrótt.
Þróttur á 25 ára afmæli í ár og
munu Þróttarar minnast þeirra
timamóta á veglegan hátt. Valur
og Þróttur eiga sameiginlega rétt
á að taka upp lið i sumar, en óvist
er hvort af nokkurri heimsókn
verður. Reynt hefur verið að fá
rússneskt lið til að koma hingað,
en Sovétmenn eru ekki hrifnir af
frammistöðu sinna knattspyrnu-
manna undanfarið og vilja halda
þeim á heimavígstöðvum.
Franska 2. deildar liðið
Valencia sýndi áhuga á að koma
hingað sfðastliðið haust og svo
kann að fara að þeir komi hingað
i sumar.
70 ungmenni í Breið-
holtshlaupi IR-inga
ANNAÐ Breiðholtshlaup ÍR á
þessum vetri fór fram sl. sunnu-
dag, 10. febrúar, og mættu þar 70
unglingar til leiks og luku allir
hlaupinu, þrátt fyrir að færð væri
mjög slæm og margir fenju byltu
á leiðinni. Setti bekkjadeilda-
keppni Breiðholtsskólanna tölu-
verðan svip á hlaupið, en í þeirri
keppni hefur 3. bekkur A í Breið-
holtsskólanum tekið góða forustu,
er með 12 stig, en næstir eru 1.
bekkur B og 8. bekkur H, sem
báðir hafa 5 stig.
Beztum tíma einstaklinga í
hlaupinu náðu þau Asgeir Þór
Eiríksson, sem hljóp á 2,59 mín.,
og Anna Haraldsdóttir, sem hljóp
á 3,16 mín., en þau eru bæði fædd
1959.
Helztu úrslit í hlaupinu urðu
F. 1965:
Þórður Þorbjarnarson 4,05 mín.
Guðm. Guðmundsson 4,35 mín.
Hlynur Elísson 4,35 mín.
F. 1966:
Aðalsteinn Björnsson 4,25 mín.
Anton Kjartanssqn 4,30 mín.
Ragnar Baldursson 4,41 mín.
Valsmenn mæta tR-ingum í 1. deildinni í körfuknattleik og ekki er
ólíklegt að Valsmiinnum takist aðsigra — myndin er úr leik Valsog
Ármanns sem fór fram fyrir nokkru síðan.
Hvað gerir ÍR gegn VAL?
Stór helgi framundan hjá körfuknattleiksmönnum
annars þessi:
STULKUR:
Faiddar 1959:
Anna Haraldsdóttir 3,16 min.
Dagný Pétursdóttir 3,30 mín.
Gunnhildur Hólm 3,58 mín.
F. 1961:
Guðlaug Jóhannesdóttir 4,07 mín.
F. 1962:
Sigríður Ólafsdóttir 4,02 mín.
F. 1964:
Sigurbjörg Vignisdóttir 4,28 mín.
Eva Ingvadóttir 4,41 min.
Þórey Eyjólfsdóttir 5,00 mín.
F. 1965:
Margrét Björgvinsdóttir 4,26 mín.
Kolbrún Jóhannesdóttir 5,09 mín.
F. 1966:
Margrét Helgadóttir 5,19 mín.
PILTAR:
F. 1967:
Ólafur Asberg 5,49 mín.
Helgi Loftsson 6,18 mín.
F. 1968:
Lárus Ólafsson 5,22 mín.
F. 1958:
Loftur Leifsson 3,35 min.
F. 1959:
Ásgeir Þór Eirfksson 2,59 min.
Óskar Thorarensen 3,00 mín.
Gunnar G uðlaugsson 3,41 mín.
F. 1960:
Sigurður Haraldsson 3,20 mín.
Jörundur Jónsson 3,27 mín.
F. 1961:
Magnús Haraldsson 3,15 mín.
Björn Ómar Pétursson 3,47 mín.
Sigurfinnur Sigurgeirss. 3,51 min.
F. 1962:
Atli Þór Þorvaldsson 3,09 min.
Karl Logason 3,19 mín.
Öskar Þorsteinsson 3,46 mín.
F. 1963:
Ásmundur E. Ásmundss.3,26 mín.
Kristján Ólafsson 4,18 mín.
F. 1964:
Guðjón Ragnarsson 3,21 mín.
Haukur Magnússon 3,45 mín.
Jónatan Þórðarsson 3,52 fnín.
UM HELGINA verður mjög mik-
ið um að vera hjá körfuknatt-
leiksmönnum. Alls fara fram 15
leikir í tslandsmótinu, þar af 4 í
1. deild, og þrír í 2. deild. Leikið
verður í þremur íþróttahúsum, á
Seltjarnarnesi, í Njarðvfk, og í
KR-heimi linu.
Seltjarnarnes í dag kl. 16
Fýrst leika Ármann og HSK i 1.
deild. Ármann ætti vissulega að
vinna þennan leik, liðið er nú í
góðri æfingu, og liðsmenn hafa
örugglega í hyggju að fylgja eftir
sigrinum 'gegn IR um síðustu
helgi. — Að leik Armanns og
HSK loknum hefst svo aðalleikur
helgarinnar, og eigast þar við IR
og Valur. Valsmenn hafa örugg-
lega í hyggju að leika eftir leik ÍS
og Armanns, enda myndi sigur
Vals gera stöðu liðsins í deildinni
verulega góða. Þeir væru þá bún-
ir með leiki fyrri umferðarinnar
og kæmu út með aðeins eitt tap,
— gegn KR. Þann mun hefði liðið
svo möguleika á að vinna upp í
síðari umferðinni. ÍR sigur í dag
gerir stöðu KR á toppnum mjög
góða, þannig að ekkert nema
kraftaverk gæti komið í veg fyrir
að liðið ynni mótið. En iR-ingar
sem nú hafa endurheimt Anton
Bjarnason ætla sér örugglega
ekki að tapa fleiri leikjum f bráð,
ósigur liðsins gegn Val myndi
endanlega gera vonir liðsins um
að verja islandsmeistaratitilinn
að engu.
Um kl. 19 fer svo fram leikur i
2. deild, UBK og Snæfell leika, og
má gera ráð fyrir auðunnum sigri
Snæfells.
Njarðvík í dag kl. 14
Fyrst leika UMFN og UMFS í 1.
deild, og er óhætt að bóka tvö stig
fyrirfram hjá UMFN, nema að
UMFS liðið hafi notað þann langa
tima frá síðasta leik sinum vel, og
liðinu hafi farið allverulega fram.
Síðan leika i 2. deild UMFG og
I.M.A. og má búast við hörkubar-
áttu þar.
Njarðvík á morgun kl. 14
FjTst leika Valur og UMFS, og
er varla að vænta nokkurs spenn-
ings i sambandi við þann leik. Að
þeim leik loknum leika í 2. deild
UMFG og Snæfell, óg má búast
við jöfnum leik, þótt e.t.v. líti
Snæfell sigurstranglegar út.
Heimavöliurinn ætti að hjálpa
UMFG talsvert i þessuin leik.
Það er því úr ýmsu að velja
fyrir þá sem vilja sjá körfubolta
um helgina, og línurnar í 1. deild
ættu að skýrast eitthvað
gk.
STAÐAN
Staðan 1 1. deild karla:
FH 11 11 0 0 260:185 22
FRAM 12 6 3 3 261:230 15
VALUR 11 6 2 3 216:197 14
Víkingur 12 5 2 5 262:260 12
Haukar 11 2 4 5 201:233 8
Armann 10 2 3 5 147:161 7
IR 11 2 3 6 213:236 7
Þór 10 1 1 8 181:239 3
Markahæstir:
Áxel Axelsson, Fram 98
Einar Magnússon, Vfkingi 86
Viðar Sfmonarson, FH 74
Hörður Sigmarsson, Haukum
73
GunnarEinarsson, FH 70
Stigahæstir f einkunnagjöf
blaðamanna Morgunblaðsins,
leikjafjöldi f svigum:
Viðar Sfmonarson, FH 37 (11)
Axel Axelsson, Fram 35 (12)
Björgvin Björgvinsson, Fram
32 (12)
GunnarEinarsson, FH 32 (11)
Ragnar Gunnarsson, Armann
31 (10)
1. DEILD KVENNA:
Fram
Valur
FH
Armann
KR
Víkingur
Þór
6 6 0 0
6 5 0 1
7 3 13
6 3 12
5 2 0 3
6 10 5
6 0 0 6
81:48 12
97:68 10
95:88
75:72
56:62
56:77
57:93
MARKAHÆSTAR 1 DEILD-
INNI ERU EFTIRTALDAR:
Sigrún Guðmundsdóttir, Val
45
Svanhvft Magnúsdóttir, FH 37
Agnes Bragadóttir, Víkingi 33
Erla Sverrisdóttir, Armanni
33
Guðrún Sigurþórsdóttir Ar-
manni 26
Arnþrúður Karlsdóttir, Fram
24
Anna Gréta, Þór 21
Hjördís Sigurjónsdóttir, KR
19
STAÐAN 12. DEILD KARLA:
Þróttur 11 9 0 2 241:194 18
KR 11 8 0 3 279:190 16
Grótta 9 7 0 2 221:188 14
KA Breiða- 11 6 1 4 267:248 13
blik 10 5 0 5 215:217 10
ÍBK 11 4 1 6 208:159 9
Fylkir Völsung- 10 2 0 8 204:229 4
ur 11 0 0 11 184:257 0
MARKAHÆSTIR 1 DEILD-
INNI:
Brynjólfur Markússon, KA 95
Haukur Ottesen, KR 86
Björn Pétursson, Gróttu 62
Einar Einarsson, Fylki 62
Hörður Harðarson, Breiðabliki
59
MT vann mót skólanna í
handbolta
LIÐ Menntaskólans við Tjörnina
sigraði i skólamóti i handknatt-
leik, sem lauk í síðustu viku,
„Tirningar" unnu Veslinga"
með 10 mörkum gegn 9 í úrslita-
leiknum, eftir að staðan hafði ver-
ið 6-5 í léikhléi. Verzlunarskólinn
hefur unnið mót þetta síðastliðin
ár. i liði MT eru margir knáir
handknattleiksmenn og eru þeir
Stefán Halldórsson, Víkingi, Guð-
jón Marteinsson og Hörður Haf-
steinsson, ÍR, fremstir í flokki. I
liði Verzlunarskólans eru meist-
araflokksleikmennirnir Haukur
Ottesen, KR og Jóhann Ingi
Gunnarsson, Val, atkvæðamestir.
Síðasta von Þórs
Akureyringar mæta IR-ingum fyrir norðan í dag
Grótta og KR leika í 2. deild á morgun
Ármann
AÐALFUNDUR Frjálsiþrótta-
deildar Ármanns verður haldinn
á morgun, sunnudaginn 17. febrú-
ar, i Ármannsheimilinu við Sig-
tún. Fundurinn hefst klukkan 14
og fundarefni er venjuleg aðal-
fundarstörf.
Heimsmet
15 ÁRA bandarísk skólastúlka,
Mary Decker að nafni, setti nýtt
heimsmet í 880 yarda hlaupi inn-
anhúss á móti, sem fram för ný-
lega í Los Angeles. Hljóp hún
vegalengdina á 2:06,7 mfn. Eldra
heimsmetið, sem var 2:07,3 mín.
var i eigu Madeleine Manning og
Doris Brown.
Á sama tíma sigraði hinn tví-
tugi piltur, Tony Waldrop í mílu
hlaupi á 3:58,3 mín., en Steve
Prefontaine varð annar á 3:59,5
mín. Þriðji i hlaupinu varð John
Walker frá Nýja-Sjálandi, sá er
nýlega hljóp vel undir heimsmet-
inu í 1500 metra hlaupi.
ÞÓRSARAR leika þýðingarmik-
inn leik í 1. deildinni i handknatt-
leiknum í dag er þeir mæta ÍR-
ingum í tþróttaskemmunni á
Akureyri. Þórsliðið er nú eitt og
yfirgefið á botni dcildariiinar.cn
liðið á þó enn eftir fjóra leiki, svo
ekki er öll nótt úti enn. tR-ingar
hafa hlotið sjö stig og sömuleiðis
Ármenningar, en við síðarnefnda
liðið leikur Þiir á þriðjudags-
kvöldið. Leikurinn á Akureyri
hefst klukkan 16.30 í dag og vinni
Þör leikinn eiga þeir enn von um
að hanga uppi í deildinni.
Valsstúlkurnar halda einnig
norður yfir fjöll i dag og leika við
Þór, en Þórsstúlkurnar eru i
sömu stöðu og karlaflokkur
félagsins. Hæpið verður að telja
að norðanstúlkurnar geti sigrað
Valsliðið, sem þekkt er fyrir allt
annað en að gefa eftir fyrr en i
fulla hnefana.
Um klukkan 15 á sunnudaginn
hefst leikur Breiðabliks og ÍBK i
2. deild karla og fer ieikurinn
fram á Seltjarnarnesi. Sá leikur
hefur enga úrslitaþýðingu á toppi
eða botni 2. deildar, en það sama
verður ekki sagt um leikinn sem
fram fer að honum loknum. Það
er einn af úrslitaleikjum deildar-
innar, leikur Gróttu og KR. Erfitt
er að spá um úrslit í þessum
mikilvæga leik, KR-ingar uhnu að
vísu ’fyrri leikinn með yfirburð-
um, en. nú hafa Gróttumenn
heimavöllinn með sér.
A mánudagskvöldið fer fram
einn leikur í 2. deild kvenná og
tveir i 1. deild kvenna, Armann
mætir FH og Fram leikur gegn
KR. Leikkvöldið hefst klukkan
20.00.