Morgunblaðið - 10.03.1974, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. MARZ 1974.
' 7-y
Kortsnoj sigraði Mecking
— e6, 4. c4 — exd5, 5. cxd5 —
d6, 6. Rc3 — g6, 7. e4 — Bg7, 8.
Be2 — 0-0, 9. 0-0 — He8, 10.
EINS og komið hefur fram 1
fréttum lauk einvfgi þeirra
Victors Kortsnoj og Henrique
Mecking, sem fram fór í borg-
inni Augusta f Bandarfkjunum,
með sigri hins fyrrnefnda.
Kortsnoj vann þrjár skákir,
Mecking eina og níu urðu jafn-
tefli. Sigur Kortsnoj var aldrei
í hættu, en hins vegar verður
það að segjast að oft hefur
hann teflt betur en nú. Svo
virðist sem hann hafi fyrst og
fremst teflt uppá afieiki and-
stæðingsins, hann beið yfirleitt
rólegur eftir afleikjum Meck-
ings, þangað til hann var kom-
inn í taphættu. Þá fór hann að
tefla og Mecking lék af sér.
Mecking kom auðsjáanlega
mjög vel undirbúinn til einvfg-
isins, hann tefldi af miklum
krafti framan af og náði oft
mjög góðum stöðum, en þá
brást honum bogalistin, Korts-
noj rétti úr kútnum og í þrem
skákum tókst honum að sigra,
eins og fyrr segir. Við skulum
nú lfta á 13. og síðustu skákina
í einvíginu, hún er að ýmsu
leyti dæmigerð gang mála í ein-
vfginu.
Hvítt: V. Kortsnoj.
Svart: H. Mecking.
Benónfvörn
1. d4 — Rf6, 2. Rf3 — c5, 3. d5
Rd2 — Rdb7.
(Mecking fylgir forskrift
heimsmeistarans, en hér er
einnig leikið 10. —b6, ásamt
Ra6 — c7).
11. Dc2
(Til greina kom einnig 11. a4).
11. — Re5,
(Önnur leið er 11. — Rh5, sbr.
3. skákina í heimsmeistaraein-
víginu 1972).
12. b3
(Með þessari uppbyggingu
hyggst hvítur ná góðum tökum
á skálínunni al — h8. Annar
góður möguleiki var hér 12. h3
ásamt f4).
12. —g5!
(Með þessum sterka leik trygg-
ir svartur sér frumkvæðið i
skákinni. Nú verður riddarinn
ekki hrakinn frá e5).
13. Bb2 —g4, 14. Hfel
(Til álita kom einnig 14. a4).
14. — Rh5, 15. Rdl — Rf4, 16.
Bb5! — Hf8,
(Ekki 16. — Bb7 vegna 17.
Bxd7 — Dxd7, 18. Bxe5! —
Bxe5, 19. Hacl ásamt Re3 og
Rf5 með betri stöðu á hvítt).
17. Re3 — Dg5,18. Rf5?!
(Kortsnoj hefur aldrei verið til
vandræða hugdeigur og nú
finnst honum sem timi sé kom-
inn til að láta til skarar skríða.
Þessi leikur leiðir skemmti-
legra sviptinga, en öruggara
var þó 18. Hadl).
18. — Bxf5, 19. exf5 — Red3?!,
(Hér kom e.t.v. ekki síður til
greina að leika 19. — Rh3+, eða
19. — Rf3 +).
20. Bxd3 — Bxb2, 21. Hadl —
Bd4,
(Svartur teflir eðlilega til vinn
ings, en hér gat hann tryggt sér
jafntefli með 21. — Rh3+. T.d.
22. Kfl — Rxf2, 23. Kxf2 —
Bd4+ 24. Kg3 — h5! Eða 22.
gxh3 — gxh3+, 23. Kfl —
Dg2+ 24. Ke2 — Dg4+ og nú á
svartur þráskák, þar sem 25.
Rf3 gengur ekki vegna He8+,
26. Kd2 — Db4 + ).
22. Re4! — Dxf5, 23. Rg3 —
DgS,
(Ekki 23. —Dxd5 vegna 24.
Bxh7 + — Kh8, 25. Be4).
24. Bxh7+ — Kh8, 25. Df5 —
Dh6?,
(Hér teygir svartur sig helztil
langt. Eftir 25. — Dxf5, 26.
Bxf5 — Rxd5, 27. Bxg4 stæði
hvítur að vfsu betur, en þó væri
enn hald í svörtustu stöð-
unni).
26. Dxg4! — Rxg2?,
(Betra var26. — Be5).
27. Kxg2 — Dxh7, 28. He7!
(Nú hefur hvitur náð afgerandi
yfirburðum).
28. — Hg8, 29. Df4 — Be5, 30.
Df3
(Enn sterkara en 30. Dxf7).
30. Hg7, 31. Hxb7 — Dc2, 32.
Hel — Kg8, 33. He4!
(Nú hlýtur svarta kóngsstaðan
að hrynja 1 fáum leikjum, lokin
þarfnast ekki skýringa).
33. — Hf8, 34. Hg4 — Dxa2, 35.
Rf5 — Hxg4+, 36. Dxg4+ —
Kh7, 37. Dh5+ — Kg8, 38.
Rh6+ — Kg7, 39. Rxf7 — Hg8,
40. Rxe5+ — Kf6+, 41. Rg4 +
— Hxg4, 42. Dxg4 og svartur
gafst upp.
Jón Þ. Þór.
Sýning Pierre V ogel
UNGUR svissneskur myndlistar-
maður, Pierre Vogel aðnafni.sýnir
þessa dagana í nýjum sýningar-
sal, sem hlotið hefur nafnið
Gallery Skipholt 37, en salurinn
mun jafnframt vera vinnustofa
Kára Eiríkssonar listmálara.
Er hér um að ræða litla og lát-
lausa sýningu tveggja tuga mál-
verka og teikninga. Málverkin
hafa yfir sér í senn ljóðrænt sem
surrealistískt yfirbragð, eru unn-
in i hóflegum yfirlætislausum lit-
um með mikilli nákvæmni og
Nlyndlist
eftir BRAGA
ÁSGEIRSSON
natni. Þó að þessi sýning segi ekki
mikið um listamanninn þá er auð-
séð að hér er hæfileikamaður á
ferð, sem lifir og hrærist í eigin
og persónumótuðum myndheimi,
og það er rétt með farið 1 sýn-
ingarskrá, að, ef hann hefur verið
undir miklum áhrifum frá Klee,
Max Ernst og Kandinsky 1 upp-
hafi; þá eru þau áhrif burtþurrk-
uð, því að þau eru ekki finnanleg
á þessari sýningu að mínum dómi.
I sambandi við þessa sýningu er
einn ljóður á máli, sem er sá, að
málverkin komast ekki vel til
skila til áhorfandans með þessa
fínu harðviðarveggi sem bak-
grunn, til þess eru þau of fíngerð
en veggirnir hinsvegar fram-
þrengjandi, hinn svarti dúkur á
einum veggnum bætir ekki mikið
um. Teikningarnar komast hins
vegar betur til skila og eru sumar
mjög áhugaverðar og vel gerðar,
og bera vott um næma tilfinningu
fyrir eðli línunnar en það er alltof
sjaldan sem mönnum gefast tæki-
færi til að sjá slík vinnubrögð í
teikningu hérlendis, málverkið
yfirgnæfir hér allt.
Ég játa, að ég spái þessu galleríi
ekki langra lífdaga að óbreyttu,
en strigaklæðning veggja myndi
þó bæta úr miklu til betri vegar.
Að öllu samanlögðu var við-
kynningín við verk Pierre Vogel
mér ákaflega geðþekk, og ég hefði
viljað sjá fleiri verk hans í um-
hverfi, sem hefði betur haldið sér-
kennum þeirra fram.
Bragi Asgeirsson.
Willij Rasmus-
sen sjötugur
MANUDAGINN 11. marz nk.
verður Willy Rasmussen,
Adolphsvej 42, Gentofte, 70 ára.
Willy er kvæntur íslenzkri konu,
Ingunni Halldóru Ingimundar-
dóttur frá Kletti í Gufudalssveit.
Vegna langdvalar á Islandi og
tengda ann hann landi og þjóð og
á hér fjölda vina.
Við störf sín hjá Blauenfeldt &
Tvede um áratugabil sem sölu-
stjóri og nú hin síðari ár sem
forstjóri fyrirtækisins hefur hann
ferðazt víða um lönd og m.a. oft
komið til Islands á vegum þess.
Að auki eru ótaldar þær ferðir
hingað til lands, sem þau hjónin
hafa tekið sér á hendur til að
heimsækja ættingja og vini og
ferðast um landið.
Með þessum skrifum er ekki
ætlunin að rekja æviferil Willys,
aðeins að víkja að þeirri hlið í farí
hans, sem snýr að okkur kunn-
ingjum hans á íslandi. Fyrir
mörgum hér er borg eins og Stór-
Kaupmannahöfn einna líkust
frumskógi, sem erfitt er að rata í,
þegar komið er þangað í fyrsta
sinn. Undir slíkum kringumstæð-
um er notalegt að geta leitað til
manna eins og Willys og konu
hans.
Þeir eru margir landarnir, sem
hafa hlotið fyrirgreiðslu, þegið
góð ráð og gist á heimili þeirra
hjóna við Adolphsvej. Það er hátt-
ur margra að rifja upp liðna tíð á
tímamótum í lífi manna. Við slíka
upprifjun kemst sá, sem þetta rit-
ar, ekki hjá því að minnast fjölda
ánægjulegra samverustunda með
þeim hjónunum, ekki sízt á ferða-
lögum með þeim hér heima og
erlendis. A ferðalögum nýtur
Willy sín hvað bezt, þá kemur vel
fram, hversu frábær félagi hann
er og um leið hrókur alls fagnaðar
í vinahópi. Kemur þar til hans
góða menntun, tónlistargáfa og
skemmtilegt viðhorf til lífsins.
Okkur, sem til Willys þekkjum, er
það alltaf tilhlökkunarefni, þegar
von er á þeim hjónum til tslands.
Lætur oft nærri, að rifizt sé um
tíma þeirra hér heima, því að svo
margir eru þeir, sem vilja njóta
samvista við þau.
Willy, um Ieið og við þökkum
skemmtilegar samverustundir,
óskum við þér velfarnaðar um
ókomna tíð og erum þess fullviss,
að margir munu senda þér kveðj-
ur á afmælisdegi þínum þann 11.
marz. Lifðu heill.
G.Kr.