Morgunblaðið - 10.03.1974, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 10.03.1974, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. MARZ 1974. 47 Brecht og sviðstækni á norr- ænu leiklistarnámskeiði NORRÆNU Leiklistarnám- skeiðin 1974 svokölluð VASA- SEMINARIER verða haldin í Björgvin og Alaborg í maílok. Hér er um að ræða tvö nám- Símastrengur til Selfoss bilaði I FYRRINÓTT bilaði simastreng- urinn frá Reykjavík til Selfoss og varð við það sambandslaust við höfuðborgina allt sjálfvirka kerf- ið með svæðisnúmer 99, þ.e. á Suðurlandi, og einnig nánast allar sveitastöðvarnar á því svæði. Sel- foss hafði þó samband við Reykja- vík um eina eða tvær línur gegn- um Þingvelli. Bilunin varð í Ár- bæjarhverfinu. Prófkjör 1 Miðnes- hreppi SJÁLFSTÆÐIS- FÉLAG Miðneshrepps gengst fyrir prófkjöri til uppstillingar á lista fyrir væntanlegar hreppsnefndarkosn- ingar. Prófkjörið fer fram dagana 9.—11. marz. Þeir stuðnings- menn, sem ekki hafa fengið senda lista, en hafa áhuga á því að taka þátt í prófkjörinu, geta vitjað þeirra í leikvallarhúsinu í Sandgerði sunnudag- inn 10. marz milli klukkan 2—5 eða haft samband við Kára Snæbjörnsson raf- virkjameistara. skeið, og hefur hið fyrra yfir- skriftina ,,að leika Breeht'* og er fyrst og fremst ætlað leikurum og fjallar um kenningar Brechts og notagildi þeirra 1 nútíma leiklist. Þátttakendum gefst tækifæri til að sjá sýningar Berliner Ensemble, sem verða í Björgvin á sama tíma. Kennarar verða Ecke- hard Schall. Gisela May, Paul Dessau og Therese Giehse, en Kalf Lángback stýrir námskeið- inu, sem stendur yfir dagana 21. til 27. maí. Hitt námskeiðið nefndist „sviðstækni 74“ og er fyrst og fremst ætlað sviðstæknimönnum og ljósatæknimönnum, en einnig leikmyndateiknurum og leikstjór- um. Leiksviðsstjórinn í Malmö, Miklos Olveczky stjórnar þessu námskeiði sem er tengt fyrstu alþjóðlegu sviðstæknisýningunni, sem haldin verður í Alaborg um sama leyti. Námskeiðið stendur dagana 22. til 27. maí. Nánari upplýsingar gefur full- trúi Islands í Vasanefndinni, Sveinn Einarsson í Þjóðleikhús- inu. Umsóknir skulu stílaðar til hans fyrir 15. apríl n.k. — Samningar Framhald af bls. 48 55.915 kr., en hjá vélstjórum 62.907 kr. Nú hefði verið miðað við hærri töluna og hún hækkuð um 21,6%, þannig að skipstjórar, stýrimenn og vélstjórar fengju nú allir um 76 þús. kr. Þá var samið um hækkun á fæðisdagpeningum úr 210 kr. í 320 kr. á skipum 150 lestir að stærð og yfir og úr 175 kr. í 240 kr. á skipum frá 12 til 150 lestir. „Ef vel er farið með matinn, á þetta að koma næstum því út sem frftt faeði," sagði Loftur. Þá var einnig samið um tíðari greiðslur og uppgjör fyrir veiðarnar og tíminn frá lokum tryggingatímabils til lokaupp- gjörs styttur. Einnig komu inn 1 samningana ákvæði um flotvörpu- veiðar, þ.e. spærlings-, kolmunna- og loðnuveiðar. Robert Reynir Hafliði Þorkels-tónleikar í Austurbæjarbíói TÓNLISTARFÉLAGIÐ gengst fyrir næsta nýstárlegum tónleik- um annað kvöld 1 Austurbæjar- bíói, þar sem einungis verða flutt verk eftir Þorkel Sigurbjörnsson f umsjá tónskáldsins. Hefjast tón- leikarnir kl. 7. Flytjendur á tónleikunum eru Hafliði M. Hallgrímsson, celló, Reynir Sigurðsson, slaghljóðfæri, Robert Aitken, flautuleikari, og Þorkell sjálfur, sem leikur á píanó. Eins og áður segir eru öll verk- in á efnisskránni eftir Þorkel og eru þrjú af þeim frumflutt, en öll eru verkin ný og ekkert þeirra hefur verið flutt hér á landi áður. Verkin eru: Skiptar skoðanir, fyr- ir flautu, celló og pianó; Mild und (Meistens) Leise, fyrir celló; For Réne — fyrir flautu, celló, píanó og slaghljóðfæri, Eftir hlé eru eft- irtalin verk: Síðasta lag fyrir fréttir, en það er verk fyrir segul- band; og Hylling, sem er samið fyrir flautu, píanó, celló og slag- hljóðfæri og er ætlazt til, að áheyrendur taki þátt i því verki og syngi hver með sínu nefi. Þessir tónleikar eru í hópi þeirra tónleika, sem Tónlistar- félagið heldur í tilefni af þjóð- hátiðarárinu. — Ráð eða ekki ráð Framhald af bls. 2 barnaefni í sjónvarpi, frá 5. marz 1974, þar sem fjallað er um kristniboðsstarf í Konsó. Fundinn sátu Hermann Ragnar Stefáns- son, Kristín Pálsdóttir, Sig- mundur Örn Arngrímsson, Sigríð- ur E. Guðmundsdóttir, Sigrún Júlíusdóttir og Þórunn Sigurðar- dóttir. (Sigmundur, Sigrún og Þórunn skipa ráðið, sem svo er hér kallað — aths. Mbl.) „Eftir að hluti ráðsins hafði séð umrædda upptöku mánudaginn 4. mars og allir meðlimir síðan fjall- að ýtarlega um handritið, var samþykkt, eftir miklar umræður, að formála sögunnar yrði sleppt en sagan stæði óbreytt. Ástæður fyrir þessari samþykkt eru: 1. Orðalagið, einkum í formál- anum, teljum við villandi, þar sem það gefur til kynna, að fá- tækt og fáfræði Konsóbúa sé að rekja til trúarbragða þeirra. 2. Þá teljum við einnig villandi að láta að því liggja, að erfiðara sé fyrir heiðingja að mæta erfiðleik- um, en þá, sem trúa á Jesúm Krist. 3. Börn eru öðrum fremur mót- tækileg fyrir áhrifum. Að okkar dómi, á því efni, sem ætlað er börnum, ekki að vera byggt á órökstuddum staðhæfingum né vera villandi um menn eða mál- efni. Sérstaklega ber að hafa þetta í huga, þegar fjallað er um framandi þjóðir og kynþætti, lifnaðarhætti manna, stjórnmála- skoðanir og trúarathafnir og trú- arbrögð.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.