Morgunblaðið - 10.03.1974, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. MARZ 1974.
39
Sprengja
í Hvíta
húsinu?
Washington, 7. marz. AP.
SPRENGJUHÓTUN kom af sta<5
víðtækri sprengjuleit í Hvfta
húsinu, en engin sprengja fannst
í fyrstu leitinni.
Maður sem sagði ekki til nafns
sagði í síma að sprengju hefði
verið komið fyrir þar sem blaða-
menn hafa aðsetur í Hvfta
húsinu. Sprengjunnar var leitað
bæði þar og annars staðar í
húsinu.
Fólk var ekki flutt úr bygging-
unni og störf Nixons forseta
trufluðust ekki.
Kvartað undan
illri meðferð
á Gyðingum
Sameinuðu þjóðunum,
New York, 8. marz. AP.
AÐALFULLTRÚI ísraels hjá
Sameinuðu þjóðunum, Yosef
Tekoah, lagði í dag fram kvörtun
við Kurt Waldheim, fram-
kvæmdastjóra S.þ., þess efnis, að
Gyðingar í Sovétríkjunum væru
iðulega fangelsaðir fyrir engar
sakir eða reknir úr störfum eða
skólum, ef þeir sæktu um að fá
leyfi til að flytjast búferlum til
Israel. Undir skjalið skrifaði 181
Gyðingur úr fjölmörgum borgum
Sovétríkjanna.
Nemendur með ævin-
týraleik um Austfirði
Fáskrúðsfirði — 8. marz.
NEMENDUR í gagnfræðaskól-
anum á Búðum í Fáskrúðsfirði
frumsýndu sl. laugardag ævin-
týraleikinn Undraglerin eftir
Óskar Kjartansson við góðar
undirtektir áhorfenda. Leikstjóri
er Einar Þorbergsson. Næstu sýn-
ingar verða á Reyðarfirði á morg-
un, laugardag, og á Egilsstöðum á
sunnudag.
— Fréttaritari.
Innbrot aðra nóttina
í röð á sama stað
AÐFARARNÓTT föstudags var
brotizt inn i nýju Vífilfellsverk-
smiðjuna (Coca Cola) á Drag-
hálsi við Arbæjarhverfi, en litlu
stolið. Einnig var brotizt inn í
Knattborðsstofuna í Einholti aðra
nóttina i röð og stoiið skiptimynt.
Rimlar eru fyrir gluggum á bak-
hliðinni, en á einum stað vantaði
einn rimil — og þá var ekki að
sökum að spyrja.
„Barnatíma-
ráðið”
VEGNA fréttar Mbl. i gær um
tilraunir til ritskoðunar á efni i
barnatíma sjónvarpsins, skal þess
getið, að sú þriggja manna ráðgef-
andi nefnd, sem gerði athuga-
semdir við efni þáttarins frá
Konsó, þar sem rætt var um
kristindóm og heiðindóm, er skip-
uð þremur aðilum, sem eru: Þór-
unn Sigurðardóttir leikkona,
Sigrún Júlíusdóttir félagsráðgjafi
og Sigmundur Örn Arngrimsson
leikari.
Nefnd þessara þriggja aðila
hefur verið kölluð „starfshópur
til ráðuneytis um val barnaefnis“,
en sjálf hefur hún kallað sig
„barnatímaráð". Upphaflega er
þessi nefnd ekki skipuð af Út-
varpsráði og átti aðeins að vera til
ráðuneytis um efnisval í barna-
tíma sjónvarps með tillögurétti,
en engum ákvörðunarrétti. Var
Þórunn fengin sem ráðgjafi, en
hún fékk þau Sigrúnu og Sig-
mund sér til aðstoðar.
Lelklélag Olafsvlkur sýnir sakamálaleikritið Músagildruna eftir Agöthu Christie í Félagsheimilinu á Seltjarnarnesi, sunnudaginn 10 marz kl. 21 00. Leikstjóri Benedikt Árnason. Miðasala frá kl. 5. Simi 22676. Leikfélag Ólafsvíkur.
Skrlfstoiuhúsnæðl 2 góð skrifstofuherb. óskast, helzt í úthverfum Reykjavík- ur, Kópavogi eða Garðahreppi. Uppl. i síma 25280.
Fiskibátar til sdlu
1 1 tonna nýlegur bátur.
1 5 tonna byggður 1 962 mjög góður bátur.
25 tonna frambyggður bátur með nýlegri vél og tækjum.
Asíufélagið h/f, Vesturgötu 2,
simi 26733,
c/o Páll Gestsson.
Tæknileiknarar
Aðalfundur Félags tækniteiknara verður haldinn í Glæsi-
bæ uppi, mánudaginn 11. marz 1 974 kl 8 30
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Mætið vel og stundvíslega.
Stjórnin.
Eignarlóð tll sölu
Hornlóð 263 fm á góðum stað í vesturbænum. Byggja
má tveggja hæða hús á c.a. 100 fm og tvo bílskúra.
Tilb. óskast fyrir þriðjudagskvöld, merkt: Sérstakt tæki-
færi — 4896.
Skólastiórar, kennarar
Krítarhöldurnar komnar aftur.
Verzlunin Blörn Krlsljánsson.
Vesturgötu 4, sími 1 4438.
Bátavél óskast
40 til 70 ha. Má vera bensínvél.
Uppl. í síma 94-1268 Patreksfirði.
Tllboö óskast
í eftirtaldar bifreiðar skemmdar eftir tjón:
Saab 96 árg. '71 Toyota Crown árg. '65. Bifreiðarnar
verða til sýnis á réttingarverkstæði Gísla og Trausta,
Trönuhrauni 1, Hafnarfirði, n.k. mánudag og þriðjudag.
Tilboðum sé skilað I skrifstofu vora Pósthússtræti 9,
Reykjavík, fyrir kl. 5 fimmtudaginn 14. marz.
Almennar Tryggingar h.f.
ÍTALÍUHÁTÍÐIN
1974
I Súlnasal Hótel Sögu, sunnudaglnn 10. marz:
Kl. 19.30 stundvíslega: Hátiðin sett —
ítölsk veizla — matur — vín og suðrænir
söngvar. — Matarverð aðeins kr. 695.00.
h Magnús Jónsson, óperusöngvari, syngur
vinsæla ítalska söngva.
-jfc- Myndásýning frá hinum eftirsótta sumar-
leyfisstað LIGNANO sem er uppgötvun
ÚTSÝNAR árið 1974.
+ Ferðabingó: Vinningar 3
ÚTSÝNARFERÐIR til Kaupmannahafnar,
Costa del Sol og Ítalíu.
PokahorniS ???
ýt Dans til kl. 01.00.
Vegna geysilegrar aðsóknar að Útsýnar-
kvöldum eru gestir beðnir að panta borð með
góðum fyrirvara hjá yfirþjóni og mæta stundvls-
lega.
Missið ekki af þessu einstæða tækifæri.
Útsýn tryggir ánægjulegt kvöld.
FERÐASKRIFSTOFAN ÚTSÝN.
Útsala
Brelðflrðingabúð Cuppí)
Verzlun, sem er hætt rekstri selur mikið magn af
vörum á ótrúlega lágu verði.
LandsmálafélaglÓ vöRDUR
- Vlötalstlml
Ragnar Júlíusson, formaður Varðar. verður
til viðtals á skrifstofu félagsins á Laufásvegi
46, þriðjudaginn 1 2. marz. kl. 5 — 7 síðdeg-
is.
Týr F.U.S.. Kópavogl
Fundur mánudag kl. 20.30. Fulltrúar S.U.S. maeta á fundinum.
Fjölmennið.
Stjórnin.
Sjálfstæólsíelögln í Boiungarvlk
hafa ákveðið að efna til prófkjörs vegna framboðs til hreppsnefndar-
kosninga i vor. Öllu stuðningsfólki Sjálfstæðisflokksins er gefinn kostur
á að tilnefna menn á prófkjörslista og skal tillögum skilað fyrir 1 2. marz
n.k. til eftirtalinna manna Benedikts Þ. Benediktssonar, Guðmundar
Agnarssonar, Halldóru Kristjánsdóttur, Jóns Fr. Einarssonar, Maríu
Haraldsdóttur, Ólafs Kristjánssonar og Sólbergs Jónssonar.
Uppstillangarnefnd.