Morgunblaðið - 10.03.1974, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. MARZ 1974.
t
Systir okkar,
KRISTÍN SVEINSDÓTTIR,
sem andaðist 3. þ.m., verður jarðsungin frá Þjóðkrikjunni i Hafnarfirði
mánudaginn 1 1. marz kl 14.
Guðrlður Sveinsdóttir, Jónatan Sveinsson,
Bótólfur Sveinsson, Sigurjón Sveinsson.
t
Móðir mín,
ANNA MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 1 1, þ.m. kl. 1 3.30.
Þeim sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á Slysavarnafélag
íslands.
Kalla Nielsen.
t
Útför eiginkonu minnar,
HÓLMFRÍÐAR KRISTJÁNSDÓTTUR,
sem andaðist að heimili slnu Hellisgötu 13, Hafnarfirði, fer fram frá
Þjóðkirkjunni, Hafnarfirði, þriðjudaginn 1 2. marz kl. 2. e h
Fyrir hönd vandamanna,
Valdimar Ingimarsson.
t
Maðurinn minn og faðir okkar,
SIGUROUR BREIÐFJÖRÐ ÞORSTEINSSON,
bifvélavirki, Bogahlfð 12,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 1 2. marz kl. 15.
Guðlaug Kristjánsdóttir og börn.
Okkar ástkæra móðir
DAGBJÖRT BERGMANN
Stóragerði 18
verður jarðsett þriðjudaginn 12. marzkl. 1 30 frá Fossvogskirkju
Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á minningarkort Bústaðar-
kirkju.
Hanna Bergmann Guðrún Bergmann
Ingibjörg Bergmann Jón Bergmann
Guðmundfna Bergmann Gíslaug Bergmann.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför
ÓLAFÍU G. HAFLIÐADÓTTUR,
Stórholti 43.
Sigríður Ólafsdóttir, Björn Óskarsson
Margrét Sigbjörnsdóttir, Guðmundur Óli Ólafsson
og barnabörn.
t
Alúðarþakkir fyrir vinsemd og hluttekningu við andlát og útför
ÞÓRUNNAR GUÐBRANDSDÓTTUR.
Fyrir hönd systkina, frændfólks og vina,
Ólöf Steingrfmsdóttir.
t Þökkum auðsýnda hluttekningu og samúð við andlát og jarðarför
JÚLÍÖNU J MAGNÚSDÓTTUR,
Bolungavlk.
Hans Magnússon, Steinunn Guðbrandsdóttir,
Kristln Magnúsdóttir, Sigurjón Sveinbjörnsson,
Sigrlður Maggý Magnúsdóttir, Ásgeir Sverrisson,
Salóme H. Magnúsdóttir, Jón Helgason,
Guðrún Magnúsdóttir, Sigurður Kristjánsson,
Jana Magnúsdóttir, Steinar Guðmundsson,
Jóhannes Magnússon, Rebekka Jónsdóttir,
Helga Guðmundsdóttir, Haukur Sigurðsson
Hólmfríður Magnúsdóttir, Rannveig Kristjánsdóttir.
og barnabörn.
Minning:
Einar Ogmundsson
vélsljóri Ytri-Njarövík
Min iífstíð er á fleygiferð,
ég flýti mér til grafar.
Þessi orð koma i hug mér, er ég
heyrði að vinur minn Einar
Ögmundsson væri látinn.
Einar var fæddur að Hellu í
Beruvík á Snæfellsnesi 26. feb.
1899; dáinn 3. mars 1974.
Foreldrar hans voru Sólveig
Guðmundsdóttir og Ögmundur
Andrésson, er þar bjuggu ásamt
12 börnum sinum, þar til hús
þeirra brann ótryggt og engu varð
bjargað. Þá getur hver og einn
hugsað sér ástæðurnar er fjöl-
skyidan stóð á rústunum.
Eftir þetta áfall flytur fjöl-
skyldan til Hellissands; þar deyr
Ögmundur 1922. Féll þá í hlut
Einars og elstu bræðranna að
hjálpa mömmu sinni með það,
sem eftir var, og varð Sólveig ekki
fyrir vonbrigðum með drengina
sina, því allir reyndust þeir dug-
legir til fanga og mestu dreng-
skaparmenn. Einar byrjaði ungur
sjóróðra, fljótlega varð hans rúm
vel skipað. Hann reyndist með
bestu ræðurum sinnar tíðar.
Einar var oft með mér á sjótrján-
um og er það ein af mínum
minnisstæðustu reynslustundum,
er hann féll í sjóinn og var lengi
ekki hugað líf, en sem betur fór
fékk hann að lifa og starfa með
góðum árangri. 19. okt. 1930
kvæntist Einar eftirlifandi konu
sinni Sigríði Sesselju Hafliðadótt-
ur frá Bergsholti í Staðarsveit;
þau eignuðust 8 börn og fara nöfn
þeirra hér á eftir:
Hrefna gift Guttormi Jónssyni,
Hafsteinn kvæntur Valgerði Jóns-
dóttur, Jóhanna gift Oddi Svein-
björnssyni, Trausti kvæntur
Erlu Jónsdóttur, Sólmundur
kvæntur Astrid Einarsson, Erna
gift Jóni Sigfússyni, Sæmundur
kvæntur Maríu Ögmundsdóttur.
Ungan son misstu þau er hét
Tryggvi tvíburabróðir Trausta.
Arið 1939 flytjast þau frá
Hellissandi til ytri Njarðvíkur þar
sem þau hafa búið siðan.
Einar lauk prófi í vélstjóra-
fræðum 5. júní 1939, var síðan
vélstjóri á bátum þar tii hann hóf
störf í frystihúsi bræðra sinna
Þórarins og Karvels meðan það
var starfrækt, en frá 1962 til
dauðadags vann hann sem pípu-
lagningamaður á Keflavíkur-
flugvelli. Það má með sanni segja
að skipst hafi á skin og skúrir hjá
Einari vegna veikinda konu hans;
ég hygg að hún sé eini íslending-
urinn, sem hefur þurft að fara
þrisvar til útlanda til hjartaað-
gerða. Það hefur verið mikil
reynsla fyrir fjölskylduna, en Sig-
riður hefur yfirstigið þetta allt
með sínum mikla trúarstyrk og
með einlægri samhjálp manns
síns og barna, sem liðu með
henni. En þrátt fyrir allt fyr-
ir allt þetta veikindastríð má
Jóhann Gunnar Krist■
jánsson — Minning
Dæm svo mildan dauða,
drottinn, þínu barni, —
eins og léttu laufi
lyfti blær frá hjarni, —
eins og lítill lækur
ljúki sínu hjali,
þar sem lygn i leyni
liggur marinn svali.
(Matthías J oehumsson).
HannJói frændi erdáinn.
Þegar mér barst andlátsfregn
hans var hugsun mín sú, að alltaf
kæmi dauðinn jafn mikið á óvart
og alltaf væri hann jafn miskunn-
arlaus. Fæddur var Jóhann Gunn-
ar, en svo hét hann fullu nafni
eftir móðurbróður sínum, Jó-
hanni Gunnari skáldi, að Örlygs-
stöðum í Helgafellssveit 16. janú-
ar 1908, og voru foreldrar hans
búandi þar, þau Þóranna Sig-
urðardóttir og Kristján Guð-
mundsson. Hann var einn 7 systk-
ina, og eru nú aðeins þrjú þeirra á
lífi, faðir minn Sigurður og tvær
systur, Unnur og Anna. Hjá Önnu
var hann heimilisfastur lengst af,
bæði meðan hún bjó i Arnarholti í
Stafholtstungum og eíns eftir að
t Eigmmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir
GUONI JÓNSSON,
fyrrv. prófessor
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni, þriðjudaginn 1 2. marz kl. 1 3.30
Blóm vinsamlegast afþökkuð.
Sigríður Einarsdóttir,
Gerður Guðnadóttir, Halldór Arinbjarnar,
Jón Guðnason, Sigrún Guðmundsdóttir,
Bjarni Guðnason, Anna G. Tryggvadóttir;
Þóra Guðnadóttir, Baldur Aspar,
Einar Guðnason, Súsanna A. Möller,
Bergur Guðnason, Hjördís Böðvarsdóttir,
Jónína M. Guðnadóttir, Sveinn P. Snæland,
Elín Guðnadóttir.
t
Hinum mörgu, sem minntust
ÞORVAROAR JÓNSSONAR,
Asparfelli 4,
þökkum við samúð, vinarhug og hjálp. Sérstaklega þökkum við
læknum og hjúkrunarliði gjörgæzludeildar Borgarsjúkrahússins, stjórn
og starfsmönnum Isaga h/f og húsfélögum við Asparfell.
Inga Herdls Harðardóttir.
sonur, foreldrarog systkini.
segja að þau hjón hafi
verið miklar lánsmanneskjur,
þar sem þau hafa haft einstakt
barnalán og átt traust sinna
mörgu vina. Sigriður og Einar
byrjuðu búskap sem leigjendur
hjá okkur hjónum, í Hraunprýði á
Hellissandí; voru þau ágætis sam-
býlisfólk.
Einar var léttur í lund, sfvinn-
andi og hugsandi um hag
heimilisins.
Sigriður fyrirmyndar húsmóðir,
þrifin og ráðdeildarsöm, enda
hefur þeim lánast vel á lífsleið-
inni.
Vinskapur tókst með okkur og
hefur haldist ávallt síðan og
síðustu ánægjustundirnar, sem
við áttum saman voru síðastliðið
haust, er þau komu í heimsókn,
við rifjuðum upp gamlar minn-
ingar og tíminn var fljötur að líða,
þökk sé þeim fyrir komuna.
Það var sama hvað Einar vann,
hann lagði sig allan fram til að
gera vilja síns húsbönda. Hann
vann öll verk sín af samviskusemi
og trúmennsku, það á því við hér:
,,Þú trúi og góði þjónn, yfir litlu
varstu trúr yfir mikið mun ég
setja þig.“
Sigríði konu Einars óskum við
hjónin að sú trú, sem hefur gefið
henni styrkinn til að sigrast á
sínum mörgu tvísýnu legum,
verði henni og börnum hennar
áfram leiðarljós, allar ólifaðar
stundir. Systkinum Einars og öll-
um venslamönnum sendum við
einnig sömu óskir. Svo kveð ég
Einar með þökk og vinir hans frá
Sandi þakka hans traustu tryggð
og minnast sem góðs drengs og
óska honum góðrar ferðar eftir að
hafa lokið langferð sinni hér um
lífsins haf.
Þótt að oss sæki sótt og hel,
vér samt því megum trúa,
að hér ef lifað höfum vel
oss heim er gott að snúa
til Drottins og í dýrðarvist
frá dauða leystu fyrír Krist
við sælu og blessun búa.
E.J.
Sigurjón Kristjánsson.
hún fluttist til Reykjavíkur, utan
sjö ár, sem hann bjó á Sandeyri á
Snæfjallaströnd með Unni systur
sinni og foreldrum sínum.
Jói frændi minn lét aldrei mik-
ið á sér bera og honum verður
bezt lýst með orðum móðurbróður
síns.
Þú varst aldrei hafinn
i heldri manna stétt.
En aumt gastu ekki vitað
og vildir gera rétt.
Þú varst aldrei með þeim,
sem mest kveður að,
en aldrei var þar autt,
sem þú áttir þér stað.
(Jóh. G. Sigurðss.).
Nú er þessi kæri frændi minn
allur, og mér er efst i huga þakk-
læti til Önnu frænku minnar og
barna hennar fyrir hvað þau
reyndust honum góð alla tíð.
Ég bið frænda mínum allrar
guðs blessunar og góðrar heim-
komu áland lifenda.
M.S.
SKILTI Á GRAFREITI
OG KROSSA
Flosprent s.f.
Nýlendugötu 1 4,
sími 1 6480.