Morgunblaðið - 10.03.1974, Síða 37

Morgunblaðið - 10.03.1974, Síða 37
 — MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. MARZ 1974. 37 Li I. iMl félk í fréttum OPIÐ BRÉF SOLSHENITSYNS Eins og komið hefur fram í fréttum var birt í fyrsta skipti opinberlega i París á laugar- daginn „opið bréf“ frá rithöf- undinum Alexander Solzhenit- syn til leiðtoga Sovétríkjanna, þar .sem Solzhenitsyn setur fram hugmyndir sínar um aðferðir til að komast hjá þeirri „þjóðarógæfu", sem ógni Sovét- ríkjunum. Bréfið er langt og var sett á markað i Paris í bókarformi, 52 bls. langt. — Og hér sést einn lesandinn. SJÓNVARPSÞÁTTA* METHAFINN HÆTTIR Lucille Ball — eða bara Lucy Ball, eins og við þekkjum hana — hefur nú tilkynnt CBSsjón- varpsfyrirtækinu bandaríska, að hún muni ekki gefa kost á sér til framhaldsþáttagerðar næsta haust og lýkur þvi 23 ára samfelldri sögu gamanþátta hennar. Hún hóf að leika i viku- legum sjónvarpsþáttum árið 1951, þá með eiginmanni sin- um, Desi Arnaz, og hétu þætt- irnir „Ég elska Lucy". Eftir skilnað þeirra árið 1960 hélt Lucy áram með þættina, en undir nýju nafni. _Hún er nú gift grinistanum Gary Morgan, sem hefur verið framleiðandi þátta hennar. — En Lucy er ekki alveg horfinn af skjánum þrátt fyrir þessa ákvörðun sína. Hún mun af og til koma fram í sérstökum skemmtiþáttum og kveðst hafa ýmsar hugmyndir í því sambandi, sem hana langi til að spreyta sig á. — Og svona i lokin skal þess getið, þótt vafalaust trúi þvi ekki nokkur maður, að Lucy Ball er nú 62 ára. FJÁRHIRÐIR ARSINS 26 ára gömul kona, Dorothy Bell, hlaut á dögunum þann heiður að vera valin fjárhirðir ársins í Englandi. Hún hlaut að verðlaunum 50 sterlingspund (tæplega 10 þús ísl. kr.) og bronsstyttu af fjárhirði (karlmanni) með hundinn sinn. Dorothy sér um 1800 ær i Cumberland. FYRIR ÖLLU AÐ VANDA SIG! Bobby Waters, kennari í Penmore Park í Englandi, ætlaði að láta sprauta bil sinn að nýju og vinur hans benti honum á málningarverkstæði í nágrenninu. „Þeir eru seinvirkir, en vandvirkir," sagði vinurinn. Þetta var fyrir fimm árum. Bobby hefur enn ekki fengið bílinn aftur af verkstæðinu. „Ég hef oft farið heim til eiganda verkstæðisins," segir Bobby, „og hann kallar mig nú orðið Bobby og býður mér te. En í hvert sinn segir hann mér bara, að bíllinn sé næstum því tilbúinn."Harold Thomas, eigandi verkstæðisins, segir um málið: „Ég er mjög vandvirkur. Þegar ég er búinn, verður þessi bill glæsilegasti Wolsey 16/60 af sinni árgerð hér um slóðir." Útvarp Reykjavík / Vi fclk f fjélmiélum Þátturinn frá Konsó, sem ekki mátti ná eyrum barnanna I dag kl. 18 er Stundin okkar á dagskrá sjónvarpsins, og þá flytur Katrín Guðlaugsdóttir kristniboði frásögu frá Konsó, þar sem hún starfaði ásamt manni sinum, Gisla Arn- kelssyni, um margra ára skeið. Katrín flytur formála að sög- unni, og það gekk ekki átaka- laust, að þetta efni fengist flutt í sjónvarpinu. Greint var frá þessu í frétt í blaðinu s.l. föstu- dag, en ástæða er til að fjalla nokkru nánar um þetta hér. Við Ríkisútvarpið er starf- andi „starfshópur til ráðu- neytis um val barnaefnis", og mun starfshópi þessum í upp- hafi hafa verið ætlað að vera til skrafs og ráðagerða i sambandi við val á sjónvarpsefni fyrir börnin, en þróun mála hefur síðan orðið sú, að starfshópur þessi hefur tekið að hafa frum- kvæði í þessu efni, og nú siðast hefur hann tekið að sér að gegna nokkurskonar rit- skoðunarhlutverki við Ríkis- útvarpið. Þegar upphaflega kom til tals, að Katrin Guðlaugsdóttir flytti söguna frá Konsó, var ætlunin að flutningurinn færi fram i sambandi við æskulýðs- og fórnarviku þjóðkirkjunnar. Katrín skilaði efninu til flutn- ings, en þá komu upp óvæntir erfiðleikar. Starfshópurinn eða „barnatímaráð“, eins og hópur þessi nefnir sig sjálfur, gat sem sé ekki fellt sig við formálsorð Katrínar að sögunni, og lagði til, að þau yrðu látin falla brott. Það sætti Katrín sig ekki við, en vildi að dagskráratriðið yrði annað hvort flutt i heild sinni eða ekki. Hófust þá samninga- umleitanir, og breytti Katrín formálsorðunum þá lítillega. „Barnatímaráðið" taldi breyt- inguna ófullnægjandi, en samdi sjálft formála með sinu eigin orðavali, og vildi, að Katrín flytti þá tölu á undan sögunni. Því neitaði Katrín, og lýsti „ráðið“ því þá yfir, að þetta efni gæti ekki komið í barnatíma útvarpsins. Gerðist nú ekkert i málinu þar til það kom til kasta hins raunverulega útvarpsráðs s.l. fimmtudag, en þá kom fram tillaga frá „barna- tímaráðinu“ um það að liður þessi skyldi falla niður i útvarpsdagskránni. Reyndust þrír útvarpsráðs- manna vera tillögunni fylgj- andi, þeir Njörður P. Njarðvik, Stefán Karlsson og Stefán Júliusson, en á móti voru Magnús Þórðarson, Tómas Karlsson og Valdimar Kristins- son. Féll tillagan á jöfnum at- kvæðum, en á þessum fundi var Ölafur Ragnar Grimsson fjar- staddur. SUNNUDAGUá 10. marz 8.00 Morgunandakt Herra Sigurbjörn Einarsson bLskup flytur ritninyarorð og bæn. 8.10 Fréttir og veðurfregnir. 8.15 Létt morgunlög Fílhamióniusveitin i Berlin leikur Ibg eftir St raussfeðga; Herbert von Karajan stj. (Hljóðritun frá Berlinar- út va rpinu). 9.00 Fréttir. Útdráttur úr forustugrein- um dagblaðanna. 9.15 Morguntónleikar. (10.10 Veður- f regn i r) a Requiem i d-moll (K626) eftirWolf- gang Amadeus Mozarl Sheila Arm- strong, Janet Baker, Nicolai Gedda Dietrich Fischer-Dieskau og Johan Aldis-kórim syngja meðEnsku kamm- erhljómsveitinnL Stjórnandi: Daniel Ba renboim. b. Oktett i Es-dúr op. 20 eftir Felix Mendelssohn-Bartholdy. Jascha Heifetz, Israel Baker, Arnold Belnick, Joseph Stephansky, Wi Uiam Primrose, Virginia Majewsky, Gregor Pjatigorský og Gabor Rejto leika. 11.00 Messa safnaðarheimili Grensáv sóknar að lokinni æskulýðs- og fórnarviku þjóðkirkjunnar. Prestur: Séra Halldór S. GröndaL Organleikari: Jón G. Þórarinsson. í messunni flytur æskulýðskór K.F.U.M. og K. söngbálkim „Eþiópiu" eftir séra Hauk Ágústsson undirstjórn Sigurðar Pálssonar við undirleik höf- undar. 12 15 Dagskráia Tónleikar. Tilkynn- ingar. 1225 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynninga r. 13.15 Friðun húsa álslandi Hörður Ágústsson listmálari flytur annaðhádeg iserindisitt. 14.00 Ellefu Jökull Jakobsson sér um viðtöl og kynningar en Páll Heiða r Jónsson um niðurröðun og samsetningu. 1S50 Miðdegistónleikar: Frá hollenzka út va rpi nu Promenade hljómsveit útvarpsins leik ur. StjcrnandL Ferdinand Terby. a „Namouna", svita eftir Eduard Lala b. „Habanera" eftir TheoLanglois. c. Sinfónískar myndir úr „Porgy og Bess" eftirGeorge Gershvvin. 1625 Þjóðlagaþáttur K ristín Ólafsdóttir k>nnirlögin. 16.55 Veðurfregnir. F'réttir. 17.10 Útvarpssaga bamanna: „óli og Maggi meðgu llleitarmönnum" Höfundurinn, Ármann Kr. Einarsson, les (2). 17.30 Stundarkorn með gitarleikaranum GonzalesMohino 17.50 Endurtekið efni: Tveir brezkir Ís- landsvini r Anna Snorradóttir talar um William Morris og Mark Watson. (áðurútv. sumarið 1972) 18.15 Tónleikar. Tilkynningar. 1845 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19 25 B a rið a ð dyru m Þórunn Sigurðardótti r he imsækir Sig- rúnu Jónsdóttur og fjölskyldu hennar á Háteigsvegi26, Reykjavik. 19.55 Sinfcnfuhljómsveit tslands leikur fslenzka tónlist Stjórnendur: Hans Antolitsch, Bohdan Wodiczko ogOlav Kielland. a „Jón Arason", forleikur eftirKarl O. Runólfsson. b. Sex vikivakar eftir Karl O. Runólfs- son. c Kansóna og vals eftir Helga Pálsson. 20.20 Fulltrúar andans frá Kina: Konfúslus Dagur Þorleifsson tók saman efnið, sem flutt er undir stjórn Páls Heiðars Jónssonar. Lesarar með Degi: Vilborg Dagbjartsdóttir og Hjörtur Pálsson. 21.20 Einleikur á pfanó: Vladimir Horo witzleikur a Sónötu í c-moll op. 13 eftir Beet- hoven. b. Tvær prelúdiur eftirDebussy. 21.45 Um átrúnað: Úr fyrirbrigðafræði trúarbragða Jóhann Hannesson flytur fimmta erjndi sitL 22.00 Fréttir. Á skjánum SUNNUDAGUR 10. mars 16.00 Endurtekið efni Kraftaverkið Bandarisk biómynd frá árinu 1962, byggðá heimildum um æskuár Helenar Keller. Aðalhluthver Anne Baneroft og Patty Duke. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. Áður á dagskrá 25. desembe r 1973. 18.00 Stundin okkar Meðal efnis í þættinum er mynd uti Róbert bangsa og mynd um Finnlands ferð Rikka ferðalangs. Börn af bama- heimilinu Brákarborg syngja nokkur lög, og börn úr Myndlista- og handiðu- skólanum leika á hljóðfæri, sem þau hafa sjálf smiðað, og loks verður sýnt, hvemi g búa átil dósafiðlu. Umsjónarmenn Sigriður MargrétGuð- mundsdóttir og Hermann Ragnar Stefánsson. 18.50 Gítarskólinn Gítarkennsla fyrir byrjendur. 5.þáttur endurtekinn. Kennari Eyþór Þorláksson. 19.20 Hlé 20.00 Fréttir 20.20 Veður og auglýsingar 20.25 Þaðerukomnirgestir Elin Pálmadóttir ræðir við Bergþóru Sigurðardóttur, Láru Ragnarsdóttur og Sigrúnu Harðardóttur i sjónvarpssal. 22.15 Veðurfregnir Danslög Guðbjörg Pálsdótti r velur lögin. 23.25 Fréttiri stuttu máli. Dagskrárlok. MÁNUDAGUR 11. marz 7.00 Morgunútvarp Veðurfregnir kl 7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugrl landsm. bl. )9.00og 10.00. Morgunleikfimi kL 7.20: Valdimar Örnólfsson leikfimikennri og Magnús Pétursson pianóleikari (alla virka daga vikunnar). Morgunbæn kl. 7.55: Séra Gisli Brynjólfsson flytur (av.dv.). Morgunstund bamanna kl. 8 45: Þor- leifur Hauksson heldur áfram lestri sögunnar „Elsku Mió minn" eftir AstridLindgren i þýðingu Heimis Páls- sonar (9). Morgunleikfini kl 9.20. Tilkynningar kl. 9.30. Léttlög á milli liða. Búnaðarþáttur kl. 10.25: IngiTryggva- son blaðafulltnii segir f rá ráðstefnu noriænna ungbænda á Leirá i Borgar- firði. Passfusálmabg kL 10.45: Þuriður Páls- dóttir, Magnea Waage, Erlingur Vigfússon ogKristinn Hallsson s>Tigja Páll ísólfsson leikur á orgeL Sigurður Þórðarson radd setti lögin. Tónlist eftir Gluck kL 11.00: Pilar Lorengar, Hermann Prey.Erika Köth, RIAS-kammerkórinn og Sinfcniu- hljómsveit Berlinar flytja atriði úr óer- unni „Orfeus og Evrydike". / Hartford- hljómsveitin leikur danssýni na rlög; FritzMah lerstj. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynning- ar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilk>nn- ingar. 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Sfðdegissagan: „Föstuhald rabbíans" eftirHarryKamelman Kristin Thorlacius þýddL Séra Rögn- valdurFinnbogason les (4). 15.00 Miðdegistónleikar: Blásarasveit Lundúna leikur Serenötu i Es-dúr (K375) eftir Mozart; Jack Breymer stj. Fflharmóniusveit Vínarborgar leikur Si nfóniu nr . 5 í c-mol op. 67 eftir Beet- hoven ;Hans-Schmidt-Isserstedt stj. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. 16.15 Veðurfregnir 1625 Popphornið 17.10 „Vindum, vindum, vefjum band" Anna Brynjúlfsdóttir sér um þátt fynr yngstu hlastendurna. 17.30 Framburðarkennslai esperanto 17.40 Tónleikar 18.00 Neytand inn og þjóðfélagð Tryggja visitölubætur á kaup kaup- mátt launa? Ólafur Björnsson prófessor raeðir við Asmund Stefánsson hagfiæðing starfs- mann alþýðusambandsins. 18 15 Tónleikar. T1 Ikynningar. 1845 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilk.vnningar. 1 9 25 Dag leg t mál HelgiJ. Halldórsson cand. mag. talar. 19.30 Um daginn og veginn 19.55 Blöðinakkar Umsjón: Páll HeiðarJónsson. 20.05 Mánudagslögin 20.35 Hvert er gildi langrar skóla- skyldu? Steinn Stefánsson skólastjóri á Seyðis- firði flytur erindi. 20.50 Samleikur á selló og píanó frá júgóslauieska útvarpinu Milos Mlejnik og Vlasta Dolezal-Rus leika. a Rapsódiunr. 1 eftirBélaBartók. b. Sónötu eflirClaude Debussy. 21.10 íslenzkt mál Ásgeir Blöndal Magnússon cand. mag. talar. 21.30 Útvarpssagan: „Glsla sagaSúrsson- a/* Silja Aðalsteinsdóttir les (3). 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir Lestur Passíusálma Valbjörg Kristmundsdótti rles (25). 22.25 Eyjapistill 22.45 Hljcmplötusafnið i umsjá Gunnars Guðmundssonar. 23.40 Fréttiri stuttu málL Dagskrárlok 21.00 Enginn deyr I annarsstað Austur-þýzk framhaldsmynd, byggð á sögu eftir Hans Fallada 2. þáttur. Þýðandi Öskarlngimarsson. Efni 1. þáttar: Myndin hefst i Berlin sumarið 1940. Trésmiðurinn Otto Quangel fær fréttir um, að einkasonur hans hafi fallö á vigstöðvunum. Skömmu siðar verður hann vitni að þvi, að nágrannakoria hans afGyðingaættum styttirsér aldur eftir yf iiheyrslur Gestapomanna. Þáer Quangel nóg boðið. Hann ákveður að hefja leynilega andspyrnu gegn Hitler, og tekur fyrst til við að dreifa póstkort- um í f jölbýlishúsum með áletruninni „Móðir! Foringinn hefur myrt son þim." Einnig kom nokkuð við sögu iðjuleysingim Kluge, sem ergreílvik inn við Gestapo. En kona hans.sem er bréfberi að atvimu. er hins vegar hlö- holl andjpyrnumönnum. 22.10 Mannréttindi í Sovétrfkj unum Svipmyndir, umræður og hugleðingar umalmenn réttindi sovéskraþegna. Þýðandi og þulur Ingi Karl Jóhannes son. (Nordvisicn — Danska sjónvarpið) 22.35 Aðkvöldidags Sgurður Bjamason, prestur Aðvent- istasafnaðanns, flytur hugvekju. 22.45 Dagskrárlok

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.