Morgunblaðið - 16.03.1974, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MARZ 1974
XI
571 á
atvinnu-
leysisskrá
571 maður var á atvinnuleysis-
skrá á landinu um sfðustu mán-
aöamót, en mánuði áður var 941 á
atvinnuleysisskrá. Munaði mest
um, að í kaupstöðum landsins
fækkaði atvinnulausum um 205,
eða úr 586 í 281. IVIesta fækkunin
var í Reykjavík, 104, og í Hafnar-
firði, 90.
Atvinnuleysið var mest á þess-
um stöðum:
Reykjavík 40, Akranes 24,
Stykkishólmur 27, Bildudalur 29,
Drangsnes 13, Hólmavík 10,
Blönduós 10, Sauðárkrókur 17,
Siglufjörður 154, Hrísey 13, Dal-
vík 35, Akureyri 17, Þörshöfn 21,
Vopnafjörður 43, Stokkseyri 26,
Eyrarbakki 31 og Hafnarfjörður
21. Annars staðar voru færri en
10 á atvinnuleysisskrá.
Ala-Non opn-
ar skrifstofu
ALA-NON, félag aðstandenda
drykkjufólks, hefur ákveðið að
opna upplýsingaskrifstofu að
Tráðarkotssundi 6, og verður vakt
í síma 19282 á mánudögum og
fimmtudögum kl. 3—4. Allt
áhugafólk um velgengni drykkju-
fólks getur leitað upplýsinga um
Ala-Non, sem hefur starfað í l‘/4
ár með góðum árangri og heldur
fundi annan hvern laugardag í
safnaðarheimili Langholtssóknar
við Sólheima. Aðstandendur og
vinir drykkjufólks ræða vandamál
sin og á hvern hátt þeirgeta orðið
hver öðrum til aðstoðar, svo og
þeim heimilum, sem drykkjusýk-
in herjar á, að því er segir f frétta-
tilkynningu frá Ala-Non.
Stolið frá
gömlum manni
Undanfarna mánuði hafa verið
nokkur brögð að því að farið væri
inn í ibúð aldraðs manns, sem í
mörg ár hefur buið að Bjarnarstig
3. Maðurinn hefur mikið þurft að
fara út af heimili sínu vegna
starfa síns og þá enginn verið í
húsinu. Maðurinn hefur þrásinnis
orðið var við, að farið hefur verið
inn á heimili hans án þess að
brjótast inn og stolið ýmsum per-
sónulegum hlutum, sem jafnvel
hafa verið geymdir í læstum hirzl-
um. Þrátt fyrir leit lögreglunnar
hefur ekki tekizt að hafa upp á
mönnunum, sem þetta stunda.
Sex sækja um
lektorsstöðu
HINN 25. febrúar rann út
umsóknarfrestur um lektorsemb-
ætti í nútímabókmenntum við
Háskóla íslands. Umsækjendur
eru 6, þeir Heimir Þorleifsson,
Haukur Ingibergsson, Jón Mar-
geirsson, Jón Guðnason, Björn
Teitssön og Gunnar Karlsson.
Embættið verður veitt með
vorinu og á sá e'r hlýtur embættið
að hefja störf við upphaf næsta
skólaárs.
Þúsund
kvöddu
Gaul
Hull, 14. marz.NTB.
UM þúsund manns voru f dag
viðstaddir minningarathöfn um
skipverjana 36 á brezka togaran-
um Gaul frá Hull, sem hvarf 8.
febrúar síðastliðinn. Gaul var eitt
nýjasta og öruggasta fiskiskip
Brttlands, rúmlega þúsund lestir
að stærð. Skipið hvarf gersam-
lega, ekkert brak hefur úr því
fundizt og enginn hefur hugmynd
um, hvað fyrir kom. Geysivíðtæk
leit var gerð að því á sínum tíma
TRÁUSx
BÍLASALA VITATORGI I Til sölu:
Mercury Cougarárg '67 Peugeot 404 '68,
Sérlega fallégur bfll. Cortina 1300'67,'69 og'71,
Ford Torino árg. '71, Saab ‘66 og '71,
Chevrolet Nova'70, Volkswagen'70. '71 og'72,
Toyota Crown '72, Bronco '66 og '67.
I Bifreiðaeigendur athugið í dýrari og ódýrari bílum. i mörgum tilfellum möguleiki á skiptum á
Opið alla daga (nema sunnudaga.) frá 10.30—1 9.00.
I SIMI — 12500 — 12600 1
Nyínnfluttir .
BILAR
til sölu
Chevrolet Malibú árg. 1971 ekinn 24 þús. mílur.
Chevrolet Rally Nova árg. 1971, ekinn 24 þús. mílur.
Chevrolet Nova árg. 1971, ekinn 37 þús. mílur.
Chevrolet Camaro árg. 1 969, ekinn 36 þús. mílur.
Bílarnir eru allir sjálfskiptir og með aflhemlum og aflstýri.
Upplýsingar í símum 42072 og 40716, laugardag og
sunnudag kl. 13.00—18.00
Styrkir
til námsdvalar I Frakklandi sumarið 1 974.
Franska ríkisstjórnin hefur í hyggju að veita á sumri komanda nokkra
styrki handa íslendingum til námsdvalar í Frakklandi í einn mánuð (júli,
ágúst eða september). Hver styrkur nemur 600 frönkum á mánuði. Til
greina koma við styrkveitingu háskólastúdentar, kennaraháskólanemar.
tækniskólanemar, nemendur i tveimur efstu bekkjum menntaskóla,
Verzlunarskóla íslandsog Samvinnuskólanum
Styrkirnir eru veittir til þátttöku í námskeiðum við ýmsa háskóla í
Frakklandi, og verður þar einkum kennd franska. Þeir munu að öðru
jöfnu ganga fyrir til styrkveitingar, sem hyggja á háskólanám í
Frakklandi eða frönskunám við Háskóla íslands.
Franski sendikennarinn við Háskóla fslands, Jacques Raymond (heima-
sími 11 653), veitir nánari upplýsingar um styrki þessa.
Skriflegar umsóknir sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6.
Reykjavlk, fyrir 5. april n.k. Fylgja skal Ijósrit af nýjasta prófskirteini,
svo og meðmæli skólastjóra eða kennara.
Menntamá laráðuneytið,
1 1. mars 1 974.
Aðalfundur
Samvinnubanka íslands h.f., verður haldinn að Hótel
Sögu, (hliðarsal), laugardaginn 23. marz 1974 og hefst
kl. 14.00.
Dagskrá skv. 18. gr. samþykktar fyrir bankann.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundarins verða
afhentir i aðalbankanum, Bankastræti 7, dagana
20. — 22. marz, svo og á fundarstað.
Bankaráð Samvinnubanka íslands h.f.
NYJUNG
Hljóðeinangraðir — hreifanlegir veggir frá
ACORDIAL & CO í Oldenburg er bylting f
byggingariðnaðinum. bér getið auðveldlega, án
verkfæra eða aÓstoÓar, breytt einu herbergi
I tvö minni, án nokkurra skemmda. —
Engar brautir, hvorki f lofti eða gólfi.
Þessi mynd sýnir fyrstu einingu rennt Þessi mynd sýnir hvernig einingunni er Hér sést þegar tvær einingar eru þegar
að veggnum. fest með þrýsti afli. Gúm-þéttilistar við komnar upp. Hægt er að fá einingar
loft og gólf. með gleri t.d. fyrir skrifstofur.
flllar einingar er hægl að fá með
pðleruðum vlð. og ennlremur undir málnlngu.
Hllððeinangrun 35 dB stefnt er að 41 dB.
ARKITEKTAR,
vinsamlegast hafið samband við okkur og munum
við veita yður alla upplýsingar og senda yður
myndalista.
^Ttó^^glHigatjnld
^ ^Lindargötu 25-Símar 13743 og 15833